Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 18

Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 Hjólar og hleyp- ur í sólarhring ÞRJÁTÍU og átta ára gamall Húsvíkingur, Eiður Aðalgeirs- son, leggur í dag af stað hjólandi frá Akureyri til Reykjavík- ur og mun strax að þeirri ferð lokinni hlaupa maraþonhlaup um götur borgarinnar. Þessa þolraun þreytir hann til styrkt- ar kristilegu starfi útvarpsstöðvarinnar Sljörnunnar. Eiður er vanur maraþon- og langhlaupari. Hann hefur um ára- bil dvalist í Suður-Afríku og með- al annars tekið þátt í Comrades- hlaupinu sem er rúmlega tvöfalt maraþon. Á þjóli til Reykjavíkur Eiður leggur af stað hjólandi frá Ráðhústorgi á Akureyri í dag klukkan 17.30. Hjólað verður rak- leitt til Reykjavíkur, en Eiður ætl- ar sér um 20 klukkustundir til þess. Nálægt hádegi á morgun gerir hann ráð fyrir að renna upp að höfuðstöðvum útvarpsstöðvar- innar Stjörnunnar. ■ Föstudagur 16. júlí. Einþáttungurinn Tilbrigði við önd eftir David Mamet í þýðingu Áma Ibsen sýndur í Café Karolínu klukkan 21.00. Dúótón, Hulda Björk, Sig- urður og Reynir. Tvísöngur með píanóundirleik í Blómahúsinu, tvisvar um kvöldið. ■í Café Karolínu stendur yfir sýning á myndverkum Laufeyj- ar Margrétar Pálsdóttur. ■í Deiglunni stendur yfir sýn- ing á verkum sjö aldinna Akur- eyringa, Ólafar Baldvinsdóttur, Katrínar Jósepsdóttur, Þórhöllu Björgvinsdóttur, Brigitte Ág- ústsson, Irene Gook, Jóhanns Ingimarssonar og Finns Daní- elssonar. Maraþon um Reykjavík Ekki ætlar Eiður sér hvíld að lokinni hjólreiðaferð að norðan heldur hyggst hann bregða sér á sprett um götur Reykjavíkur og hlaupa eitt maraþon. Þessu sólar- hringslanga þrekvirki er ætlað að ljúki á Lækjartorgi um klukkan 17 á laugardag. Ferð Eiðs tengist fjáröflun til styrktar kristilegu starfi hjá út- varpsstöðinni Stjörnunni og verða ýmsar leiðir farnar til að afla fjár, meðal annars verður reiðhjól kapp- ans selt hæstbjóðanda við komuna til Reykjavíkur. -------------------- ■Um helgina verður í Blómahús- inu á Akureyri sýning á búnaði fyrir sjósport af öllu tagi, jafnt bátum og viðlíka tækjum og ör- yggisbúnaði. Það eru siglinga- klúbburinn Nökkvi og Þórsham- ar hf sem standa að þessari sýn- ingu í samvinnu við Blómahúsið. Opið verður á föstudag klukkan 14 til 18 og laugardag og sunnu- dag klukkan 13 til 18. ■í kvöld verða tónleikar í Dyn- heimum. Þar koma fram hljóm- sveitimar Hún andar, Júmbóflex og gleðitríóið Ásar. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. ■Á vegum Listasumars á Akur- eyri verður uppákoma á Ráðhú- storgi klukkan 14 í dag. Þar verð- ur afhjúpað útilistaverk eftir Jóh- ann Ingimarsson, leikin tónlist og sitthvað fleira spennandi gert. ■Hljómsveitin SSSól mun í dag leika á útitónleikum á Dalvík ef vel viðrar. I kvöld leikur hljóm- sveitin á dansleik í Víkurröst og á morgun leikur hún fyrir dansi í Miðgarði í Skagafírði. Málverkasýning í listhúsinu Þingi LAUGARDAGINN 17. júlí klukkan 16 verður opnuð í list- húsinu Þingi á Akureyri sýning á málverkum eftir Jónas Viðar Sveinsson. Þetta er fjórða einkasýning málarans en hann hefur verið búsettur á Ítalíu undanfarin 3 ár. Þau verk sem hann sýnir að þessu sinni eru máluð erlendis og gefst sýningargestum nú tækifæri til að sjá list hans, sem getið hefur sér gott orð meðal ítalskra list- unnenda. Skáldlegar freistingar Það eru fyrst og fremst skáld- legar freistingar á holdlegum grunni sem Jónas fæst við að mála um þessar mundir og því ber sýning hans yfírskriftina „Tentazioni Erotiche". (Fréttatilkynning.) Jónas Viðar LISTAMAÐURINN við eitt verka sinna. Morgunblaðið/Beiyamín Baldursson Snyrtimennska í Eyjafjarðarsveit GUÐRÚN Egilsdóttir frá umhverfisnefnd Eyja- fjarðarsveitar afhendir Sigurlínu Örlygsdóttur og Jóni Ólafi Jónssyni í Syðra-Felli blómakörfu sem viðurkenningu fyrir snyrtilegasta býlið í sveitinni. Jón Ólafur heldur á verðlaunaskildi sem settur verður upp við heimreiðina að bænum. Snyrtilegasta býlið Ytri-Tjörnum Umhverfisnefnd Eyjafjarðar verðlaunaði síðastliðinn sunnudag snyrtilegasta býlið í hreppnum. Fyrir valinu varð Syðra-Fell, sem áður heyrði til Hrafnagilshreppi. Syðra-Fell hlaut 94 stig af af 100 mögulegum í stigagjöf nefnd- arinnar. í Syðra-Felli búa hjónin Jón Ólafur Jónsson og Sigurlína Örlygsdóttir. I hófi sem haldið var á skrif- stofu hreppsins á Laugalandi til- kynnti Páll Ingvarsson formaður umhverfisnefndar um úrslitin. Hann sagði að nefndin hefði ekið oft um sveitina á undanfömum vikum og á endanum valið úr sex snyrtilegustu bæina. Þeir voru auk Syðra-Fells Espihóll, Holtss- el, Hvammur, Stón-Hamar og Arnarfell. Batnandi umgengni til sveita Guðrún Egilsdóttir, sem á sæti í umhverfisnefnd, sagði í stuttu spjalli að nefndinni hefði þótt já- kvætt að koma þessari verðlauna- veitingu á og kosið þá leið fremur en að setja út á slæma um- gengni, sem enn fyndist. Því mið- ur væri pottur víða brotinn í sveit- um landsins, „en með aukinni ferðamennsku í dreifbýlinu er brýnt að laga þessa hluti. Með þessari verðlaunaveitingu er verið að vekja athygli á þessum málum og hvetja menn til að gera betur og sýna að það er verið að fylgj- ast með allri umgengni," sagði hún. Guðrún taldi ástandið fara batnandi og vildi að nokkru þakka það auknu eftirliti umhverfis- nefndar. Benjamín Morgunbiaóiö/uolli Björgunaræfing í Akureyrarhöfn í GÆR fór fram við Torfunefsbryggju á Akureyri björgunaræfing með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þetta var liður í fjögurra daga námskeiði sem Slysavarnaskóli sjómanna hélt með áhöfninni á togaranum Sléttbaki. Að sögn Hilmars Snorrasonar er að ljúka árlegri sumarsiglingu um landið á skólaskipinu Sæbjörgu, en frá því í maí hefur skipið komið við á 10 stöðum. Haldin eru fjögurra daga námskeið auk tveggja kvölda nám- skeiða fyrir trillusjómenn, en námskeiðin eru opin öllum þeim sem áhuga hafa á að kynnast slysavömum á sjó og vötnum. Slysavamaskólinn tekur aftur til starfa í ágústlok og þá verður á ný komið í Eyjafjörð, að sögn Hilmars. Flestir með beltin spennt ÞESSA dagana stendur yfir átaksvika hjá lögreglunni á Norðurlandi þar sem sérstak- lega er könnuð bílbeltanotk- un. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Ákureyri virðist beltanotkun í þokka- legu lagi og umferð gengur vel og slysalaust þessa dag- ana. Að sögn Ólafs Ásgeirssonar aðstoðaryfírlögregluþjóns á Ak- ureyri höfðu í gærmorgun verið stöðvaðir um 650 bílar í átak- svikunni, til jafns innnan sem utan bæjar. Aðeins um 40 manns hefðu verið beltislausir í þessum bílum, sumpart öku- menn og sumpart farþegar. Þetta hlyti að teljast mjög þokkaleg notkun belta. Ökuhraðinn enn of mikill Ólafur sagði að nokkrir hefðu verið teknir fyrir of hraðan akst- ur, þó ekki fleiri en í meðalum- ferð. Einhveijir hefðu verið skír- teinislausir og fáeinir með ljósin slökkt. Slíkt virtist í flestum til- fellum gleymska og menn kveiktu ljósin við minnstu ábendingu. í heild sagði Ólafur að um- ferðin gengi vel og hefði sem betur fer verið slysalaus að und- anfömu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.