Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 33

Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 33 Spurningar vakna Hver eru svörin? eftirJakob Gunnar Pétursson Hvers vegna eru náttúruöflin svona illskeytt kann sá að spyrja sem mátt hefur þola langvarandi ótíð í eigin landi og auk þess hlýða á sífelldar, fregnir víðsvegar að úr veröldinni ef fellibyljum, jarðskjálft- um, eldgosum og ýmiskonar vist- fræðilegri óáran vítt og breitt um heimbyggðina? Hvers vegna er mannlífið svona mengað makalausri lágkúru og ljót- leika vítt og breitt um veröldina, eins og stöðugt fréttaraus í máli og myndum upplýsir fólk um? Hvers vegna er eymd og órétt- læti farið að ögra okkur í hraðvax- andi mæli í landi æskilegra og óþijótandi auðlinda? Hví gerist það hjá þjóð í slíku landi, þar sem hávaðaöflin æpa stöðugt út til fólksins með orð- skrúði og í gleðivímu, að hér blómstri menning, tækniþróun, hagspeki og hugvit í svo ríkum mæli að nýta megi þá andlegu yfir- burði sem útflutningsverðmæti, að samhliða því sé ótrúlegum fjölda þegnanna afmarkað lifibrauð er vart nægir til aumrar framfærslu? Samtímis skuli viðgangast að launamagn flestra forræðisstjórn- enda og valdaráðenda fari hlutfalls- lega síhækkandi og sé tekið að gnæfa mun hærra á einum mánuði en hinna yfir allt árið? Svona má sífellt spyija og er æði oft gert með ýmsum hætti. En hver eru svörin? Hvar er þau helst að finna? Hjá stjórnvöldum? Hjá há- skólastimpluðum sérfræðingum? Hjá embættisnjörvuðum guðspek- ingum? Eða máski bara hjá kynn- ingarglögðu fjölmiðlafólki? Nei. Vilji einhver fá svar við mikilvægri spurningu þá leiti hann í eigin barm. Nái hann að ýta burtu áhrifum tilfinninga og sérgæðaóska og um leið að þjálfa með sér óháða, orkumikla íhugun, þá eru miklar líkur á að honum heppnist að finan ‘marktæk og mikilvæg svör við flest- um forvitnilegum spumingum. Upphaf þess viðfagns er viljinn. Árangurinn mótast af styrkleika áhugans. En þó er meginforsenda þess að vilji og áhugi gagnist í mikilvægri hugarfarslegri leit sú, að jákvæðar óskir búi að baki í sem nánustu tengslum við mannkær- leika og réttlætiskennd. Þetta ættu allir að vita þó að fáum eða engum hafi líklega verið kennt neitt um það. Því eins og flestum mun ljóst vera flokkast það ekki undir menntun og menningu, að fólk sé hvatt til að beina hugar- orku sinni í forgang að því er mestu varðar fyrir velgengni þess sem heildar. í nútímanum snýst meginviðfang orðaflaumsaðila í stjórnkerfinu í aðalatriðum um seíjandi áróður, sem ætlast er til að trekki upp hjá fólki margs konar ímyndanir, oft í mikilli íjarlægð við raunsannan veruleika. Fólkið velur sér valdstjórn með krossakroti á blaðmiða inni í til þess afmörkuðum skúmaskotum, sem látin eru hylja þessar mikil- vægu athafnir. Sú aðferð við um- boðsafhendingu telst hápunktur hins bókaða lýðræðis. Síðan gerist það æðioft að lítið samræmi reynist á milli þess er orsakaði hvar meginhluti krossanna lenti á bréfmiðunum í hulinsheimi klefanna annars vegar og þess sem á sér stað í ráðabruggi umboðs- þiggjenda á hins vegar. Enda virð- ist sem umboðshafar telji það litlu máli skipta, þar sem reikna megi með, að minni margra þeirra er fólu þeim forræði sitt sé nokkuð ótraust. Svona gerast hlutirnir í samfé- laginu. Kæruleysi gagnvart því hvort saman fari orð og efndir má líklega telja mesta orsakavald þeirr- ar vaxandi lágkúrumennsku, sem of víða blasir við í nútímanum. Sé litið vítt og breitt um veröld- ina virðist vart annað vera í augsýn en að mannlífið sá á allhraðri niður- leið og stefni jafnvel í útrýmingar- hættu. Svartsýni, munu einhvetjir segja. En varla ætti samt að þurfa að færa viðtæk rök fyrir því að horfurnar eru ekki góðar í heimi mannveranna. Suma vantar vilja til að líta raunhæft á þá hluti. Aðra skortir málefnalegan skilning. Hinir fyrrnefndu líta einungis sáttfúsir á hvert eitt það augnablik er vel hent- ar þeirra lífsgæðum og sérhags- munum og láta sig annað lítt varða. í upphafi þessara orða var spurn- ingu beint að ólmum og illskeyttum náttúruöflum. Varla verður fallist á að órói þeirra stafi af mannavöld- um. Um það eru þó engar fullyrð- ingar öruggar. En svör við spurningum um or- sakir fyrir hinu lágkúrulega mann- lífí, sem í vaxandi mæli sýnir sig vera mengað óréttlæti, ofbeldi og öðrum ljótleika, lánast þeim einum að verða sér úti um, sem kunna að líta yfir hið mennska lífríki með opnu og óháðu hugarfari. Til skilningsauka í þeim efnum gagnast lítið að styðjast eingöngu við ályktanir og niðurstöður bók- aðra sérfræðinga hér og þar. Enn síður að lúta kenningum embættis- fjötraðra hagsmunamanna í trúmál- um. Þeir tala oftast útfrá kerfis- bundinni boðskipun og verður það æðioft á að lita framhjá kjarna kenninganna eða þynna hann út með áherslulausu — jafnvel innan- tómu orðaflæði. Þetta ætti þeim íbúum okkar litla eylands að vera ljóst, sem hafa vilja og dug í sér til að hugleiða veruleik- ann út frá innbyggðri óskhyggju um aukið réttlæti og samfélagslega velferð. En því miður sýnir reynslan að svo virðist sem búið sé að sefja lýð- inn til lágkúrumennsku og labb- rabbferils niðurávið. í síauknum mæli leitast fólk við að upptrekkja persónuleikann með glysi og glingri og leikgleði með keppnisbaráttu, oft grimmri, þar sem meginmark- mið hvers og eins er að troða sér skrefi framar en annar. Keppni, streð og spenna er orðin hin heilaga þrenning meðal þess. Þetta er menningarlegur niður- gangur, hvað sem hver telur sig hafa um það að segja. Fólk ætti að vita að allir spennu- og keppnisleikir móta sér einungis jákvæðan tilgang innan hóflegra takmarka, en neikvæðan utan þeirra. Og stressið hefur lamandi áhrif á fólk, eins og flestum mun kunnugt. En of fáir virðast gefa því gaum hversu spennan er þar mikill orsakavaldur ef hún gengur of langt. Þegar stjórnunarhættir taka að mótast í auknum mæli af um- hyggju fyrir sérhagsmunum ein- staklinga eða fámennra hópa rýrna kjör og hagsmunir almennings. Þetta hljóta allir að vita þó að ein- ungis sumir viðurkenni það en aðr- ir ekki. Og þegar slík útþensla á sér stað sýnir það og sannar að mannlífið er á niðurleið. Engu breytir það um í veruleikanum þó að sífellt sé reynt að fegra ásýnd hvers augnabliks með falskri ímynd. Ekki vantar að oft er mikilli gagnrýni ausið út gegn ýmiskonar ranglæti er á sér stað í samfélags- legri stjórnun. Þær orðarunur nýt- Bókagjöf til Háskólabókasafns HEIMSÞING um réttarheim- speki og félagslega heim- speki, það sextánda í röðinni, var haldið hér á landi, 26. maí til 2. júní sl. og bar það heitið Réttur, réttlæti og rík- ið. í tengslum við þingið sýndu nokkur bókaforlög útgáfurit sín, sem beint eða óbeint fjölluðu um efnisvið þingsins (réttarheimspeki, réttarsögu, siðfræði, stjórnmála- fræði, félagsfræði, hagfræði o.s.frv.). Undirbúningsnefnd þingsins hafði frumkvæði að því að bækur þessar yrðu færðar Há- skólabókasafni að gjöf að þinginu loknu. Eftirfarandi forlög gáfu rit sín: Routledge, Kluwer, Oxford University Press, Tilburg Univers- ity Press og Giappichelli. Auk þess gáfu nokkrir einstaklingar verk sín. Um er að ræða merkar bækur og nýjar af nálinni, samtals rúm- lega hundrað rit og er unnendum heimspeki og háskólamönnum al- mennt mikill fengur að þessari gjöf. Bækurnar verða til sýnis í af- greiðslu Háskólabókasafnsins í aðalbyggingu Háskólans út júlí- mánuð. Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Með bókagjöf MIKAEL Karlsson, formaður undirbúningsnefndar heimsþingsins, með hlut af bókagjöfinni sem Háskólabókasafni var færð að þinginu loknu. Jakob Gunnar Pétursson „Líklega mun það seint gerast að reynt verði á markvissan hátt að kenna fólki almennt eða fullvissa það rök- fræðilega um að sönn vellíðan hvers og eins, sem ekki líður líkam- legar þjáningar, bygg- ist umfram allt á tillits- semi við náungann.“ ast þó ekki allar eins og til er ætl- ast. Margt virðist benda til að of algengt sé að bak við margvíslega umfjöllun í þeim dúr standi það höfuðmarkmið málshöfunda að upphefja eigin persónuleika. For- kólfar mannlífsbaráttu í réttlætisátt þurfa umfram allt að búa yfir opn- um skilningi á hinu sannverðuga samhengi sem ríkir milli náunga- kærleika og þeirra eigin velfarnaðar sé til framtíðar litið. Líklega leynist nokkuð örugg vissa um þá hluti í undirvitund sér- hverrar mannveru þó að sá vísdóm- ur nái sjaldan að skila sér upp á yfirborðið. Það eitt að upphefja þann skilning ætti í ríkum mæli að viðurkennast sem grunnflötur alls þess sem verðskuldar að teljast til menningar og mannlegrar framþró- unar. í veruleika nútímans ríkja allt aðrir hættir. Þar á sér sífellt stað að stjórnvöld, hver sem þau eru, flagga stöðugt fögrum orðum um velferðarmál af ýmsum toga og boða góðar fyrirætlanir, enda þótt flestar athafnir þeirra snúi hlutun- um í gagnstæðar áttir. Því má spyija hvort flestir stjórnendur og forræðisfurstar í nútíma samfélög- um ættu ekki umfram allt að spara sér málæðið, en þess í stað leggja megináheslu á að þegja og hugsa. Til er sértrúarhópur, síst öðrum lakari, sem gæti bent þeim á að við ýtarlega íhugun mundu þeir máski komast að því sm líklegri niðurstöðu að tilvera þeirra sé ekki í eitt skipti fyrir öll innifalin í hinum hátitluðu embættum og hinni um- fangsmiklu sjálfsdýrkun á líðandi stundu. Að þeim gæti lánast að grilla inní myrka framtíð síns eigin veruleika, langt utan nútíma tilveru sinnar sem gerði þeim trúverðugt, að þeir ættu fyrir höndum í ein- hverri framtíð að upplifa sjálfír ýt- arlegar prófraunir í öllu því amstri og volæði er þeir kynnu að hafa orsakað meðal þegna sinna eða lát- ið viðgangast, þó að vald þeirra hefði getað úr bætt ef vija til þess hefði ekki skort. Einhver raunhæf ábyrgð hlýtur að hvíla á þeirri sérstæðu lífveru, sem fullyrðir að hún hafi í upphafi orðið til í myndlíki Guðs. Trúmál hafa lengi verið látin móta þjóðflokkum magnaða sér- hyggju í lífsferli þeirra. En það er síður en svo að þar sé allt jákvætt eða á eina bókina. Víðs vegar um veröldina sundra þessir trúmála- hópar fólkinu og uppvekja hjá því grimma andstöðu, stundum þar sem hver fylkingin af annarri réttlætir ofbeldisverkin með því að fullyrða að guðs vilji sé á bak við slíkar gjörðir (heilagt stríð). Hver er skynsemin þarna að baki, eða er hún nokkur? Ætti ekki öllum að vera augljóst að það sem æðioft blasir við í þessum efnum er að forræðismenn flestra trúarhópa virðast mest uppteknir við að snúa hlutunum við með því að sérhver þeirra leitist einkum við að skapa sinn eigin Guð í mannsmynd, í sem nánustu samræmi við eigin óskir um hver ásýnd hans og eðli eiga að vera? í þessum efnum eins og fleirum er alltaf sami orsakavaldurinn sem óskundanum veldur. Það er sér- hyggjan — ég-mennskan — hin eig- in hagsmunalega skammsýni. Líklega mun það seint gerast að reynt verði á markvissan hátt að kenna fólki almennt eða fullvissa það rökfræðilega um að sönn vellíð-, an hvers og eins, sem ekki líður líkamlegar þjáningár, byggist um- fram allt á tillitssemi við náungann. Á andlega vísu líður engum auð- jöfri eða sérhyggjuseggi vel, þó að hann haldi það sjálfur. Það hald hans í þeim efnum markast af vit- vana ímynd er náð hefur að loka fyrir alla æðri visku, sem í innviðum andans býr í sérhverri mannveru. Sá veruleiki lýsir sér í því að sé sjónum hugans einungis beint að yfirborði þess er við augum blasir, þá er nokkuð víst að áhugi viðkom- andi aðila beinist mest að því er hann telur sér einkum henta í augnablikinu, en það er oftast ásókn í auðæfi og bruðl með þau, ásamt áleitni til persónulegrar upp- hefðar sér til afþreyingar. Þessi nærsýni lokar vitund hans og skynj- un á næstum öilum efnisþáttum, sem eru raunsönn undirstaða sannr- ar lífshamingju. Sú lokun á mikil- vægasta þættinum í lífsmáta vit- undarinnar grundvallast oftast á því að tískumótað líkamsdekur, út frá áráttu tilfinninganna yfirskygg- ir gildi og gagnsemi víðtækrar hug- þróunar. Hin algenga yfirborðsskynjun í veruleika hvers og eins mótast því oftast út frá of nánum tengslum hugans við eigin líkamsdekur og kynnir sig gjarnan með orðunum: Mér finnst eða ég hef þetta eða hitt á tilfinningunni. Má ekki segja áð með svona syfjumóki sé fólk um of að halda sig við dýrseðlið, sem guðsmyndar- lífveran ætti fyrir löngu að vera búin að vinna sig uppúr? í lokin skal hér íað að örlítilli ábendingu til þess einstaklings, ef einhver reynist vera, sem lætur sig hafa að leiða virkan huga að fram- anskráðri umfjöllun við lesturinn. Fyrir greinarhöfund, sem telur sig hafa eitthvað markvert að segja, er ekkert'aðalatriði að lesandi orða hans sé honum sammála í einu eða neinu, heldur hitt að yfirferð orð- anna nái að ýta örlítið við óháðri íhugun og rökhyggju í einhveijum mæli. Heppnist einum að upp- vekja annan úr svefnmóki andans, þá mega báðir vel við una. Höfundur er fyrrverandi kennari. t Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Róbert Bjarnason, Kristján Róbertsson, Steinunn Eiríksdóttir, Bjarni Sævar Róbertsson, Nanna Guðrún Ásmundsdóttir, Sveinbjörn Hrafn Sveinbjörnsson, Sigurborg Róbertsdóttir, Magnús Guðbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.