Morgunblaðið - 16.07.1993, Page 12

Morgunblaðið - 16.07.1993, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 Að ljúga um landbúnað Stuðningur við landbúnað sem hlutfall af framleiðsluvirði 1992 Island Noregur Sviss Japan Finnland Svíþjóð Austurriki EB Kanada Bandarikin Ástralía Nýja-Sjáland Heimildir: OECD, Agricultural Policies, Markets and Trade: Monitoring and Outlook 1993 og Hagfræðistofnun Háskóla islands, Stuðningur íslenskra stiómvalda við landbúnað (Skýrsla nr. 2/1993). II. eftirÞorvald Gylfason Fyrir skömmu kom út ný skýrsla um ástand og stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum á vegum Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í París. Þessi skýrsla hefur vakið nokkra athygli í Noregi og Svíþjóð. Höfundar skýrslunnar minna á það, að norsk og sænsk stjórnvöld halda áfram að leggja þungar byrðar á neytendur og skattgreiðendur í þessum löndum með miklum stuðningi við landbún- að þrátt fyrir heitstrengingar um að stuðla að hagkvæmari búskapar- háttum til hagsbóta fyrir almenn- ing. í skýrslunni eru birtar tölur, sem virðast sýna, að kostnaður neytenda og skattgreiðenda vegna óhagfelldrar landbúnáðarstefnu sé mestur í Noregi og litlu minni í Svíþjóð. Þannig var sagt frá skýrsl- unni í sænskum blöðum um daginn. I. ísland ekki með Hvemig stendur á því, að Noreg- ur er efstur á listanum yfir stuðning stjórnvalda við landbúnað á OECD- svæðinu, sem nær yfir öll iðnríki heimsins? Skýringin á því er afar einföld. Hún er sú, að tölur um Is- land vantar í skýrsluna. Þær voru ekki taldar fram. Þær hafa aidrei verið taldar fram, þótt OECD hafi birt skýrslur af þessu tagi á hverju ári síðan 1988. Við íslendingar erum engu að síður fullgildir aðilar að OECD. Viðskiptaráðherra fer til Parísar á hverju ári til að gefa hagfræðingum OECD skýrslu um íslenzk efna- hagsmál, og sérfræðingar OECD koma hingað heim með reglulegu millibili til að afla sér upplýsinga. Það er þó ekki að sjá af skýrslum OECD um Ísland á liðnum árum og af nýju skýrslunni nú, að land- búnaðarmál hafi borið mjög á góma á þeim fundum. Þó hljóta allir skyni bornir menn að gera sér grein fyrir því, að gerbreytt landbúnaðarstefna er ein höfuðforsenda þess, að hægt sé að koma efnahagslífi þessa lands í eðlilegt horf á næstu árum og koma í veg fyrir stórfelldan fólks- flótta frá landinu. Meðfylgjandi mynd sýnir tölurn- ar úr OECD-skýrslunni um kostn- aðinn, sem landbúnaðarstefnan er talin leggja á neytendur og skatt- greiðendur í aðildarlöndum OECD, sem hlutfall af verðmæti búvöru- framleiðslunnar. Stuðningur Norð- manna við landbúnað beint og óbeint nemur 77% af framleiðslu- virðinu. Með beinum styrkjum er átt við fjárframlög ríkisins til land- búnaðarmála. Óbeinir styrkir eru hins vegar aðallega fólgnir í við- skiptahömlum, sem hækka verð landbúnaðarafurða til neytenda. Stuðningur Svía við landbúnað nemur 57% af framleiðsluvirðinu á sama mælikvarða. Þetta eru fjallhá- ar tölur. Evrópubandalagið ver hlutfalls- lega minna fé í þessu skyni eða 47% af framleiðsluvirðinu að meðaltali - og kallar þó ekki allt ömmu sína, þegar bændur eru annars vegar. Tölurnar um Ástralíu og Nýja-Sjá- land neðst á myndinni sýna þó, að það er hægt að komast af þar suð- ur frá að minnsta kosti án þess að styðja landbúnað nema lítillega, ef menn vilja. Tölurnar eru til! Sambærilegar upplýsingar um ísland er að finna í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla íslands (Stuðningur íslenskra stjórnvalda við landbúnað, marz 1993) og einn- ig í vandaðri grein Vigdísar Jóns- dóttur viðskiptafræðings í Fjár- málatíðindum (2. hefti, 1992). Þess- ar upplýsingar ríma vel við þau gögn, sem ýmsir hagfræðingar inn- an Háskólans og utan hafa birt á undanförnum árum. Þær hafa ekki verið vefengdar með skynsamlegum rökum. Samkvæmt skýrslu Hagfræði- stofnunar nam stuðningur stjórn- valda við landbúnað hér heima 97% af verðmæti búvöruframleiðslunnar í fyrra og 95% í ár. ísland er sem sagt langefst á OECD-listanum, eins og myndin sýnir. Þessar tölur fela það í sér ásamt fyrri athugun- um, að við íslendingar eyðum upp undir 5% af síminnkandi þjóðar- framleiðslu okkar á altari óhag- kvæmrar landbúnaðarstefnu. Það jafngildir að minnsta kosti 20.000 krónum á mánuði á hveija fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Til sam- anburðar vörðu Norðmenn og Svíar 3,7% og 1,3% af þjóðarframleiðslu sinni i stuðning við landbúnað í fyrra samkvæmt skýrslu OECD og Evrópubandalagið 2%. Þessum upplýsingum hafa stjórn- völd hér heima vanrækt að koma á framfæri við OECD. Fyrrverandi landbúnaðarráðherra hefur meira að segja sakað mig opinberlega um að halla réttu máli, þegar ég hef kynnt samanburðartölur af þessu tagi fyrir almenningi, en það var að vísu áður en ráðuneyti hans varð uppvíst að því að hafa komizt að svipaðri niðurstöðu haustið 1990. Það var samt ekki landbúnaðar- Þorvaldur Gylfason ráðuneytið, sem láðist að veita OECD þau gögn, sem óskað var eftir, að þessu sinni og reyndar all- ar götur síðan 1987. Nei, það var viðskiptaráðuneytið, enda ber það ráðuneyti ábyrgð á samskiptum stjórnvalda við OECD og tekur við öllum óskum stofnunarinnar um upplýsingar. III. Vanræksla Efnahagsstofnanir ríkisins og ráðuneytisskrifstofur hafa vanrækt að safna gögnum um kostnað al- mennings vegna landbúnaðarstefn- unnar og kunngera þau opinberlega á liðnum árum. Það er ámælisvert. Þær hafa kosið að leiða landbúnað- arvandann hjá sér. Þessi afstaða þeirra hefur valdið skaða. Ráð og skýrslur Þjóðhagsstofnunar hafa til að mynda ekki komið að fullu gagni á liðnum árum vegna þess, að stofn- unin hefur ekki látið ástandið í Iand- búnaðarmálum til sín taka. Að leggja á ráðin um hagstjórn á ís- Iandi án þess að fjalla um landbún- aðarstefnuna er eins og að ráð- ► fe I i Í I i Ágætt skref, en ekki nóg eftirEinarK. Guðfinnsson Efnahagsráðstafanir þær sem ríkisstjómin greip til í lok júní, voru bráðnauðsynlegar og löngu tíma- bærar. Viðvarandi hallarekstur sjávarútvegsins gat augljóslega ekki gengið til lengdar. Einfaldlega af því að ekkert þjóðfélag fær stað- ist það að höfuðatvinnuvegur þess sé rekinn með milljarða halla um lengri og skemmri tíma. Með gengisfellingunni var ríkis- stjórnin að bregðast við fyrirsjáan- legu tekjutapi í þorskveiðum, koma í veg fyrir að viðskiptahalli og þar með erlend skuldasöfnun ykist og acVskapa sjávarútveginum og öðr- um samkeppnis- og útflutnings- Sunnudaginn 18. júlí verður messa í Viðeyjarkirkju kl. 14. Það er sr. Hjalti Guðmundsson sem mesar. Dómkórinn syngur og Mar- teinn H. Friðriksson leikur á orgel- ið. Sérstök bátsferð verður með kirkjugesti kl. 13.30. Kl. 15.15 verður svo staðarskoð- un. Hún hefur verið afar vinsæl í sumar, ekki síst af þeim, sem ekki treysta sér í langar göngur. Þar er kirkjan sýnd og gripir hennar, en greinum nýja viðspymu. Þá er ástæða til þess að fagna því sérstaklega að ríkisstjórnin kaus að nota Hagræðingarsjóð til þess að jafna skellinn sem sjávarútveg- urinn — og þjóðin — urðu fýrir með skertum veiðiheimildum. Mikilvæg skuldbreyting Skuldbreytingar þær sem ríkis- stjórnin hefur áður beitt sér fyrir og stendur nú enn að, em líka liður í því sama; að skapa skjól fyrir útflutningsgreinarnar, auðvelda þeim að komast í gegnum þær miklu hremmingar, sem tekjubrest- ur af völdum aflaminnkunar leiðir af sér. Ég er þeirrar skoðunar að einmitt þessi skuldreyting sé afar mikilvæg til þess að snúa hjólum atvinnulífsins. Þegar tekjur sjávar- síðan gengið um næsta nágrenni, örnefni rifjuð upp og sú saga, sem þeim fylgir. Fornleifagröfturinn verður skoðaður og loks útsýnið af Heljarkinn. Kaffisala verður í Viðeyjarstofu báða dagana kl. 14-16. Bátsferðir verða á klukkustundar fresti frá kl. 13-17, á heila tímanum úr landi, en á hálfa tímanum úr eynni. Hestaleiga er starfrækt í Viðey alla daga. útvegsins minnka, fer æ stærri hluti þeirra í greiðslur til sjóða og ann- arra lánadrottna sem hafa traustust veð fyrir sínum lánum. Þannig verða til greiðsluvandræði í grein- inni sem hitta fyrst fyrir almenna viðskiptamenn hennar. Enginn vafi er á því að þetta veldur uppsöfnun- aráhrifum um allt hagkerfið. Þegar fer að standa á greiðslum til við- skiptaaðila A, kemst hann í vand- ræði gagnvart viðskiptavini B, og svo koll af kolli. Með skuldbreyting- um og frestunum á afborgunum á lánum nokkurra helstu sjóða sem lánað hafa til sjávarútvegsins, lag- ast lausafjárstaðan og allt sem því fylgir. Það er því makalaust að heyra forystumann Alþýðubanda- lagsins kenna þessa sjálfsögðu og þýðingarmiklu aðgerð við sjóða- sukk. Þau orð hans verða lengi í minnum höfð enda lýsa þau dæma- fáu skilningsleysi hans á eðli og umfangi þess vanda sem íslenskt atvinnulíf er statt í. Skorið niður til að lækka vexti En þó svo að hér hafí verið fetuð rétt slóð í öllu tilliti, er ljóst að betur má ef duga skal. Fúslega ber að viðurkenna að stjómvöld hafa ekki öll ráð í hendi sér. Við búum við versnandi ytri skilyrði. Afli margra helstu nytjastofna okkar fer minnkandi. Afurðaverð hefur lækk- að og sölutregðu gætir. Skuldir sjávarútvegsins era í heild sinni alltof miklar og augljóst að miðað við þær tekjuforsendur sem greinin býr nú við ræður hún ekki við þær byrðar. Við þær aðstæður skiptir auðvitað öllu máli að vextir lækki. Þar hefur þróunin því miður þó verið í þveröfuga átt við það sem að var stefnt með efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Það er kunnara en frá þurfi að segja að ríkisstjómin tók við erfiðu búi í ríkisfjármálum. Mikill uppsafn- aður hallarekstur var viðvarandi á ríkissjóði, hvort sem við bjuggum við miklar tekjur eða lækkandi tekj- ur. Verst var þó að ýmiss konar kerfislægur halli var innbyggður í ríkisfjármálin. Á þessum málum hefur verið tekið. Þrátt fyrir gríðar- lega erfiðar ytri aðstæður hefur árangur náðst, sem tvímælalaust mun skila sér til framtíðar litið. Höfuðmarkmiðið með ráðstöfun- um í ríkisfjármálum var að skapa atvinnulífinu í landinu nýtt svigrúm. Draga úr lánsfjárþörf hins opinbera og skapa þannig svigrúm til vaxta- lækkunar. Þetta er Iíka skiljanlegt. Ekkert gæti verið nauðsynlegra fyrir atvinnulífið en einmitt það að vextir lækkuðu nú og það tafar- laust. Það eru því mikil vonbrigði hversu illa hefur miðað í þá átt. Auðveldar fábrotinn fjármagnsmarkaður vaxtalækkun? Mjög er nú talað um að fjár- magnsmarkaður okkar sé svo van- þróaður að hann bregðist ekki eðli- lega við þeim efnahagslegu skila- boðum sem hann fær. Og sjálfsagt er það allt saman rétt. En má ekki gagnálykta og spyija: Gerir hinn fábrotni fjármagnsmarkaður það ekki að verkum að miklu auðveld- ara er með einföldum hætti að knýja niður vexti? Höfum í fyrsta lagi í huga hversu stór lántakandi ríkið er. Og í annan stað, þá Iúta lífeyris- sjóðirnir stjóm hinna margum- ræddu „aðila vinnumarkaðarins". Einmitt þeir ráða yfir um 40 pró- sentum alls lánsfjár í landinu, eða 175 milljörðum króna, sem er hærri upphæð en nemur innistæðum allra Grasaskoðunarferð og staðarskoðun LAUGARDAGINN 17. júlí verður efnt til grasaskoðunarferðar um Viðey. Þar hafa verið greindar 156 tegundir háplantna, þannig að þar ber margt fyrir augu. Það er Eyþór Einarsson grasafræðingur, sem ætlar að fara með þá, sem þess óska, í tveggja tima göngu um hið auðuga plönturíki Viðeyjar. Ferðin hefst við kirkjuna kl. 14.15. I I „Yið þurfum að stefna að mun meiri raun- vaxtalækkun, helst ekki minna en 3% á hausti komanda. Og til þess eru tvímælalaust allar efnahagslegar forsend- ur.“ Einar K. Guðfinnsson banka og sparisjóða. Varla væri mótstöðu að vænta frá bönkunum í landinu, svo oft hafa forsvarsmenn þeirra svarið vaxtalækkun hollustu sína. Nú er því lag til þess að breyta | orðum í athafnir. Ef ekki með því að leggja eyrað við jörð og hlýða á. skrykkjótt boð markaðarins, þá með því að knýja vextina niður með því (hand)afli sem nú heldur þeim uppi í efnahagslegum himinhæðum, } langt ofan og utan við það sem þekkist í siðuðum löndum. Alltof lágreist markmið Það er gott og vel að ríkisstjórn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.