Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 7

Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 Þrírjáta hasssmygl ÞRIR ungir menn hafa játað smygl á rúmlega 700 grömmum af hassi til landsins og hefur mál þeirra verið sent til ríkis- saksóknara. Mennirnir voru handteknir 9. og 10. júlí sl. Tollverðir á Tollpóststofu fundu hinn 7. júlí 700 grömm af hassi í pakka sem sendur hafði verið til landsins og var stílaður á Reykvík- ing um tvítugt. Hann sótti pakkann 9. júlí og var handtekinn. Við rannsókn málsins bárust böndin að tveimur mönnum um tvítugt og voru þeir handteknir á heimili annars mannsins. Þeir viðurkenndu að hafa keypt 750 grömm af hassi erlendis, sent 700 grömm með pósti, smyglað 30 grömmum til landsins er þeir komu og neytt 20 gramma erlendis. Mennimir hafa ekki tengst fíkniefnamálum áður. Mál þeirra hefur verið sent til ríkis- saksóknara. ----» » ♦-- Skákmót á Korfú Hannes og Margeir í 5.-10. sæti MARGEIR Pétursson og Hann- es Hlífar Stefánsson enduðu í 5.-10. sæti á skákmótinu í Korfú sem lauk um helgina. Sigurveg- ari varð gríski stórmeistarinn Kotronias. Kotronias fékk Vh vinning af 9 mögulegum. í 2.-4. sæti urðu Krum Georgiev frá Búlgaríu, An- astasjan frá Armeníu og Nikcevic frá Serbíu með 7 vinninga. Hann- es og Margeir fengu 6V2 vinning ásamt fjórum öðrum skákmönn- um. Hannes vann Djuric frá Serbíu í næstsíðustu umferð og Margeir vann Mohr frá Króatíu. í síðustu umferð tefldu íslensku skákmenn- irnir saman og gerðu jafntefli. Þeir tefla báðir á móti í Aþenu sem hefst í dag. ----♦ ♦ ♦- Innbrotið í Héraðs- dóm Reykjaness Þjófuriiin lét skjölin vera BROTIST var inn í hús Héraðs- dóms Reykjaness aðfaranótt Iaugardags og stolið nokkrum smáhlutum. Minni háttar skemmdir voru unnar á tölvu og símkerfi en skjöl sem geymd voru í húsinu látin óhreyfð. Að sögn Sveins Sigurkarlsson- ar, héraðsdómara í Héraðsdómi Reykjaness, var í fyrstu óttast að málsskjöl hefðu verið tekin en við rannsókn í gær kom í ljós að öll skjöl voru óhreyfð. WS W& Hi Brottför 21. ágúst 8 dagar Lúxemborg og Svartiskógur. Gestrisni Sauter hjónanna á hótel Baren í Titisee og náttúrufegurð Svartaskógar er einstök. Fararstjóri: Lilja Hilmarsd^ilií—» rjjSjífjÍlS! Brottför 20. ágúst 14 dagar Mílanó, Gardavatn, Verona, Feneyjar og Lignano. Fararstjóri: Svavar f Ok Lárusson. f |fp^l \ VvausJ Brottför 11. október 20 dagar Dvöl í Orlando, vikusigling meö MS Windward, nýjasta skipi NCI skipafélagsins og vikudvöl á glæsihótelinu - El San Juan & Casinar^ Q á Puerto Rico. * Fararstjóri: I Helga Lára GuðmurK^ft^^ m m\ ei c Brottför 2. október 7 dagar Vínhátíðirnar í Mósel- og Rínardalnúm eru engu líkar. Sannkölluð veisluferð. Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson. =tO IJVUS .'M mi iinai Brottför 3. september 16 dagar Tignarleiki Alpanna og heillandi fegurð Rínar láta engan ósnortinn. Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir. Brottför 6. nóvember 18 dagar Áhyggjulaust strandlíf og spennandi kynnisferðir á vit heillandi menningar Mayanna - jólainnkaupin í Orlando í ferðalok. Fararstjóri: Svavar Lárusson. Brottför 20. desember 18 dagar 17 daga sigling með hinu glæsilega skipi Royal Viking Sun. St. Lucia, Barbados, Grenada, Tobago, Aruba, Costa Rica, Mexíkó. Einstakt ævintýri. ; ;< ■ -V- Brottför 6. september 15 dagar Vikudvöl í Orlando og skemmtisigling um Karíbahafið. heillandi hitabeltiseyjar og munaður um borð í MS Seaward^aQ*" Fararstjóri: Helga Lára GuðmundsdóvL*^* Brottför 14. ágúst 2 vikur Mósel og Rínardalur, Heidelberg, Freiburg og Munchen. Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.