Morgunblaðið - 13.07.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
5
Krakkar úr Vinnuskólanum hanna leiksvæði eftir eigin höfði
Sköpunargleð-
in allsráðandi
TVEIR hópar úr Vinnuskóla Reykjavíkur hafa í sumar haft
sjálfdæmi um hönnun tveggja opinna leiksvæða í Reykjavík.
Verkefnið, sem er tilraunasamstarf Vinnuskólans og gatnamála-
stjóra, hefur gefist vel og forráðamenn Vinnuskólans segja að
unglingarnir séu allt í senn hugmyndaríkir, duglegir og hrað-
virkir.
í hvorum hópi eru um tíu
krakkar og í vor var þeim útdeilt
opnu svæði sem þarfnaðist endur-
bóta. „Okkar verkefni felst í því
að endurskipuleggja svæðið og
hanna þar leikvöll fyrir börn og
unglinga," sagði Guðrún Vilborg
Þórðardóttir, einn hönnuða ann-
ars verkefnisins í íbúðahverfi í
Sundunum. „Við munum einnig
setja upp bekki og annast gróður-
setningu þannig að svæðið er í
raun ætlað fólki á öllum aldri.“
Að sögn Eyrúnar Magnúsdótt-
ur hófst uppbygging svæðisins í
byijun júní. „Við ræddum ýmsar
hugmyndir í upphafi en gerðum
því næst teikningar að svæðinu
eins og það á að líta út,“ sagði
hún. Þau hafa ekki látið þar við
sitja heldur kom í ljós að einn úr
hópnum, Sævar Þór Jónsson, hef-
ur útbúið í tölvu þrívíðar hönnun-
arteikningar af svæðinu. „Það var
erfitt að teikna þetta á blaði þann-
ig að einfaldast reyndist að teikna
það í tölvu," sagði Sævar.
Vélsleðabrekka
Krakkarnir gera ráð fyrir því
að á svæðinu verði þrír hólar en
einn þeirra er hannaður sem vél-
sleðabrekka. Þá verður reistur
turn en úr honum verður hægt
að renna sér í rennibraut. ofan í
sandkassa. Mörgum öðrum leik-
tækjum verður komið fyrir að
sögn krakkanna og í flestum til-
vikum fengu þeir að velja tækin
sjálfir. Loks má ekki gleyma
körfuboltavellinum en hann á sitt
fasta pláss á vellinum.
Krakkarnir eru sammála um
að þessi vinna sé mun skemmti-
legri en venjuleg unglingavinna
og að hún sé aukinheldur þro-
skandi. „Verkefni okkar eru mun
fjölbreyttari en áður; nú fáum við
að helluleggja, tyrfa, gróðursetja
og vinna sjálfstætt," sagði Guð-
rún.
Krakkarnir standa sig vel
Flokksstjóri krakkanna er
Ingvar H. Olafsson og hann segir-
þá hafa staðið sig mjög vel. „Við
leggjum áherslu á að kenna þeim
rétt vinnubrögð. Ég held raunar
að þau hafi ekki gert sér grein
fyrir hversu fjölþættar fram-
kvæmdir á borð við þessar eru
og ég efa ekki að þau hafa lært
mikið af þessu,“ sagði Ingvar.
Hann var heldur ekki í vafa um
að krakkarnir ynnu hraðar og
betur þegar þeir fá að vinna sjálf-
stætt og skapa. „Þau eru 'greini-
lega miklu ánægðari með starfið
Ungir hönnuðir hvíla sig
OLAFUR, Guðrún og Eyrún starfa í Vinnuskólanum og fengu
það verkefni í sumar að hanna leiksvæði ásamt félögum sínum.
Unnið hörðum höndum
ÞEIR Sigurður og Sævar voru að tyrfa einn hólinn sem prýða
mun leiksvæði krakkanna þegar
að garði.
en jafnaldrar þeirra í öðrum verk-
efnum. Það má nefna að strax
eftir tvo daga var búið að mynda
svæðið. Ég veit það að minnsta
blaðamenn Morgunblaðsins bar
kosti að bæði fólk hér í kring og
yfirmenn í Vinnuskólanum eru
ánægðir með störf unglinganna
hér,“ sagði Ingvar að lokum.
Pilturinn á
batavegi
PILTURINN sem var hætt kom-
inn er hann missti meðvitund við
vinnu í bensíntanki í Mosfells-
sveit er á góðum batavegi. Hann
hefur fengið meðferð á Borgar-
spítalanum og verður ekki fyrir
varanlegu heilsutjóni.
Pilturinn, sem er starfsmaður
Olís, var að hreinsa affall neðst í
tankinum á föstudag en þar var
megn bensíngufa. Hann missti með-
vitund en félaga hans tókst fljótlega
að koma honum í ferskt loft.
---------»-»■■■♦-
Náttúru-
fræðingar
ræða frek-
ari aðgerðir
FÉLAG íslenskra náttúrufræð-
inga hyggur á frekari aðgerðir í
launadeilu milli ríkisspítalanna og
nokkurra náttúrufræðinga hjá
Rannsóknastofu HÍ í veirufræði.
Haraldur Ólafsson, varaformaður
samningaráðs FÍN, segir að þolin-
mæði félagsmanna sé aftur þrotin
en ekki hafi gengið saman milli
deiluaðila síðan FIN greip til að-
gerða 1. júlí sl. og hindraði eðli-
lega starfsemi við rannsóknastof-
una. Til þeirra aðgerða var gi-ipið
þegar félagið taldi samningaleið-
ina ekki lengur færa.
Haraldur sagði að engir fundir
væru framundan milli deiluaðila en
rætt væri innan FIN um frekari að-
gerðir. Ef gripið yrði til aðgerða
mundi bæði tímasetningin og aðgerð-
irnar sjálfar verða óvæntar. Hann
sagði að ekki yrði hjá því komist að
koma hreyfingu á málið.
24. Ólympíuleikamir í eðlisfræði í Bandaríkjunum
Fleiri þátttökuþjóðir
en nokkru sinni fyrr
Williamsburg, frá Viðari Ágústssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
YFIR 200 ungmenm frá 42 þjóðlöndum
hvaðanæva úr heiminum eru samankomin
hér í Williamsburg í Virginíu í Bandaríkjun-
um til að keppa í eðlisfræði, fræðilegri og
verklegri. Keppnin er árlegur vettvangur
ungmenna 19 ára og yngri að glíma við
verkefni sem háskólanemendur mættu vera
fullsæmdir af að Ijúka.
Meðal keppenda eru 5 íslenskir drengir, sem
valdir voru til fararinnar eftir Landskeppni í
eðlisfræði, sem Morgunblaðið styrkti í febrúar
og mars síðastliðnum. Þeir eru Davíð Bragason
og Arj Eiríksson frá MA, Arnar Már Hrafnkels-
son og Styrmir Sigutjónsson frá MR og Guðjón
Guðjónsson frá MS. Þeir hafa æft sig fyrir leik-
ana undir stjórn fararstjóranna, Viðars Ágústs-
sonar og Ingibjargar Haraldsdóttur, undanfam-
ar 6 vikur hjá kennurum og starfsmönnum
Háskóla Islands og Orkustofnunar.
Ólympíuleikarnir, sem fara fram í College
of William and Mary voru settir við hátíðlega
athöfn í gær, en í dag var fyrsti keppnisdagur-
inn - 3 fræðileg verkefni sem leysa átti á 5
klukkustundum. íslensku keppendumir voru
sammála um að þeir hefðu nánast ekkert kom-
ist áfram með dæmin sem aðallega voru úr
nútíma rafsegulfræðum. En það á ekki að valda
þeim áhyggjum því eins og Leon Ledeman,
nóbelsverðlaunahafí orðaði það við setningarat-
höfnina: „Þið hafíð nú þegar unnið mikinn sig-
ur með því einu að hafa verið valdir til að
koma hingað til að keppa á 24. Ólympíuleikun-
um í eðlisfræði."
Morgunblaðið/Þorkell
Islensku keppendurnir
PILTARNIR, sem keppa á ólympíuleikunum í Williamsburg í Virginíu í Banda-
ríkjunum.
1.-23. okt. og 26. okt.-10. nóv.
á vegum Samvinnuferða - Landsýnar og Kínaklúbbs Unnar.
Hótel ísafjörður 14. júlí kl. 20.30.
Hótel KEA, Akureyri 16.júlí kl. 20.30.
Langisandur, Akranesi 18. júlí kl. 20.30.
Fararstjóri: Unnur Guðjónsdóttir.
Kynningarfundir
B Rcykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandslerðir S. 91 - 69 10 70 • Simbrét 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 •
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörðun Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
Kellavík: Halnargötu 35 • S. 92-13 400 • Sfmbréf 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 - 1 13 86*Slmbréf 93 -111 95
Akureyri: Ráðhústorgi 1 *S. 96 - 27200-Slmbréf 96 -1 10 35 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98- 1 12 71 -Slmbréf 98 - 1 27 92
QATLASí*