Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
KORFUKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
IR-lidio skipti i Val
NÍU stúlkur, sem hafa leikið
með meistaraflokki kvenna í
ÍR og spiluðu m.a. í úrslita-
keppninni á síðasta keppni-
timabili í körfuknattleik, hafa
skipt yf ir í Val, sem tef lir f ram
meistaraflokki í fyrsta sinn á
komandi tímabili. Á meðal
þeirra, sem hafa gengið frá
félagaskiptum, er Linda Stef-
ánsdóttir, sem var kjörin
besti teikmaðurinn á lokahófi
KKÍ í vor.
Valsmenn stofnuðu körfu-
knattleiksdeild kvenna fyrir
tveimur árum og hafa teflt fram
telpna- og stúlknaflokkum síðan.
Stúlkurnar urðu m.a. Reykjavík-
urmeistarar á síðasta tímabili og
að sögn Guðmundar Sigurgeirs-
sonar, formanns deildarinnar, er
mikill og góður efniviður fyrir
hendi í félaginu. „Það var hins
vegar ijóst að þrjár stúlknanna
myndu ganga upp í meistara-
flokk og við gátum ekki hugsað
til þess að þær yrðu að fara í
annað félag. Þess vegna var tek-
in ákvörðun um að stofna meist-
araflokk kvenna sem lið í þróun-
inni og það er geysilegur styrkur
fyrir deildina að fá þessar stúlk-
ur til liðs við hópinn, sem fyrir
er.“
Félagslegt sjónarmið
Guðmundur sagði að félags-
legt sjónarmið hefði ráðið miklu
varðandi þá ákvörðun að tefla
fram meistaraflokki. „Við viljum
að kvennakarfan standi jafnfæt-
is karlakörfunni, því stúlkumar
eru ekki síðri en karlamir.“
Auk Lindu hafa Guðrún Árna-
dóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Hildigunnur Hilmarsdóttir, Dag-
björt Hrönn Leifsdóttir, Sigrún
Hrönn Hauksdóttir, María
Bjarney Leifsdóttir, Þóra Gunn-
arsdóttir og Harpa Lind Guð-
brandsdóttir gengið frá félaga-
skiptum úr ÍR í Val.
■ IAN Ross, fyrrum þjálfari Vals
og KR, hætti í gær sem fram-
kvæmdastjóri Huddersfield eftir
fimmtán mánaða starf.
■ DUNCAN Ferguson fékk til-
boð frá Glasgow Rangers, sem
hann gat ekki hafnað, en Leeds
var á eftir þessum miðheija
Dundee United, sem er 21s árs.
41 RANGERS greiddi ijórar millj.
punda (um 425 millj. kr.) fyrir pilt-
inn og hefur ekki verið greitt svo
mikið fyrir félagaskipti á Bretlands-
eyjum.
É DAVID Murray, eigandi og
stjórnarformaður Rangers sagði
við þetta tækifæri í gær að ánægju-
legast væri að leikmaðurinn og pen-
ingarnir væru áfram í Skotlandi.
„Við erum ekki hættir að kaupa
leikmenn,“ sagði eigandinn. „Þetta
er stærsta félagið í Bretlandi og
metnaður okkar á sér engin tak-
mörk.“
■ FERGUSON sagðist hafa tekið
áhættu með því að hafna boði
Leeds, „en þetta er eina félagið,
íem ég hef alltaf viljað leika fyr-
ir.“
■ DAVID Platt, fyrirliði enska
landsliðsins, var í gær keyptur til
Sampdoria frá Juventus á Ítalíu.
Nánari upplýsingar voru ekki gefn-
ar um tveggja ára samninginn. ít-
ölsk blöð sögðu kaupverðið 5,3 millj.
dollarar, en það var 5,3 millj. pund
samkvæmt umboðsmanni Platts.
Juve greiddi Bari 11 millj. dollara
Srir leikmanninn í fyrra.
DES Walker, varnarmaður
enska landsliðsins, var seldur frá
Sampdoria til Sheffield Wed-
nesday fyrir 4 millj. dollara.
■ KASHIMA Antlers, sem er í
efsta sæti eftir fyrri umferð jap-
önsku deildarkeppninnar, sem hófst
15. maí og lauk í fyrradag, fékk
467.000 dollara í verðlaun fyrir
árangurinn. Kawasaki Verdy fékk
186.000 dollara fyrir annað sætið
og Yokohama Marinos 93.400
dollara fyrir þriðja sætið.
■ ALLS mættu um 1,5 millj.
áhorfendur á leikina 90 eða 16.876
að meðaltali á leik, en færri kom-
ust að en vildu. 259 mörk voru
gerð í leikjunum eða 2,88 að meðal-
tali í leik. „Knattspyrnan er komin
til að vera í Japan,“ sagði formaður
deildarinnar og bætti við að móttök-
urnar hefðu verið mun betri en
gert hefði verið ráð fyrir.
■ PÓLSKA knattspyrnusam-
bandið slapp með skrekkinn í fyrra-
kvöld, þegar eldur var laus i höfuð-
stöðvum þess. Skemmdir urðu litl-
ar, en talið var að kveikt hefði ver-
ið í til að mótmæla ákvörðuninni
um að svipta Legia Warsaw meist-
aratitlinum vegna mútumáls.
FRÆÐSLUMAL
Ráðstefna um þjálfun-
arálag íþróttamanna
GOLF
Karen
áEM
Karen Sævarsdóttir úr Golf-
klúbbi Suðumesja og ís-
landsmeistari í golfi kvenna hefur
í nógu að snúast þessa dagana.
Hún kom heim úr landsliðsferð
seint á mánudagskvöld, spilar í
meistaramóti GS og heldur síðan
til Ítalíu þar sem hún tekur fyrst
íslenskra kvenna þátt í Evrópu-
móti einstaklinga. Mótinu lýkur á
sunnudag, en á þriðjudag byrjar
hún leik á Landsmótinu.
„Ég er auðvitað mjög ánægð
með að Golfsambandið skyldi
senda stúlku á EM og ég hlakka
mjög til að keppa á Ítalíu. Hins
vegar gæti ég vel trúað því að
einhverrar þreytu gætti hjá mér
þegar á líður Landsmótið enda er
búið að vera mjög mikið að gera
að undanfömu," sagði Karen.
Fræðslunefnd KSÍ gengst fyrir
ráðstefnu um íþróttalæknis-
fræði í húsakynnum ISÍ í Laugar-
dal í dag og á morgun. Fyrirlesarar
verða prof. Dr. med Heinz Liesen
frá Þýskalandi og dr. Birna Bjarna-
son. Kl. 20 í kvöld verður Liesen
með fyrirlestur um íþróttalæknis-
fræði og situr síðan fyrir svömm
um tengsl íþróttalæknisfræðinnar
og knattspyrnunnar. Á morgun kl.
10 verður hann með fyrirlestur um
rannsóknir á knattspyrnumönnum
og Bima greinir frá niðurstöðum
úr könnun á íslenskum knatt-
spymumönnum, sem verður fram-
kvæmd á hádegi í dag. Ki. 13 á
morgun kynnir Birna rannsókna-
tæki til mjólkursýrumælinga o.fl.
og notkun þeirra, en kl. 14.30 tek-
ur Liesen fyrir íslenska knattspyrnu
með tilliti til ársþjálfunar og grein-
ir frá hvernig álagið í þjálfun 1.
deildar manna ætti að vera nú í
júlí. Ráðstefnan er öllum opin.
Liesen, sem hefur hlotið viður-
kenningar fyrir rannsóknir í
íþróttalæknisfræði, hefur starfað
við rannsóknir og kenslu við þjálf-
unarmiðstöðina í Köln frá opnun
hennar þar sem m.a. er unnið að
þjálffræði með tilliti til hámarksár-
angurs, íþróttalæknisfræði og þætti
tengda þjálfun og keppni. Hann
hefur verið fastur kennari hjá þýska
knattspyrnusambandinu síðan 1982
og er íþróttalæknir þess, en hefur
auk þess verið íþróttalæknir þýska
hokkísambandsins og skíðasam-
bandsins. Hann hafði yfirumsjón
með heilsufari þýsku landsliðs-
mannanna, þegar Franz Becken-
bauer var yfirþjálfari, og var ábyrg-
ur fyrir andlegri og líkamlegri
heilsu leikmannanna á HM í Mexíkó
1986 og á Ítalíu 1990.
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
Helgi med þrennu
FRAMARAR sýndu hvers þeir
eru megnugir, þegar þeir unnu
Fylkismenn 5:0 í 1. deild karla
á Laugardalsvelli ígærkvöldi.
Helgi Sigurðsson var með
fyrstu þrennu sína fyrir Fram,
en Atli Einarsson gerði tvö
mörk.
Cylkismenn voru aðgangsharðari
■ fyrsta stundarfjórðunginn, en
þá tóku Framarar við sér, einbeittu
______ sér að hröðu og
SteínþóT markvissu spili og
Guðbjartsson uppskáru eins og til
skrffar var sáð. Öll mörkin
komu eftir vel út-
færðan og skynsaman leik, en ákaf-
inn bar Fylkismenn ofurliði; ýmist
klúðruðu þeir færunum sjálfir, létu
sóknarmenn Fram hirða boltann af
sér og snúa vörn í sókn eða Birkir
Sigurðsson var á réttum stað í
marki heimamanna.
Steinar Guðgeirsson lék á miðj-
unni hjá Fram og var allt annað
að sjá til piltsins en í undanförnum
leikjum. Leikur Fram var líka allt
annar og betri en uppá síðkastið.
Sjálfstraustið var til staðar, menn
unnu saman sem ein heild og sér-
staklega voru framheijarnir þrír,
Helgi, Atli og Valdimar Kristófers-
son duglegir að sækja boltann aftur
að ekki sé minnst á frammistöðu
þeirra í sókninni. Ríkharður Daða-
son var einnig öflugur á'vinstri
kantinum. Varnarmennirnir áttu
einna helst í vandræðum með að
koma boltanum á samheija, en
Kristján Jónsson og Helgi Björg-
vinsson stóðu samt vel fyrir sínu.
í stuttu máli, sterk liðsheild og
mjög svo sannfærandi sigur. Fram-
arar sýndu að þeir hafa lært af
mistökum í fyrri leikjum, að árang-
ur næst aðeins með því að leggja
sig fram.
Fylkismenn þurftu ekki að tapa
svona stórt. Byijunin lofaði góðu,
en kappið var meira en forsjáin í
sókninni og varnarleikurinn ekki til
að hrópa húrra fyrir. Leikmennirnir
náðu ekki saman og því fór sem fór
þrátt fyrir sóknartilburði.
Helgl Sigurðsson
Ia^^Framarar náðu gagnsókn á 23. mínútu. Atli Einarsson
■ fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Fylkis, lék áfram og
lét vaða með þrumuskoti rétt utan vítateigs. Boltinn fór í netið niðri
út við stöng, hægra megin við Pál Guðmundsson, markvörð.
2m ^\Framarar létu knöttinn ganga manna á milli á 28. mínútu.
■ %#Ríkharður Daðason fékk boftann út í vinstra homið, lék á
mótheija og gaf fyrir markið, þar sem Helgi Sigurðsson kom aðvíf-
andi og skoraði af Öryggi.
3> J^Steinar Guðgeirsson tók aukaspyrnu við vinstri hliðarlínu á
■ \#miðjum vallarhelmingi Fylkis á 49. mínútu. Hann sendi
beint á kollinn á Helga Sigurðssyni, sem skallaði glæsilega í netið
úr miðjum vítateignum.
4>#|Steinar fékk boltann á milli vítateigs Fylkis og miðju á 56.
■ \#mínútu. Hann gaf fram og til vinstri á Valdimar Kristófers-
son, sem sendi fyrir markið. Þar var Atli Einarsson kominn við fjær-
stöng og átti ekki í erfiðleikum með að skalla í markið.
5B^%Valdimar fékk boltann út á hægri kant á 86. mínútu. Hann
■ l#var snöggur að átta sig og sendi innfyrir vörn Fylkis, þar
sem Helgi Sigurðsson var mættur og eftirleikurinn var auðveldur.
■ GUÐMUNDUR Þórðarson hef-
ur gert samning við ÍR um að leika
áfram með 1. deildar liðinu í hand-
knattleik á komandi tímabili. Hann
var í umræðunni sem næsti þjálfari
ÍBV.
■ FABRIZIO Di Mauro, miðvall-
arleikmaður ítalska landsliðsins í
knattspymu, hefur verið Iánaður
fráFiorentina til Lazio, sem hefur
forkaupsrétt S honum að lánstíman-
um loknum.
■ BRIAN Laudrup hefur verið orð-
aður við AC Milan. Talsmaður meist-
aranna sagði að ekkert væri frágeng-
ið, en málið ætti að skýrast í dag.
■ BAYERN Miinchen keypti mið-
heijann Adolfo Valencia frá Kól-
umbíu í gær fyrir þrjár millj. dollara
(um 216 millj. kr.). Valencia, sem
er 25 ára landsliðsmaður og kallaður
„lestin", er þegar kominn til
MUnchen.
■ RICHARD Chelimo, silfurhafi í
10.000 m hlaupi á ÓL í Barcelona,
fær ekki að vera með á HM í Stuttg-
art, nema hann verði með á úr-
tökumótinu í Kenýa.
■ SAMA á við um landa hans,
Yobes Ondieki í 5.000 metra hlaup-
inu.
ÚRSLIT
Hjólreiðar
Tour de France
10. leggur:
1. Tony Rominger (Sviss)....5:41.3 klst.
2. Miguel Indurain (Spáni)...sami tími
3. C. Chiappucci (Ítalíu).13 sek. á eftir
4. Zenon Jaskula(Póll.)...15 sek. á eftir
5. Alvaro Mejia (Kólumbíu)...sami tími
6. Bjame Riis (Danmörku)..........31
7. Robert Millar (Bretl.)........1:00
8. Oliviero Rincon (Kólumbíu)....2:56
9. Andy Hampsten (Bandar.).......3:06
10. Roberto Conti (Ítalíu)........3:22
Staðan eftir 11 leggi:
1. Miguel Indurain (Spáni) ...46:39.20 klst.
2. Alvaro Mejia (Kólumbiu)
3.23 mín. á eftir
3. ZenonJaskula(Póllandi)........4:31
4. Tony Rominger (Sviss).........5:44
5. Bjame Riis (Danmörku)........10:26
6. Andy Hampsten (Bandar.)......11:12
7. Claudio Chiappucci (Ítalíu)..14:09
8. Eric Breukink (Hollandi).....14:54
9. Pedro Delgado (Spáni)........15:32
10. Oliviero Rincon (Kólumbíu)...21:17
í kvöld
Knattspyrna
3. deild karla
Selfossv.: Selfoss - Haukar..;20
Húsavíkurv.: Völsungur - Víðir.20
Grenivíkurv.: Magni - HK......20
Sandgerðisv.: Reynir - Grótta..20
4. deild karla
Varmárv.: Afturelding - Hamar..20
Keflavíkurv.: Hafnir - Ármann.20
Valbjarnarv.: Leiknir - Ægir..20
Njarðvíkurv.: UMFN - Hvatberar.,20
Hofsósv.: Neisti - Þrymur.....20
íslandsmótið í tennis
íslandsmótið í tennis hefst kl. 17 í
dag á tennisvöllum Vikings (telpur
og drengir) og Þróttar (öðlingar), en
keppt verður til úrslita í þessum
flokkum um helgina. 1 næstu viku
verður keppni í unglingaflokkum og
ímeistaraflokkum um aðra helgi.
Sundmeistaramótið
Sundmeistaramót íslands verður
haldið í Laugardalslaug í Reykjavík
um helgina og hefst kl. 20 í kvöld,
en þá verður keppt í lengri vega-
lengdum karla og kvenna.
GOLF
Meistaramót GKK
Meistaramót Golfklúbbs Kópavogs verður
haldið á mánudaginn og þriðjudaginn nk.,
19. og 20. júlí, á Hvaleyrarvelli í Hafnar-
flrði. Ræst verður út frá klukkan 13 til
15.30.
Pepsi-Schweppesmótið
Opna Pepsi-Schweppesmótið verður haldið
á Vífilstaðavelli 18. júlf. Glæsileg verðlaun,
aukaverðlaun á 2. og 11. braut. Ræst út
frá klukkan nfu.
Eldmessumótið
Opna Eldmesssumótið verður haldið á
Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 17. júlí.
RC-mótið
Opna RC-mótið verður haldið á Dalvfk á
sunnudag.
Opið mót á ísafirði
Tveggja daga opið mót verður á ísafirði
um helgina.