Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
27
IÐNFRÆÐSLA —Vátryggingafélag íslands gaf bifvélavirkjadeild Iðnskólans í Reykjavík nú nýver-
ið tjónbíl með nýtísku rafeindainnsprautun. Til þessa hefur deildina vantað bíl af því tagi til kennslu í við-
gerðum á slíkum búnaði. Á myndinni eru (f.v.) Þorgeir Theodórsson, deildarstjóri bifvélavirkjadeildar, Guð-
mundur Guðlaugsson, kennslustjóri málmiðnadeildar, Kristján G. Tryggvason hjá VÍS, Pétur Már Jónsson
hjá VÍS og Ingvar Ásmundsson, skólameistari Iðnskólans.
Flug
Mikil fjölgun lítilla flug-
félaga í Bandaríkjunum
BOEING 727-vélin er dálítið lúin að sjá þar sem hún hefur sig á loft
frá Newark-flugvelli en hún er þó á áætlun. Hún er merkt Kiwi-flugfé-
laginu, einu af mörgum smáflugfélögum, sem skotið hafa upp kollinum
í Bandaríkjunum á síðustu árum. Kiwi flýgur aðeins til fárra staða,
Chicago, Atlanta, New York, Orlando og San Juan á Puerto Rico, og
það freistar viðskiptavinanna aðeins með einu — verðinu.
Flugmiðinn milli Newark og Atl-
anta, aðra leiðina og án þess hann
sé keyptur með einhveijum fýrirvara
eða dvalist á staðnum í tiltekinn tíma,
kostar 119 dollara, um 8.450 ísl.
kr., en með Delta Air Lines kostar
hann tæplega 26.500 kr.
15 á einu ári og 20 bíða
Ætla mætti, að lítið vit væri í að
fara út í flugrekstur nú á þessum
síðustu og verstu tímum. Tvö stór
félög, Pan Am og Eastem, hafa logn-
ast út af og á síðustu þremur árum
hafa hin stóru félögin sjö tapað átta
milljörðum dollara. Enn er óvíst hvort
það tekst að draga Northwest Airli-
nes af gjaldþrotsbrúninni. Samt sem
áður hafa 15 flugfélög hafið rekstur
á einu ári fram í apríl sl. og hjá
bandaríska samgönguráðuneytinu
liggja fyrir umsóknir um 20 önnur.
Það eru líklega tvær meginástæð-
ur fýrir tilkomu þessara flugfélaga.
Onnur er offramboð á menntuðu
vinnuafli og hin er mikið framboð
af ódýrum flugvélum. Þegar Pan Am
og Eastem lögðu upp laupana misstu
30.000 manns atvinnuna og hin fé-
lögin hafa einnig fækkað sínu starfs-
fólki.
Það voru fyrrverandi flugmenn hjá
Eastem, sem áttu hugmyndina að
Kiwi, og hver þeirra lagði fram 3,5
millj. kr í hlutafé. Nú starfa 400
manns hjá félaginu. Það er þó ekki
aðeins, að nóg sé af hæfu fólki, held-
ur er líka nóg af ódýrum flugvélum.
Mörg nýju félaganpa nota til dæmis
Boeing 727. eða 737 og aðeins eina
tegund til að spara í viðgerðarkostn-
aði. Leigukjörin em nú þannig, að
hægt er að fá 727-200 fyrir um sjö
milljónir kr. á mánuði.
Möguleikar á markaði
Markaðurinn er líka hliðhollur litlu
félögunum. Verðstríð stóra félag-
anna á undanfömum áram hefur
gert fólk svo vant alls konar tilboðum
og afsláttarkjöram, að það tekur lágt
verð fram yfir þægindin í nýju flug-
vélunum. Stóra félögin hafa svo einn-
ig verið að hækka sin gjöld, einkum
þar sem þau mæta lítilli samkeppni.
Sem dæmi um það má nefna Delta,
sem varð langstærst í Atlanta þegar
Eastern féll og beið þá ekki boðanna
með að hækka fargjöldin. Við slíkar
aðstæður eiga lítil félög með lítinn
rekstrarkostnað mikla möguleika. Á
ýmsu hefur þó gengið hjá þeim en
sum hafa verið rekin með hagnað frá
byijun.
Að kunna sér hóf
Litlu félögin geta þrifist vel meðan
þau sinna sínum ákveðna markaði
Tvöfaldir laugardagar!
.. því nú tökum við okkur frí á sunnudögum íjúíí.
• Sérstakur afsláttur fyrir seljendur
• kompudóts á laugardögum:
Lftill bás - aðe/ns kr.: 2.450.-
Stór bás - aðe/ns kr.: 3.150.-
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Upplýsingar og bókanir sölubása frá kl 9-17 í síma 625030
en láti þau velgengnina stíga sér til
höfuðs og krefjist fangbragða við
stóru félögin getur illa farið. Gott
dæmi um það er MarkAir, sem var
með aðsetur í Anchorage í Alaska.
Upphaflega var það aðeins í að flytja
ýmsan búnað vegna olíuvinnslunnar
en um miðjan síðasta áratug byijaði
það á farþegaflutningum. Það gekk
líka mjög vel eða þar til 1991 þegar
félagið vildi verða enn stærra og hóf
beina samkeppni við Alaska Airlines.
Þá tók við grimmilegt verðstríð, sem
lauk með því, að MarkAir varð gjald-
þrota í júní á síðasta ári.
AFBURÐA LASERPRENTARfl
CL 600
A3 og A4 pappír
600x600 punkta upplausn (dpi)
Intel 80960KB RISC örgjörvi
Intel 82961KD grafískur örgjörvi
Hárfínt duft (7 m(krón)
Margföld minnisnýting
Postscript, PCL5 og HP-GL/2
35 TrueType leturgeröir
13 HP-PCL5 leturgeröir
Appletalk-, raö- og hliötengi
Getur unniö á öllum tengjum
samtímis
SCSI tengi fyrir fontadisk
Sjálfvirk skynjun á Postscript og
PCL5
Tekur viö prentgögnum á meöan
prentaö er
Skaöar ekki Ozon lagiö
<o>
■CalComp “LHE..R.JI.
A lockheed Company
Álltaf tknfi á undan
Erlent
Eru háhraðaferjur það
sem koma skal?
SÆNSKA ferjufélagið Stena Li-
nes AB, sem er ein stærstu ferju-
útgerða heims, hefur uppi áform
um að kaupa tveggja skrokka,
hraðgenga ferju af nýrri gerð.
Nýju feijurnar munu geta siglt
tvöfalt hraðar en hinar hefð-
bundnu, eða á um 80 km hraða
á klukkustund.
Nýju skipin munu taka yfir 1000
farþega, og kosta meira en 1,3
milljarða króna. Finnska skipa-
smíðastöðin Finnyards Oy þykir lík-
legust til að fá samninginn ef af
verður, en stöðin hefur áður smíðað
nýtískulegt skemmtiferðaskip, Ra-
disson Diamond, sem siglir á
Karíbahafi. Nýju skipunum mun
meðal annars vera ætlað að mæta
samkeppni sem hlýst af opnun Erm-
arsundsganganna á næsta ári.
Finnair hættir við kaup
á Boeing-vélum
FINNAIR, finnska ríkisflugfé-
lagið, sem rekið hefur verið með
miklum halla, hefur hætt við
áætlanir um að endurnýja flug-
flota sinn að hluta og skipta út
10 McDonnell Douglas- og Air-
bus-þotum fyrir Boeing 676 og
737.
í apríl síðastliðnum undirrituðu
forsvarsmenn Finnairs viljayfirlýs-
ingu um kaup á Boeing-þotum í
stað fyrrnefndra 10 flugvéla en
fyrirhugað var að halda kaupunum
áfram og endurnýja allan flotann,
44 flugvélar, fyrir aldamót. Fjár-
hagsstaða Finnairs hefur hins vegar
versnað mikið í kjölfar þrenging-
anna í Finnlandi og tapið á síðasta
fjárhagsári, sem stóð út mars, var
helmingi meira en fyrir ári. Þá þyk-
ir ljóst, að ekki muni ástandið batna
á næstunni.
An invitation to
Earn Your American University
Degree At A College in London
Meet our College Admlssions Officer
Wednesday, 14 July, at 19.00
the HóteJ Loftleiðir.
Please join us for individual discussions,
interviews and a video presentation.
Study Business Administration, Commercial Art,
Fashion Design and Marketing, Interior Design
and Video Production.
A large number of lcelandic students are currently studying at The
American College in London. An international education could prepare
you for your career, too.
Our university puts emphasis on 'an education for your career with
specialized courses, contacts with top professionals, famous guest
lectures, and exposure to real world situations through our intership
program.
U.S. accredited and degree granting (university-level bachelor’s and
associate degrees). Housing and job placement services available.
Study abroad opportunities to our sister campuses in Atlanta and Los
Angeles.
English as a Second Language program (ESL) available.
For further information or a prospectus, contact:
Terms begin August 3, October 4, January 6.
í boði er
bandarísk háskólagráða
frá háskóla í London
Skráningarstjóri okkar verður tii viðtais
miðvikudaginn 14. júlí kl. 19.00
á Hótei Loftleiðum.
Þér er velkomið að koma og r»ða við hann einslega,
mæta í viðtal 09 sjá kynningarmyndband um skólann.
Hægt er að nema viðskiptafræði, grafíska hönnun,
tískuhönnun og markaðssetningu, innanhússhönnun
og myndbandaframleiðslu.
Fjölmargir islendingar eru nú við nám I The American College í
London. Alþjóðleg menntun gæti líka verið góður undirbúningur fyrir
þinn starfsframa.
Háskólinn okkar leggur áherslu á menntun sem mun nýtast þér í
framtíðinni. Námskeið eru sérhæfð, komið er á tengslum við fólk, sem
er í fremstu röð I sínu fagi, og boðið er upp á þekkta gestafyrirlesara.
Einnig gefst tækifæri til starfsþjátfunar þar sem nemendur þurfa aö
kljást við raunveruleg vandamál.
Skólinn er viðurkenndur af bandarískum yfirvöldum og hefur réttindi
til að veita bandarískar háskóiagráður (bachelor’s og associate gráöur).
Veitt er aðstoð við að finna húsnæöi og atvinnu sé þess æskt.
Þá gefst kostur á að nema einnig við systurskóla okkar í borgunum
Atlanta og Los Angeles í Bandaríkjunum.
Einnig er hægt að stunda nám í ensku í „English as a Second Langu-
age“ (ESL) námskeiðum.
Ef þú hefur áhuga á frekari upplýsingum, hafðu þá samband við:
The American Cdkge in London
110 Marylebone High Street, London W1M 3DB
Phone: (071) 486-1772 • FAX: (071) 935-8144
Námsannir hefjast 3. ágúst, 4. október og 6. janúar.