Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 13
; moröunb£aíðí£>‘ ÞÍiÍÉÍjöb'ÁólÍR iá. jíj'ú' '1993
13
Argentína: Hvað brást?
eftir Þorvald
Gylfason
Árið 1895 var Argentína eitt af
auðugustu löndum heims. Þjóðar-
tekjur á mann voru svipaðar og í
Þýzkalandi, Hollandi og Belgíu og
hærri en á Ítalíu og Spáni og í
Austurríki, Noregi, Sviss og Sví-
þjóð. Allar götur fram til ársins
1930 hélt Argentína sæti sínu við
háborðið í heimsbúskapnum, enda
var hagvöxtur í Argentínu eins
mikill og hann var mestur annars
staðar í heiminum þennan tíma,
þótt fólkinu fjölgaði ört vegna inn-
flutnings einkum frá Suður-Evr-
ópu. íbúar landsins voru um 4
milljónir 1895, 8 milljónir 1914 og
12 milljónir 1930, en landið er á
stærð við meginland Evrópu að
flatarmáli og gjöfult með afbrigð-
um. Höfuðborgin Buenos Aires var
næststærsta borg á austurströnd
vesturheims á þessum árum, næst
á eftir New York. Margir áttu von
á því, að Argentína myndi fljótlega
státa af næstbeztu lífskjörum í
heimi, á eftir Bandaríkjunum ein-
um. Svo fór þó ekki. Eftir 1930
dróst Argentína langt aftur úr
Evrópulöndum í efnahagslegu til-
liti. Þetta gerðist smám saman og
með rykkjum og skrykkjum. Annað
veifið hljóp myndarlegur vöxtur í
þjóðarbúskapinn og þá misstu
menn sjónar á því, að þeir voru
að dragast aftur úr öðrum smátt
og smátt. Árið 1989 voru þjóðar-
tekjur á mann í Argentínu orðnar
fjórum sinnum lægri en á Spáni,
tíu sinnum lægri en í Svíþjóð og
fjórtán sinnum lægri en Sviss sam-
kvæmt tölum Alþjóðabankans.
Verðbólga mældist í tveggja og
þriggja stafa tölum langtímum
saman. Landið logaði í ófriði. Er-
• lendar skuldir hrönnuðust upp í
120% af þjóðarframléiðslunni
1989. Eitt ríkasta land heims hafði
þróazt í þriðjaheimsríki á nokkrum
áratugum. Hvernig gat þetta
gerzt? Hvað brást?
Vanþroska stjórnarfar
Mér sýnist einkum tvennt hafa
farið úrskeiðis í Argentínu með
nokkurri einföldun. Fyrri skýringin
er sú, að stjórnmálaþróun landsins
hélzt ekki í hendur við öran hag-
vöxt og félagslegar framfarir á
uppgangsárunum 1895-1930. Hag-
þróun útheimtir eðlilegan stjórn-
málaþroska, en Argentína hélt
áfram að vera þróunarland að
stjórnarfari. Efnahagur landsins
hlaut að versna til samræmis við
stjórnmálaástandið. Ojafnt eignar-
hald á landi ásamt meðfylgjandi
einokun í viðskiptum setti sterkan
svip á þjóðfélagsþróun í Argentínu
á nýlendutímanum, þegar Spánveij-
ar réðu yfir landinu. Þessi skipan
hélzt, eftir að Argentína varð sjálf-
stætt ríki snemma á síðustu öld.
Fámenn yfirstétt hafði tögl og
hagldir í landinu í skjóli mikilla
landareigna. Ójafnt eignarhald
leiddi til ójafnra lífskjara og stóð í
vegi fyrir lýðræðislegri valddreif-
ingu og eðlilegri nýsköpun í at-
vinnulífinu um leið til samræmis
við atvinnuþróun í Evrópu, þar sem
iðnaður, verzlun og þjónusta fengu
svigrúm til að þróast eðlilega við
hlið landbúnaðar. Hörð hagsmuna-
átök landeigenda og borgarbúa ein-
kenndu stjórnarfarið og efnahags-
lífið í Árgentínu. Lýðræðislega
kjörnir forsetar hegðuðu sér iðulega
eins og einræðisherrar.
Útflutningur landbúnaðarafurða,
einkum kjöts og korns, til Evrópu
var að vísu driffjöðrin á bak við
uppsveifluna í efnahagslífi Argent-
ínu 1895-1930. Einhæfni atvinnu-
lífsins stuðlaði þó ásamt öðru smám
saman að hnignandi lífskjörum al-
mennings, sem kallaði síðan á rót-
tækar aðgerðir til þess að rétta hag
sinn. Perón, forseti landsins
1946-55, varð við þessum óskum
með dyggilegum stuðningi sterkra
verkalýðsfélaga, sem hann hafði
hjálpað til við að byggja upp árin
næst á undan. Perónistar beittu sér
fyrir því að hækka kaup verkafólks
langt umfram greiðslugetu fyrir-
Þingið sitja rúmlega 500 skátar
frá 112 löndum. Að þessu sinni
bætast sjö nýjar þjóðir í hóp aðildar-
landa og meðal þeirra eru Eistland,
Lettland, Rúmenía og Ungveija-
land, en skátastarf hefur nýlega
farið af stað aftur í þessum löndum
í kjölfar þeirra miklu breytinga sem
átt hafa sér stað í Austur-Evrópu.
Þema ráðstefnunnar er „Today’s
challange — our future“. Aðalverk-
efni ráðstefnunnar er að móta
stefnu fyrir starfið næstu þijú árin.
Áhersla verður lög á fræðslu og
þjálfun til að takast á við breyttan
heim. Alþjóðaráðstefnan er haldin
þriðja hvert ár og mun hún nú að
þessu sinni standa til 10. júlí.
Meginmarkmið alþjóðasamtaka
kvenskáta er að gefa stúlkum og
ungum konum tækifæri til þjálfun-
5073 Pipar, salt &
tannstönglastautar
Verð: 5.500,-
VARIST EFTIRLIKINGAR
ALESSI
KRINGLUNNI S: 680633
AFI/AMMA
Allt fyrir minnsta barnabarnið
ÞUMALÍNA
9093 Flautuketill
Verð: 6.900,-
VARIST EFTIRLIKINGAR
ALESSI
KRINGLUNNI S: 680633
tækjanna og þöndu ríkisútgjöld
langt fram úr skatttekjum ríkisins,
að nokkru leyti til að leyna auknu
atvinnuleysi. Verðbólga og erlendar
skuldir ruku upp úr öllu valdi. Her-
inn steypti Perón af stóli 1955 og
hrakti hann í útlegð.
Vond hagstjórn
Síðari skýringin á hnignun Arg-
entínu er skyld hinni fyrri. Hún er
einfaldlega sú, að efnahagsstefna
stjórnvalda í landinu var röng í
veigamiklum atriðum bæði fyrir og
eftir 1930, þótt margar ríkisstjórn-
ir, sumar þeirra kjörnar í lýðræðis-
legum kosningum, færu með völd
á víxl. Innflutningshömlur, hágeng-
isstefna og skortur á heilbrigðri
samkeppni beindu efnahagsþróun-
inni í óhagkvæman farveg, drógu
úr erlendum viðskiptum og bitnuðu
á lífskjörum almennings. Orói með-
al vinnandi fólks, verðbólga og vax-
andi erlendar skuldir komu í kjölfar-
ið vegna harðnandi þjóðfélagsátaka
um tekjuskiptingu. Spilling var
landlæg. Menntafólk flykktist úr
landi tugþúsundum saman. Því
hlaut að fara sem fór. Það dugir
samt ekki að skella skuldinni á
Perón einan, þótt stjórn hans ynni
vissulega mikinn skaða. Nei, menn
verða að velta því fyrir sér, hvers
vegna Perón var kjörinn forseti með
yfírburðum 1946 og síðan aftur
1973, þegar herinn hafði gefizt upp
við að stjórna landinu. Lýðhylli
Peróns var sprottin af stjórnmála-
vanþroska landsins og rangri efna-
hagsstefnu þeirra, sem stjórnuðu
Argentínu á undan og eftir honum.
Alvarlegustu mistökin voru trúlega
þau að reyna að byggja upp iðnað
í landinu innan verndarmúra upp
Þorvaldur Gylfason
„Nú er þjóðarfram-
leiðslan í örum vexti og
verðbólgan á niðurleið
í bili, þótt skuldabyrðin
sé níðþung áfram.
Stefnan er rétt, en Arg-
entína á langt í land.“
úr 1930, þegar ljóst var orðið, að
Argentína gat ekki fleytt sér fram
á landbúnaði einvörðungu þrátt fyr-
ir mikil landgæði. Verndarstefnan
varð til þess, að Argentínumenn
tóku jafnvel að framleiða eigin bíla,
sjónvarpstæki og ísskápa auk næst-
um alls annars í stað þess að flytja
sumt af þessu inn frá öðrum löndum
og efla útflutning. Sjálfsþurftabú-
skapurinn dró úr hagkvæmni í efna-
hagslífi landsins. Argentína er enn-
þá tiltölulega lokað hagkerfí borið
saman við Evrópulönd. Útflutning-
ur og innflutningur eru innan við
10% af þjóðarframleiðslu Argent-
ínu, en fjórðungur í Bretlandi og
Frakklandi, þriðjungur hér heima
eins og í Danmörku og Þýzkalandi
og meira en helmingur í Hollandi
og Belgíu til dæmis. Argentinu
tókst ekki að halda góðum við-
skiptatengslum við Evrópu eða afla
nýrra viðskipta í staðinn. Það
reyndist afdrifaríkt. Þó er rétt að
taka það fram, að nú eru Argent-
ínumenn farnir að framleiða bíla til
útflutnings.
Fleira lagðist á sömu sveif. Þjóð-
nýting ýmissa fyrirtækja á valda-
tíma Peróns dró úr hagkvæmni í
efnahagslífinu. Veldi verkalýðsfé-
laganna gerði það líka, meðal ann-
ars í gegnum óhóflegt starfsmanna-
hald í ríkisfyrirtækjum. Einokun og
fákeppni einkenndu mikinn hluta
efnahagslífsins; næstum allur meiri
háttar búvöruútflutningur var til
dæmis í höndum ríkisverndaðrar
einokunar. Stjórnvöld kynntu efna-
hagsaðgerðir með reglulegu milli-
bili, einkum gengisfellingar og
auknar erlendar lántökur, en
ástandið hélt áfram að versna.
En nú þykist ríkisstjórn Argent-
ínu hafa snúið vörn í sókn undir
forustu Menems forseta. Hann hef-
ur stjórnað landinu síðan 1989 og
beitt sér fyrir róttækum efnahags-
umbótum með aukin erlend við-
skipti, aukna samkeppni, víðtæka
einkavæðingu og átak gegn spill-
ingu að leiðarljósi. Nú er þjóðar-
framleiðslan í önim vexti og verð-
bólgan á niðurleið í bili, þótt skulda-
byrðin sé níðþung áfram. Stefnan
er rétt, en Argentína á langt í land.
Höfundur er prófessor í
Viðskipta- og hagfræðideild
H&skóla íslands.
Alþjóða ráðstefna kvenskáta
ALÞJÓÐA RÁÐSTEFNA kvenskáta var sett 1. júlí við Nyborg
í Danmörku í 28. sinn. Hennar hátign Margrét Danadrottning,
Benedikta prinsessa og Ingrid drottning voru viðstaddar setn-
ingu ráðstefnunnar ásamt fleirum góðum gestum. Þess má geta
að Benedikta prinsessa er formaður danskra kvenskáta.
ar og þroska til að verða ábyrgir
þjóðfélagsþegnar og efla vináttu og
skilning þjóða á milli. í alþjóðasam-
tökum kvenskáta starfa rúmlega
átta nlilljón skátar. Frá Bandalagi
íslenskra skáta eru þrír þátttakend-
ur á alþjóðráðstefnunni, Anna G.
Sverrisdóttir, Hafdís Óladóttir og
Guðrún Nikulásdóttir.
TÆLENSKUR MATUR
TÆLENSKT UMHVERFI
vAcBANTHAI
KLB'N LAUGAVEGI 130, SlMI 13622
Fluabúxfin hf. vícf GuUinbrú býcfur
20% aplátt
(25% otgr.) frá 8. tiL 16. júLí.
Ath.: MLkuJ úrval á lager af nýjum góLf- og veggflídiun.
Engar vörur með hækkað verð vegna gengisfellingar
allar flísar á verði fyrir gengisfellingu
Dæmi um verð: Áður : Nú: Stgr.:
Gólfflísar 31,6x31,6 1.990 1.592 1.493
Gólfflísar 31,6x31,6 2.576 2.061 1.932
Veggflísar 20x20 2.088 1.670 1.566
Veggflísar 20x25 2.522 2.018 1.892
P5fl i’JI
Stórhöfða 17 við Gullinbrú,
sími 67 48 44