Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 4
4
MÓRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
Flugskólum og flug-
nemum hefur fækkað
NOKRURS samdráttar hefur orðið vart í flugkennslu síðustu misseri
og samkvæmt upplýsingum frá Loftferðaeftirliti flugmálastjórnar hef-
ur flugskólum og flugnemum fækkað nokkuð. Tomasz Tomczyk skóla-
stjóri Flugmennta hf. segir prófgjöld alit of há og telur það eina ástæðu
augljósrar fækkunar flugnema. Þessa samdráttar verður þó ekki vart
í öllum skólum og Guðlaugur Sigurðsson hjá Flugtaki hf. segir að
umtalsverð fjölgun hafi átt sér stað síðustu ár í sínum skóla á kostnað
þeirra skóla sem hafa neyðst til að hætta starfsemi.
Að sögn Lárusar Atlasonar deild-
arstjóra flugrekstrardeildar loft-
ferðaeftirlitsins hefur flugskólum
með tilskildum kennsluréttindum
fækkað nokkuð síðustu misseri. Þeir
séu núna aðeins níu starfandi en
voru til að mynda ellefu um síðustu
áramót.
í skýrslu loftferðaeftirlitsins fyrir
árið 1992 kemur ennfremur fram að
flugnemum fækkar verulega. Árið
1992 voru 48 flijgnemaskírteini gefin
út en árið áður voru þau 77. Árið
1985 voru flest skírteini gefin út
fyrir flugnema eða 145.
Prófgjöld allt of há
Skólastjóri flugskólans Flug-
mennta, Tomasz Tomczyk, segist
verða var við fækkun flugnema.
Hann segir einkum tvennt valda því.
Annars vegar hafi samdráttur í þjóð-
félaginu orðið til þess að fólk leggi
ekki í flugnám, sem sé í eðli sínu
dýrt. Hins vegar segir hann próf-
gjöld, skírteinisgjöld og önnur gjöld
sem Flugmálastjórn ákveði ailt of
há. Nú sé svo komið að kostnaður
við próftöku nemi allt að helmingi
heildarkostnaðar við flugnám.
„Það er óþolandi hvemig flug-
málastjóm nýtir sér einokunarstöðu
sína en til að fá skírteini verður að
taka próf hjá henni," sagði hann.
Aðspurður sagði Tomasz rekstur
skólans ganga þokkalega miðað við
aðstæður. „Við höfum ákveðið að
bæta ekki við ökkur vélum heldur
nýtum við betur eldri vélar sem þeg-
ar eru í notkun.“ Hann segir að sam-
keppni á milli skóla gangi ekki leng-
ur út á verðsamkeppni því að verðlag
hafí staðið í stað síðustu ár. Hann
telur skólana fremur reyna að bjóða
upp á ýmsa þjónustu og nefnir sem
dæmi að Flugmennt bjóði flugnem-
um hagstæð lán í samstarfi við
Landsbankann.
Uppgangur hjá Flugtaki
Guðlaugur Sigurðsson hjá Flug-
taki hf. segir fyrirtæki sitt standa
vel. „Hjá okkur hefur orðið umtals-
verð fjölgun meðal flugnema síðustu
þijú ár og ég áætla að þeim hafí
fjölgað um 50%. Það er ljóst að við
högnumst á kostnað þeirra skóla sem
lagt hafa upp laupana en við urðum
einir eftir á markaðinum hér í
Reykjavík um tíma.“ Hann segir að
talsverður hagnaður hafí verið á
rekstri fyrirtækisins undanfarið en
ástæður þess megi meðal annars leita
í fjölgun útsýnis- og leiguflugs.
VEÐURHORFUR I DAG. 16. JUU
YFIRLIT: Norður af Melrakkasléttu er 1013 mb smálægð sem grynnist,
en vestur af (rlandi er 993 mb lægð sem þokast norðnorðvestur.
SPÁ: Austlæg átt, víðast 4-6 vindstig. Þokkalega bjart verður um land-
ið vestanvert og inn til landsins fyrir norðan léttir heldur til. Þá verður
skýjað að mestu með norðaustur- og austurströndinni og sums staðar
lítilsháttar væta. Heldur hlýnar I veðri á landinu, en þó verður áfram
6-9 stiga hiti með norður og austurströndinni.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austlæg átt. Skýjað og
dálítil súld við austur- og suðausturströndina en víðast bjartviðri vestan-
lands og í innsveitum norðanlands. Hlýnandi og verður hlýjast vestan-
lands.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Þokusúld á
stöku stað við norðurströndina en annars yfirleitt léttskýjað. Áfram hlýtt
í veðri nema á annesjum norðanlands og- austan.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
O
Heiöskírt Léttskýjað Hálfskýjað
/ / / * / * * * *
/ / * / * *
r r r r * r * * *
Rigning Slydda Snjókoma
FÆRÐA VEGUM:
Skýjað Alskýjað
v ^ ý
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrímar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
dig..
(Kl. 17.30 í geer)
Greiðfært er um þjóðvegi landsins og flestir hálendi9vegir orðnir færir
fjallabítum. Þó er enn ófært um Syðra-Fjallabak og um Nyrðra-Fjallabak
milli Landmannalauga og Eldgjár, Gæsavatnaleið og leiðirnar frá Sprengi-
sandi til Skagafjarðar og Eyjafjarðar eru ófærar. Einnig er leiðin lokuð
um Stórasand og um línuveginn við Hlööufeli. Víða er unnið við vega-
gerð, og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir að virða þær merkingar
sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlt! veður Akureyri 9 alskýjað Reykjavfk 14 skýjað
Bergen 18 hálfskýjað
Helsinki 19 skýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Narssarssuaq 8 aiskýjað
Nuuk 4 þoka
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 27 heiðskfrt
Amsterdam 17 rignlng
Barcelona 26 léttskýjað
Berlfn 17 alskýjað
Chicago 19 léttskýjað
Feneyjar 24 þokumóða
Frankfurt 19 rigning
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 17 skýjað
London 19 rigning
tosAngeles 18 skýjað
Lúxemborg 17 skúr
Madríd 33 léttskýjaö
Malaga 26 léttskýjað
Mallorca 29 heiðskírt
Montreal 19léttskýjað
NewYork 25 skýjað
Orlsndo 24 lénskýjeð
París 22 skýjað
Madelra 20 8kýjað
Róm 25 heiðskírt
Vfn 20 skúr
Washington 27 mistur
Winntpeg vantar
Ný rödd svarar í 04
„FJÓRTÁN þrjátíu og einn tuttugu" voru fyrstu orð hinnar nýju tal-
klukku Pósts og síma eftir að hún var tekin í notkun í gær. Geir Ragn-
arsson, verkfræðingur hjá Pósti og síma, sést hér gefa tölvu skipun svo
rödd Ingibjargar Bjömsdóttur leikkonu, sem stendur til hliðar við Geir,
taki við af rödd Sigríðar Hagalín leikkonu, sem stjórnað hefur tíma
landsmanna síðastliðin 30 ár. Nýja talklukkan er mun nákvæmari en
hin gamla að sögn Geirs og á að endast betur.
Fangelsi í 4 ár
fyrir nauðgun
og fleiri afbrot
JÓN GESTUR Ólafsson, 24 ára gamall Reykvíkingur, hefur verið dæmd-
ur til fjögurra ára fangelsisvistar af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
að nauðga 16 ára stúlku á hrottalegan hátt. Hann er einnig dæmdur
til að greiða stúlkunni fimm hundruð þúsund krónur í miskabætur.
Einnig var Jón Gestur dæmdur til að greiða 29 aðilum tæplega hálfa
milljón króna vegna þjófnaða, skjalafals og fjársvika.
Aðdragandi nauðgunarmálsins
var sá að stúlkan var á ferð í miðbæn-
um aðfaranótt 9. janúar sl. Um þijú-
leytið um nóttina var stúlkunni boðið
í samkvæmi ásamt vinkonu á heim-
ili hins dæmda og var þar saman
komið fleira ungt fólk. Er leið á nótt-
ina tíndist fólkið burt og varð stúlkan
ein eftir í íbúðinni ásamt húsráð-
anda. Hún bar að hann hefði haft í
hótunum við sig,,dregið síðan fram
stóran hníf og lagt hendur á sig.
Stúlkan reyndi að beita fortölum og
stóð í stimpingum milli þeirra dijúga
stund áður en hann kom fram vilja
sínum. Hinn dæmdi sofnaði að því
loknu og komst stúlkan þá út úr
húsinu.
Averkar
Kona sem var að skafa snjó af
rúðum bifreiðar sinnar vitnaði fyrir
rétti að stúlkan hefði komið hlaup-
andi til sín berfætt í snjónum og
klædd buxum og skyrtu einum fata.
Hún sagði að stúlkan hefði verið í
miklu uppnámi og útgrátin. Við
læknisskoðun reyndist stúlkan hafa
hlotið áverka m.a. á öxlum og hálsi.
I niðurstöðu dómsins segir að
ákærði hafi frá upphafi neitað sakar-
giftum. Frásögn hans um atburðarás
sé hins vegar ótrúverðug gegn fram-
þurði stúlkunnar, sem gefið hefði
greinargóða skýrslu og verið sjálfri
sér samkvæm í meginatriðum. Fram-
burður allra vitna og læknisrannsókn
þykir einnig staðfesta frásögn stúlk-
unnar.
Hrottafengið afbrot
Maðurinn var einnig ákærður fyr-
ir fjölda annarra afbrota, einkum
auðgunarbrota. í dómsorði segir,
„Við ákvörðun refsingar er litið til
sakaferils ákærða, sem tvívegis áður
hefur verið sakfelldur fyrir ofbeldis-
verknað, svo og hins hrottafengna
brots hans gegn stúlkunni, sem var
aðeins 16 ára, en ákærða vár um
aldur hennar kunnugt."
Financial Times um Böm náttúmnnar
ÞokkafuH kvikmynda-
taka og góður leikur
KVIKMYND Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, fær
í gter, fimmtudaginn 15. júlí, lofsamlega dóma í kvikmyndadálki
Financial Times, þar sem einnig er fjallað um nýjustu mynds Stev-
ens Spielbergs, Jurassic Park, og einkum er leik og kvikmynda-
töku hrósað.
Gagnrýnandi blaðsins, Stephen
Amidon, lýsir söguþræði myndar-
innar stuttlega, lofar fegurð ís-
lenskrar náttúru. Síðan segir:
„Leikstjórinn og handritshöfund-
urinn [Friðrik Þór] Friðriksson
hefur sett saman margslungna,
oftlega hrífandi mynd um fólk sem
neitar að stíga hljóðlega inn í heim-
skautanóttina. Með þokkafullri
kvikmyndatöku' og góðum leik
tekst Bömum náttúrunnar að
sneiða hjá því að útmála gamla
fólkið sem sæta nöldurseggi."
Gagnrýnandinn kvartar þó yfir
því að leikstjóranum mistakist að
„slá samfelldan tón á tilfinninga-
sviðinu", og fari of geyst á milli
ólíkra stemmninga. Hann kveðst
einnig myndi hafa notið kaldrana-
legrar fegurðar Iandslagsins meir
ef stafsetningarvillur hefðu verið
færri í textun myndarinnar.