Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 1
56 SIÐURB STOFNAÐ 1913 158. tbl. Sl.árg'. FÖSTUDAGUR16. JÚLÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fluga í munn Irökum Bagdad, Manama, SÞ. Reuter. ROLF Ekeus, formaður nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem sér um eyðileggingu vopnaverksmiðja íraka, fór til Bagdad í gær til að gera lokatil- raun til að leysa deilu um eld- flaugastöðvar í írak og afstýra nýrri hernaðaríhlutun í landinu. Ekeus kvaðst ætla að bjóða Irök- um afnám refsiaðgerða gegn því að þeir hlíttu vopnahlésskilmálunum sem SÞ settu eftir stríðið fyrir botni Persaflóa. Hann sagði að með því væri flugu komið í munn írökum. Viðræðum um að heimila írökum að selja takmarkað magn af olíu í fyrsta skipti frá innrás þeirra í Kúveit árið 1990 var frestað í gær á meðan stjórnvöld í Bagdad íhug- uðu tillögur framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Tíðinda- menn látn- ir hætta • / Shimon Peres leggur til að viðræður hefjist um framtíð hernumdu svæðanna Erfiðasti hjallinn að baki KEPPNI í hjólreiðakeppninni um Frakkland, Tour de France, var hálfnuð í gær. Jafnframt lauk erfiðasta áfanganum, hjólað var um hæsta fjahveg Evrópu frá Serre-Chevalier til Isola 2000. Tryggði svissneski knap- inn Tony Rominger, sem hér fer fremstur, sér titilinn „Konungur fjallanna" með áfangasigri annan daginn í röð. Á hæla honum er Spánveijinn Miguel Indurain sem hefur forystu í keppninni en honum er spáð sigri { hjólreiðakeppninni um Frakkland þriðja árið í röð. Aðeins hálf gjarðarlengd skildi Indurain og Rominger að á marklínunni í gær eftir 180 km harðvítuga keppni. Lengst til vinstri er Alvaro Mejia, sem er annar í keppn- inni. f dag fer lengsti áfanginn fram, frá Ölpunum til Marseille, er hjólaðir verða 287,5 km. Bömín örvhent vegna óm- skoðunar? London. Reuter. SÓNARSKOÐUN barnshafandi kvenna gæti leitt til þess að börn þeirra verði örvhent, að því er fram kemur í breska læknaritinu British Medical Journal sem kemur út í dag. í rannsóknum norskra lækna, sem skýrt er frá í breska læknarit- inu, kom I ljós að hlutfallslega fleiri börn kvenna sem fóru í sónarskoðun á meðgöngutímanum fæddust örv- hent en börn kvenna sem ekki voru ómskoðaðar. Norsku vísindamennirnir bera upp þá spurningu í greininni hvort hljóðbylgjur sónartækjanna kunni að valda breytingum í heila fósturs í móðurkviði. Rannsókn Norðmannanna náði til 2.000 barna. í greininni segja þeir að ekki sé hægt að fullyrða neitt um að samband sé á milli ómskoðunar og þróunar hreyfi- taugakerfisins. Hins vegar séu skýringar ekki fyrir hendi á beinu sambandi sem virtist vera milli skoðunar af þessu tagi og hás hlut- falls örvhentra. Þarfnist málið því frekari rannsókna við. njosnum London. Reuter. BRESKA stjórnin gerði frétta- menn Reiiters-fréttastofunnar að njósnurum á ofanverðri síðustu öld, samkvæmt skjölum sem birt voru í gær, en samningum við fréttastofuna var rift þar sem þeir stóðu ekki í stykkinu. Fram kemur í opinberum skjölum sem birt voru í gær í fyrsta sinn, að ríkisstjórn Viktoríu drottningar hafí gert samning við Reuters- fréttastofuna og borgað 500 sterl- ingspund á ári úr sjóðum leyniþjón- ustunnar fyrir njósnir um heim allan. Salisbury lávarður, þáverandi for- sætisráðherra, rifti samningnum við fréttastofuna árið 1889 þar sem njösnaskýrslur fréttamannanna reyndust óáreiðanlegar. Viðunandi lausn í aug- sýn eftir 100 ára deilur segir Yossi Beilin aðstoðarutanríkisráðherra ísraeis Jerúsalem, London. Reuter. SHIMON Peres utanríkisráðherra Israels hefur lagt til við samningamenn Israela og araba í viðræðum um frið í Miðaust- urlöndum að þeir hefji viðræður um framtíðarskipan her- numdu svæðanna, Vesturbakkans og Gaza-svæðisins, þar sem gengið verði út frá því að þau verði palestínsk svæði í nánum stjórnsýslulegum tengslum við Jórdaníu. Erfðaþættir taldir skýra samkynhneigð Washington. Reutcr. RANNSÓKNIR á samkynhneigðum bræðrum hafa leitt í ljós að kynhneigð þeirra megi hugsanlega rekja til erfðaþátta. í grein í nýjasta hefti vísinda- ritsins Science um rannsóknir vísindamanna við bandarísku heilbrigðisstofnunina (NIH) segir að fundist hafi litningsbútur sem geymi eitt eða fleiri gen sem leiði til samkynhneigðar. Vísindamennimir rannsökuðu fjörutíu pör af sam- kynhneigðum bræðrum. Hjá 33 þeirra vakti athygli hluti X-litningsins, svokallað Xq28 svæði, og telja vísindamennirnir að þar sé að finna genið eða genin sem stjóma kynhneigð hommanna. Dean Hamer sam- eindaerfðafræðingur sagði í gær að ekki væri vitað hvers vegna þessi litningsbútur hefði aðra ásýnd hjá sjö bræðratvennum en samkynhneigð þeirra kynni þá að skýrast af genum á öðrum litningum eða af um- hvei-físþáttum og ævihlaupi. Hamer og félagar hans ákváðu að einbeita sér að X-litningnum, kynlitningn- um, vegna þess að margt benti til þess að samkyn- hneigð erfðist fremur frá móður en föður til sona. Þeir eru nú á sama hátt að rannsaka hóp lesbía. Richard Pillard, prófessor í geðlækningum við Bost- on-háskóla, sagði í gær að reyndust niðurstöðurnar réttar væri þetta í fyrsta sinn sem sýnt væri fram á tengsl milli erfðaefnis og hegðunar manna. ísraelsku blöðin Haaretz og Jerusalem Post skýrðu í gær frá þessum orðsendingum Peresar til samningamanna en ekki kom fram hvort Yitzhak Rabin forsætisráð- herra styddi gerðir hans. Ummæli talsmanns Rabins, Gads Ben-Ari, þóttu hins vegar benda til þess að þeir væru ekki samstiga því hann sagði að í engu yrði vikið frá þeim markmiðum sem sett hefðu verið í samningaviðræðum í Madríd í októ- ber 1991. Þá hefði samkomulag orðið um að bytja viðræður um takmarkaða heimastjórn Palestínu- manna til bráðabirgða og hefja ekki samninga um framtíðarskipan hernumdu svæðanna fyrr en þriggja ára reynsla væri fengin af heimastjórn. „Allar tilraunir til að víkja af markaðri leið væru á skjön við Madrídar-samkomulagið,“ ságði Ben-Ari. Yossi Beilin aðstoðarutanríkis- ráðherra ísraels sagði í samtali við Jerusalem Post að Peres hefði bor- ið hugmynd sína um framtíð her- numdu svæðanna upp við Dennis Ross, fulltrúa Bandaríkjastjórnar, sem freistaði þess um síðustu helgi að koma sjálfstjórnarviðræðunum úr þeirri sjálfheldu sem þær voru komnar í, og hefði hann verið mjög uppnuminn af hugmyndinni. „Óvenjulegar aðstæður hafa skapast og allir aðilar- Jórdanir, Palestínumenn og ísraelar - gaum- gæfa þessa lausn sem raunhæfan möguleika. Í fyrsta sinn eftir ald- arlangar deilur virðist viðunandi lausn í augsýn,“ sagði Beilin. Samninganefndir sameinaðar Á mánudag sameinuðu Jórdanir og Palestínumenn samninganefndir sínar í friðarviðræðunum í eina og litu stjórnmálaskýrendur á það sem fyrsta skrefið í átt til ríkjasambands Jórdana og Palestínumanna. Sögð- ust fulltrúar beggja vonast til að með sameiningu nefndanna yrði komið í veg fyrir hugsanlegar til- raunir Israela til að gera bráða- birgðastjórn Palestínumanna á Vest- urbakkanum og Gazasvæðinu var- anlega. Vesturbakkinn var hluti af Jórdaníu frá 1950 þar til ísraelar lögðu hann undir sig í sex daga stríð- inu 1967. Hussein Jórdaníukonungur skor- aði á samningamenn í gær að grípa það sem hann sagði vera síðasta tækifærið sem þeir hefðu til að semja um frið fyrir botni Miðjarðarhafs. Sagði hann að menn yrðu að leggja sig fram af meiri einurð en áður og hét liðveislu sinni í þeim efnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.