Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
13
leggja manni að beijast til þrautar
með aðra höndina bundna fyrir aft-
an bak.
Skýrslur Seðlabanka íslands eru
sama marki brenndar að nokkru
leyti, þótt verksvið hans sé að vísu
þrengra en Þjóðhagsstofnunar. Það
er til að mynda eftirtektarvert, að
Seðlabankinn skuli nú vera nýbúinn
að staðfesta eina gengisfellinguna
enn án þess að segja svo mikið sem
eitt orð um það, að hægt væri að
koma í veg fýrir aukna verðbólgu
af völdum gengisfellingarinnar með
því til dæmis að liðka fyrir ódýrum
innflutningi til mótvægis. Samt er
það ein höfuðskylda Seðlabankans
samkvæmt lögum að stuðla að stöð-
ugu verðlagi í landinu. í frumvarpi
til nýrra laga um Seðlabankann,
sem hefur verið lagt fram til kynn-
ingar á Alþingi, er einmitt ráðgert
að herða þessa lagaskyldu. í þessu
felst skýr skylda til þess að mæla
með ráðstöfunum, sem duga til að
halda verðbólguáhrifum gengisfell-
ingar og aukinnar skuldasöfnunar
í skefjum. Þessa skyldu hefur Seðla-
bankinn vanrækt með því að stað-
festa gengisfellingu án þess að sýna
nokkur merki þess að hafa reynt
að veita nauðsynlegt aðhald til
mótvægis.
Og þannig virðast ríkisstjómar-
flokkamir ætla að hafa það áfram.
Á sama tíma og ríkisstjómir ná-
lægra landa leggja mikla áherzlu á
að auka sjálfstæði seðlabanka
gagnvart stjórnvöldum, einmitt til
að bankarnir geti gefið gagnleg og
óvilhöil ráð og veitt stjómmála-
mönnum heilbrigt og trúverðugt
aðhald í peningamálum og gengis-
málum, sitja nú þrír flokksmenn og
fyrrverandi ráðherrar í bankastjórn
Seðlabanka íslands í fyrsta skipti
í sögu bankans, þótt einn þeirra sé
að vísu reyndur og mikils metinn
hagfræðingur. Að svo búnu virðist
ekki vera mikil von til þess, að
Seðlabankinn geti veitt stjómmála-
mönnum nokkurt umtalsvert aðhald
á næstu ámm.
Höfundur er prófessor í'
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands.
in hefur skipað nefnd hinna hæf-
ustu manna til þess að athuga
vaxtamyndunina í landinu. En
ósköp þótti mér það lágreist mark-
mið hins nýja viðskiptaráðherra að
raunvextir ættu að lækka á ein-
hveijum tíma um eitt prósentustig!!
— Það sér hvert mannsbam að slík
smánarlækkun dugar ekki, til þess
að knýja atvinnulífíð úr sporunum
og létta skuldabyrði heimilanna.
Við þurfum að stefna að mun meiri
raunvaxtalækkun, helst ekki minna
en 3% á hausti komanda. Og til
þess eru tvímælalaust allar efna-
hagslegar forsendur.
' Þær ágætu efnahagsráðstafanir
sem ríkisstjórnin greip til um síð-
ustu mánaðamót voru alls góðs
maklegar. En það vantar enn
punktinn yfír i-ið. Það glittir ekki
enn í vaxtalækkunina. Efnahags-
ráðstafanirnar sem gripið var til
voru því ágætis skref, — en bara
ekki nógu stórt.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum.
í HÁDEGINU ALLA DAGA
BORÐAPANTANIRÍ SÍMA 25700
Við seljum
••
anægju, oryggi
og vellíðan
'''
' h/ /
Pað er tilfinningin. Ilmurinn, kyrrðin
loftið, hreyfingin. Ekkert jafnast á
við að vera vel búinn úti í náttúrunni.
Þetta er ekkert pjatt. Maður líður áfram
á góðum gönguskóm og þreytist mun minna.
Þeir verða vinir manns.
Matarlystin, maður! Það er svo gott að borða!
Ég vil geta eldað almennilegan mat í útilegu.
" Þeir vita náttúrlega hvað þeir eru að tala
um í Skátabúðinm þvi þeir hafa reynsluna.
Svo kom verðið mér verulega á óvart.
Já, já, ég veit að ég mátti ekki
heyra minnst á útilegu en svo
þegar maður kynnist þessu þá
verður útiveran hluti
af lífsstílnum.
Bakpoki er ekki það sama og
bakpoki. Það er málið.
Þetta þarf allt að vera létt,
|| I traust, óruggt og einfalt.
Sumum leiðist í rigningu en mér \
finnst ekkert betra en hola mér t
ofan í góðan svefnpoka í góðu tjaldi I
og láta rigninguna sem fellur /
á tjaldhimininn svæfa mig. 7
-SKAW< FRAMlfR.
Snorrabraut 60 • Sími 61 20 45
Póstsendum samdægurs. Biðjið um mynda- og verðlista okkar.