Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 RáÖstefna um íþróttalæknisfræÖi Fræðslunefnd KSÍ gengst fyrir ráðstefnu um íþróttalæknisfræði í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal föstudaginn 16. og laugardaginn 17. júlí nk. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða hin þekktu próf. dr. med Heinz Liesen og dr. Birna Bjarnason frá íþróttaháskólanum í Köln í Þýskalandi. DAGSKRÁ: Föstudaginn 16. júlí kl. 20.00: íþróttalæknisfræði - stuttur fyrirlestur (Prof. Liesen). Spurt og svarað um íþróttalæknisfræði og sérstök tengsl íþróttalæknisfræðinnar og knattspyrnunnar. Laugardagur 17. júlí kl. 10.00: Fyrirlestur: Rannsóknir á knattspyrnumönnum. (Prof. Liesen). Niðurstöður úr könnun á íslenskum knattspyrnumönnum, sem framkvæmd var daginn áður. (Dr. Birna Bjarnason). Kl. 13.00: Notkun og kynning á rannsóknatæki til mjólkursýrumæl- inga o.fl. (Dr. Birna Bjarnason). Kl. 14.30: íslensk knattspyrna með tilliti til ársþjálfunar knattspyrnu- manna (undirbúningstímabil - æfingamót - íslandsmót - Evrópumót - hvíldartímabil). (Próf. Liesen). Hvert ætti álag í þjálfun knattspyrnumanna á íslandi í 1. deild á keppnistímabilinu 1993 að vera í júlímánuði? (Próf. Liesen). Allir eru hjartanlega velkomnir á ráðstefnuna, en þjálfar- ar, sjúkraþjálfarar, læknar og aðrir, sem starfa með íþrótta- mönnum, eru sérstaklega hvattir til að mæta og hlýða á hina kunnu fyrirlesara. Ráðstefnugjald: Fyrirlestur á föstudagskvöldi eingöngu: 500 kr. Ráðstefnugjald föstudag og laugardag: 3.000 kr. Innifalið í ráðstefnugjaldi er kaffi á föstudag og laugardag og léttur hádegisverður á laugardag. Gjaldið skal greiða við komu á ráðstefnu. Þátttöku skal tilkynna á skrifstofu KSÍ í síma 814444 kl. 08.00-13.00 mánudag 12. júlí til fimmtudags 15. júlí nk. Þar verða einnig veittar nánari upplýsingar. Fræðslunefnd KSÍ. Flokkur í sárum eftir Ólínu Þorvarðardóttur „Svanur ber undir bringudúni banasár“ segir í fallegu eftirmæla- kvæði. Af einhveijum ástæðum verður mér þessi ljóðlína æ hug- leiknari nú í seinni tíð, einkum þegar mér verður hugsað til Al- þýðuflokksins og afdrifa hans á síðustu misserum. Ólíku er saman að jafna yfir- bragði flokksins og fylgismanna hans nú og fyrir þremur árum, þegar ungt fólk flykktist til liðs við „Jafnaðarmannaflokk Is- lands“. Þá var Alþýðuflokkurinn í sókn; hafði gerst brautryðjandi nýrra og. ferskra hugmynda fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykja- vík; myndað breiðfylkingu með ungu, fijálslyndu fólki sem stóð að framboði Nýs vettvangs; boðaði breyttar áherslur í borgarstjórn Reykjavíkur - andóf gegn spilltum íhaldsöflum, sókn til nýrra tíma - og uppskar þann mesta sigur sem Alþýðuflokkurinn hefur orðið að- njótandi í borgarstjórnarkosning- um í hálfa öld. Það var þá. Innanflokksátök - framganga formanns og hótanir Nú er hinsvegar svo komið að Alþýðuflokkurinn á í alvarlegri forystukreppu í kjölfar langvar- andi skoðanaágreinings og sam- starfsörðugleika tveggja helstu forystumanna flokksins, formanns og varaformanns. Þau átök náðu hámarki fyrir skömmu, með af- sögn varaformannsins Jóhönnu Sigurðardóttur. Aðdragandann má rekja til þess er Alþýðuflokkurinn var teymdur með fagurgala inn í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum vorið 1991. Fljótlega eftir það tók gengi flokksins að dvína, og stefnumið hans að lúta í lægra haldi fyrir einhverskonar „neyðarrétti" for- ystumanna til þess að „bregðast við erfiðleikum í efnahagslífi þjóð- arinnar", eins og það var kallað. Svigrúm til fijálsra skoðanaskipta innan flokksins minnkaði mjög. Vonbrigði, sársauki og tortryggni tóku nú völdin í herbúðum jafnað- mi//EL KYNNING Besti kosturinn i einangrun! Tæknimenn frá þýska fyrirtækinu MISSEL eru nú staddir hér á landi og af því tilefni höldum við kynningu á poly- styrene einangrun miðvikudaginn 14. júlí í Hvammi á HOLIDAY INN frá kl. 17 til 19. Misselfix og Missellon eru afburða einangrunarefni, sem innihalda engin eiturefni og eru sérstaklega gerð til einangr- unar á pípum, tönkum, kæli- og frystiklefum. Við hvetjum alla tækni- og iðnaðarmenn til að nota þetta einstaka tækifæri til að kynnast því nýjasta og besta í ein- angrunartækni. Einkaumboð fyrir MISSEL á íslandi: Hringás hf., Smiðjuvegi 4a, Kópavogi. Sími 67 78 78. Ólína Þorvarðardóttir „Hið eina sem hefur hindrað fullkomið fylg- ishrun Alþýðuflokksins er vera Jóhönnu Sig- urðardóttur í ríkis- stjórninni og sú einurð og alúð sem hún hefur sýnt í störfum sínum sem félagsmálaráð- herra.“ armanna ... en formaðurinn fór sínu fram. Þau hugmyndafræðilegu átök sem ríkisstjórnarþátttakan hefur óhjákvæmilega kallað fram innan Alþýðuflokksins hafa ljóslega speglast í samskiptum formanns og varaformanns. Forleikurinn að þeim ágreiningi var raunar þegar leikinn nokkru áður en ríkisstjórn- in var mynduð, eða á flokksþing- inu haustið 1990. Öllum sem til þekkja er ljóst að þrátt fyrir „sáttakossinn“ sem þar gekk á milli, hefur kraumað undir æði lengi, enda leyndi sér ekki að Jóhanna Sigurðardóttir gekk nauðug til sáttanna í nafni flokkseiningar. Á flokksþinginu 1992 var líka grunnt á því góða þegar Jón Baldvin hótaði því í sturtuklefanum, að segja af sér sem formaður ef flokkurinn féllist á niðurstöðu 60 manna starfs- nefndar þingsins sem hafði hafnað þjónustugjöldum. Hótunin virkaði - hann fékk sitt fram. Ráðherraskiptin og aðdragandi þeirra Aftur fékk hann sitt fram við ráðherraskipti Alþýðuflokksins nú í sumar, þegar gengið var framhjá Rannveigu Guðmundsdóttur, al- þingismanni sem hefur árum sam- an starfaði í Alþýðuflokknum og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á hans vegum. En þá sauð hinsveg- ar uppúr með alkunnum afleiðing- um. Sú ákvörðun Jóhönnu Sigurðar- dóttur að segja af sér varafor- mennsku í kjölfar þessara atburða, var vissulega reiðarslag fyrir flokkinn. Hinsvegar er hún mjög skiljanleg þegar atburðarás síð- ustu vikna og missera er skoðuð nánar. Þar gefur að líta bæði valdahroka og sorglega óvirðingu formannsins við varaformanninn og aðrar konur í flokknum. Jóhanna hefur upplýst það, að þegar hún fór í sumarleyfi hafi það verið fastmælum buridið 'milli hennar og Jóns Baldvins að ekki yrði gengið frá ráðherraskiptunum fyrr en í júlímánuði. Annað kom þó á daginn, því fimmtudaginn 10. júní er Jón Baldvin kominn vel á veg með að ná fram lyktum í málinu. Þann dag heldur hann fund með þeim Guðmundi Árna og Össuri. Hann sér hinsvegar ekki ástæðu til þess að ræða við varaformanninn fyrr en laugar- daginn 12. júní, eftir að málið er búið að koma í fjölmiðlum. Tveim dögum síðar eru „strákarnir" báð- ir orðnir ráðherrar. Lærdómsrík niðurstaða Þessi atburðarás hlýtur að vera verðugt umhugsunar- og áhyggju- efni verðandi varaformanni flokks- ins, hver svo sem það verður. Skilaboðin eru sömuleiðis ugg- vænleg fyrir konur í flokknum. Þeim má vera það alveg ljóst að þær mega einungis vera með svo framarlega sem þær eru ekki fyr- ir. Um leið og þær fara að tala öðru máli en formaður flokksins, eða stefna á stöður sem karlmenn renna vonaraugum til, þá fá þær sparkið. Jón Baldvin Hannibalsson lýsti því yfir í fjölmiðlum að ráð- herravalið hefði verið „lýðræðis- leg“ niðurstaða, fengin með at- kvæðagreiðslu i þingflokknum. Hrædd er ég um að Jón Baldvin - jafn sjóaður og hann er í pólitík - hefði vart farið með málið í at- kvæðagreiðslu inn í þingflokknum án þess að vita niðurstöðuna fyrir. Þá væri Bleik brugðið. Atkvæða- greiðsla þjónaði þeim eina tilgangi að slá ryki í augu flokksfólks og almennings. I skoðanakönnun sem gerð var skömmu síðar kom í ljós að 77% Alþýðuflokksmanna töldu að Rannveig Guðmundsdóttir hefði fremur átt að verða ráðherra en Össur Skarphéðinsson. Þar að auki voru um 70% fylgismanna annarra flokka sömu skoðunar. Vonarljós í myrkri Við þessa atburði alla lagðist myrkur niðurlægingar og von- brigða yfir Alþýðuflokkinn. Kon- urnar í flokknum eru sem lamaðar - jafnvel hörðustu stuðningskonur Jóns Baldvins geta ekki leynt reiði sinni og vonbrigðum. í vandræðum sínum vita menn vart hvetju skuli svarað þegar fjölmiðlar grennslast eftir viðbrögðum við afsögninni. „Þetta er slæmt - vissulega slæmt“ er muldrað ofan í barminn. Menn vita sem er, að síðustu atburðir hafa dýpkað enn frekar þá bresti sem komnir eru í for- mannsímyndina. Staða hans er veikari en fyrr og staða flokksins sömuleiðis. Hið síðarnefnda er raunar bein afleiðing af fram- göngu og vinnubrögðum Jóns Baldvins innan flokksins og ríkis- stjórnarinnar. Hið eina sem hefur hindrað full- komið fylgishrun Alþýðuflokksins er vera Jóhönnu Sigurðardóttur í ríkisstjórninni og sú einurð og alúð sem hún hefur sýnt í störfum sín- um sem félagsmálaráðherra. Sannir jafnaðarmenn vita vel að Jóhanna er eina vonarglæta Al- þýðuflokksins um þessar mundir, enda ná vinsældir hennar og virð- ing langt út fyrir raðir Alþýðu- flokksmanna. Það sýndi sig í fyrr- nefndri skoðanakönnun þar sem 83% Alþýðuflokksmanna lýstu ánægju með störf Jóhönnu, og ríf- lega 50% fylgismanna annarra flokka. Það er verðugt umhugsun- arefni. Vogun vinnur - vogun tapar. Jóhanna Sigurðardóttir tók djarfa ákvörðun sem vonandi er einungis fyrsta skrefið til nýrrar sóknar i sögu Alþýðuflokksins. Nýrra tíma þegar ,jafnaðar“ hugtakið fer aft- ur að hafa þýðingu í heiti hans og stefnu; tíma þegar sárin gróa undir hvítum bringudúni „Jafn- aðarmanna íslands". Höfundur cr borgnrfulltrúi og formnöur sveitnstjórnnrráðs Alþýðuflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.