Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
27
Brauð í ofninn
og á grillið
Það er hæstur dagur, þegar
happafleyið Helga Sigmars lagði
frá Þórhamarsbryggju á Seyðis-
fírði og sigldi út fjörðinn í fyrstu
ferð sinni þetta sumarið með far-
þega til Loðmundarfjarðar. Loft
var þungbúið, en létti til er utar
dró. Ekki hafði ég farið á sjó frá
Seyðisfirði í fjölda- mörg
ár, en fallegur er fjörð-
urinn, þegar horft . er úr
fjarðarmynni og
sést upp á efstu
fjallseggjar.
Það er
kvika við klöppina, sem lagst var
að í Loðmundarfírði svo báturinn
varð að liggja út á meðan við
farþegar vorum í landi. Þegar
kom upp í hlíðina fyrir ofan fjöru,
skiptum við liði. Hinir sprækari
fóru í tveggja tíma náttúruskoðun
með hrauninu inni í landi, en við
hjónin fengum til fylgdar ungan
sporléttan leiðsögumann þann
klukkutíma spöl, sem liggur eftir
hlíðarbrúninni með sjónum að
bænum Stakkahlíð, og margs urð-
um við fróðari af þeirri góðu
fylgd. í Stakkahlíð var okkur
tekið opnum örmum. Þar
voru fyrir tveir refa- og
minkabanar, en æðar-
varpið hafði
nánast ónýst þetta vorið vegna
ágángs refa og minka og hefndist
dýrunum nú fýrir það. Þegar allur
hópurinn hafði sameinast á ný,
var sest að kaffiborði og spurðu
nú hveijir aðra frétta að góðum
íslenskum sveitasið. Liðið var á
dag er við kvöddum þessa nátt-
úruperlu — Loðmundarfjörð.
Með kaffinu í Stakkahlíð feng-
um við heimabakað brauð úr
brauðvél. Hvorki á ég uppskrift
af því brauði né brauðvél, en hér
eru aðrar uppskriftir af brauði,
sem baka má bæði i bakarofni
og á grillinu.
Sírópsbrauð með kúmeni
5 dl rúgmjöl
5 dl hveiti
1 msk. þurrger
Vi tsk. salt
2 msk. kúmen
‘/2 dl matarolía
‘/2 dl síróp
2 dl vel heitt vatn úr krananum
l'A dl mjólk
Sírópsbrauð með sesamfræi
1 dl sesamfræ
5 dl heilhveiti
5 dl hveiti
1 msk. þurrger
Vi tsk. salt
1 msk. matarolía
1 msk. síróp
2 dl vel heitt vatn úr krananum
U/2 dl mjólk
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Áríðandi er að blanda samán
heitu vatni og kaldri mjólk áður
en það er sett í mjölið.
Setjið sesamfræið á þurra vel
heita pönnu og látið brúnast örlít-
ið. Hafið lok á pönnunni, fræið
þeytist upp í loftið þegar það hitn-
ar. Fylgist vel með, þetta er fljótt
að brenna. Kælið.
Aðferð við bæði brauðin
1. Setjið þurrefni í skál (þurrger
líka).
2. Setjið matarolíu út í, setjið síð-
an sírópið í dl-málið eða skeiðina
án þess að þvo hana, setjið saman
við þurrefnin.
3. Blandið saman heitu vatni og
kaldri mjólk og setjið út í. Hrærið
saman, ímoðið síðan örlítið. Látið
lyfta sér í 30 mínútur eða lengur,
breiðið stykki yfir á meðan.
í bakaraofninn:
Skiptið hvoru deigi í tvo hluta,
fletjið örlítið út en vefjið síðan
upp. Leggið í 2 smurð álform,
20x10 sm. Samskeyti snúi niður.
Látið lyfta sér í 20-30 mínútur.
Hitið bakaraofninn í 200°C, setjið
brauðin í miðjan ofninn og bakið
í 45-60 mínútur.
eða á griliið:
Skiptið deiginu ítvo hluta, fletj-
ið út ferkantað eða kringlótt,
skerið ferköntuðu bútana í fern-
inga 8x8 sm en kringlóttu hlutina
í rif. Látið lyfta sér í 20-30 mínút-
ur.
Hitið grillið, hafíð meðalhita á
gasgrilli en staðsetjið grindina í
miðrim á kolagrilli.
Setjið brauðin beint á grindina
og bakið á fyrri hlið í 5-6 mínútur
en á þeirri síðari aðeins skemur.
Fylgist vel með. Hiti á grillinu fer
eftir hitastigi, vindstyrk og stað-
setningu grillsins.
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmyndastofan Nærmynd.
HJÓNABAND: Gefin voru saman
í hjónaband þann 12. júní í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matthíassyni
Þórdís Klara Bridde og Bjarni Júl-
íusson. Heimili þeirra er í Leiðhömr-
um 20.
Ljósmyndastofan Nærmynd.
HJÓNABAND: Gefin voru saman
í hjónaband þann 12. júní í Dóm-
kirkjunni af sr. Hjalta Guðmunds-
syni Alma Björk Guttormsdóttir og
Björgvin Björgvinsson. Heimili
þeirra er á Aflagranda 39.
Ljósmyndastofan Svipmyndir
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 29. maí í Dómkirkjunni af sr.
Jakobi Hjálmarssyni Hulda Rúriks-
dóttir og Lárus Finnbogason. Heim-
ili þeirra er að Hvammsgerði 8,
Reykjavík.
L^jósmynd Einar Ólafs.
HJÓNABAND. Gefín voru saman
í hjónaband 19. júníí Dómkirkjunni
af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni Valdi-
mar Örn Flygenring og Ásdís Guð-
rún Sigurðardóttir. Heimili þeirra
er að Drápuhlíuð 6, Reykjavík.
Yíðistaða-
söfnuður
vísiteraður
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, mun vísitera Víðistaða-
söfnuð í Hafnarfirði sunnudag-
inn 16. júli.
Biskupinn mun predika hann við
hátíðarguðsþjónustu í Víðistaða-
kirkju kl. 11 og í Hrafnistu kl. 14.
Þetta er í fyrsta sinn sem biskup
íslands vísiterar söfnuðinn en hann
var stofnaður 1. janúar 1977, þegar
þáverandi Hafnaríjarðarprestakall
var skipt í tvær sóknir, Hafnarfjarð-
ar- og Víðistaðasókn.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
VERÐ NU:
622 kr.
kílóið.
Brauðostur
15%
LÆKKUN!
\
VERÐ ÁÐUR: ^32 Kf- kílóið.
ÞÚ SPARAR: 110 kr ■ á hvert kíló.
OSTA OG
SMIÖRSALANSE