Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
Morgunblaðið/Sverrir
Þjóðdansar við Árbæjarsafn
UM 1.200 manns komu saman við Árbæjarsafn á sunnu-
daginn til að fylgjast með 300 dönsurum frá Norðurlönd-
um og Austurríki sem þar sýndu þjóðdansa. Þjóðdansafé-
lag Reykjavíkur stóð fyrir sýningunni sem nefnist „ísleik"
og er haldin hér á landi á nokkurra ára fresti. Dagskráin
hófst með því að dansaramir gengu fylktu liði frá Breið-
holtsskóla inn á Árbæjarsafn. Þar sýndu þeir dansa frá
eigin löndum. Að sögn Unnar Lárusdóttur, safnvarðar í
Árbæjarsafni, tókst þjóðdansasýningin vel enda veður
ákjósanlegt.
Morgunblaðið/Ingvar
Guðmundur Magnússon þjóðminjavörður
Þjóðminjadagur verð-
ur árlegur viðburður
„FYRSTI þjóðminjadagurinn tókst vonum framar,“ segir
Guðmundur Magnússon þjóðminjavörður. Guðmundur segir
ljóst að þjóðminjadagurinn verði árlegur viðburður, vænt-
anlega annan sunnudag í júlí ár hvert.
Síðasta sunnudag var þjóð-
minjadagur og var af því tilefni
ókeypis aðgangur að fjölmörgum
minjasöfnum, þ.m.t. Þjóðminja-
safni íslands. Guðmundur Magn-
ússon sagði að dagurinn hefði
heppnast vonum framar. Þjóð-
minjasafnið í Reykjavík hefðu
800 manns sótt heim. Þjóðminja-
vörður sagði að þeir hefðu aðeins
einu sinni áður náð slíkri aðsókn,
þ.e. 17. júní síðastliðinn, en þá
var safnið opið og tugþúsundir
manna í nágrenninu.
Guðmundur sagði að aðsókn
að öðrum söfnum hefði líka verið
mjög góð; um 150 manns hefðu
hefðu komið í Lækningaminja-
safnið í Nesstofu á Seltjarnar-
nesi, og yfir 200 manns hefðu
komið í Sjóminjasafnið í Hafnar-
firði. Guðmundur var ekki með
fyrirliggjandi tölur um aðsókn
að söfnum úti á landi en fyrstu
Heilbrigðisráðherra
ræður sér aðstoðarmann
JÓN H. Karlsson framkvæmda-
stjóri Teppabúðarinnar hf. hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra frá og með 1. júlí 1993 að
telja.
Jón sagðist gera sér grein fyrir að
verkefnin væru mörg sem biðu í ráðu-
neytinu. „Mörg þeirra eru erfið við
að glíma en það er áðeins skemmti-
legra,“ sagði hann. „Vonandi kemur
reynslan úr einkageiranum - að ein-
hverju gagni í opinbera geiranum en
tíminn á eftir að leiða það í ljós.“
Jón er fæddur í Neskaupstað 24.
janúar 1949. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1969 og viðskipta- og hagfræðiprófí
frá Háskóla íslands 1975. Hann var
framkvæmdastjóri Teppalands frá
1975 til 1988 og framkvæmdastjóri
Teppabúðarinnar frá 1988. Hann sit-
ur í stjóm Knattspymufélagsins Vals
og er í stjóm Handknattleikssam-
bands íslands.
Jón hefur setið í tjölda nefnda fyr-
ir Alþýðuflokkinn og m.a. starfað
Jón H. Karlsson
fyrir Félag íslenskra stórkaupmanna.
Eginkona hans er Erla Valsdóttir
og eiga þau sex börn.
fréttir væru af góðri aðsókn þar.
Talsverður fjöldi hefði líka heim-
sótt Stöng í Þjórsárdal, en þar
hefði verið boðin sérstök leið-
sögn.
Árlegur viðburður
Þjóðminjavörður sagði hinar
góðu undirtektir benda ótvírætt
til þess að sú stefna væri rétt
að helga íslenskum þjóðminjum,
minjum um líf og starf þjóðarinn-
ar, einn dag á ári. Þjóðminjavörð-
ur tilgreindi eða dagsetti sem
árlegan þjóðminjadag annan
sunnudag júlímánaðar.
vyciftcitfi/
kr. 59.
S. agú&b
tTiTiTB
Einstakt tækifæri.
Við höfum fengið viðbótargistingu þann
5. ágúst á Las Perlas hótelinu í Cancun á
hreint ótrúlega hagstæðu verði.
10 herbergi á þessu frábæra verði.
Njóttu lífsins í ágúst í þessari heillandi
paradís í Karíbahafinu.
* Verð kr. 59.900 m.v. 2 í herbergi 5. ágúst.
Flugvallarskattar: kr. 3.879.-
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600