Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
Risi í Keflavíkurhöfn
Morgunblaðið/Bjarni
POLAR Sea er stærsti ísbrjótur í heimi sem ekki er knúinn með kjarnorku. Stefnið er ávalt en
skipverjar segja þá lögun betri en hvassa því minni líkur séu á því að skipið festist.
Risaí sbij ótur við
bryggju í Keflavík
í brúnni
DALE K. Bateman sjóliðsforingi kann ákaflega vel við sig um
borð þó að starfið krefjist mikillar fjarveru að heiman.
STÆRSTI ísbijótur í heimi, sem
ekki er knúinn með kjarnorku,
Polar Sea, lagðist að bryggju í
Keflavík í gærmorgun. Keflavík
verður síðasti viðkomustaður
skipsins, sem á sunnudagsmorg-
un heldur á hafsvæði við vestur-
strönd Grænlands sem nefnist
Polynya. Á þeim slóðum mun á
fjórða tug vísindamanna frá
ýmsum löndum gera víðtækar
rannsóknir á hafinu, þörunga-
gróðri og gróðurhúsaáhrifum.
Skipverjar „Heimskautasjávar",
sem er 13 þúsund tonn, um 140
metrar að lengd og tæplega 30
metrar á breidd, munu bjóða
almenningi að skoða skipið á
laugardag milli tólf á hádegi og
fjögur.
Sjóliðsforinginn Dale K. Bate-
man fylgdi blaðamönnum Morgun-
blaðsins um skip sitt, en það lagði
úr heimahöfn sinni, Seattle, 10.
júní síðastliðinn. Hann segir þessa
ferð vera seinni hluta víðtæks rann-
sóknarleiðangurs í norðurhöfum en
í fyrra hafí það sigit á sömu slóðir
og gert ýmsar forkannanir. Nú
verði aftur á móti gerðar frekari
rannsóknir og nákvæmari sem
einkum lúti að miklum þörunga-
gróðri á hafsvæðinu og áhrifum
hans á hringrás kolvetnis og tengsl
við gróðurhúsaáhrif. Polar Sea
verður á siglingu í um mánuð um
ísað haf við Grænland og mun eiga
viðdvöl á íslandi aftur um miðjan
ágúst.
Að sögn sjóliðsforingjans er get-
ur skipið brotist í gegnum allt að
7 metra þykkán ís. „Skipið er byggt
með mjög ávalt stefni sem er mun
hentugra en hvasst. Við stýrum
skipinu upp á ísinn og undan þunga
þess brotna ísalögin," segir Dale.
Líkar lífið á sjónum
Dale Bateman er einn yngsti
yfírmaður á skipinu, aðeins 23 ára
gamall. „Fyrir fímm árum hefði ég
ekki ímyndað mér að ég ætti eftir
að starfa sem sjóliðsforingi í banda-
rísku strandgæslunni.“
En geta menn lifað heilbrigðu
fjölskyldulífí í svona starfí? Dale
segir að mikill minnihluti áhafnar
sé fjölskyldumenn. „Ég veit að það
er erfítt fyrir suma en allir láta sig
hafa það.“ Sjálfur er hann ólofaður
og segist njóta þess að geta ferð-
ast hvert á land sem er.
Dale hafnar því alveg að lífíð
um borð á skipi sem þessu sem
ferðist árið um kring sé tilbreyting-
arsnautt. „Við gerum okkur margt
til afþreyingar. Við höfum aðgang
að stóru bókasafni og hér á skipinu
er einnig ágætis líkamsræktarað-
staða. Við horfum mikið á sjón-
varp, spilum á spil eða köstum píl-
um. Ekki má heldur gleyma körfu-
knattleiksaðstöðunai en við leikum
reglulega körfubolta á dekkinu.
Það vill reyndar oft henda að við
missum bolta í sjóinn. Það er aftur
á móti ófrávíkjanleg regla þegar
síðasti boltinn tapast, að hann er
sóttur!"
Stuðningsyfirlýsing‘ við Rannveigu
Lára V. og Ólína
skrifa ekki undir
Á ANNAÐ hundrað alþýðuflokksmanna hafði í gærkveldi ritað und-
ir stuðningsyfirlýsingu til Rannveigar Guðmundsdóttur um að hún
gæfi kost á sér í varaformannsembætti flokksins. Til stóð að af-
henda Rannveigu listann í gærkveldi en tekin var sú ákvörðun að
halda áfram að safna stuðningsfólki og afhenda henni listann um
hádegi í dag, föstudag. Þær konur sem stóðu fyrir tillögu um að
konur sætu hjá í varaformannslgöri, Lára V. Júlíusdóttir og Ólína
Þorvarðardóttir, hyggjast ekki skrifa undir yfirlýsinguna. Þegar
Morgunblaðið aflaði sér upplýsinga um undirskriftirnar í gærkveldi
hafði Jóhanna Sigurðardóttir ekki heldur skrifað undir yfirlýsing-
una en ekki er vitað hvort það er endanleg afstaða Jóhönnu.
Margrét Björnsdóttir, formað-
ur Félags fijálslyndra jafnaðar-
manna, er meðal þeirra sem stað-
ið hafa fyrir undirskriftasöfnun-
inni. Margrét sagði að hún gengi
mjög vel og mikið væri hringt á
flokksskrifstofuna af fólki sem
hefði áhuga á að hvetja Rann-
veigu. „Ég veit að þetta er erfíð
ákvörðun fyrir Rannveigu en ég
vona að hún taki þessari áskorun,"
sagði Margrét.
Óráðlegt að Rannveig fari
fram
Lára V. Júlíusdóttir sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að sem flutn-
ingsmaður tillögu um hjásetu í for-
mannskjörinu gæti hún ekki skrifað
undir yfírlýsingu sem gengi þvert
á þá tillögu. Að óbreyttri stöðu
sagðist hún ekki skrifa undir yfir-
lýsinguna.
„Ég ætla að láta Rannveigu í
friði. Ég hef alltaf stutt Rannveigu
heilshugar í hennar störfum hingað
til og mun gera það hér eftir á
‘hvaða vettvangi sem hún beitir sér,
en ég ætla ekki að beita hana þrýst-
ingi í þessu máli,“ sagði Ólína Þor-
varðardóttir. „Mér finnst þetta
óeðlilegur þrýstingur og tel óráðlegt
af Rannveigu að láta undan honum.
Ég tel óráðlegt af henni að fara
fram undir þessum kringumstæðum
en ég treysti hennar dómgreind og
mun áfram styðja hana,“ sagði
Ólína.
Borgey hf. auglýsir togara og báta til sölu
Um 2.000 tonna
kvóti fylgir með
Liður í lækkun skulda um 800 milljónir kr.
BORGEY hf. a Höfn í Hornafirði hefur auglýst togarann Stokksnes
til sölu og bátana Hvanney og Lyngey en aðeins á að selja annan
bátinn. Þessi skipasala er liður í margþættum aðgerðum fyrirtækis-
ins í að lækka skuldir sínar um 800 milljónir króna. Skuldirnar
námu rúmlega 1.200 milljónum um síðustu áramót en fyrirtækið
fékk grejðslustöðvun til þriggja mánaða í síðasta mánuði og segir
Halldór Árnason, framkvæmdasfjóri Borgeyjar, að tíminn verði nýtt-
ur til nauðasamninga við lánardrottna, öflunar nýs hlutafjár og sölu
á fasteignum.
Með í kaupunum á togaranum
getur fylgt allt að 1.200 þorskígild-
istonna kvóti og með öðrum bátnum
sem selja á getur fylgt allt að 900
þorskígildistonna kvóti. Halldór
segir að ástæðan fyrir sölu á skip-
unum nú sé hin mikla skuldsetning
fyrirtækisins og leitað sé allra leiða
til að lækka þær skuldir og hag-
ræða í rekstri fyrirtækisins.
Margþættar aðgerðir
Halldór sagði að um væri að
ræða margþættar aðgerðir til að
létta á skuldastöðu fyrirtækisins og
hagræða í rekstri. Fyrir utan skipa-
söluna, nauðasamninga og öflun
nýs hlutafjár megi nefna sölu á
fasteignum til að sameina vinnsluna
á einn stað í bænum og samhliða
því beina framleiðslunni í frystingu
en draga úr söltun og í síðasta lagi
lengingu þeirra lána sem eftir
standa. „Greiðslustöðvun okkar
stendur til 14. september og við
ætlum okkur að réyna að vera bún-
ir að ljúka sem mestu af þessum
aðgerðum fyrir þann tíma,“ segir
Halldór.
Vinnsla er nú í fullum gangi hjá
Borgey en aðspurður um hráefnis-
öflun í framtíðinni ef togarinn og
annar bátanna verða seldir segir
Halldór að fyrirtækið muni halda
eftir 2.000 þorskígildistonna kvóta.
„Við munum semja við aðrar út-
gerðir um hráefnisöflun og leita á
fiskmarkaði eftir hráefni í framtíð-
inni,“ segir Halldór.
í dag
Flug__________________________
Flugskólum og nemum fækkar 4
iá
Hvenærerhver
Atvinnuleysi________________
Skyldusparnaður greiddur 16
Grænlandsjökull________________
Hitasveiflur rannsakaðar 21
Leiöari
Hagstjórnartæki íþágu umhverfís-
ins 22
Daglegt líf
► - Reynsluakstur Renault Safr-
ane - Bíódagar Friðriks Þórs á
Höfða - ganga að Galtarvita -
orkuhvatinn - pöbbarölt í Dublin
- eymapinnar varasamir -
Þrjú íslensk hand-
rit lánuð til Noregs
ÞRJÚ íslensk handrit verða lánuð á handritasýningu í Þrándheimi í
Noregi í september næstkomandi. Að sögn Jónasar Kristjánssonar,
forstöðumanns Árnastofnunar, verða það Landnáma, Gunnlaugssaga
og Lárentíussaga. Sýningin er í tengslum við ár bókarinnar í Noregi.
Ríkisstjómin samþykkti í vikunni
að lána handritin, en Jónas segir að
mjög strangar reglur séu um lán á
handritum héðan. Hann segir að
sérstakir sendimenn verði að fara
með handritin, og aldrei megi flytja
meira en þrjú í einu. Þá verður örygg-
iskerfi að vera til staðar þar sem
handritin eru geymd og einnig verð-
ur að vera sérstök loftræsting og
hitastig. Ekki má vera of mikil birta
á handritunum og halda verður vörð
um þau dag og nótt.
Háar tryggingar eru á handritun-
um og segir Jónas að aðstandendur
sýningarinnar beri allan kostnað af
tryggingum og flutningi. Hann segir
að reynt sé að komast hjá því að
lána handrit til útlanda, nema úm
mjög sérstakar sýningar sé að ræða.
Hann segir ennfremur að sér létti
mikið þegar handritin komi aftur
heim eftir slíkar sýningar.
Jónas segir að auk handritanna
verði pentaðar bækur frá íslandi á
sýningunni svo sem Heimskringla
Snorra Sturlusonar, Guðbrandsbiblía
og Passíusálmar Hallgríms Péturs-
sonar. Sýningin er haldin í nýlegu
listiðnaðarsafni í Þrándheimi og hef-
ur Jónas unnið að undirbúningi hand-
ritasýningarinnar ásamt Jan Ragnari
Hagland, prófessor í norrænum
fræðum við Háskólann í Þrándheimi.