Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 44
MORGVNBLADW, KRINGLAN I 103 REYKJAVlK
SÍMI 091100, SlMBRÉF 091181, PÓSTHÓLF 1550 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
í sól og blíðu
í Þórsmörk
VETURINN virðist helst ekki vilja
sleppa tökum sínum á óbyggðum
landsins og kuldinn hefur víða
sett strik í áætlanir ferðamanna.
Tii dæmis urðu margir frá að
hverfa í Kerlingafjöllum en á síð-
ustu árum hefur þar verið fjöl-
menni um þessa helgi. En sumar-
ið er komið á suma staði. í Þórs-
mörk var mikil veðurblíða um
helgina og sóldýrkendur gátu
bætt við brúna litinn á skrokkn-
um. Þær Nanna Bryndís Snorra-
dóttir og Gunnhildur Hlín Snorra-
dóttir voru meðal þeirra fjölmörgu
sem dvöldu í Þórsmörkinni.
Næststærstu brugg-
verksmiðjunni lokað
Tveir menn voru handteknir og 1.200 lítrum hellt niður
LÖGREGLAN í Grindavík og
Breiðholtslögreglan létu til skar-
ar skríða gegn bruggverksmiðju
í Grindavík í gærkvöldi og er
þetta næststærsta verksmiðja af
þessu tagi sem fundist hefur hér-
lendis. Tveir menn voru hand-
teknir og 1.200 lítrum af gambra
var hellt niður auk 50 lítra af
spíra. Talið er að starfsemin hafí
verið í gangi í tæpan mánuð, að
sögn lögreglunnar.
Sigurður Ágústsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn í Grindavík, segir
að bruggverksmiðjan hafi verið í
gömlu verbúðinni í austurhluta
Grindavíkur, það er í Þórkötlustaða-
hverfi, og talið að henni hafi verið
komið á laggimar eftir 20. júní sl.
er verbúðin komst í umsjá manna
úr Reykjavík.
Vakt frá föstudegi
Lögreglan komst á snoðir um
starfsemina á föstudag og vaktaði
verbúðina frá þeim tíma þar til í
gær að látið var til skarar skríða.
Breiðholtslögreglan var kölluð til
enda talið að bruggstarfsemin
tengdist umfangsmikilli dreifingar-
starfsemi á landa á höfuðborgar-
svæðinu.
í verbúðinni fundust, auk full-
kominna og afkastamikilla eiming-
artækja, sjö 200 lítra föt og vom
sex þeirra full af gambra. Verk-
smiðjan var mannlaus en fram-
leiðsla í fullum gangi þegar lögregl-
an réðst til inngöngu. Biðu lög-
reglumenn eftir að einhveijir vitj-
uðu verksmiðjunnar og handtóku
tvo menn sem komu í húsið.
Sigurður Ágústsson segir að þeir
hafi náð að stöðva starfsemi brugg-
verksmiðjunnar áður en dreifíng á
landa frá henni hófst. Meðal þess
sem lagt var hald á voru 450 kg
af sykri, 100 lítrar af ávaxtasafa
og átta stórar viðarkolasíur. „Það
er ljóst að framleiðslan átti að fara
á höfuðborgarsvæðið og því kölluð-
um við til aðstoð frá Breiðholtslög-
reglunni sem vinna mun málið
áfram þar,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið/Júlíus
••
Oflug verksmiðja
SIGURÐUR Ágústsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í Grindavík við
hluta af eimingartækjunum sem fundust í gamalli verbúð í Grinda-
vík í gær. Á minni myndinni sést Pétur Sveinsson varðstjóri í
Breiðholti baksa við 200 lítra bruggtunnu.
Formaður Al-
þýðuflokksins
Fundarboð
vegna óska
kvenna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að flokks-
stjórnarfundur Alþýðuflokksins
verði haldinn sunnudaginn 18.
júlí kl. 20.30 í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Á
fundinum er ætlunin að kjósa
nýjan varaformann flokksins.
Samband Alþýðuflokkskvenna
fundaði seint í gærkveldi og var
m.a. rætt um hvort sambandið
gæti sameiginlega komið með
tillögu um næsta varaformann.
Að sögn Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, formanns Alþýðuflokks-
ins, stóð upphaflega til að efna til
flokksstjómarfundar fljótlega eftir
að tilkynnt var um afsögn varafor-
manns. „Af því gat ekki orðið þar
sem varaformaðurinn var þá erlend-
is. Samtöl við flokksfólk leiddu í ljós
að þetta er ekki heppilegasti fundar-
tíminn, venjulega er ekki efnt til
funda á þessum tíma vegna þess
að fjöldi flokksstjórnarmanna er
yfírleitt í sumarleyfum. En þar sem
fáeinar forystukonur innan Alþýðu-
flokksins hafa samt sem áður óskað
eftir því þótti sjálfsagt að verða við
þeim óskum," sagði Jón Baldvin.
Konur óánægðar
Oánægju hefur gætt á meðal
kvenna í Alþýðuflokki um stöðuveit-
ingar á vegum flokksins. Ymsum
hefur þótt nauðsynlegt að kona
verði áfram varaformaður flokksins
og var fundurinn í gærkvöldi m.a.
boðaður vegna þess. Ýmsar konur
hafa verið nefndar sem arftakar
Jóhönnu Sigurðardóttur og þar má
nefna Valgerði Guðmundsdóttur,
formann Sambands Alþýðuflokks-
kvenna, Rannveigu Guðmundsdótt-
ur, formann þingflokks Alþýðu-
flokks, Margréti Bjömsdóttur, for-
mann Fijálslyndra jafnaðarmanna,
Lám V. Júlíusdóttur, framkvæmda-
stjóra ASÍ, og Jónu Ósk Guðjóns-
dóttur, forseta bæjarstjórnar í Hafn-
arfírði. Færri nöfn karla hafa verið
nefnd en þar má m.a. nefna Guð-
mund Áma Stefánsson heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra.
Myndir Karólínu Lárusdóttur á sýningu Royal Academy of Arts
„Mikil viðurkenning“
KARÓLÍNU Lárusdóttur
myndlistarmanni hlotnaðist
nýlega sá heiður að sýna á
hinni árlegu sumarsýningu
Royal Academy of Arts í Lond-
on, en sýningin hófst í síðasta
mánuði. Sýningin hefur verið
haldin í 225 ár og er ein virt-
asta sinnar tegundar. Meðlimir
félagsins mega senda inn sex
myndir hver, en síðan er öðr-
um listamönnum frjálst að
leggja þijú myndverk hver
fyrir valnefnd, og bárust um
tuttugu þúsund myndir, en á
sýningunni eru 1.800 myndir
sýndar. Tvö verk Karólínu
voru valin á sýninguna, og
hefur annað þeirra verið notað
í auglýsingar sem birst hafa
og munu birtast í helstu dag-
blöðum og listatímaritum Eng-
lands til loka sýningarinnar 15.
ágúst næstkomandi.
Óvæntur heiður
MÁLVERK Karólinu Lárus-
dóttur, sem birtist í auglýsing-
unni.
Önnur mynd Karólínu á sýning-
unni nefnist Leyndarmálið og sýnir
tvær konur á Hótel Borg. Sú mynd
var valin til að nota í auglýsingar
um sýningu Royal Academy of
Arts, en hin kallast Teboð. í
samtali við Morgunblaðið sagði
Karólína að hún liti á valið á mynd-
inni sem mikla viðurkenningu en
jafnframt óvænta. „Það að myndin
Karólína Lárusdóttir
skuli hafa verið valin til kynningar
á sýningunni er eitt hið ánægjuleg-
asta en jafnframt skrýtnasta sem
hefur komið fyrir mig og ég hlýt
að álíta mig afskaplega lánsama
að hafa orðið fyrir valinu.“
Sterkur loðnu-
markaður í upp-
siglingu í Japan
HELGI Þórhallsson forstöðumaður skrifstofu SH í Japan segir að
sterkur loðnumarkaður sé í uppsiglingu þar á næsta ári þar sem
veiðar Kanadamanna á loðnu brugðust annað árið í röð. „Ég reikna
með að mjög gott verð fáist fyrir loðnuafurðir okkar á þessum
markaði,“ segir Helgi.
Að sögn Helga hefur salan á
loðnuafurðum frá Sölumiðstöðinni
á Japansmarkaði numið 4.500 tonn-
um í ár og er það aukning um 1.000
tonn frá því í fyrra. Hér er um
heilfyrsta loðnu og loðnuhrogn að
ræða. „Japanskir kaupendur á
loðnuafurðum okkar voru ánægðir
með stærðina á heilfrystu loðnunni
og ef svo heldur sem horfir með
markaðinn er ástæða til að hvetja
menn til að framleiða á hann nú,“
segir Helgi.
Aðeins 6.000 tonn
Hvað varðar veiðar Kanada-
manna i ár segir Helgi að þær hafi
aðeins numið 6.000 tonnum og sé
það annað árið í röð sem þær bregð-
ast en í fyrra nam veiðin aðeins
11.000 tonnum. „Það eru helst
Kanadamenn og Norðmenn sem
keppa við okkur á þessum mark-
aði. Því er staðan góð núna,“ segir
Helgi.