Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
3
Beint í
3. sætið
PLATA Bjarkar
Guðmundsdótt-
ur, Debut, fór
beint í 3. sætið
á breska vin-
sældalistanum
um helgina.
Plata Bjarkar fór í 3. sætið í Bretlandi
30 eintök vantaði
til að ná öðru sæti
PLATA Bjarkar Guðmundsdottur, Debut, fór bemt í þriðja sæti
breska breiðskífulistans sem kynntur var um helgina, en íslensk-
ur listamaður hefur aldrei komist svo hátt þar í landi. Að sögn
forráðamanns útgáfufyrirtækis hennar hefur platan selst í 30-
40.000 eintökum, en hann spáir henni 300.000 eintaka sölu í Bret-
landi áður en yfir Iýkur.
Plata Bjarkar Guðmundsdóttur,
sem heitir Debut, eða frumraun,
kom út í Bretlandi sl. mánudag,
en hér á landi kom platan út fyrir
nokkru. Að sögn Dereks Birketts,
forráðamanns útgáfunnar One
Little Indian sem gaf Debut út,
bjuggust menn þar við góðri sölu
á plötunni, en þó útkoman væri
frábær, væri hann afar vonsvikinn,
því ekki hefði munað nema 30 ein-
tökum að platan krækti í annað
sætið á listanum. Hann spáir því
að platan muni falla eitthvað niður
í næstu viku, enda sé ekkert unnið
við að kynna hana að sinni, en
þráðurinn verði tekinn upp að nýju
í næsta mánuði þegar önnur smá-
skífan af henni kemur út. „Við
stefnum að 300.000 eintaka sölu
hér í landi,“ sagði Derek Birkett,
„og förum létt með það.“
Derek Birkett segir að Björk sé
nú önnum kafín að undirbúa tón-
leikahald síðar á árinu, en ekki sé
ljóst hvort hún muni gefa sér tíma
til að þekkjast boð MTV sjónvarps-
stöðvarinnar um að troða þar upp
í svonefndum „Unplugged“-þætti,
eins og áður var fyrirhugað. „Við
þurfum ekki á MTV að halda til
að kynna Björk,“ sagði Derek, „og
hana langar mjög að setja saman
hljómsveit núna.“
Umferðaröryggi á Suðurlandsvegi
Hraðahindranir
settar við þéttbýli
Selfossi.
NÝJAR hraðahindranir voru nýlega settar á Suðurlandsveg fyrir aust-
an Hvolsvöll og verða settar á næstunni við Selfoss. Um er að ræða
ræmur á veginum sem gefa ökumanninum góðlátlega til kynna að
hann eigi að hægja á sér.
Fýrirmynd þessara hraðahindrana
er fengin frá Ðanmörku þar sem þær
hafa gefið góða raun. Upphleyptar
ræmur eru settar á veginn og þegar
ekið er yfír þær á 90 kílómetra hraða
fær ökumaðurinn á tilfínninguna að
hann sé að auka hraðann og bein
viðbrögð við því eru þau að hann
hægir ferðina. Vegagerð ríkisins set-
ur þessar hraðahindranir upp eftir
óskum sveitarfélaga og á næstunni
verða einnig settar slíkar hraðahindr-
anir við Vík og Hellu.
Upplýst gatnamót
í sumar verður komið fyrir lýsingu
á gatnamótum Biskupstungnabraut-
ar og Suðurlandsvegar ofan við Sel-
foss og við Skeiðavegamót. Búið er
að koma slíkri lýsingu fyrir við gat-
namótin hjá Hveragerði. Þetta eru
aðgerðir til þess að auka öryggi á
þessum gatnamótum en árið 1995
verða þau breikkuð og þar komið
fyrir beygjureinum til hægri og
vinstri og aðreinum fyrir umferð inn
á Suðurlandsveg.
Þessar framkvæmdir eru liður í
því að auka umferðaröryggi á Suður-
landsvegi.
Sig. Jóns.
Jgilá í mmI ■ llflÉiiÉÍ ve ímrn ' f
j-.' b i ; j •
Wf-
Morgunblaðið/Kristinn
Grafarvogskirkja skoðuð
FRAMKVÆMDIR ganga vel við Grafarvogskirkju og sést móta fyrir framtíð-
ar sölum. Sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur tók á móti herra Ólafi Skúla-
syni biskup ásamt þeim Magnúsi Ásgeirssyni formanni sóknarnefndar og
Valgerði Gísladóttur safnaðarformanni, en stefnt er að opnun fyrstu hæðar
fyrir safnaðarstarf í upphaf aðventu.
Innflutt
súkkulaði
hækkar um
7,5 %
SEM dæmi um verðhækkun vegna
gengisfellingarinnar má nefna að
innflutta súkkulaðið After Eight í
400 g pakkningum hefur hækkað
úr 479 krónum í 515 krónur og er
það um 7,5% hækkun.
Viðskiptavinir
sparisjóðanna
hafa sterkan
Bakhjarl.
BAKHJARL
SPARISJÓDANNA
6,85% RAUNÁVÖXTUN
FYRSTU 6 MÁNUÐI
ÁRSINS
Enn einu sinni hefiir reynslan sýnt
að þeir sem vilja ávaxta sparifé á innlánsreikningum
geta borið mikið úr býtum hjá sparisjóðunum.
Hafðu þetta í huga
á næstu vikum og mánuðum.
B
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína
I
Metsöluhladá hverjum degi!
Verðbreytingar
v. gengislækkunarinnar
After Eight súkkuiaði Veröiö varkr. Verðið er nú kr. hækkar um
400 g 479 515 7,5%