Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 Tilmæli íslenskra stjómvalda vegna tyrkneska foiræðismálsins Svar frá Tyrklandi væntanlegt í viknnni FARUK Okandan, aðalræðismanni íslendinga í Tyrklandi, berst skriflegt svar við tilmælum Ingva S. Ingvarssonar, sendi- herra í Kaupmannahöfn, vegna tyrkneska forræðismálsins, síðar í þessari viku. Tilmælunum hefur verið komið til þriggja ráðuneyta í Ankara. Ekkert varð úr fyrirhuguðum fúndi Halims A1 og lögfræðinga beggja aðila í Istanbúl um helgina. Okandan sagðist hafa afhent tilmæli Ingva, vegna umgengnis- réttar Sophiu og öryggis hennar og fylgdarliðs hennar, í utanríkis- ráðuneyti Tyrklands í Ankara í síðustu viku. Þaðan hefði þeim verið komið til ráðuneyta dóms- mála og innanríkismála. „Eftir á hef ég leitað eftir viðbrögðum og fengið þau svör að skriflegt svar um aðgerðir í framhaldi af tilmæl- unum myndi berast til mín í þess- ari viku,“ sagði Okandan. Útlendingar jafn réttháir Hvað framgang málsins hingað til varðaði tók Okandan fram að ekki skipti máli að Sophia væri útlendingur í Tyrklandi. „Ef tyrkn- eskir dómstólar rétta samkvæmt tyrkneskum lögum skiptir ekki Ynáli hvort báðir málsaðilar eru Tyrkir, annar útlendingur, eða báðir, sá seki er dæmdur til refs- ingar og verður að hlíta henni. Hvað umgengnisréttinn varðar er Halim án efa sekur og verður að gjalda fyrir brot sitt,“ sagði Ok- andan. Hann sagði aðspurður að yfir- leitt tækju forræðismál í Tyrklandi ekki jafn langan tíma og mál Sop- hiu. Slíkt gæti þó komið fyrir ef um sérstaklega flókin mál væri að ræða. Málalyktir Okandan sagði ljóst að ef lög- regla gæti haft uppi á Halim og dætrum hans gæti hún fært hann í fangelsi en þær til móður sinnar eins og umgengnisréttur kvæði á um. Hann vildi hins vegar engu spá um framtíðarforræði og sagð- ist sjálfur líta svo á að málið yrði ekki endanlega útkljáð fyrr en systurnar gætu sjálfar valið sér dvalarstað við átján ára aldur. VEÐURHORFUR í DAG, 13. JÚLÍ YFIRLIT: Norður af Jan Mayen er 1.007 mb lægð sem grynnist og minnk- andi lægðardrag fyrir austan iand. Dálítill hæðarhryggur á Grænlands- hafi þokast norðaustur. SPÁ: Fremur hæg breytileg átt, víða hafgola. Skýjað norðanlands og austan og ef til vill súldarvottur á annesjum í morgunsárið en léttir heldur til síðdegis. Bjart veður að mestu sunnanlands og vestan. Norðan- lands hlýnar nokkuð og um sunnanvert landið verður 12-16 stiga hiti. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Hæg breytileg eða austanátt, fremur svalt, einkum við N- og A-ströndina. Hætt við síðdegisskúrum víða um land. HORFUR Á FIMMTUDAG: Vaxandi austanátt syðst á landinu. Dálítil súld eða skúrir á Suðausturlandi en allvíða bjart veður í öðrum landshlut- um. Hlýnandi veður. HORFUR Á FÖSTUDAG: Austanstrekkingur sunnanlands en hægari norðantil. Súld eða rigning á Suður- og Austurlandi og liklega einnig á Vesturlandi. Þurrt norðanlands og á Vestfjörðum. Sæmilega hlýtt nema við austurströndina. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. 7^1 r'4'? /T*"* Sunnan, 4 vindstig. "(V \/~\ *r \ ( \ Vindörin sýnir vindstefnu v_ ) <1311, 'eaœíW og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjáð Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. , r r * , * * * * • I * 10° Hitastig *v, V v V v súid J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél Él = Þoka , FÆRÐÁ VEGUM: Greíðfært er um þjóðvegi landsins og flestir hálendisvegir orðnir færir fjallabílum. Þó er enn ófært um Syðra-Fjallabak og um Nyrðra-Fjallabak milli Landmannalauga og Eldgjár, Gæsavatnaleið og leiðirnar frá Sprengi- sandi tii Skagafjarðar og Eyjafjarðar eru ófærar. Einnig er leiðin lokuð um Stórasand og um línuveginn við Hlööufell. Víða er unnið við vega- gerð, og eru vegfarendur að gefnu tilefni beðnir að virða þær merking- ar sem þar eru. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 6 alskýjað Reykjavík 10 léttskýjað Björgvin 11 skýjað Helslnki 23 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 rigning Narssarssuaq 3 alskýjað Nuuk 7 skýjað Ósló 16 rigning Stokkhóimur 18 rigning Þórshöfn 8 skýjað Afgarve 27 heiðskfrt Amsterdam 13 skúr Barcelona 22 skýjað Beriín 17 skýjað Chicago 18 léttskýjað Feneyjar 22 heiðskírt Frankfurt 15 skruggur Glasgow 16 skýjað Hamborg 16 skýjað London 17 skýjað LosAngeles 18 alskýjað Lúxemborg 14 þrumuv Madrtd 26 heiðskírt Malaga 26 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal 20 skúr NewYork 28 léttskýjað Oriando 26 léttskýjað Parfs 13 skúr Madeira 21 skýjað Róm 25 léttskýjað Vin 19 akýjað Washington 27 mistur Winnipeg 11 úrkoma Morgunblaðið/HG Hvalreki við Selárdal FJÓRTÁN metra langan hnúfubak rak dauðan á fjörur undan Selárdal í j Amarfirði aðfaranótt síðastliðins laugardags. Ólafur Gíslason, bóndi á Neðri-bæ í Selárdal segir að hvalurinn virðist nýlega dauður, þó hann sé þegar mikið uppblásinn. Hann virðist hafa skriðið inn á Qöruna á bakinu i og situr nú sem fastast. „Mér skilst að þetta sé hnúfubakur. Þeir höfðu * samaband við mig frá Hafrannsóknastofnun og báðu mig að taka mynd af sporðinum, en þeir þekkja þessar skepnur af þeim og eiga aragrúa af mynd- , um af hnúfubakssporðum. Það sést enginn áverki á hvalnum svo hugsan- ' lega hefur hann orðið sjálfdauður, þó maður viti litið slíkur búhnykkur hér áður fyrr, að mannvíg urðu út af þeim, en í dag hefur maður nóg að bíta og brenna og ég hyggst ekki nýta mér hvalinn til matar," segir Ólafur í samtali við Morgunblaðið. Ólafur segir óvíst hvað verði gert, en verði hvalur- inn látinn kyrr, sé hætta á grútarmengun í fjörunni, öllum til óþurftar. Þetta sé hins vegar gríðarþung skepna og þurfi mikið til að ná henni út. Framfærsluvísitalan , JUií 1993 de?,?) Ferðir og flutningar (18,6) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,5) Matvörur(17,1) -1,6%| Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. (6,8) Föt og skófatnaður (6,3) Drykkjarvörur og tóbak (4,3) Heilsuvemd (2,5) Aðrar vömr og þjónusta (14,3) Vísitala vöm og þjónustu FRAMFÆRSLUVÍSITALAN Tðluf í svígum vísa til vægis einstakra liða af 100. 10,1 % -o,i%| 10,7% 10,2% 10,2% 0,2% | 3,1 % 13,9% Breyting frá fyrri mánuði |1,0% 10,9% FramfærsluvísitaJa hækkaði um 0,9% VÍSITALA framfærslukostnaðar hækkaði um 0,9% frá júní- til júlí- mánaðar. Vísitala vöru og þjónustu reyndist vera 171,2 stig og hækk- aði um 1,1%. Siðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostn- aðar hækkað um 3,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur visitalan 1 hækkað um 1,1% sem jafngildir Mat- og drykkjarvörur lækka um 1,6% sem veldur 0,27% lækkun vísi- tölu framfærslukostnaðar. Af ein- stökum verðbreytingum má nefna lækkun á nýju kjöti um 2,4% og lækkun á mjólkurvörum um 4%. Grænmeti og ávextir lækka um 4,3%. Nýir bílar hækkuðu um 5,9% og bensín um 2,4%. I júlí var 14% virð- isaukaskattur lagður á afnota- og áskriftargjöld sjónvarps, bækur, blöð og tímarit. Afnota- og áskrift- argjöld sjónvarps hækkuðu um 14% en bækur, blöð ogtímarit um 11,6% að meðaltali. ,4% verðbólgu á heilu ári. Enn talinn í lífshættu PILTURINN sem slasaðist í Þjórsárdal sunnudaginn 6. júlí liggur á gjörgæsludeild Borgar- spítalans og er enn talinn í lífs- hættu. Hann hlaut slæm beinbrot og innvortis blæðingar í slysinu. Slysið varð á útihátíð sem haldin var í Þjórsárdal. Pilturinn, sem er 18 ára, varð undir rútu, þannig að afturhjól hennar fóru yfir hann. Kuldatíð í Mývatnssveit BjBrk, Mývatnssvcit. SANNKÖLLUÐ kuldatíð hefur verið í Mývatnssveit að undanförnu. Gránað hefur í þau fjöll' sem næst eru. Hiti hefur farið niður undir frostmark undanfarnar nætur og jafnvel ekki mælst meiri en þijár gráður á óopinbera mæla yfir hádaginn. Ferðamenn eru þrátt fyrir kuldann töluvert margir, bæði á tjaldstæðum og í annarri gistingu, og þeir eru talsvert á gönguferðum um sveitina kuldalega klæddir. Heyskapur gengur treglega í þessari tíð þvi þurrkar hafa verið litlir sem engir. Eitthvað hefur þó verið slegið en annað sprettur úr sér. Talsverðar kalskemmdir voru hér víða í túnum í vor en eftir því sem á hefur liðið er eins og skellumar hafi eitthvað minnkað. Kristján

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.