Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Kvikmyndagerð og
meðferð almannafjár
Ríkisendurskoðun hefur gert
úttekt á fjárhagslegum
tengslum Hrafns Gunnlaugssonar,
framkvæmdastjóra Sjónvarpsins,
við ýmsa opinbera aðila, sem fjalla
um fjármögnun kvikmyndagerðar.
Niðurstaða úttektarinnar er sú, að
Hrafn Gunnlaugsson hafi ekki
gerzt brotlegur í opinberu starfí
og ekkert bendi til þess, að hann
hafi fengið óeðlilega háa styrki úr
opinberum sjóðum, miðað við aðra
kvikmyndagerðarmenn. Raunar
kemur fram, að a.m.k. tveir aðrir
kvikmyndagerðarmenn hafí fengið
áþekkar upphæðir og Hrafn Gunn-
laugsson til kvikmyndagerðar. Þær
ásakanir, sem fram voru bomar á
hendur framkvæmdastjóra Sjón-
varpsins hafa því ekki reynzt á
rökum reistar og er það vissulega
alvarlegt umhugsunarefni fyrir þá,
sem báru þær ásakanir fram, m.a.
úr ræðustól Alþingis.
Hins vegar leiðir athugun Ríkis-
endurskoðunar margt í ljós um
styrkja- og stjómkerfíð, sem ís-
lenzki kvikmyndaiðnaðurinn býr
við. Ríkisendurskoðun sér ástæðu
til að gagmýna fjölmörg atriði,
stjórnsýslulegs eðlis, í starfsemi
Kvikmyndasjóðs, menntamála-
ráðuneytisins, Ríkissjónvarpsins og
Menningarsjóðs útvarpsstöðva.
Ríkisendurskoðun segir, að hjá
Kvikmyndasjóði hafí hæfísreglna
stjómsýsluréttar ekki verið gætt
sem skyldi á undanfömum árum.
Grundvallarreglan í þessu tilliti,
eins og hún er sett fram í nýjum
stjómsýslulögum, er að starfsmað-
ur eða nefndarmaður sé vanhæfur
til meðferðar máls, ef fyrir hendi
em þær aðstæður, sem em fallnar
til þess að draga óhlutdrægni hans
í efa með réttu. Ríkisendurskoðun
segir, að fyrir liggi, að einstakir
stjórnarmenn í Kvikmyndasjóði
hafí tekið þátt í skipun manna í
úthlutunamefnd, þrátt fyrir að þeir
hafí sótt um eða ætlað að sækja
um styrki úr sjóðnum. Ríkisendur-
skoðun fínnur jafnframt að því, að
hagsmunaaðilar skuli skipa fulltrúa
sína í stjóm sjóðsins, með tilliti til
þess hversu fáir kvikmyndagerðar-
menn séu hér á landi. Ríkisendur-
skoðun segir hættuna á hagsmuna-
árekstmm blasa við. „Eins og mál-
um er nú háttað taka hagsmunaað-
ilar þátt í að setja reglur um úthlut-
anir, velja menn til að ákveða hvaða
verkefni eru styrkt og hafa loks
sjálfír eftirlit með að skilyrðum
sjóðsins sé fylgt,“ segir í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
bæði stjórnarmenn í Kvikmynda-
sjóði og menntamálaráðuneytið
fyrir að hafa ekki gætt þess að
halda hæfísreglur í heiðri, og átelur
sérstaklega þá vanrækslu mennta-
málaráðuneytisins, að hafa ekki
gefíð út reglugerð um starfsemi
Kvikmyndasjóðs, þrátt fyrir laga-
ákvæði þar að lútandi.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar er
fundið að því, að ekki hafí verið
höfð sama framkvæmd á úthlutun-
arreglum Kvikmyndasjóðs í ölium
tilfellum. Sumir kvikmyndagerðar-
menn hafí fengið úthlutað styrk
þrátt fynr að hafa ekki gert grein
fyrir fjármögnun mynda sinna með
fullnægjandi hætti. Ríkisendur-
skoðun tqlur áríðandi að þetta sé
samræmt, „enda hlýtur það ávallt
að valda tortryggni þegar fram-
kvæmd reglna lítur út fyrir að vera
mismunandi eftir því hver á í hlut“.
Jafnframt gagnrýnir stofnunin að
misbrestur sé á því að styrkþegar
Kvikmyndasjóðs hafí skilað grein-
argerðum, með endurskoðuðum
reikningum, um það hvemig styrk
frá sjóðnum hafí verið varið. Ríkis-
endurskoðun telur þetta geta vakið
tortryggni gagnvart störfum sjóðs-
ins.
Gagmýni Ríkisendurskoðunar á
Kvikmyndasjóð verður að teljast
réttmæt. Sjóðurinn úthlutar á
þessu ári 112 milljónum króna af
skattfé í styrki til kvikmyndagerð-
ar. Frá því hann var settur á stofn
1979, hefur hann styrkt kvik-
myndagerð um nærri einn milljarð
króna. Skattgreiðendur hljóta að
gera þá kröfu, að með fé sjóðsins
sé farið án hlutdrægni, að allir
styrkþegar sitji við sama borð og
að styrkþegar geri nákvæma grein
fyrir ráðstöfun sinni á almannafé.
Fram kemur í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að vissar umbætur í þess-
um efnum séu hafnar hjá sjóðnum.
Vonandi verður þeim fylgt fast eft-
ir. Það er lágmarkskrafa, að fylgzt
sé með því að þessir fjármunir
gangi til þeirra verka, sem ætlazt
er til.
Ríkisendurskoðun segir í skýrslu
sinni að jafnumfangsmikil viðskipti
stofnunar við starfsmann sinn og
Ríkissjónvarpsins við þáverandi
dagskrárstjóra hljóti að skapa
hættu á hagsmunaárekstri. Þá
gagnrýnir Ríkisendurskoðun
menntamálaráðherra fyrir að skipa
þáverandi dagskrárstjóra formann
stjómar Menningarsjóðs útvarps-
stöðva, bæði út frá áðumefndum
hæfísreglum og vegna þess að hann
hafí verið dagskrárstjóri Sjónvarps
og oft þurft að íjalla um umsóknir
frá starfsmönnum þeirrar stofnun-
ar til sjóðsins.
Úttekt Ríkisendurskoðunar á
litlum hluta stjómkerfisins leiðir í
Ijós að þar er ótrúlega víða pottur
brotinn. Hún staðfestir það, sem
oft hefur verið haft á orði, að
starfshættir hins opinbera ríkis-
kerfís eru oft og tíðum alls ekki f
samræmi við góða stjómsýslu-
hætti. Ein ástæða þess er eflaust
að skýrar reglur hefur skort og er
vonandi úr því bætt að nokkru leyti
með setningu hinna nýju stjórn-
sýslulaga, sem taka gildi um næstu
áramót. Hins vegar er einnig um
að ræða ákveðinn hugarfarsvanda
í stjórnkerfínu. Bæði löggjafínn,
handhafar framkvæmdavaldsins og
embættismenn í ríkiskerfínu verða
að átta sig á því, að augljós hags-
munatengsl, eins og bersýnilega
hafa verið á ferðinni í sambandi
við styrkveitingar til kvikmynda-
gerðar, eiga að heyra til liðinni tíð.
Þau hagsmunatengsl snúa hins
vegar ekki að einum manni,
heldur mörgum.
Fyrsta Olafsvíkurvakan var haldin ur
Grillveisla
SKRAUTLEGIR grímubúningar barna settu skemmtilegan svip á grillveislu sem haldin var á Ólafsvíkui
Hátíðarsvipur y
Jöfn og góð þátttaka í öllum dag-
skrárliðum á Ólafsvíkurvökunni
Ólafsvík.
MARGT fólk heimsótti Ólafsvík um helgina og skemmti sér
með ýmsum hætti ásamt heimamönnum á Ólafsvíkurvökunni
sem haldin var I fyrsta sinn. Blíðskaparveður var alla helg-
ina og gerði það að verkum að hvert dagskráratriði naut
sín að fullu. Fólk hafði úr nógu að velja og varð reyndin sú
að jöfn og góð þátttaka var í hinum ýmsu þáttum dagskrár-
innar. Var eftirtektarvert hve ljúft þessir dagar liðu og án
nokkurrar yfirspennu eða vandræða. Hátíðarsvipur var
yfir bænum.
Vakan hófst á föstudag með
opnun þriggja sýninga í Grunn-
skóla Ólafsvíkur og gamla pakk-
húsinu. Um kvöldið var svo
skemmtidagskrá í félagsheimilinu
á Klifí. Þangað komu nærri þijú
hundruð manns. Þótti skemmtunin
takast með ágætum. Á laugardag-
inn var gönguferð um morguninn
og á sama tíma var skemmtisigling
á þremur vélbátum og var siglt inn
með Vallnabjargi í blíðunni og
fuglalífíð skoðað í nálægð.
Ufsar og marhnútar
Síðan tók við hvert atriðið af
öðru og var meðal annars fjöl-
mennt á biyggjumótinu þar sem
böm innan 13 ára kepptu í veiði-
mennsku. Þarna veiddust ufsar,
kolar, marhnútar og krabbar og
auk þess einn þorskur sem varð
verðlaunafískur, rúmlega pund að
þyngd. Síðar um daginn tóku böm-
in þátt í hjólreiðakeppni og kassa-
bflaralli. Dansleikur var um kvöld-
ið.
Á sunnudag var svo golfmót og
önnur gönguferð, hátíðarmessa í
Ólafsvíkurkirkju og hestamanna-
mót. Sama góða veðrið hélst og
blöktu fánar í hægum blæ. Var sá
svipur Iíka yfír mannlífínu þessa
helgi því allt fór fram með miklum
sóma. Fólk tók þar þátt sem lysti
og lét sér líða vel í veðurblíðunni.
Eínstök vaka
Guðmunda Wium sem sæti átti
í undirbúningsnefnd staðfesti í
stuttu spjalli að fólk hefði verið
ánægt og þakklátt fyrir dvölina og
skemmtunina um helgina. Ýmsir
gestanna hefðu haft orð á að næsta
sumar kæmi fjölskyldan öll. Guð-
munda sagði að alít hefði lagst á
eítt með að gera helgina ánægju-
lega, veðrið, fólkið sjálft og vinna
þeirra sem að stóðu. Ekki hefði
orðið nokkur vandræði eða óhöpp
og ekkert hefði þurft að leita til
læknis eða lögreglu. Guðmunda
sagði að aðstandendur Ólafsvíkur-
vökunnar vildu þakka gestunum
fyrir komuna og heimamönnum
fyrir einstaka vöku sem vonandi
yrði árlegur viðburður.
Helgi
Þrautakóng
ÞRAUTAKÓNGUR á reiðhjólum
Iega á einbeitinguna.
Krabbi á lai
UNGIR veiðimenn fengu aðstoð
að gera að aflanum á bryggjun
má veiddist einn krabbi.