Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
33
Guðríður Hallsteins-
dóttir - Minning
Fædd 18. ágúst 1925
Dáin 29. júní 1993
Síminn hringir, Stebbi er í sí-
manum og segir að Gauja sé dáin.
Ég verð orðlaus, allt hringsnýst.
■ • Getur þetta verið satt?
Aðeins daginn áður mánudag-
inn 28. júní höfðu þeir vinirnir
verið að veiða saman í Blöndu eins
og svo oft áður og Gauja hafði
haft áhyggjur af heilsu Stebba,
en hún vonaði að allt gengi vel
og hann ofreyndi sig ekki.
Um nóttina 29. júní komu veiði-
mennirnir heim og tók Gauja hress
og kát á móti þeim að vanda,
kvaddi Gulla og sagði: „Sjáumst
Bagga mín, mikill er söknuður
þinn og ykkar afkomenda, en
minningin um góðan og hjartahlýj-
an vin er huggun harmi gegn. Eg
hef þá trú að seinna meir eigum
við eftir að hittast aftur, við Steini,
og þá spilum við á harmonikurnar
og þú dansar við káta gesti.
Þar sem ég finn að ég er líka
að eldast með öllum hinum og hef
ég þar af leiðandi í minningu
Steina viljað telja upp þá menn
sem ég kynntist á árunum 1950-
fljótt.“ En stutt er milli gleði og
sorgar. Gauja vaknaði ekki aftur.
Fyrir stuttu töluðum við saman
um sumarfrí sem við báðar vorum
að fara í. Loksins passaði allt sam-
an og nú skyldi eitthvað skemmti-
legt gert. Við hjónin minnumst
allra samverustundanna með þeim
Gauju og Stebba með hlýju, ferð-
arinnar til Ungverjalands og allra
rauðu rósanna sem við fengum
þar, þér fannst þær ilma svo yndis-
lega, og margra skemmtilegra
ferða okkar út úr bænum, þegar
kíkt var inn í kaffi og talað sam-
an, málin rædd, ekki endilega sam-
mála.
1970 sem spiluðu á harmoniku í
Borgarfirði. Þessum mönnum spil-
aði ég með mörgum sinnum, sum-
um mikið, en öðrum minna. Þessir
menn eru: Marinó Sigurðsson
Borgarnesi, Ásgeir Sverrisson,
Hvammi, Magnús Bjarnason,
Skáney, Ólafur Guðmundsson,
Hvanneyri, Aðalsteinn Símonar-
son, Laufskálum, Benedikt Egils-
son, Kópareykjum, Jóhannes Benj-
amínson, Hallkelsstöðum, Helgi
Kolbeinsson, Stórhálsi, Bjarni Pét-
Með stolti og hlýju sagði hún
mér þegar hún varð langamma og
töluðum við oft um barnabörnin
okkar. Mér fannst ég hafa séð
barnabörnin hennar á Nýja-Sjá-
landi, svo lifandi voru lýsingar
hennar á þeim.
Fjölskyldan og börnin voru
henni allt, og hún hélt vel utan
um þau.
Elsku Stebbi, við biðjum algóð-
an Guð að styrkja ykkur öll. Þið
hafið misst mikið, en lífið verður
að halda áfram þótt erfitt sé.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Þorbjörg og Gunnlaugur.
ursson, Grund, Sigurður Guð-
mundsson, Kirkjubóli, Bjami Guð-
rásson, Nesi, Jakob Magnússon,
Samtúni; Jóhannes ðlafsson,
Ásum, Óli. H. Þórðarson, Klepp-
járnsreykjum, Eðvarð Friðjónsson,
Akranesi, Bjarni Aðalsteinsson,
Akranesi, og Magnús Magnússon,
Norðtungu.
Með þessum orðum lýk ég að
sinni hugleiðingum mínum um vin
minn Steina og okkar sameigin-
lega áhugamál, harmonikuna,
tímabilið 1950-1970 í Borgar-
firði. Það mætti margt segja og
skrifa um það tímabil, meira en
orðið er, en það verður að bíða
betri tíma.
Blessuð sé minning Aðalsteins
Símonarsonar.
Með vinarkveðju.
Ámundi Ámundason frá
Kleppjárnsreykjum.
Minning
Aðalsteinn Símonar-
son, Laufskálum
Minning
Auður Þorláksdóttir
Fædd 26. október 1930
Dáin 29. júní 1993
Auður var fædd í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún var dóttir
Magneu Einarsdóttur og Þorláks
Jónssonar.
Auður giftist Gunnari Má
Torfasyni vörubílstjóra 5. marz
1949 og eignuðust þau sex börn
og 12 barnabörn. Einnig ólst upp
hjá þeim hjónum um tíma systur-
sonur Gunnars. Lengst af bjuggu
þau í Grænukinn 17 í Hafnarfirði.
Hjá þeim bjó einnig Magga, móðir
Auðar.
Árið 1957 kynntist ég og fjöl-
skylda mín Auði og fjölskyldu
hennar er við fluttum í Grænukinn
17, þar sem við bjuggum í tæp
10 ár. Margs er að minnast og
þakka frá þeim árum. Samgangur
milli hæða var mikill og dvaldist
ég hjá þeim um tíma er móðir
mín var á sjúkrahúsi. Gerðum við
Gunni þá oft hávaða, en hann tók
í nefið, og snýttum við okkur þá
hrustlega og með miklum hávaða.
Á eftir fengum við okkur svo ást-
arpunga og mjólk.
Mörg fleiri atvik geymi ég í
minningunni frá þessum árum.
Að lokum þakka ég Auði og fjöl-
skyldu hennar frábæra vináttu við
mig alla tíð.
Magga, Gunni og fjölskylda, ég
sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur á þessari erfiðu
stund.
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem bam ég þekkti fyr.
(Matthías Jochumsson.)
Sigurður Þ. Jónsson,
Hafnarfirði.
BLÓMIÐ +
Blóm - Skreytingar - Gjafavara Kransar - Krossar - Kistuskreytingar Úrval af servícttum OPIÐ FRÁ KL. 10-21 GRENSÁSVEGI 16 • SÍMI 811330 1 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKAPTI ÁSKELSSON, Reynivöllum 8, Akureyri, er lést laugardaginn 3. júlí, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 15. júlí kl. 13.30.
Blómastofa Hallgrímur Skaptason, Heba Ásgrímsdóttir, Brynjar Ingi Skaptason, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og fjölskyldur.
FHAfinm
Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 +
Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. v*v’ ' % Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við fráfall og útför GUNNÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR, Reykjalundi, Mosfellsbæ, og heiðruðu minningu hennar. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar læknis og starfsfólks Landakotsspítala, Heimahlynningar Krabbameinsfélags íslands svo og samstarfsfólks á Reykjalundi og Soroþtimistaklúbbs Kjalar- nesþings.
Friðrik Sveinsson, Guðrún Friðriksdóttir, Rósa Friðriksdóttir, Þorsteinn Óli Kratsch, Jóhanna Friðriksdóttir, Sigurður Jónsson, Þóra Friðriksdóttir, Guðmundur Ragnarsson, Hildur Kristfn Friðriksdóttir, Sigurður Reynisson og barnabörn.
Kjaftshögg fyrir kon-
ur, segja ungliðar
slj órnarandstöðunnar
UNGLIÐAHREYFINGAR Sam-
bands ungra framsóknarmanna,
ungar Kvennalistakonur, Verð-
andi og Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins lýsa vanþóknun
sinni á því hvernig gengið var
fram hjá hæfri konu við ráð-
herraskipti í Alþýðuflokknum
nýverið.
Ljós er að væri Rannveig Guð-
mundsdóttir þeim eiginleikum gædd
að vera karlmaður væri hún ráð-
herra í ríkisstjórn íslands. Það er
óþolandi, segir í ályktun þessara
aðila, að þeim fáu konum sem kom-
ist hafa áfram innan gömlu flokk-
ana sé sýnd slík lítilsvirðing af körl-
um sem þar eru fýrir, og að þeir
komist upp með það. Þetta er kjafts-
högg fyrir íslenskar konur en má
þó' ekki verða til þess að draga kjark
úr þeim sem vilja láta til sín taka
í stjórnmálum.
Við skorum á konur að láta at-
burð þennan ekki slá sig út af lag-
inu, heldur þvert á móti, snúa vörn
í sókn, sýna samstöðu og sjá til
þess að konur verði aldrei aftur
fótum troðnar á þennan hátt.
í lok ályktunarinnar segir: „Þess
má geta að Sambandi ungra jafnað-
armanna og Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna var boðið að rita und-
ir þessa yfirlýsingu en því var hafn-
að.“
★ Rcropriinit
TIIVIE RECORDER CO.
Stimpilklukkur fyrir
núti6 og framtíð
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
★ HSM
Pappírstætarar og pressur
Ýmsar stærðir og gerðir
► Nýtisku hönnun ► Öryggishlíf
► Litaval ►Þýsk tækni og gæði
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTVEIGAR
KRISTVINSDÓTTUR,
Miðtúni 2,
Reykjavík.
Björn Guðmundsson,
Guðmundur Hlíðar Björnsson, Anna Hlín Guðmundsdóttir,
Birna Björnsdóttir, Björn Karlsson,
Stefanfa Björnsdóttir, Jón Helgason,
Haraldur Björnsson, Ingibjörg Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum einlægan hlýhug við andlát og jarðarför
VALDEMARS SÖRENSEN.
Þuríður Jónsdóttir Sörensen, Jórunn Sörensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns,
GUÐMUNDAR V. STEINSSONAR,
Hólavegi 8,
Sauðárkróki.
Fyrir hönd vandamanna,
Stefanía Jónsdóttir.
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
JÓNS TRAUSTA
ÚRANUSSONAR.
Jórunn Lilja Magnúsdóttir,
Viktor Þór Úranusson, Hulda Jensdóttir,
Pálína Úranusdóttir,
Gylfi Þór Úranusson,
Skúli Úranusson,
Oddgeir M. Úranusson,
Lilja Kristinsdóttir, Kristinn Þór Ágústsson,
Þóra Sif Kristinsdóttir,
Úranus Ingi Kristinsson, Sigríður Diljá Magnúsdóttir,
Viktor Björn Viktorsson,
Karen Sif Viktorsdóttir.