Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 29

Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 29 Minning Stefán Grétar Ágústsson Fæddur 25. júli 1940 Dáinn 6. júlí 1993 Það birti yfir Sveinsbænum (Lækjar- götu 6) hinn 25. júlí 1940, þegar fyrsta barnabarn Stefáns Bach- manns fæddist og sem að sjálfsögðu hlaut að bera nafn afa síns. Skyndi- lega iðaði allt og allir af gleði og eldmóði. Það var eins og veggirnir í gamla bænum hefðu einnig öðlast nýtt líf og húsgögn og myndir voru ekki lengur dauðir hlutir. Það marr- aði á annan hátt í stigaþrepunum og hljómfallið í þakinu virtist hafa breyst. Þessi frumburður Þóru Bachmann og Ágústs Ottó Jónssonar breytti til muna öllu lífsmynstri í Sveinsbæn- um þar sem þau systkinin Sveinn Viggó, Þóra og Súsanna höfðu hald- ið heimili fyrir föður sinn og þann sem þessi eftirmæli ritar um frænda sinn og að miklu leyti uppeldisbróð- ur. Heimilið hafði fengið meiri vídd og lífið meiri fyllingu og í raun ann- an tilgang. Það var hásumar og heimilisgarðurinn skartaði sínu feg- ursta. Hin sterku bernskutengsl sækja á hugann við fráfali frænda og löngu liðnar myndir framkallast nú hver af annarri. Strax á fyrsta ári fór að bera á mótstöðuleysi hjá Stefáni gagnvart eðlilegum barnasjúkdómum og þær urðu æði margar andvökunæturnar hjá Tótu frænku, gangandi um gólf nótt eftir nótt með litla frænda í fanginu. Það voru erfiðir tímar, því að oftar en ekki gerðist þetta þegar pabbinn var á sjónum. En drengurinn óx eðlilega og virt- ist dafna vel, lauk sinni skólagöngu frá Barnaskólanum og Flensborg, tók þátt í íþróttum, knattspyrnu og handknattleik hjá FH og var hinn glæsilegasti í öllu fasi og fram- göngu. Hin síðari ár heillaðist hann af golfi og stundaði það af sama áhuga og annað sem hann lagði fyr- ir sig. Stefán starfaði hjá Olíuverslun íslands (Olís) yfir 30 ár, fyrst sem bílstjóri, þá skrifstofumaður, síðan sjálfstæður rekstraraðili og að lokum sem verslunarstjóri. Hinn 23. apríl 1964 kvæntist hann Sjöfn Jónasdóttur og eignuðust þau þijú börn: Þóru, f. 1966, í sambúð með Kristni Marteinssyni; Silju, f. 1969, í sambúð með Jóni Ingva Geirssyni; og Jónas, f. 1976. Á þessum árum hafði Stefán oft fundið fyrir þeim sjúkdómi sem búið hafði um sig allt frá fæðingu, þó að hann hafi ekki í raun uppgötvast fyrr en 1982. En þrátt fyrir dvín- andi þrek ljómaði hann ætíð af lífs- gleði og alltaf var stutt í kímnina. Hann var söngmaður góður, eins og hann átti kyn til og starfaði um 20 ára skeið með Karlakórnum Þröst- um. Þó fannst mér hann njóta sín best við hlið föður síns í hinum frá- bæra Grófarkór. Stefán var náttúruunnandi og stangveiðimaður góður. Enda átti hann því láni að fagna að dvelja nokkur sumur hjá þeim sæmdarhjón- um Sigríði Halldórsdóttur og Krist- jáni Guðjónssyni á Ferjubakka í Borgarfírði. Þar komst hann í nána snertingu við það stórkostlega lífríki sem okkar fagra náttúra býr yfir og þar nemur hann sín fyrstu hand- tök í stangaveiði. Það er undursamleg guðsgjöf, með svo þungbæran sjúkdóm sem nýrnaveiki er, að búa yfir því æðru- leysi og því andlega atgervi er ein- kenndi Stefán frænda. Þegar Veiðiklúbburinn Strengur var stofnaður árið 1959, af nokkrum veiðifélögum, þá kom það í hlut hvers að velja sér félaga. Ég þurfti þá ekki að hugsa mig um, það kom enginn annar til greina en Stefán. Hann starfaði síðan ötullega að uppbyggingu Strengs og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, einkum því ábyrgðarmesta, gjaldkerastarfinu, enda traustur og stálheiðarlegur. Þrátt fyrir margra ára nær óbæri- leg veikindi var Stefán ætíð hrókur alls fagnaðar á árshátíðum klúbbsins og aðalfundum. Hann hafði frábæra frásagnarhæfileika og var sjálfsagð- ur forsöngvari við slík tækifæri. Ekki brást það að Stefán segði nokkra brandara á mánaðarlegum fundum klúbbsins í þessi 33 ár. Það skarð sem nú hefur myndast í þenn- an sérstæða en samhenta hóp verður vandfyllt. Stefán átti góða að í langvarandi og erfiðum veikindum. Þar var þátt- ur Sjafnar Stærstur og mun aldrei gleymast þeim sem til þekktu. Það 'var farið meira af vilja en mætti í síðustu veiðiferðina í uppáhalds ána, Selá í Vopnafirði, árið 1991. En hann hafði traustan og dyggan lífs- förunaut sér við hlið og því gat þessi óskastund ræst á svo eftirminnileg- an hátt. Aðeins eitt orð „Fossbreiða“ var nægjanlegt til að kalla fram veikt bros og lífsbjarma í augum í éinni af mínum síðustu heimsóknum til Stefáns á Landspítalann. Félagarnir í Streng sakna þessa mæta drengs, þakka 33ja ára sam- starf og votta Sjöfn og öðrum að- standendum innilega samúð. Sjálfur þakka ég óijúfanlega 53ja ára vin- áttu og óska honum velfarnaðar á þeim brautum sem hann nú hefur lagt út á. Elsku Tóta, Sjöfn, Þóra, Silja, Jónas og Jonný, og aðrir aðstand- endur, ég bið vemdara alls lífs að gefa ykkur styrk á erfiðri stundu og vaka yfir vegferð ykkar. Rafn Hafnfjörð. Komið er að kveðjustundu ástríks sonar. Minningin um hann knýr mig til að tjá hug minn í ljóði Guð- mundar Guðmundssonar skóla- skálds. Finnst mér það táknrænt og segja svo margt: Oft eg sit við lága leiðið þitt, látni vinur, suður’ í kirkjugarði; þegar stormar þjóta’ um höfuð mitt þinn mér skýlir langbezt minnisvarði. Oft eg raula æskuljóðin þín úti þar og minnist fyrri daga, ber þá ávallt augu fyrir mín æfí þinnar stutt, en fógur saga. Oft er mér sem andi líði þinn um mig þar í morgunblænum svala. Mér er sem þú viljir, vinur minn, við mig eitthvað blítt í hljóði tala. En þú sefur, - allt er kyrrt og hljótt, aldrei þó eg hætti þín að minnast! Sofðu’ í friði, góða, góða nóttí Guð á himnum láti okkur fínnastí Elsku Sjöfn, þú varst syni mínum ómetanleg eiginkona alla tíð. Það fann hann svo vel. Ég fæ þér aldr- ei fullþakkað ástúðina og styrkinn sem frá þér hefur streymt í erfið- leikum hans síðustu árin. Megi Guð veita þér og elsku Þóru, Silju og Jonna huggun í þessum raunum. Elsku vinur minn, sorg mín er mikil. Að þurfa að sjá á eftir þér yfir móðuna miklu er mér þungbær raun, en minningin lifír. Guð veri með þér. Mamma. í dag kveð ég í hinsta sinn ást- kæran bróður, en skortir orð til að tjá tilfimíingar mínar. Hann sem var svo traustur og hlýr og mitt eina systkin. Á hugann leita ótal spurningar. Af hveiju þurfti hann að þjást svo mikið? Hvers vegna var slökkt á þessum mikla lífsneista nú, þegar batahorfur höfðu aldrei verið betri og framtíðin bjartari á öllum sviðum? Mér verður svarafátt. Hann var búinn að beijast í ell- efu ár harðri baráttu við þann sjúk- dóm sem hijáði hann. Óhætt er þó að segja að Stebbi bar ekki vanda- mál sín á torg, Ef ég vildi fá að vita hvernig heilsa hans væri, varð ég oftar en ekki að ganga fast eft- ir því. En jafnvel þótt farinn væri að heilsu og kröftum voru spaugsyrði hans og glettni aldrei langt undan. Þannig var bróðir minn og þá minn- ingu mun ég geyma í hugskoti mínu. Margt er það, margt er það, sem minningamar vekur, og þær eru það eina, sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson) Ég vil sérstaklega þakka þér, elsku Sjöfn, alúðina og umhyggjuna fyrir Stebba, og þar sem þið voruð svo náin, veit ég að hann bar ótak- markað traust til þín í einu og öllu. Ég bið algóðan Guð að styrkja þig, Sjöfn mín, Þóru, Silju, Jonna og mömmu á þessari erfíðu stundu. Elsku Stebbi, þú varst ljósið í lífi okkar allra. Hvíl í friði. Systir. Dáinn, horfinn! - Harmafrep! Hvíhkt orð mig dynur yfir. Allt okkar líf er samofið sökn- uði, gleðinni og voninni. Öll von- umst við til að geta glaðst að kveldi að vel unnu verki. Séð það rætast sem við settum okkur að morgni og með viljann í fyrirrúmi eru flest- ir vegir færir. En vonimar bresta fyrirvaralaust, ljósið slokknar. Öllu er lokið, söknuðurinn sest að, en vonin vaknar á ný, — vonin um endurfundi á öðrum stað í öðrum heimi. Það var mér mikil harmafregn er mér var tilkynnt lát Stefáns frænda míns. Hann, sem var búinn að beijast svo hetjulega við hinn erfiða sjúkdóm árum saman. Alltaf var Stebbi jafn æðrulaus og hug- prúður, lítið jgefinn fyrir að ræða sín veikindi. I febrúar síðastliðnum gekkst hann undir nýmaígræðslu, þá aðgerð hafði hann bundið miklar vonir við. Allt virtist ganga sam- kvæmt bestu vonum, en skyndiiega tóku veikindin sig upp að nýju og á mjög skömmum tíma tók atburða- rásin stefnu sem enginn mannlegur máttur fær við ráðið. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðist getur lánið frá morgni til belds. En gott átt þú, sái hver, sem Guð veitir frið, þó gæfan þín sé hverful um veraldar svið. Hve sæl, ó hve sæl er hver leikandi lund, og lukkan hún er eilíf, þótt hverfi um stund. (Matt. Joch.) Það er erfitt að trúa að Stebbi sé ekki lengur með okkur, látinn, löngu fyrir aldur fram. Hann hefði orðið 53 ára hinn 25. júlí nk. En minningarnar lifa, minningar frá bernsku okkar og fullorðinsárum. Ég minnist ættarferðalaganna, oft var haldið upp á afmæli hans og móður minnar í þeim ferðum og var mikið sungið um „bjarta, heiða júlí- nótt“. En síðasta minningin er mér einkar kær, er við spjölluðum saman í fermingarveislu hjá systur hans í apríl sl., hann geislaði af gleði og hamingju, sóibrúnn og hraustlegur útlits. Fáeinum dögum síðar var hann lagður inn á sjúkrahús — ég sá hann ekki framar. Elsku frændi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alit og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, / hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Sjöfn, þú sem varst honum ætíð hin styrka stoð og vaktir yfir honum. Guð blessi þig og styrki. Sendi mínar dýpstu samúðarkveðj- ur til ykkar allra. Jóna Ólafsdóttir. Við viljum með fáeinum orðum minnast góðs vinar sem lést á Land- spítalanum eftir erfið veikindi. Við viljum þakka Stebba fyrir allar góðu samverustundirnar sem við áttum með honum. Það er erfitt að sjá á eftir slíkum manni sem Stebbi var, ávallt svo hress og létt- ur í lund. Það var hann sem sagði brandarana og skemmtisögumar, enda var hann í góðra vina hópi kallaður „djóki“. Sérstaklega nut- um við léttleika hans á Rhodos þar sem við vorum saman í ógleyman- legri ferð. Kynni okkar hófust fyrst fyrir 25 árum þegar báðar fjölskyldurnar fluttust í Krókahraunið. Samgang- ur var niikill milli fjölskyldnanna og dætur okkar léku sér saman sem systur væru. Veikindi sín bar Stebbi af slíku æðmleysi að aðdáunarvert var. Ekki var Sjöfn síðri í stuðningi sín- um við hann, þvílíkur kraftur og þvílíkur dugnaður. Elsku Sjöfn, Þóra, Silja, Jónas og aðrir ástvinir, megi Guð og góð- ar minningar um yndislegan dreng styrkja ykkur öll í þessari miklu sorg. Snorri, Elísabet og fjölskylda. í dag er góður drengur kvaddur. Stefán G. Ágústsson vann hjá Olíu- verzlun íslands mestan hluta starfævi sinnar og nú síðast sem umsjónarmaður benzínstöðvarinnar í Hafnarfirði. í gegnum árin starfaði hann í ýmsum deildum fyrirtækisins og þekkti því vel hina margþættu starfsemi þess. Hvarvetna vann hann sér traust félaga sinna og sam- starfsmanna með prúðmannlegri framkomu og samviskusemi. Stefán hafði átt við langvarandi veikindi að stríða, en lét það ekid aftra sér frá því að sinna starfi siifu af alúð og samviskusemi. í gegnum öll veikindi sín naut hann mikillar hlýju og styrks eiginkonu sinnar og fjölskyldu. Nú á vordögum virtist sem loks sem væri að birta til hjá honum. Hann fór í erfiða aðgerð sem tókst þó vel og gleðin var mikil. En líkaminn brást og hann var kallaður burtu frá okkur á besta aldri. í hugum okkar, sem fengum að kynnast Stefáni og starfa með hon- um hjá Olís, lifir minningin um góð- an félaga, hæglátan en glettinn, sem vann störf sín af alúð. Við þökkum samfylgdina við Stef- án og biðjum Guð að styrkja fjöl- skyldu hans. F.h. samstarfsmanna í Olís, Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir. Áskrifendagetraun Bókaklúbbs barnanna Dregið hefur verið £ áskrifendagetraun Bókablúbbs bamanna. Fyrstu verðlaun voru ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar með Urvali- Útsýn. Einnig voru veittir 20 aukavinningar sem sendir verða til vinningshafa á næstu dögum. Jéf Kaupmannahafnarferð Fyrstu verðlaun hlaut Ágúst H. Sigurðsson, Birtingaholti 4 | Bókaklúbbur bamanna óskar honum innilega til hamingju. Aukavinningar 1 2-21. Andri G. Elvarsson, Borgarfirði. Anton S. Gunnars- son, Reykjavík. Ásgerður Gunnars- dóttir, Reykjavík. Ásthildur Margrét Hjaltadóttir, Keflavík Bjarki Svanþórsson, Reykjavík. Dóra R. Kristjáns- dóttir, Fnjóskadal. Elsa I. Egilsdóttir, Reykjavík. Ester Björk og Ert pú félagí í Bókaklúbbi barnanna? Vaka-Helgafell, Síðumúla 6, Reykjavík. Sími:6883Q0 Magnús Magnúsar- böm, Akranesi. Hildur M.Brynjólfs- dóttir, Grindavík. Guðmundur H. Harðarson, Selfossi. Gunnar Óli Gústafs- son, Reykjavík. Hafdís J. Stefáns- dóttir, Reykjavík. Jóhanna Rut Hauks- dóttir, Kópavogi. Kristbjörg Sigur- bjömsdóttir, Borgar- nesi. Sól Skarphéðins- dóttir, Reykjavík. Sólveig Gunnars- dóttir, Garðabæ. Sigurður Óskar Sigurðsson, Vest- mannaeyjum. Sigurlaug Grétars- dóttir, Vestmanna- eyjum. Tinna Jónsdóttir, Selfossi. Þorsteinn A. Har- aldsson, Reykjavík. KLuueu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.