Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 19

Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 19 Veruleg aukning bókana í sérferðir Urvals-Utsýnar MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi fréttatilkynning frá Ferðaskrifstofunni Urvali- Útsýn: „Sérferðir Úrvals-Útsýnar víða um lönd í fylgd sérfróðra íslenskra fararstjóra njóta stöðugt aukinna vinsælda. Þegar hafa tæplega 700 manns bókað sig í sérferðir okkar í ár. Nú er svo komið að haustferð- ir eru óðum að fyllast og aðeins eftir örfá sæti í nokkrar ferðir. Þær ferðir sem uppselt er í eru Sumar í Svartaskógi undir farar- stjórn Lilju Hilmarsdóttur og Feg- urstu héruð Þýskalands undir leið- sögn Friðriks G. Friðrikssonar. Lilja og Friðrik hafa árum saman farið fyrir svipuðum ferðum og komast ávallt færri að en vilja. Perlur Norður-Ítalíu er ný ferð en fyrir henni fer Svavar Lárusson sem sannarlega er einn reyndasti fararstjóri okkar Islendinga en Svavar var einmitt fararstjóri á Norður-Ítalíu árum saman. Nú eru aðeins tvö sæti laus í þessa ferð sem sérsniðin er fyrir ferðalanga sem komnir eru af léttasta skeiði. Alparnir og Rínarlönd er önnur ferð sem fyrst og fremst er ætluð þeim sem vilja fara hægt yfír og hvílast og slappa af á einhveijum fegurstu reitum Alpafjalla. Lilja Hilmarsdóttir leiðir þessa ferð að venju og aðeins eru þijú sæti laus. A haustdögum bíður Úrval- Útsýn upp á tvær ferðir er tengj- ast vínuppskerunni. Friðrik G. Friðriksson fer að venju um Rín- ar- og Móseldali (ávallt er langur biðlisti í þær ferðir) og í haust mun Einar Thoroddsen vínsér- fræðingur. leiða forvitnilega og stórskemmtilega ferð um helstu vínræktarhéruð Frakklands. Loks er ástæða til að nefná haustferðir er styðjast við skemmtisiglingar um Karíbahafið. Hin fyrsta leggur upp 6. sept. og hin næsta 11. okt. Helga Lára Guðmundsdóttir fer fyrir báðum þessum ferðum en Helga hefur margoft stjórnað slíkum hópferð- um og þekkir skipin og áfanga- staði eins og lófann á sér. Loks minnum við á einhveija glæsilegustu ferð sem íslenskum ferðalöngum stendur til boða í ár sem er áramótasigling Royal Vik- ing Sun um Karíbahafið en marg- ir telja „Sólina“ stórfenglegasta skemmtiferðaskip er nú siglir um heimsins höf. Kvennakirkja: Júlímessa í Þykkvabæ JÚLÍMESSA Kvennakirkjunnar terður haldinn í Þykkvabæjar- kirkju í Rangárvallasýslu sunnudaginn 18. júlí kl. 20.30. Guðrún Guðlaugsdóttur blaða- kona prédikar og talar um tryggð- ina. Elísabet Þorgeirsdóttir les ljóð og séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir þjónar fyrir altari og fræðir um kvennaguðfræði. Elín Þöll Þórðardóttir syngur einsöng og sönghópur Kvenna- kirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Sesselju Guðmunds- dóttur. Ferðin austur í Þykkvabæ tekur um eina og hálfa klukkustund og verður rútuferð frá Umferðarmið- stöðinni á vegum Kvennakirkjunn- ar. Lagt verður af stað kl. 18.30. Þar sem óðum fyllist í síðustu sæti í ofangreindum ferðum — og raunar fleirum sem ekki hefur gefist tóm til að greina frá hér — hvetjum við alla þá sem áhuga hafa á upplyftingu áður en skammdegið tekur völdin á ný að hafa samband við Úrval-Útsýn hið fyrsta.“ Páll sýnir 1 Kvenna- bragganum PÁLL Guðmundsson ljósmyndari hefur opnað sölusýningu á 21 mynd á Hótel Djúpuvík (Kvennabragganum) í Reykjafirði á Strönd- um. Sýningin stendur út júlimánuð. Þessi sýning er sú hin sama og hann var með á Upplýsingaskrifstofu ferðamanna á Akranesi fyrir skemmstu. Páll Guðmundsson Páll, sem er 32 ára gamall inn- fæddur Skagamaður, hefur síð- ustu sjö árin lagt stund á ljós- myndun sem áhugamál samfara vinnu sinni og hafa myndir hans vakið æ meiri athygli. Þær hafa birst í fjölda blaða og tímarita, svo og á dagatölum og í kynning- arbæklingum hvers konar. Hótel Djúpavík hefur verið rek- ið frá árinu 1985 af þeim Evu Sigurbjörnsdóttur o Ásbirni Þorg- ilssyni. Gestum þar fer stöðugt fjölgandi ár frá ári. ÓTRÚLEGT ÚRVAL A F TJÖLDUM 50 FERÐAST ÞUINNAN . OtR°//V i sumar: 35.000. stgr. J m-~~ * 8.900.- stgr. 9.400.- m. greiðslukorti 5 MANNAtjakl Lapbnd 2SVEFNPOKAR Ntestar-5° 32Lkæix»í Afft í einum pakka 19.200. stgr. 4 stólar og borð á 3.990.- 4 HANNA Fteking 180 2 SVEFNPOKAR Ntestar-5° Aikídmfm pakka Einlitir frá 1.900 - Þykkri frá 2.990.- SVEFNPOKAR -5° TJALDASÝNING TJALDSTQLAR KÆLISOX FRÁ KR. 3.990.- ALLA DAGA FRÁ KR. 990.- Á ÚTSÖLU POSTSENDUM SAMDÆGURS opið laugardag kl. 10-16 sunnudagkl. 13-16 ...þar sem ferðalagið byrjar! SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASLOÐ 7 101 REYKJAViK S. 91 -62 1 780

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.