Morgunblaðið - 13.07.1993, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
34
í HÁDEGINU ALLA DAGA
' BORÐAPANTANIR í SÍMA 25700
VERJUR
FYRIR EIGIIR ÞINflR!
Morgunblaðið/HF
fclk í
fréttum
Starfsmenn Aðalstöðvarinnar taka við verðlaunabikarnum. F.v. á leið upp á sviðið Dóra Takefusa, Jón
Haukur Baldvinsson, Sigurjón Lúðvíksson, Haraldur Daði Ragnarsson, Davíð Þór Jónsson tekur við
bikarnum, rétt glittir í Karl Lúðvíksson fyrir aftan Hemma Gunn, sem var kynnir og lengst til hægri
er Jakob Bjarnar Grétarsson.
KEPPNI
Leigjum mjög vandaðar
yfirbreiðslur (4x6 m) til lengri
eða skemmri tíma.
Allar nánari upplýsingar og
pantanir í síma 625030.
KOLAPORTSINS
Aðalstöðin kraftmesta
útvarpsstöðin 1993
Electrolux Goods Protection
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0002 1040
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
kort úr umferð og sendið VISA Islandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og visa á vágest.
VI5A ÍSLAND
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavfk
Slmi 91-671700
Starfsmenn Aðalstöðvarinnar sáu
til þess sl. laugardag að stöðin
þeirra hlaut titilinn kraftmesta út-
varpsstöðin 1993. í öðru sæti var
útvarpsstöðin Berlín og í þriðja sæti
Rás 2. Boðað var til keppninnar á
vegum Tívolís í Hveragerði, þar sem
hún fór fram, og mátti hver útvarps-
stöð senda einn til sex þátttakendur,
en keppnisgreinamar voru sjö.
Fyrsta greinin var hlaup frá
Kambabrún að tívolíinu, þar sem
ljúka átti úr kókglasi. Sigruðu
Bylgjumenn. Annar hlutinn fólst í
því að borða ijómatertu með hendur
fyrir aftan bak eftir að hafa fengið
nokkuð marga snúninga í þeytivind-
unni.
Ólíkt því sem menn bjuggust við
var engan flökurleika að merkja á
mannskapnum og fór svo að starfs-
maður Aðalstöðvarinnar sýndi mesta
græðgi og lauk fyrstur af sínum
diski.
Þau borðuðu af bestu lyst þrátt fyrir að hafa farið fyrst í þeytivind-
una. F.v. Steinn Kári Ragnarsson frá útvarpsstöðinni Berlín, Sigur-
jón Lúðvíksson frá Aðalstöðinni, Klemens Arnarson frá Rás 2, Anna
Sigríður Ásgeirsdóttir frá Sólinni og Jóhann Garðar Ólafsson frá
Bylgjunni.
Berlínarmenn taka sig á
Að því búnu var skotkeppni, sem
Rásar 2-menn unnu. Þessu næst var
farið út að bátum og róinn einn
hringur, en töluvert rok gerði það
að verkum að þrautin var erfiðari
en ella. Yfirburðarsigur vann starfs-
maður Berlínar, sem var hent út í
vatnið af samstarfsmönnum sínum
eftir að hafa stigið sigursæll upp úr
bátnum. Sömuleiðis sigraði Berlínar-
maður í keppninni hver væri fljótast-
ur að ganga í vatninu hringinn sem
báturinn hafði áður siglt. Þá var
komið að því að klifra upp kastalann
og sækja sér kókosbollu með munn-
inum og vera fyrstur að koma með
hana upp á svið. Nú var komið kapp
í Berlínar-menn og sigrúðu þeir einn-
ig í þessari þraut. Að síðustu áttu
útvarpsstöðvarnar að sjá um uppá-
komu á sviði og fór Rás 2 fór með
sigur af hólmi. Þrátt fyrir velgengni
Berlínarmanna í síðustu greinum
náðu þeir ekki hæstu heildarstigun-
Auk veglegs bikars var veittur
flöldi verðlauna, m.a. frá Hótel Örk,
Húsinu á sléttunni, A-ha og fleirum.
FRÆGÐ
Lög Jordys
ofarlega á
vinsælda-
listum
Rapparinn ungi, Jordy, hef-
ur komist inn á vin-
sældalista í 14 löndum með
geisladisk sinn „Dur Dur D’E-
tre Bébé!“ en hún fæst einnig
í enskri útgáfu og ber þá heit-
ið „It’s Tough to Be a Baby!“.
Um þrjár milljónir eintaka
hafa selst af plötunum um víða
veröld.
Nýi geisladiskur Jordys,
„Pochett Surprise", er á góðri
leið með að ná vinsældum í
Bandaríkjunum, en á diskinum
syngur Jordy lag ásamt
mömmu sinni, Pariticu Lemo-
ine. Meðal laga sem hafa náð
langt eru „The Thumbsucking
Dance“ og „My Little Sister“.
Jordy er einungis fimm ára
og finnst einna skemmtilegast
að leika sér með Tonka-trukk-
inn sinn og Matchbox-bílana.
Besta vinkona hans er Alison,
sem er líka fímm ára. Að sjálf-
sögðu hefur verið samið lag
fyrir Alison sem Jordy syngur
og hefur það komið út á mynd-
bandi sem teiknimynd. Þrátt
fyrir að vera frægur fær Jordy
ekki að vaka lengur en önnur
börn og segir mamma hans
að eini munurinn á honum og
öðrum kökkum sé sá, að hann
syngi inn á plötur.
Þó að Jordy sé frægur verður
hann að fara snemma að sofa.
KRAFTAR
Vöðvafjallið semur
bækur fyrir börn
Arnold Schwarzenegger fékk þá
góðu hugmynd eftir að hafa
leikið í kvikmyndinni Leikskóla-
löggunni að semja bækur um lík-
amsrækt fýrir börn. Ékki veitir víst
af í henni Ameríku, þar sem alltof
GAMLA VERÐIÐ
Engin verðbækkun.
Allt á gamla góða bónusverðinu.
ÞUMALÍISA
Leifsgötu 32,
s. 12136-626536
mörg börn eru yfir kjörþyngd. Á
meðfylgjandi mynd sýnir Schwarz-
enegger stoltur bækumar, sem
virðast vera þrenns konar.
Arnold Schwarzenegger með
kraftabækurnar.