Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
félk f
fréttum
SÝNINGAR
Islensk list
í Banda-
FATNAÐUR
Tísku-
straumar
frá París
ogRóm
ríkjunum
Ijúní síðastliðnum var haldin ís-
lensk listasýning í Pompeii-safn-
inu í Saratoga Springs í Bandaríkj-
unum. Að henni stóðu sex íslenskar
listakonur og sýndu þær málverk,
leirlist, grafík og verk unnin með
blandaðri tækni. Fimm þeirra skipa
Art Hún-hópinn svokallaða sem rek-
ið hefur sýningarsal og vinnustofu
í Reykjavík. Þær heita Elínborg
Guðmundsdóttir, Erla B. Axelsdótt-
ir, Helga Ármanns, Margrét Salome
Gunnarsdóttir og Sigrún Gunnars-
dóttir. Sjötti þátttakandi sýningar-
Meðfylgjandi myndir sem eru
frá tískusýningum í París og
Róm sýna örlítið brot af haust- og
vetrartískunni, en geta þó gefið ein-
hverja hugmynd um framhaldið. í
París stendur yfir tískuvika dagana
18.-22. júlí, en erlendir blaðamenn
og ljósmyndarar fengu forsmekkinn
fyrr í þessari viku. Af myndunum
að dæma verður mikið mikið um
ullarefni í utanyfirflíkum og drögt-
um, en hins vegar má búast við að
áfram verði gegnsæ efni í tísku i
kvöldklæðnaði og öðrum fínni
klæðnaði.
Við listaverk sín í Saratoga-safninu. Frá vinstri eru Móa Romig
Boyles, Erla B. Axelsdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir.
innar heitir Móa Romig Boyles og
býr hún um þessar mundir í Sara-
toga. Sýningin hlaut því nafnið
„Art Hún og Móa“. í ítarlegri um-
fjöllun sem birtist í bæjarblaði Sara-
toga kemur fram að hugmyndin að
sýningunni hafi fæðst þegar Móa
heimsótti ísland á síðastliðnu ári.
Þá hafi komið í ljós að fjórir með-
lima Art Hún-hópsins höfðu stundað
nám við Skidmore-skólann í Sara-
toga. Það hafði Móa einnig gert.
Konurnar ákváðu því að stilla saman
strengi sína og efna til sýningar sem
að sögn blaðsins hlaut góðar undir-
tektir.
Keuter
Hér gætir arabískra áhrifa á
tískusýningu í Róm. Sýningar-
stúlkan er klædd gráum ullar-
buxum og bláum ullartoppi með
arabísku mynstri. Klæðnaðurinn
var hannaður fyrir Rafaella
Curiel.
Morgunblaðið/Kári
Hópur vangefinna unglinga dvelst hér á landi um þessar mundir. Hefur margt á daga þeirra drifið
og mikið fjör fylgt þeim hvar sem þeir hafa komið.
Mynstruð rauð ullarslá er hér
notuð yfir svartmunstraða
buxnadragt. Háir skór eru notað-
ir við stretsbuxurnar, en höfuð-
fatið er skinnhúfa.
Kvöldkjóll frá Önnu Giammisso
í Róm úr svörtu ullarefni. Með
því er notað þunnt gegnsætt efni
í hliðunum.
UNGMENNI
Svaðilfanr o g rómantík
Hópur vangefinna ungmenna
frá flestum Norðurlandanna
eru í sumardvöl á íslandi dagana
8.-20. júlí. Þetta er í fyrsta skipti
sem efnt er til slíkrar dvalar hér
á landi, en í fjórða skipti sem
styrktarfélög vangefínna á Norð-
urlöndum efna til slíkrar sum-
ardvalar. Hópurinn gistir í fimm
daga í íþróttamiðstöð íslands á
Laugarvatni til að njóta allrar
þeirrar frábæru aðstöðu sem
Laugarvatn hefur upp á að bjóða.
Þegar ''fréttaritari hitti ung-
mennin höfðu þau farið í svaðilför
kringum Laugarvatn, farið á hest-
bak og í gönguferð að hinni róm-
uðu trúlofunarhríslu í Stóragili.
Sund, gufubað, dans, söngur, grín
og gaman er hefur fylgt hópnum
síðan hann kom saman. Sem
dæmi um það er samnorrænn
kvöldverður þar sem hver þjóð
lagði sitt af mörkum í föstu eða
fljótandi formi og á eftir var sleg-
ið upp hörku harmonikkuballi.
Hópurinn átti eftir tveggja
daga ferð í Þórsmörk og gistingu
á Leirubakka í Landsveit. Sumar-
dvölin endar svo í Reykjavík með
matarboði á Hard Rock í boði
hússins.
Skipuleggjendur samnorrænu
sumardvalarinnar og stjómendur
eru Sólveig Theodórsdóttir, Guð-
rún Halldórsdóttir og Sigrún Þór-
arinsdóttir með fulltingi Styrktar-
félags vangefmna.
uaLLUWe
r r
SÆNSKAR GO-GO" STULKUR A HOTEL ISLANDI
Næstu helgar munu þær Jannica Midas og Sara Simsson koma fram 5 sinnum á
kvöldi og skipta jafnoft um búninga og dansa við tónlist frá diskótímabilinu.
Diskótekarar
Daddi DJ - Alli Bergás - Gísli Sveinn Hollywood/Sigtún rifja upp gamlar rispur.
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR I S: 687111