Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
19
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
í dagbókinni þessa helgi má sjá
rúmlega 100 færslur vegna um-
ferðarlagabrota ökumanna, 80
vegna ölvunarástands einstakl-
inga, 13 vegna ölvunaraksturs,
26 vegna hávaða og ónæðis utan
dyra og innan, 17 vegna innbrota
og þjófnaða, 21 vegna bifreiða-
árekstra. Hins vegar er ekki skráð
líkamsmeiðing. Vonandi er það
vísbending þess sem vænta má á
næstunni.
Aðfaranótt laugardags var til-
kynnt um innbrot og skemmdar-
verk á 5 bifreiðum á bifreiðastæð-
unum við Háskólabíó. Þá mátti
sjá að einni bifreið hafði verið
ekið þar af vettvangi, en hún var
stöðvuð í akstri í Hafnarfirði
skömmu síðar. Bifreiðinni hafði
verið stolið af bifreiðastæðinu, en
í henni voru þrír drengir, sem all-
ir eru lögregluni kunnugir. Talið
var líklegt að þeir hafi og verið
valdir af skemmdarverkunum á
bifreiðunum fimm.
í járnum
Um þijúleytið um nóttina sást
hvar bifreið var ekið á ljósastaur
á Miklubraut. Sagt er að akstur-
inn hafi verið all svakalegur áður
en bifreiðin stöðvaðist á staurn-
um. Flytja þurfti ökumanninn af
vettvangi í jámum, en hann er
grunaður um að hafa verið undir
áhrifum áfengis við aksturinn.
Á laugardagsmorgun varð um-
ferðaróhapp á Suðurlandsbraut
skammt austan Kringlumýrar-
brautar. Bifreið hafði verið ekið
hratt eftir Lágmúla, en við gatna-
mót Suðurlandsbrautar missti
ökumaðurinn vald á henni með
þeim afleiðingum að hún fór þar
þvert yfir umferðareyju og lenti
á 'gangstéttarbrún handan göt-
unnar. Bifreiðin skemmdist mikið
og var óökufær eftir. Auk öku-
manns var farþegi í bifreiðinni,
en þeir virtust báðir vera undir
áhrifum áfengis.
Um svipað leyti var númers-
lausu bifhjóli ekið suður Selás-
braut á miklum hraða. Við gatna-
mót Viðaráss missti ökumaðurinn
vald á bifhjólinu, lenti á götukant-
inum og féll síðan af hjólinu. Far-
þegi, sem verið hafði á hjólinu,
féll einnig af því og er talið að
hann hafí handleggsbrotnað.
Ökumaður og farþegi virtust vera
undir áhrifum áfengis.
16 ára á 119 km hraða
Á laugardagskvöldið stöðvaði
lögreglan stúlku í akstri á Reykja-
nesbraut. Ökuhraðinn hafði mælst
119 km/klst, en leyfilegur há-
markshraði á götunni er 60
km/klst. Stúlkan reyndist einung-
is 16 ára að aldri og því próflaus.
Hún hafi ekið á sviptingahraða,
en ekki var hægt að svipta hana
ökuréttindum sem hún hafði ekki.
Skömmu síðar voru þrjú bifhjól
mæld á 121 km/klst. á Sæbraut
við Höfðatún. Þar er leyfður há-
markshraði 60 km/klst. Öku-
mennirnir voru allir færðir á lög-
reglustöðina, en fóru þaðan á sex
hæggengum.
Tveir ökumenn aðrir fengu að
sjá á eftir ökuréttindum sínum
þessa nótt, en nokkrir aðrir voru
nærri því að missa réttindi sín
vegna hraðaksturs. Alls voru 40
ökumenn kærðir fyrir of hraðan
akstur um helgina.
Það er ekki að ástæðulausu,
sem lögreglan á Suðvesturlandi í
samstarfi við Landhelgisgæsluna
og tryggingafélögin telur sig
þurfa að sameinast í aðgerðum í
umferðinni á næstunni. Athygl-
inni verður sérstaklega beint að
hraðakstri og framúrakstri, en
ástandið í þeim málum virðist
vera óvenjuslæmt um þessar
mundir. Á laugardagsmorgun var
tilkynnt um að brotist hefði verið
inn í fyrirtæki og skrifstofur húss
við Pósthússtræti. Rúða hafði ver-
ið brotin í útihurð og þannig hafði
þjófurinn komist inn. Við nánari
athugun kom í ljós að maður, sem
talinn var vera hann, lá sofandi
inni, en við hlið hans lá poki sem
í hafði verið safnað skiptimynt og
rafmagnstækjum. Maðurinn var
færður á lögreglustöðina.
Aðfinnsluverð hegðum
Talsverð öivun var meðal fólks
aðfaranótt laugardags, en aðfara-
nótt sunnudags var hegðun fólks
í umferðinni mjög aðfinnsluverð.
Ef almenningur mætti lesa þær
449 færslur dagbókarinnar frá
þvi um helgina myndu margir
undrast það hvað getur í raun
gengið á meðal fólksins í ekki
stærra samfélagi en hér er. Svo
virðist sem talsvert vanti á að
sjálfsvirðing fólks sé sem skyldi,
það kunni að tileinka sér tilhlýði-
lega háttsemi, tillitssemi, aga og
virðingu fyrir eigum annarra.
Kannski er ekki hægt að gera þær
kröfur til fólks í dag þegar fýrir-
myndirnar og fórdæmin eru ekki
betri en raun ber vitni. Á það jafnt
við um einstaklinga og stofnanir.
Hreindýrum fækkar
Vaðbrekku, Jökuldal.
Árleg hreindýratalning á
svæðinu norðan Vatnajökuls,
kringum Snæfell austur á Múla
og vestur í Kringilsárrana var
gerð úr flugvél 5. júlí síðastlið-
inn. Hreindýr eru talin tvisvar
sinnum á ári, að öllu jöfnu í apríl.
Þá er talið af landi oftast á spjó-
sleðum, síðan aftur í júlí úr lofti.
Talningin fer þannig fram að
flogið er yfir afréttinn þar sem
hreindýrin ganga og teknar myndir
af hjörðunum og síðan taiið af þeim
er til byggða kemur.
Samkvæmt talningunni reyndust
428 dýr á Múla, undir Fellum voru
255 dýr, á Vesturöræfum 551 dýr,
og á Kringilsárrana voru 67 dýr
rúmlega 100 færri en í fyrra.
Alls var þetta 1.301 dýr, 164
dýrum færra en í fyrra, fullorðnum
kúm hafði fækkað en törfum heldur
íjölgað enda stefnt að því er veiði-
kvóti var ákveðinn á síðasta hausti.
Kálfahlutfall var nú með besta
móti eða 33% á móti 29% á síðasta
ári.
Að sögn Skarphéðins Þórissonar
er umsjón hafði með talningunni
voru skilyrði- til talningarinnar þol-
anleg, nokkuð dimmt yfir og skúrir
sums staðar, en hreindýrin sáust
vel.
Mikill snjór var við Snæfell, aust-
ast á Múla og á Hraunum. Greini-
legt er að sumarið er allt að hálfum
mánuði seinna á ferðinni en í venju-
legu árferði, sagði Skarphéðinn
ennfremur.
Sig. Að.
HARÐViÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
PABBI/MAMMA
AHt fyrir nýfædda barnið
ÞUMALÍNA
Avaxta-og grœnmetisdagar í
Hagkaupi dagana 1.-14. júlí
Alls konar ávextir og margvíslegt grænmeti, - bæði vel
jpekkt og framandi, - ferskt og safaríkt í öllum verslunum
Hagkaups á ávaxta-og grænmetisdögum. Ný uppskera
streymir á markaðinn, þar á meðal mikið af
íslensku grænmeti. Hægt verður að bragða á
|*||§§3 O fjölmörgum tegundum á kynningum og gera
frábær kaup, því þarna verður hvert tilboðið
öðru betra. Njóttu þess!
HAGKAUP
gœöi úrval þjónusta