Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
17
Lj ósmyndamaraþon
áhugalj ósmyndara
FÉLAG íslenskra áhugaljósmyndara gengst fyrir 12 klukkustunda
— og 24 mynda — ljósmyndamaraþoni á morgun, laugardaginn
17. júlí. Keppni þessi verður árlegur viðburður í framtíðinni.
„Markmiðið er að sem flestir taki þátt og hafi gaman af,“ sagði
Halldór Kolbeins formaður félagsins.
Ljósmyndamaraþonið hefst á
morgun, laugardaginn 17. júlí, á
hádegi og lýkur á miðnætti. Mara-
þonið hefst við höfuðstöðvar félags
íslenskra áhugaljósmyndara í
Síðumúla 33, bakhúsi. Keppendur
fá 24 mynda filmu í hendur og
verður sett fyrir 12 verkefni eða
þemu sem verður að ljúka á sex
tímum, en þá verða næstu 12 verk-
efni afhent. Þau verkefni verða svo
leyst, þ.e.a.s. á filmu fest, á næstu
sex tímunum en keppninni lýkur
kl. 12 að miðnætti.
Fyrir alla
Halldór Kolbeins, formaður fé-
lags íslenskra áhugaljósmyndara,
sagði Morgunblaðinu að öllum
væri heimil þátttaka og tók skýrt
fram að ekki væru gerðar neinar
sérstakar kröfur um tækjakost
þátttakenda. „Markmiðið er að
sem flestir taki þátt og hafi gam-
an af.“ Formaðurinn sagði einnig
að í keppni sem þessari væri það
oft hugmyndaauðgi og ímyndun-
arafl sem kæmi fólki lengra en
mikil þekking á tækjum og tólum.
Áfengis varnaráð
Nokkur atriði um
Verðlaun og viðurkenning
Halldór Kolbeins gat þó ekki
leynt því að verðlaunin í þessu ljós-
myndamaraþoni væru veglegur
tæknibúnaður; ljósmyndavél af
gerðinni Canon EOS-5, en einnig
yrðu veittar viðurkenningar fyrir
bestu úrlausn á hveiju verkefni
fyrir sig. Formaður félags ís-
lenskra áhugaljósmyndara greindi
frá því að bestu úrlausnimar yrðu
sýndar á verðlaunaafhendingu í
' Háskólabíói en tímasetning henn-
ar yrði auglýst síðar.
Halldór hvatti alla sem á
myndavél gætu haldið til að skrá
sig hið fyrsta í maraþonið í húsa-
kynnum Félags íslenskra áhuga-
ljósmyndara í Síðumúla 33, bak-
húsi. Einnig væri hægt að skrá
sig í síma 91-811405 þar til keppni
hæfist. Hann vildi ekki láta þess
ógetið að nokkrir aðilar hefðu
styrkt þessa keppni. Iþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkurborgar,
Bylgjan fm 98,9, Express litmynd-
ir, Hans Petersen hf. og Morgun-
blaðið.
einkasölu á áfengi
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi frá Áfengisvarnar-
áði:
Áfengi er eina vímuefnið sem
lögum samkvæmt er heimilt að
neyta hér á landi. Önnur slík efni
eru bönnuð, einkum af heilsufars-
legum, félagslegum og efnahags-
legum ástæðum. Því liggur í aug-
um uppi að hafa verður stjórn á
dreifingu þess og meðferð eftir því
sem kostur er.
Grundvallaratriði norrænnar
áfengismálastefnu er að takmarka
einkagróða af sölu og annarri
dreifingu áfengis.
Kaupsýslumenn ýmsir, áfengis-
veitingamenn og ýmiss konar
braskarar aðrir vilja hirða gróðann
af áfengissölunni en taka ekki
meiri þátt í gífurlegum kostnaði
þjóðfélagsins vegna áfengistjóns
en aðrir skattborgarar — jafnvel
minni.
Hvergi á Norðurlöndum er
drykkja jafn mikil og i Danmörku
og á Grænlandi. í þeim löndum er
ekki áfengiseinkasala.
Addiction Research Foundation
(ARF) í Tórontó í Kanada er virt-
asta rannsóknarstofnun heims í
vímuefnamálum. Hún leggur ein-
dregið til að los varðandi sölu og
aðra dreifingu áfengis verði ekki
aukið.
Hvergi er jafn auðvelt sem í
Bandaríkjunum að rannsaka mun-
inn á afleiðingum mismunandi
skipulags á áfengisdreifingu þar
eð sum ríkin búa við svokallað
frelsi í sölu áfengis en önnur hafa
einkasölukerfi líkt og Norðurlönd,
önnur en Danmörk.
í aldarfjórðung hafa vísinda-
menn vestra fylgst með breyting-
um á áfengissölu í 48 ríkjum. Nið-
urstaðan er:
A. Ríkiseinkasala dregur úr
neyslu. Einkahagsmunir í sam-
bandi við dreifingu áfengis valda
því hins vegar að meira er gert til
að hvetja til drykkju en ella. Hvort
tveggja stafar af því að opinberir
aðiljar verða að greiða það tjón sem
áfengisneyslan veldur. Þar hafa
einkaaðiljar engar skyldur.
B. Fjöldi dreifingarstaða hefur
áhrif á neysluna.
C. Þvi lægri sem lögaldur til
áfengiskaupa er þeim mun yngri
byija unglingar eða börn að neyta
þessa vímuefnis.
D. Verðlagning hefur áhrif á
neysluna.
í tveim ríkjum vestra, þar sem
er einkasala, Iowa og Vestur-
Virginíu, var gerð tilraun með að
leyfa sölu veikra vína og bjórs í
ákveðnum matvörubúðum. Það var
ekki einungis að vín- og bjór-
drykkja ykist heldur og heildar-
neysla áfengis. I Vestur-Virginiu
jókst víndrykkjan um 48% og í
Iowa um 93%.
í árslok 1988 var áfengiseinka-
sala lögð niður í Póllandi og hafði
hún þá verið við lýði í 70 ár eða
nánast frá því að Pólveijar fengu
sjálfstæði eftir heimsstyijöldina
fyrri. Einkavæðingin hefur haft
það í för með sér að tjón vegna
áfengisneyslu hefur aukist stórum
— enda tæpast nokkur stjórn á
áfengisdreifingu síðan og smygl,
brugg og svartamarkaðssala fram-
leiðenda hafa siglt í kjölfarið.
Milli áranna 1988 og 1991 fjölg-
aði innlögnum á sjúkrahús vegna
geðveiki af völdum áfengisneyslu
um 50%.
Einstaklingum, sem háðir eru
neyslu áfengis, fjölgaði um 15%.
Dauðsföllum af völdum skorpulifr-
ar um 18% og umferðarslysum
tengdum drykkju um 27%.
Aætlað er að tekjur ríkissjóðs
af áfengissölu hafi dregist saman
um 50%.
Norðurlandamenn, Finnar,
Norðmenn, Svíar og íslendingar,
hafa látið bóka í viðræðum um
Evrópska efnahagsvsæðið að þeir
áskilji sér rétt til að halda einka-
sölu á áfengi. Þar komi til heil-
brigðissjónarmið og velferð þjóð-
anna.
Kaupmenn væru ekki ginn-
keyptir fyrir að flytja inn og selja
áfengi ef þeir ættu þar ekki gróða-
von og þegar um áfengissölu er
að ræða gjalda skattborgarar
reikninginn.
Svindl með bílnúm-
er eru fremur fátíð
• Morgunblaðið/Kristinn
Hugrnynd að
ljósmynd
HALLDÓR Kolbeins segir
ímyndunaraflið ráða mestu um
árangur í ljósmyndamaraþoni.
BÍLEIGANDI á Suðurnesjum
víxlaði númerum af fólksbíl yfir
á afdankaðan vörubíl fyrir
skömmu. Fljótlega komst upp
um athæfið og tók lögreglan I
Keflavík númerin af bilnum.
Ekki er mikið um að númerum
sé víxlað milli bifreiða og mjög
sjaldgæft að slík svik komi í Ijós
við skoðun hjá Bifreiðaskoðun
íslands hf.
Eigandi Suzukibifreiðar á
Suðurnesjum víxlaði númerum af
henni yfir á Benz vörubifreið sem
hann hafði fengið fyrir lítið. Bif-
reiðin hafði staðið númeralaus í
Garði í allan vetur og var framseld
til Gerðahrepps í heinsunarátaki
fyrir skömmu, sem framseldi hana
svo viðkomandi manni. Vegfarandi
í Keflavík gerði lögrelunni þar við-
vart er hann sá skijóðinn á númer-
um í Keflavík og komst þá upp
hvernig í pottinn var búið. Viðkom-
andi maður fær sekt fyrir athæfið.
Að sögn lögreglu í Keflavík er
mjög sjaldgæft að númerum sé
víxlað á Suðurnesjum, enda fljótt
að komast upp í fámennum byggð-
arlögum eins og þetta dæmi sýnir.
-----------»-».-----
Smábátur í
erfiðleikum
SMÁBÁTI hlekktist á við mynni
Patreksfjarðar á þriðjudag er
Ieki kom að kælivatnsinntaki.
Einn maður var um borð og var
honum bjargað af sökkvandi
bátnum. Lögreglan á Patreks-
firði hefur málið til rannsóknar
og munu sjópróf fara fram innan
skamms.
Báturinn, sem heitir Hanna
Kristín HF-44 og er Sómaplastbát-
ur, var um 22 sjómílur vestur af
Blakknesi við mynni Patreksfjarðar
á þriðjudag. Að sögn Theodórs
Kristins Erlingssonar, eiganda
bátsins, fór kælivatnsinntak að leka
og komst mikill sjór í bátinn.
Theodór kvaðst aldrei hafa verið
í hættu því Garri BA hefði verið
við hliðina á honum og skaplegt
veður þegar lekinn kom að bátnum.
Veðrið fór hins vegar versnandi og
voru komin fimm vindstig þegar
Gyllir ÍS dró bátinn til hafnar.
Theodór sagði ljóst að tjón hefði
orðið á siglingatækjum en vél
reyndist í lagi og handfæravindur
töpuðust ekki. Skrokkur bátsins
skemmdist er hann var dreginn til
háfnar og er hann jafnvel ónýtur.
Theodór taldi að tjónið yrði bætt
af tryggingum. Málið fer fyrir Hér-
aðsdóm ísafjarðar á næstunni.
Fyrsta bílabíóið í borginni
Afgreiðslufólk
á hjólaskautum
FYRSTA bílabíóið í borginni verður opnað um miðjan næsta mán-
uð. Það verður á bílaplaninu við Miklagarð og mun taka um 200 bíla
í einu. Til að þjónusta gesti bíósins verður afgreiðslufólk sem fer
um á hjólaskautum og að sögn Arndísar Kristjánsdóttur talsmanns
þessa fyrirtækis verður reynt að skapa hina réttu stemmningu í
kringum bíóið.
Arndís segir að stefnt sé að því
að hafa bíóið opið frá miðjum ág-
úst og fram í miðjan september og
að hljóði þeirri kvikmynda sem
sýndar eru verði útvarpað á sér-
stakri útvarpsrás þannig að gestir,
heyra það í útvarpstækjum bifreiða
sinna.
Ekki sýnt í rigningu
Áformað er að hafa tvær sýning-
ar á hveiju kvöldi en ef rignir
munu sýningar falla niður. Arndís
segir að áætlanir geri ráð fyrir 15
sýningarkvöldum þann mánuð sem
bíóið verður opið. Hvað myndir
varðar segir Arndís að kvikmynda-
húsin hafí verið mjög jákvæð í
garð aðstandenda bíósins en ætlun-
in er að sýna ýmsar gamlar kvik-
myndir sem teljast klassískar bíla-
bíómyndir eins og Grease, Sat-
urday night fever og Pyscho. Verð
aðgöngumiða verður svipað og ger-
ist í öðrum kvikmyndahúsum.
Nafnið á hinu nýja bíói verður
einfaldlega Bílabíó.
UTSALA
-íerra-
GARÐURINN
Kringlunni