Morgunblaðið - 13.07.1993, Page 23
I-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
23
n helgina í blíðskaparveðri
Hafnarsambandið vill
mæta siávarútveginum
ísafirði
STJÓRN Hafnarsambands sveitarfélaga fundaði á ísafirði í gær með for-
svarsmönnum sjávarútvegs og fiskvinnslu vegna breytinga á lögum um
gjaldskrár hafna, sem gefín voru út í vor og fellir niður miðstýrða verð-
lagsákvörðun og ætlar höfnum að bera sjálfum ábyrgð á verðlagningu,
þjónustu og uppbyggingu hafna að mestu leyti. Menn bentu þó á það að
samkvæmt sérstökum lögum hefði rikisvaldið lagt sérstakt 25% gjald á
gjaldskrár hafna. A þessu ári næmi skatturinn um 100 milljónum króna,
eða sömu upphæð og ríkissjóður leggur til hafnargerðar á Blönduósi, en
sú höfn hefur verið gagnrýnd á þeirri forsendu að engin þörf sé fyrir hana.
Helstu tekjuliðir hafna eru vöru-
gjöld sem lögð eru á aðrar vörur en
fiskafurðir og aflagjöld sem eru
ákveðið hlutfall af verðmæti landaðs
afla. Útvegsmenn vilja 50% lækkun á
aflagjöldum, en fiskverkendur 25%
lækkun á vörugjöldum.
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna sagði að Hafnarsambandið
vildi augljóslega halda miðstýringar-
valdinu sem ríkisstjóm og Alþingi
væru að leggja af. Nú væri ljóst að
til væru öflugar hafnir sem gætu boð-
ið betri þjónustu fyrir lægra verð. Þær
hafnir ættu að fá að njóta sín. Aðrar
hafnir yrðu að leita annarra leiða, til
dæmis með sameiningu eða með því
að draga verulega úr fjárfestingum.
Gjaldskrár hækka
Arnar Sigurmundsson fram-
kvæmdastjóri Félags fiskvinnslu-
stöðva sagði að hafnirnar hefðu verið
að hækka gjaldskrár sínar á samá
tíma og aðrir væru að draga saman
og bæta rekstrarstöðu. Á sama tíma
og hagur fiskvinnslu og sjávarútvegs
færi versnandi leyfðu þeir sér að
hækka álögur. Þá benti hann á það
mikla ósamræmi sem víða væri í gjald-
skrám, þannig væru hafnargjöld af
olíu og hveiti 106 krónur á tonn en á
lýsi og fiskimjöl 220 krónur á tonn.
Sú lækkun sem Vestmannaeyjar væru
nú að boða sé einungis lækkun úr 1%
í 0,9%. Þannig að eftir lækkunina
verði afíagjaldið hærra en á síðasta
ári.
Sturla Böðvarsson formaður Hafn-
arsambands sveitarfélaga sagði %ð'
afloknum sérstökum stjórnarfundi
sem haldinn var eftir fundinn með
fiskvinnslumönnum að stjórnin legði
til að síðustu hækkanir yrðu dregnar
til baka og að ríkissjóður felldi niður
sérstaka 25% gjaldið. Ákvarðanir eru
þó í hendi hverrar hafnarstjórnar og
líklegt má telja eftir að hafa rætt við
fundarmenn að framundan séu um-
fangsmiklar og afdrifaríkar breyting-
ar á hafnarmálum.
Úlfar.
rvöku.
fir bænum
Samgönguráðherra um fyrirsjáanlega samkeppni í símamálum
Póstur o g sími stenst sam
keppni best 1 einkarekstri
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra segir að sem einkafyrirtæki
verði Póstur og sími í betra færi til að svara þeirri miklu samkeppni
sem nú þegar væri farið að gæta og fyrirsjáanleg væri. íslensk símayf-
irvöld vænta aukinnar samkeppni að utan á næstu árum. Ólafur Tómas-
son Póst- og símamálastjóri segir að þessi mál séu skoðuð með opnum
huga, þótt í augnablikinu liggi ekki fyrir ákveðnar áætlanir.
Gústav Amar yfírverkfræðingur
hjá Pósti og síma sagði í viðtali við
Morgunblaðið síðasta sunnudag að
íslensk símayfírvöld eigi allt eins von
á aukinni samkeppni erlendis frá á
næstu árum. Hann taldi tímabært
að íslendingar fari að spá í framtíð-
arþróun fjarskipta við útlönd og leiti
jafnvel að alþjóðlegum samstarfsað-
ilum. í viðtalinu lagði Gústav Amar
áherslu á mikilvægi þess að íslend-
ingar fylgdust vel með þróuninni
erlendis og létu stóru þjóðunum eftir
að prófa sig áfram að þeim stöðlum
sem festust í sessi.
fyrirtæki væri Póstur og sími í betra
færi til að svara þeirri miklu sam-
keppni sem nú þegar væri farið að
gæta og fyrirsjáanleg væri. Einka-
fyrirtæki væm næmari fyrir þeim
hræringum sem væm á markaðinum
og hefðu, fremur en opinberar stofn-
anir, betri tök á því að mæta þeim
auknu kröfum sem hin öra þróun í
íjarskipta- og símamálum gerði.
Menn átta sig á breyttum
viðhorfum
Halldór Blöndal minnti á það að
í vor hefði hann kynnt ríkisstjórn og
stuðningsflokkum ríkisstjómarinnar
á Alþingi framvarp sem hefði miðað
að einkavæðingu Pósts- og síma.
Þetta fmmvarp hefði reyndar ekki
orðið útrædd en það hefði verið
ákveðið að hann heldi málinu vak-.
andi. Samgönguráðherra sagði að
það þyrfti að ræða málið betur og
nánar við starfsgreinafélög Pósts-
og síma. Einnig væri eðlilegt að
nokkurn tíma tæki fyrir þingmenn
að átta sig á breyttum viðhorfum
en ráðherra sagðist gera sér góðar
vonir um það að þeir myndu sann-
færast og hann vonaðist eftir að
Alþýðuflokkurinn myndi fallast á
sínar hugmyndir og fmmvarpið
myndi líta dagsins ljós í haust.
Fjörug verslun á útimarkaði
MARGIR notuðu tækifærið og versluðu á útimarkað-
inum.
Átali
GUÐBRANDUR Vigfússon, fyrrverandi oddviti Ól-
afsvíkur, og Bjarni Ólafsson, stöðvarstjóri Pósts og
síma, spjölluðu saman í góðviðrinu.
Með opnum huga
í .samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Ólafur Tómasson póst- og
símamálastjóri að menn hjá Pósti og
síma væm með augum opin fyrir
þessum breytingum og skoðuðu mál-
in með opnum huga. Hann sagði sitt
mat þeir yrðu taka upp samvinnu
við aðra og jafnvel hugsanlega sækja
á önnur mið; erlenda markaði. En
Póst- og símamálastjóri sagði engar
fastar áætlanir liggja fyrir nú í
augnablikinu. Hann benti þó á að
Póst- og símamálastofnunin væri í
samstarfi um tæknilega uppbygg-
ingu o.fl. við hin Norðurlöndin en
hins vegar væri ekki hægt að tala
um beina samvinnu.
Viðurkennum staðreyndir
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra lagði áherslu á nauðsyn þess
að Islendingar fyigdust vel með þró-
uninni. Samgönguráðherra sagðist
hafa fyrir tæpum tveimur árum átt
þess kost að sækja ráðstefnu og
kaupstefnu um síma- og fjarskipta-
málefni. Þar hefði verið til kynningar
sú tækni og og tæknibúnaður sem
nú væri markaðsvara, aðgengileg
fyrir íslendinga. En samgönguráð-
herra vildi jafnframt taka undir þau
orð Gústavs Arnars að íslendingar
ættu að láta öðmm þjóðum eftir að
sem bestum stöðlum
þessa búnað-
ar.
Halldór benti á að breytingar í
þjóðfélagi nútímans væm mjög örar
og margir hefðu dregist aftur úr eða
hreinlega setið eftir vegna þess að
þeir hefðu neitað að horfast í augu
við staðreyndir, nýjar kröfur og nýja
möguleika. Samgönguráðherra dró
enga dul á þá skoðun að sem einka-
Umræður um starfsréttindi leiðsögumanna
3 ára háskólanám skii-“
yrði fullgildingar í EES
EES-SAMNINGURINN kveður á um að til að hægt sé að krefjast þess
að erlendir ríkisborgarar uppfylli sömu menntunarkröfur og innlend-
ir starfsmenn í ákveðinni grein, þurfi að vera um a.m.k. þriggja ára
háskólanám að ræða. Nefnd á veguin samgönguráðuneytisins kannar
nú hvernig starfsréttindum erlendra leiðsögumanna verði háttað hér
á landi með hliðsjón af EES-samningnum, en eins og fram kom i sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins vilja íslenzkir leiðsögumenn undanþágu frá
EES-samningnum. Þeir vilja að krafizt verði leiðsögunáms á Islandi
sem skilyrðis þess að menn fái að fara með ferðamenn um landið sem
fararstjórar.
I VII. viðauka EES-samningsins,
sem fjallar um gagnkvæma viður-
kenningu starfsréttinda, er vísað til
tilskipunar Evrópubandalagsins,
89/48/EBE, þar sem kveðið er á um
„almennt kerfi til viðurkenningar á
prófskírteinum, sem veitt em að lok-
inni sérfræðimenntun og starfsþjálf-
un á æðra skólastigi sem staðið hef-
ur í þrjú ár hið minnsta“. Samkvæmt
þessu er vafasamt að leiðsögu-
mannsstarfið geti notið löggildingar
hér á landi, en Leiðsöguskólinn tekur
nú eitt ár.
Óvissa um réttarstöðu
Að sögn Gunnars Sigurðssonar í
félagsmálaráðuneytinu er í undir-
búningi EES-löggjöf um gagn-
kvæma viðurkenningu starfsrétt-
inda, sem veitt em að loknu skemmra
námi og er ætlunin að þar verði einn-
ig um almennar reglur að ræða, en
ekki sérstakar tilskipanir um ein-
stakar starfsstéttir. Ekki er vitað
hvenær þessar reglur taka gildi, en
svo gæti farið, að sögn Guhnars,.*^
þær yrðu teknar fyrir strax eftir
gildistöku EES-samningsins. Hann
sagði að hugsanlega yrði því einhver
óvissa um réttarstöðu leiðsögu-
manna þar til nýju reglumar yrðu
settar. „En markmiðið með þessum
reglum er að auðvelda fólki förina á
milli, ekki að setja upp nýjar hindran-
ir,“ sagði Gunnar.
Magnús Oddsson, formaður
nefndar samgönguráðuneytisins um
starfsréttindi leiðsögumanna, sagði
að hlutverk neftidarinnar væri að
gera tillögur að nýrri reglug^jð
og/eða tillögum að breytingum á
lögum um störf leiðsögumanna, með
tilliti til EES. Magnús sagði að fram
til þessa hefði nefndin einkum ein-
beitt sér að söfnun gagna um það
hvernig starfsréttindum leiðsögu-
manna væri háttað í öðmm EES-
ríkjum. Magnús sagði að nefndin
hefði sett sér það markmið að ljúka
störfum á þessu ári.
ur
reyndi svo sannar-