Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 15

Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 15 Áttu vasaljós? eftir Sigurbjörn Þorkelsson Nú geri ég fastlega ráð fyriri að flestir eigi vasaljps einhvers staðar í sínum fórum. Ég geri einn- ig ráð fyrir því að flestir geri sér grein fýrir að vasaljósið þeirra kemur að heldur litlum notum þeg- ar farið er út í mikið myrkur, þang- að sem lýsing er engin, ef vasaljós- ið er geymt í skáp, þ.e.a.s. ekki haft meðferðis og notað við slíkar aðstæður. Einnig hef ég nokkra vissu fyrir því að Biblíu megi finna á flestum heimilum íslendinga ef vel er leit- að. Að minnsta kosti eiga flestir landsmenn 10-15 ára Nýja testa- mentið og jafnvel fleiri. Ekki er ég þó alveg viss um að allir geri sér grein fyrir að Biblíuna eða Nýja testamentið þarf helst að lesa svo bókin góða komi okkur að ein- hveiju gagni í lífínu. Það er ekki nóg að eiga hana einhvers staðar í hillu eða Guð má vita hvar. Orðið, lampi og ljós „Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.“ (Sálm.119: 105.) Til er ágæt saga af manni nokkrum, sem þurfti að fara eitt sinn út í mikið myrkur. Hann sá ekki handa sinna skil í myrkrinu en hélt samt af stað. Ekki leið á löngu þar til hann gekk á eitt- hvað. Hann skynjaði að hann færi „Þannig er það einnig með Biblíuna, Guðs orð. Við þurfum að lesa í bókinni góðu til þess að hún komi okkur að ein- hverju gagni og verði sem lampi fóta okkar og ljós á lífs vegi okk- ar. Biblían kemur að frekar litlum notum rykfallin einhvers stað- ar í hillu.“ nú ekki langt við þessar aðstæður. Þá mundi hann allt í einu eftir því að hann átti vasaljós í skáp í eld- húsinu hjá sér, svo hann staulaðist til baka og sótti vasaljósið. Hann setti síðan vasaljósið í vasann og hélt út á nýjan leik. Ekki hafði hann gengið lengi þegar hann gekk á eitthvað og datt og hruflaði sig. Nú fauk í manninn. Hann sem var með vasaljósið með sér. En viti menn, hann áttaði sig ekki á því að vasaljósið var alltaf í vasa hans þar sem það kom að litlu gagni. Hann hafði ekki áttað sig á því að hann þyrfti að sjálfsögðu að nota vasaljósið og láta það lýsa sér þangað sem hann ætlaði að fara. Þannig er það einnig með Biblí- una, Guðs orð. Við þurfum að lesa í bókinni góðu til þess að hún komi okkur að einhveiju gagni og verði sem lampi fóta okkar og ljós á lífs vegi okkar. Biblían kemur að frek- ar litlum notum rykfallin einhvers- staðar í hillu. Látum ekki fara fyrir okkur eins Sigurbjörn Þorkelsson og þessum annars ágæta manni sem átti vasaljósið. Tökum Bibl- íuna eða Nýja testamentið okkar fram og höfúm þessa bók bókanna á áberandi stað, þar sem okkur reynist auðvelt að nálgast hana til þess að lesa í henni svo að orð hennar verði okkur örugg fótfesta og ljós á lífs vegi. Jesús sagði: „Hver sem drekkur af þessu vatni mun aftur þyrsta, en hver sem drekkur af vatninu, er ég mun gefa honum, mun aldr- ei þyrsta að eilífu. Því vatnið, sem ég gef honum, verður í honum að lind sem streymir fram til eilífs lífs.“ (Jóh.4:13-14.) Og Jesús sagði einnig. „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trú- ir.“ (Jóh. 6:35.) Höfundur er framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins á íslandi. Slökkviliðsæfing GAMLI læknisbústaðurinn á Stórólfshvoli brenndur og rifinn. Gamli lækn- isbústaður- inn rifinn Hvolsvelli. NÚ ER búið að rífa gamla læknis- bústaðinn á Stórólfshvoli. Húsið hefur verið óíbúðarhæft í nokkur ár, en það var byggt árið 1944 og teiknaði byggingameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson, hús- ið á sínum tíma. í gamla daga var ætíð staðarlegt að líta heim að Stórólfshvoli enda stendur húsið á fallegasta stað í þorpinu og hefur sett svip sinn á Hvolsvöll í gegnum tíðina. Víst er að mörgum þykir það mikill sjónar- sviptir að húsið skuli horfið. Slökkviliðsmenn í Rangárvalla- sýslu hugðust nota húsið til bruna- æfínga og kveiktu í því. Ekki vildi húsið brenna nógu vel, að þeirra mati, enda rammgert steinhús og var það að endingu brotið niður með krana. Fyrirhugað er að ný kirkjubygging verði reist á þessum stað í framtíðinni. ------» ♦ .... Tveggi a daea tilboð í IKEA föstudaginn 16. júlí § og laugardaginn 17. júlí ■ Árekstur við Kúagerði ÞRENNT var flutt á Borgarspít- alann eftir árekstur tveggja bif- reiða við Kúagerði um miðjan dag í gær. Að sögn lögreglunnar í Keflavík slösuðust báðir ökumenn og farþegi í annarri bifreiðinni og voru fluttir á slysavarðstofuna. Meiðsl þeirra reyndust ekki alvarleg. verð áður 7.400,- verð nú 4.500,- í I) . .. < f. ’i ...fyrir fólkið í landinu KRINGLUNNI 7 ■ SIMI 91-686650 Vertu með - draumurinn gæti orðið að veruleika ! GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISUENN HF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.