Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
21
Bhutto þjarmar að sljórn Pakistans
HERMENN voru í gær með mikinn viðbúnað í Islamabad í Pakistan eftir að stjórnarandstöðuleiðtoginn Benaz-
ir Bhutto hafði lýst því yfir að hún myndi ganga til höfuðborgarinnar í dag ásamt tugþúsundum stuðnings-
manna sinna til að steypa stjórninni. Aðstoðarmaður hennar sagði þó síðar um daginn að hún hefði hætt við
gönguna þar sem stjórnin hefði orðið við kröfum hennar. Bhutto hafði krafist þess að stjórnin boðaði til kosninga
og segði af sér. Myndin er af hermönnum á eftirlitsferð um borgina í gær.
Nýtt hneykslismál innan Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu
Aðstoðarbankastjóri
knúinn til afsagnar
SKÖMMU eftir að Jacques Attali, yfirmað-
ur Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu
(EBRD), varð að láta af störfum hefur nú
aðstoðarbankastjórinn, Þjóðverjinn Manf-
red Abelein, einnig neyðst til að hætta hjá
bankanum. Ástæðan er vafasöm viðskipti
hans í austurhluta Þýskalands. í dag kemur
út skýrsla um starfsemi bankans sem end-
urskoðendur hafa unnið að undanfarna tvo
mánuði.
Hitasveiflur rannsakaðar á Grænlandsjökli
Við lifum okkar
einu mögulegu tið
„MANNKYNIÐ hefur byggt upp merkilegt samfélags-
og hagkerfi á tímabili sem er að öllum líkindum það eina
í allri jarðsögunni sem slíkt kerfi hefði getað verið byggt
upp; þegar loftslagið er nógu stöðugt til þess að við
gætum þróað þá grundvallar jarðyrkju sem er nauðsyn-
leg fyrir framrás samfélagsins.“ Þetta segir bandaríski
vísindamaðurinn Jim White, í Ijósi nýrra upplýsinga um
hitasveiflur á jörðinni á hlýskeiðinu fyrir síðasta jökul-
skeið, fyrir rúmum 100 þúsund árum.
Sú stöðuga tíð sem við lifum
er frekar undantekning en regla.
Jarðvísindamönnum til mikillar
furðu leiddu athuganir á bor-
kjarna, sem þeir sóttu sér niður
í Grænlandsjökul, í ljós að hiti á
jörðinni hefur verið mun stöðugri
á því hlýskeiði sem við lifum nú
á en þeim fyrri. Niðurstöður rann-
sóknanna eru fyrstu beinu sann-
anirnar fyrir hitasveiflum á slík-
um hlýskeiðum. Á síðasta hlý-
skeiði, sem stóð í 20 þúsund ár,
var hiti yfirleitt um tveim gráðum
hærri en nú, en lækkaði iðulega
niður á ísaldarstig og hækkaði
síðan aftur. Slík „kuldatíð“ gat
staðið allt frá tugum ára yfir í
margar aldir.
Tengist úthafsstraumum
Eric Wolff, hjá Bresku heim-
skautarannsóknarstofnuninni,
segir ekki að fullu ljóst hvað ráði
loftslagsbreytingum. Þó benda
rannsóknir bandaríska jarðvís-
indamannsins Wallace Broecker
til þess að breytingar á lofstlagi
megi að nokkru leyti rekja til
breytinga á straumum í úthöfun-
um. Frekari rannsóknir staðfesta
að þétting á kolefnissamböndum
getur valdið breytingum á úthafs-
straumum. Wolff segir að hita-
breytingar hljóti að tengjast slík-
um straumum.
Hámarksþægindi
„Það er ekki vitað hvers vegna
við höfum verið svona heppin,"
segir White. „Loftslagið getur
breyst án þess að mennirnir hafi
þar hönd í bagga, og ef til væri
leiðarvísir með jörðinni þá væri
áreiðanlega tekið fram í kaflanum
um loftslag að framleiðandinn
hefði stillt það á hámarksþægindi
- svo ekki snerta takkana!“
Abelein, sem er fyrrum þingmað-
ur fyrir Kristilega demókrataflokk-
inn og lagaprófessor, hóf störf hjá
EBRD árið 1991. Varhonum úthlut-
að því embætti af Helmut Kohl
kanslara í kjölfar þess að hann
missti þingsæti sitt í kosningum.
Abelein hafði enga reynslu af
bankamálum og sagði viðskipta-
blaðið Handelsblatt þegar Ijóst var
að hann yrði ráðinn: „En neyðar-
legt“.
Samkvæmt starfsreglum Evrópu-
bankans mega starfsmenn hans
ekki sinna neinum öðrum launuðum
störfum á starfstímanum. Þessi
regla varð Attali einmitt að falli en
í Ijós kom að hann hafði þegið þókn-
un fyrir að halda fyrirlestur í Japan.
Krefjast
viðskipta-
banns á
Norðmenn
Washington. Reuter.
TVEIR bandarískir þingmenn í
fulltrúadeildinni, . demókratinn
Gerry Stubbs og repúblikaninn
Arthur Ravenel, hafa beðið við-
skiptamálaráðherra landsins að
úrskurða að Norðmenn reyni af
ásettu ráði að grafa undan Al-
þjóðahvalveiðiráðinu, IWC. Mark-
mið þingmannanna er að fá í gegn
viðskiptabann á Noreg vegna
hrefnuveiða.
„Sú ákvörðun Norðmanna að hefja
á ný hvalveiðar... er ekkert minna
en hnefahögg í andlit annarra aðild-
arþjóða IWC,“ sagði Studds á blaða-
mannafundi. Fari Ron Brown við-
skiptaráðherra að ósk þingmannanna
hefur Bill Clinton forseti 60 daga til
að ákveða hvort viðskiptabann verði
sett á.
Bandaríkin flytja árlega inn olíu
frá Noregi að andvirði um fímm
milljarða ísl. króna auk físks og
ýmissa annarra vörutegunda.
Að sögn þýska tímaritsins Spieg-
el lögðu Frakkar mikla áherslu á
að viðskipti aðstoðarbankastjórans
yrðu einnig könnuð, eftir að Attali
varð að hætta. Segir tímaritið að
almennt hafi verið litið á Abelein
sem „vonlausan" í bankanum og
hafí blaðafregnir um viðskipti hans
í austurhluta Þýskalands, ýtt undir
grun um að hann hefði brotið starfs-
reglur.
Við athugun málsins kom í ljós
að Abelein hafði þegið hundruð
milljóna króna í þóknun fyrir að
veita fyrirtækinu Sachsenring Au-
tomobilwerken í Zwickau (SAZ) lög-
fræðilega ráðgjöf. Abelein sat í
stjórn fyrirtækisins, sem átti í mikl-
um erfiðleikum, en lagði samt fram
svimandi háan reikning ásamt fé-
laga sínum.
Reikningurinn hljóðaði upp á 6,5
milljónir marka, 270 milljónir króna,
og átti fyrirtækið í nokkrum erfið-
leikum með að greiða hann. Athuga-
semd var hins vegar ekki gerð fyrr
en ári síðar er forstjóri SAZ, Horst
Meyer, tók málið upp við Treuhand-
stofnunina, sem er eigandi fyrirtæk-
isins. Málið var kannað og í ljós kom
að lögfræðiþóknunin var úr öllum
tengslum við veruleikann.
I desember í fyrra gerði svo Treu-
hand samkomulag við Abelein og
félaga hans um að þeir greiddu um
2 milljónir marka til baka, sem við-
urkenningu á því að reikningurinn
hafði verið of hár. Á móti var sam-
þykkt að gera ekki meira úr málinu.
Það varð hins vegar Abelein að
falli að EBRD ákvað að taka málið
upp að nýju. Þegar staðreyndir lágu
fyrir voru jafnt Kohl kanslari sem
Theo Waigel fjármálaráðherra sam-
mála um að þingmaðurinn fyrrver-
andi yrði að láta bankastjórastólinn
af hendi.
Samkvæmt heimildum breska
dagblaðsins Financial Times er Att-
ali harðlega gagnrýndur í skýrslu
endurskoðendanna sem út kemur í
dag. Hann er sagður hafa sóað
hundruðum þúsunda króna í flug-
ferðir með einkaþotu, nokkrum
sinnum þegið þóknun fyrir fyrir-
lestra gagnstætt siðareglum bank-
ans og fært persónuleg útgjöld á
reikning bankans, t.d. heimsóknir í
næturklúbbinn Annabels í London.
VINSÆLASTAMYND
ALLRATÍMA
ÞÚHEFURBEÐK>Í65MILUÓNÁR
NÚ ERUAE>EIN$4VIKUREFTIR