Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 40

Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 „ég v&ðvist oÁ htcttðL...han*c biáur e-fblr m<xtnum." Hvers vegna á ÉG alltaf að hjálpa þeim með heimanám- ið? * Ast er ... Að velta fyrir sér af hverju þið völduð hvort annað. TM Reg U.S Pal Off.—all righls reserved ® 1993 Los Angeles Times Syndicate Hann er besti smámynda- málari okkar tíma. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Hæst bylur í tómri tunnu Frá Asmundi U. Guðmundssyni: ÞAÐ írafár vekur furðu sem greip um sig í kjölfar þess atburðar er Guðný ÍS-266 fangaði hvítabjöm á sundi um 60 sjómílur út af Horni í norðurátt, nálægt 96 km sé miðað við enska mílu, samkvæmt útreikn- ingi Fjöfva 1993. Þau tilfinningaskrif sem birst hafa eru víðsfjarri allri skynsemi og nú á vel við gamli málsháttur- inn: „Hæst bylur í tómri tunnu“. Þau, sem að slíkum skrifum standa, skilja ekki með nokkru móti þá hættu sem áhöfn Guðnýjar ÍS setti sig í við það að ætla að ná.dýrinu lifandi um borð. Slík skaðræðis- skepna hefði engu eirt á skipinu og gerði áhöfnin því rétt er hún aflífaði dýrið. Það er fullkomin vissa mín að þessir tilfinningaskrifarar hefðu ekki sett stafkrók á blað hefði sv'o slysalega tekist til að hvítabjöminn hefði komist lifandi um borð og fargað einhveijum úr áhöfninni eða komist til lands og banað einhveij- um ferðamanni eða öðmm sem vom á ferð um Hornstrandir um þetta leyti. Sú fullyrðing Karls Skírnissonar að hvítabirnir geti synt dögum sam- an er vafasöm í meira lagi, en sé það rétt var ennþá meiri ástæða ti! að farga dýrinu á þann hátt sem gert var. Barnaskólakennslubækur sögðu okkur, sem vorum í skóla fyrir 1945, að hvítabirnir leggðust ekki til sunds nema um stuttar vegalengdir væri að ræða. Því er sýnt að umræddur björn var illa villtur. Öruggt er að hefði bjarndýr- ið gefist upp við síðuna á skipinu og dmkknað án þess áhöfnin að- hefðist nokkuð hefði henni verið legjð á hálsi fyrir það. í Morgunblaðinu 30. júní sl. var pistill sem bar yfirskriftina „Bangsi Bolvíkinga“ eftir Þorbjörn Magnús- son, stýrimann, Mjóstræti 2, Reykjavík, sem hann vill reyndar kalla smásögu. Með andagift í stíl- færslu hugmyndaauðgi ævintýra- manna miðalda, sem hann er félagi í, næði hann langt til bókmennta- verðlauna á sviði mannorðsmeið- inga, annað fær hann ekki frá mér. í DV, sem ég sé raunar sjaldan, voru nokkrir smápistlar þann 1. júlí sl. og yfirskrift eins þeirra var „Grimmdarverk á dýrum" eftir Guðlaug. Bullið sem þar er sett á blað segir mér að vitsmunabók við- komandi sé illa skemmd. Með sömu formerkjum er pistill Bjarna Þórar- inssonar, sem hann kallar „ísbjarn- armorð". Pistill formanns Sambands dýra- vemdarfélags íslands, Jórunnar Sörensen, sem ber yfirskriftina „Erum við að missa allt niður um okkur“ er í anda svæsnustu öfga- hópa sem vitað er um, þar sem blóð- þyrst villidýr eru sett ofar öryggi fólks. Það er vafasamur heiður fyr- ir dýraverndarsamtök að hafa slík- an málsvara og er því formanninum hollara að líta sér nær en góna ekki skilningsvana á ævintýrahyll- ingar annarra sérhagsmunasam- taka víðs fjarri landinu okkar kæra. Þá eru ótaldir þeir sem komið hafa fram í sjónvarpi, en þeir voru allir merktir sama markinu, sem var skilningsleysi á eðli villidýra. Þann 4. júlí sl. birtust pistlar á síðum Morgunblaðsins, annar eftir Kjartan Norðdahl, Háteigsvegi 50, sem hann kallar „Viðbjóðslegt Frá Daníel Helgasyni: MEÐ Morgunblaðinu 12. júní sl. birtist átta síðna upplýsinga- og kynningarblað frá Málningu hf. Til að árétta nauðsyn þess að vanda vel til alls undirbúnings við málun, velja rétt efni og nýta leiðbeiningar sem fyrir hendi eru þá var tekinn, innan tilvitnunarmerkja og með leyfi höfundar, texti úr ágætu er- indi Rögnvaldar S. Gíslasonar efna- verkfræðings á Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, sem hann flutti á ráðstefnunni „Útveggir — í umhverfi stórviðra og veðrunar" 11. og 12. mars sl. Því miður féll niður tilvitnun um hvaðan textinn er kominn. Allur texti sem ekki er innan tilvitnunarmerkja, þ.m.t. fyr- irsögnin, er frá Málningu hf. kom- inn, en vegna mistaka í frágangi leit út fyrir að texti þessi væri hafð- ur eftir Rögnvaldi. Er beðist velvirð- ingar á þessu. Til fróðleiks viljum við geta þess að Málning hf. hefur á síðustu ára- tugum lagt metnað sinn í að starfa náið með Rb og telur raunar að það þurfi að efla ijárframlög til hennar, dráp“. Það er skemmst af þessari grein hans að segja að þar er lág- kúran í öndvegi gagnvart þeirri arfleifð sem hann er sprottin úr, vonandi væri að það uppkast að friðunarlögum sem í smíðum er verði aldrei samþykkt í því formi sem það nú er, þar sem blóðþyrst villidýr, hverju nafni sem þau nefn- ast, eru sett á stall og dýrkuð sem guðlegar verur sem hvergi má hrófla við. Hinn pistillinn er eftir Jóhannes Eiríksson prentara, sem hann kallar „Konungur norðursins — Minning- arorð“. Ja, hér, það liggur við að maður tárist yfir samlíkingunni, sá er í meira lagi undarlegur sem álít- ur*að Jesús Kristur sé holdgaður hvítabjöm, sem lifni við og drepi alla íslensku þjóðina, sérstaklega þó áhöfnina á Guðnýju ÍS. ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON, Suðurgötu 124, Akranesi. aðallega í ljósi þess að Rb er hlut- laus rannsóknarstofnun sem tekur ekki þátt í að auglýsa vörur fyrir- tækja. Hins vega skal tekið fram að eins og almennt gengur og ger- ist getur hver sem er birt orðrétt texta úr því sem gefið hefur verið út í nafni stofnunarinnar og að- gengilegt er almenningi, ef uppruni er tilgreindur. Þar að auki er nauðsynlegt að benda á það að veigamikill þáttur í starfsemi Rb, eins og annarra rannsóknarstofnana atvinnuveg- anna, eru rannsóknarverkefni sem hinir ýmsu rannsóknar- og þróunar- sjóðir styrkja. Oftast eru styrkveit- ingar sjóðanna háðar því að einstök framleiðslufyrirtæki eða samtök þeirra taki þátt í rannsóknarverk- efnum að verulegu marki með bein- um peningagreiðslum og/eða eigin vinnuframlagi. Málning hf. hefur verið þátttakandi í slíkum verkefn- um eins og mörg önnur fyrirtæki, íslensk sem erlend. F.h. Málningar hf., DANÍEL HELGASON, framkvæmdastjóri. Leiðrétting frá Málningu hf. Víkverji skrifar Yíkveiji dagsins hefur á undan- förnum árum orðið áþreifan- lega var við vaxandi áhuga almenn- ings á golfíþróttinni. Um allt land er að finna ágæta golfvelli eins og þeim verður ljóst er hringveginn aka. Ef einhver hefði sagt skrifara að golfvellirnir væru orðnir rúmlega 40 talsins hefði hann hiklaust hald- ið að viðkomandi færi með fleipur. Þessi tala er hins vegar hin rétta, samkvæmt upplýsingum frá Golf- sambandi íslands. Þegar skoðað er kort yfir golf- velli á landinu kemur til dæmis í ljós, að auk hins ágæta golfvallar á Isafirði er unnið að gerð golfvalla á fjórum öðrum stöðum á Vestfjörð- um. Við skoðun á golfkortinu koma í ljós nöfn eins og golfklúbburinn Gljúfri skammt frá Asbyrgi í N-Þin- geyjarsýslu, Dalbúi á Laugarvatni og Laki í Efri-Vík við Kirkjubæjar- klaustur. Það vekur einnig athygli að frá því á árinu 1989 hafa verið stofnaðir hvorki meira né minna en 13 golfklúbbar sem aðild eiga að Golfsambandi íslands. Margir aðil- ar, ekki síst tengdir sumarbústaða- þorpum á Suðurlandi og Vestur- landi, eru að kanna stofnun golf- klúbba og gerð golfvalla. xxx Svohljóðandi fyrirsögn birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku: „Rúllubaggaplastið orðið fagur- grænt". Kunningi skrifara hafði á orði, að það væri þó eitthvað sem grænkaði á þessu kalda sumri! Að öllu gamni slepptu ber að fagna þessum grænu böggum, því hvítu baggarnir hafa sett of mikinn og heldur leiðinlegan svip á landið undanfarin sumur og þeir grænu falla betur inn í landið. xxx Umsjónarmenn ýmissa frétta- tengdra þátta á Bylgjunni koma óspart fram í auglýsingum á útvarpsstöðinni. Skrifara var bent á, að þó auglýsingar væru afmark- aðár í dagskránni væri það í hæsta máta óeðlilegt að þessir menn not- uðu sínar þekktu, fréttatengdu raddir til að selja og kynna vöru og þjónustu. Ekki veit skrifari hvort viðkomandi eru í Blaðamannafélagi íslands, en í siðareglum BÍ segir svo: „Hann (blaðamaður) gætir þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi, og auglýsingum í myndum og/eða máli.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.