Morgunblaðið - 13.07.1993, Page 1
80 SIÐUR B/C
155. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stj órnlagaþingið í Rússlandi
Tillögnr forset-
ans samþykktar
Moskvu. Reuter.
SÉRSTAKT þing fulltrúa frá 88 lýðveldum og sjálfsstjórnarhéruð-
um Rússlands samþykkti i gær drög Borísar Jeltsíns forseta að
nýrri stjórnarskrá með 433 atkvæðum af 585 alls og var það
nægilegur meirihluti. Forsetinn kallaði þingið saman í andstöðu
við harðlínumenn sem ráða lögum og lofum á fastaþingi landsins.
gjafarvald, lagt niður en stofnað
nýtt þing í tveim deildum er minnir
á tilhögun Bandaríkjamanna.
Völd heim í hérað
Er úrslitin voru ljós viðurkenndi
Jeltsín að enn væri mikil barátta
eftir þar sem þingin í hverju héraði
þurfa nú að fjalla um drögin. Óljóst
er hve langan tíma það tekur en
vitað er að Jeltsín vill nýjar þing-
kosningar þegar í haust.
Mörg héraðanna leggja áherslu á
að fá sem mest vald í eigin málum.
I sumum þeirra er því mótmælt að
skatttekjur sambandsstjómarinnar
séu notaðar um of til að aðstoða
lýðveldin. Þau síðarnefndu eru flest
lítil en hafa meira sjálfstæði enda
mörg þeirra byggð öðrum þjóðum
en Rússum.
Jeltsín lét undan ýmsum kröfum
fulltrúanna um breytingar á drög-
unum til að tryggja framgang máls-
ins. Umbætur á stjómarskránni,
sem löngu er orðin úrelt enda að
miklu leyti frá sovétskeiðinu, hafa
verið í sjálfheldu vegna þess að
harðlínuöfl á fastaþinginu hafa
þæft málið.
Samkvæmt drögunum verður
vald forsetans stóraukið og fulltrúa-
þingið, sem komið hefur saman
tvisvar á ári og fer með æðsta lög-
Snarpir
skjálftar
Kínveijar bíða eftir frelsi
ÞRJÚ skip með hundruð kínverskra flóttamanna Á myndinni sigla bandarískir strandverðir að einu
innanborðs biða nú við strönd Kaliforníu og banda- skipanna og flóttamennirnir halda á spjöldum þar sem
rísk yfirvöld hafa neitað fólkinu um landvistarleyfi. þeir tjá þrá sína eftir frelsi.
í Japan
ítalir krefjast þess að hernaðaraðgerðum í Sómalíu verði hætt
Tókýó. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti fjórir menn
biðu bana í tveimur öflugum
landskjálftum sem riðu yfir
norðurhluta Japans í gær og
miklum flóðbylgjum í kjölfarið.
Fyrri landskjálftinn mældist 7,8
stig á Richters-kvarða og skjálfta-
miðjan var á 50 km dýpi í hafinu
norðvestur af eyjunni Hokkaido.
Hinn skjálftinn mældist 5,4 stig og
varð á svipuðum slóðum.
Sjónvarpsstöðvar sögðu hættu á
rúmlega þriggja metra háum flóð-
öldum eftir skjálftana og hvöttu
fólk í norður- og vesturhluta lands-
ins til að fara frá ströndinni.
Fréttamenn myrtir til að
hefna árásar á Aideed
Mogadishu, Róm. Reuter, The Daily Telegraph.
TALIÐ er að a.m.k. 16 Sómalir hafi beðið bana í gær þegar banda-
rískar herþyrlur gerðu árás á aðalstöðvar sómalska stríðsherrans
Mohameds Aideeds. Reiðir Sómalir hefndu árásarinnar með því
að myrða fjóra starfsmenn vestrænna fréttastofa. ítalir krefjast
þess að hernaðaraðgerðum Vesturlanda í Sómalíu verði hætt.
Söngleikur
slærígegn
íLondon
NÝJASTI söngleikur Andrews Lloyds
Webbers, Sunset Boulevard, hefur þegar
slegið í gegn, ef marka má forsölu að-
göngumiða, en söngleikurinn var frum-
sýndur í London í gærkvöldi. Nú hafa
selst aðgöngumiðar fyrir rúmlega fjórar
milljónir punda, um 43 milljónir króna,
jafnvel þótt miðaverð sé hærra en geng-
ur og gerist í bresku leikhúsunum og
kostar miðinn 32 pund, um 3500 krón-
ur. Þetta er mesta forsala sem um getur
í sögu leikhúsa í London. Söngleikurinn
er byggður á samnefndri bíómynd frá
sjötta áratugnum með Gloriu Swanson
og William Holden í aðalhlutverki. Titil-
lag söngleiksins hefur þegar náð tölu-
verðum vinsældum en það er sungið af
Barböru Streisand. Myndin er af Webber
áður en frumsýningin hófst í gær.
Reuter
Skotið var eldflaugum og af vél-
byssum á hús innanríkismálaráð-
herra Aideeds, sem er í miðborg
Mögadishu. Haft var eftir Sómölum
að þar hefði staðið yfir fundur í rík-
isráði Aideeds, en þær fregnir hafa
ekki fengist staðfestar. Árásin var
gerð í kjölfar viðvarana Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) um að hersveitir
Aideeds yrðu afvopnaðar með valdi
ef þær létu ekki vopn sín af hendi
í samræmi við alþjóðlega friðaráætl-
un. Undanfarnar þijár vikur hafa
sveitir SÞ hvað eftir annað orðið
fyrir árásum leyniskyttna og manna
sem beita vopnum gegn skriðdrek-
um.
Barðir til bana
Eftir árásina í gær báru reiðir
Sómalir lík 16 fórnarlamba að hót-
eli sem vestrænir fréttamenn gista.
Sagt var að alls væru líkin 29 tals-
ins, og talsmaðúr Aideeds sagði að
74 Sómalir hefðu látist í árásinni
og 200 særst. Ekki var unnt að fá
þessar tölur staðfestar, þar eð Sóm-
alir hindruðu aðgang fréttamanna
að sjúkrahúsum í borginni.
Sómalir, sern sögðust á vegum
Aideeds, fengu tvo vestræna frétta-
menn með sér til að skoða bygging-
una sem ráðist var á og lofuðu þeim
vernd. Þegar fréttamennirnir komu
þangað réðust æfír Sómalir að þeim
og börðu þá til bana. Tveir Kenýu-
menn, sem störfuðu fyrir Reuters
voru einnig myrtir í miðborginni.
Hernaði verði hætt
Varnarmálaráðherra Ítalíu, Fabio
Fabbri, sagði eftir ríkissljórnarfund
í gær, að þess yrði krafist að Banda-
ríkin og SÞ létu af hernaðaraðgerð-
um í Sómalíu til þess að draga
mætti úr spennunni í landinu. „Við
verðum að endurskoða markmiðið
með aðgerðunum í Sómalíu,“ sagði
Fabbri. „Reyna þarf að koma á við-
ræðum á ný.“
♦ ♦ ♦
PLO ræðir
við Israela
Túnisborg. Reuter.
FORYSTUMENN Frelsissam-
taka Palestínumanna (PLO)
skýrðu frá því í gær að samtök-
in hefðu efnt til fyrstu beinu
viðræðnanna við ísraelsstjórn.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, stað-
festi að viðræður háttsettra fulltrúa
samtakanna' og ísraelsstjórnar
hefðu farið fram í Washington í
júní en þær hefðu ekki borið árang-
ur. ísraelsstjórn hefur bannað
samningaviðræður við Frelsissam-
tök Palestínumanna á þeirri for-
sendu að þau séu hryðjuverkasam-
tök sem stefni að því að tortíma
Ísraelsríki.