Morgunblaðið - 13.07.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
29
Opið bréf til
Ríkisútvarpsins
í eftir Jóhönnu
Tryggvadóttur
I Bjarnason
Sl. föstudag átti að fara fram
nauðungarsala á hluta Jónasar
Bjarnasonar í þriðju hæð hússins
Klapparstígur 25-27, Reykjavík,
vegna kröfu Ríkisútvarpsins.
Krafan er komin til vegna við-
skipta Evrópuferða (firma Jó-
hönnu Tryggvadóttur og Jónasar
Bjarnasonar) við auglýsingadeild
Sjónvarpsins.
Sérstakt tilefni þessarar beiðni
til Ríkisútvarpsins, um tíma-
bundna stöðvun nauðungarsöluað-
gerða, er að gefa tækifæri til að
athuga réttmæti aðgerðanna og
einnig að mati Evrópuferða alvar-
legt réttarbrot Ríkisútvarpsins,
Sjónvarps, gagnvart Evrópuferð-
um, við gerð kvikmyndaþátta í
samvinnu við Plús Film hf. í Port-
úgal í ágúst 1989. (Sjónvarpið eða
Plús Film hf. hafa ekki svarað
bréfi, dags. 13. október ’92.
Réttarbrot Sjónvarpsins fólust
í því að það notaði sér, við gerð
sinna þátta, aðstöðu og kostnað
sem Evrópuferðir höfðu hinn 1.
ágúst 1989 samið um við Plús
Film hf. og lagt til í Portúgal við
gerð kvikmyndaþátta fyrir Evr-
ópuferðir.
Aðstaðan sém Evrópuferðir
lögðu til í Portúgal var samkomu-
lag um undirbúning og fyrir-
greiðslu portúgalskra ferðamála-
„Réttarbrot Sjónvarps-
ins fólust í því að það
notaði sér, við gerð
sinna þátta, aðstöðu og
kostnað sem Evrópu-
ferðir höfðu hinn 1.
ágúst 1989 samið um
við Plús Film hf. og lagt
til í Portúgal við gerð
kvikmyndaþátta fyrir
Evrópuferðir.“
yfirvalda og stjórnvalda, sérstakur
starfsmaður Evrópuferða í Port-
úgal, uppihald, gisting og matur
á góðu hóteli, sérstök bifreið til
afnota fyrir kvikmyndagerðar-
mennina og útlagðir peningar.
Telja Evrópuferðir að útlagðar
greiðslur hafi numið alls kr.
733.740 til Plús Film hf. og er þá
meðtalinn veittur afsláttur kr.
63.740 og kostnaður vegna inn-
heimtu víxla kr. 36.740.
Myndirnar sem Evrópuferðir
áttu að fá frá Plús Film hf. eigi
síðar en 15. september 1989 hafa
Evrópuferðir ekki fengið enn.
Evrópuferðir telja að forsvars-
mönnum Sjónvarpsins hafi frá
upphafi verið fullkunnugt um að
með samningi Sjónvarpsins var
verið að bijóta á rétti Evrópu-
ferða. Skulu þessi atriði nefnd:
1. Samningur Sjónvarpsins við
l lllffli....... .n. _ . . ' i ________
<|"“ÍI»«IW 171, 105 R«7k).»ni, J|m.
5“- «W«“. T.k-., 31,35. T.l.f.xj I
ReykjavIJc,2ULi989,
Saoiningur.
I 08 Plú8 Pil« hj„' k.‘,
*smnlng; 101 Reylcjavlk. gcra mo6 sér svoíeiwan
0*fi6r* Itlendinga som^þar búa88ia mlnúm um Noröur-Portúgal
SífSiíaS!?í Skuíu ^entlr SJönvarplnu i
j^erl^SPisamtvlöcigaS^^Kofi^ “ 15
Noröurlondunum"þtr Tm““ua «“«««• 4 lalandfog annars
í«ÍSmu‘ skal eiga
V««.*aarkun‘naaökomarr?mer 8“8nvm CíílJZ
< « - •'
/PJi. Piúj PiLm h.f. /1
UP.il. ÍDD,
---------- i
JSvelnh M. Svclnason
Staftfeat,
Sve inn Binarssoh
PétUf Guftflnnsson
framkvamdastjóri.
1
I
I
I
skólar/námskeíð
tungumál |
■ Pennavinir
Að skrifast á við fólk í útlöndum er ágæt
leið til að halda við og bæta tungumála-
kunnáttuna.
International Pen Friendes hefur penna-
vini í h.u.b. hvaða landi sem er.
Frekari upplýsingar: IPF, pósthólf 4276,
124 Reykjavík.
Enska málstofan
■ Sumarnámskeið:
Vantar þig þjálfun í að tala ensku?
Við bjóðum námskeið með áherslu á
þjálfun talmáls. Fámennir hópar. Nýir
nemendur geta byrjað hvenær sem er.
Einnig bjóðum við námskeið i viðskipta-
ensku og einkatíma.
Upplýsingar og skráning í síma
620699 frá kl. 14-18 alla virka daga.
Plús Film hf. var gerður eftir að
vinna við þættina var unnin, þ.e.
21. nóvember 1989, en myndirnar
voru teknar í ágúst 1989.
2. gert var að skilyrði eftir á,
að útvarpsráðsmaðurinn Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir tæki
þátt í gerð kvikmyndaþáttanna.
3. Samningurinn fékk ekki stað-
festingu Péturs Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra Sjónvarpsins,
en mun þó hafa verið nefndur af
hálfu Sjónvarpsins.
4. Sérstakt ákvæði er í samn-
ingi Sjónvarpsins um mögulegar
kröfur þriggja aðila, sem er
óvenjulegt, nema sérstök tilefni
séu til.
Vísað er til áður sendra gagna,
en jafnframt eru sendir samningur
Evrópuferða til Plús Film hf. dags.
1. ágúst 1989 og samningur Sjón-
varpsins við PIús Film hf. dags.
21, nóvember 1989.
Höfundur er forstjóri
Evrópuferdu.
VERÐLÆKKUN!
Afnudiskynning d Ömmuflatkökum
í tilefhi af40 ára afinali Ömmubaksturs bjóðum við
landsmönnum Ömmuflatkökur með 40% afmœlisafilœtti.
Nýttu þér afinœlistilboðið okkar og
nœldu þér íþennan jyrirtaks snœðingfrá Ömmubakstri.
Ömmuflatkökur eru alveg ómissandi
íferðalagið og sjálfiagðar á matar- og kajfiborðið.
Svipastu um eftir flatkökum
frá Ömmubakstri á afmalisafilœtti í versluninni þinni.
<
Bakarí Friðriks Haraldssotiar sf. Kársnesbraut 96, Kópavogi Sími 91-41301 §