Morgunblaðið - 23.07.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993
3
Anamaðkaflétta
SAFN sem þetta af feitum
og sællegum ánamaðki hefur
verið sjaldgæf sjón í þurr-
viðrinu að undanförnu.
Skortur á
ánamöðk-
um vegna
þurrka
VEGNA þurrkanna að und-
anförnu hefur verið erfitt að
ná í ánamaðka til beitu og
verð á þeim hefur hækkað.
Verð á laxamaðki er veiyu-
lega 25 kr. og á silungalaxi
um 20 kr. en nú er þessi vin-
sæla beita seld á hærra verði.
Einn stórtækasti maðka-
tínslumaðurinn í borginni
segist vera alveg maðkalaus
og verður að vökva garðinn
sinn til að sjá sjálfum sér
fyrir ánamöðkum í veiðiferð-
imar.
Hjá Veiðihúsinu Nóatúni 17
eru laxamaðkar nú seldir á 35
kr. og silungamaðkar á 25 kr.
Nokkrar birgðir voru þar til í
gær en eftirspumin er mikil
fyrir helgar. Hjá sportvöruversl-
uninni Veiðivon, Mörkinni 6,
voru ekki til maðkar þegar
Morgunblaðið hafði samband
síðdegis í gær. Versluninni barst
töluvert magn í gærmorgun en
það seldist upp um leið. Þar var
laxamaðkurinn seldur á 30 kr.
en silungamaðkur á 20 kr. í
Vesturröst voru til ánamaðkar
og voru þeir seldir á 30 kr.
Alveg maðkalaus
„Ég hef nú ekki náð í maðk
núna lengi og ég er alveg
maðkalaus," sagði Hörður
Smári Hákonarson sem er einn
af umsvifamestu maðkatínslu-
mönnum borgarinnar.
Hörður sagði að þurrt tíðarfar
að undanförnu gerði það að
verkum að ánamaðkurinn væri
djúpt í jarðveginum. Hann sagði
að maðkurinn kæmi upp á yfir-
borðið um leið og rigndi. Hörður
sagði að það kæmi að sama
gagni að vökva garðinn og
kæmu þá ánamaðkarnir upp.
Sjálfur sagðist hann gera þetta
til að fá maðka í eigin veiðiferð-
ir en sagðist ekki standa í því
vegna maðka sem hann tíndi til
sölu.
Sjá bls. 13: Norðurá yfir
1.000 laxa.
Dauði hundurinn
Eigandinn
gaf sig fram
EIGANDI hundsins sem fannst
í Kópavogshöfn hefur gefið sig
fram við lögregluna í Kópa-
vogi. Hann kveðst hafa aflífað
tvo hunda og hent þeim í sjóinn
þar sem hann gat ekki haft þá
lengur.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Kópavogi hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvort
hinn hundurinn, sem aflífaður var,
verði slæddur upp úr höfninni.
Hinsvegar hefur verið ákveðið að
vísa þessu máli til ríkissaksóknara
til frekari meðferðar.
Við seljum
u
anægju, oryggi
og vellíðan
Það er tilfinningin. Ilmurinn, kyrrðin
loftið, hreyfingin. Ekkert jafnast á
við að vera vel búinn úti í náttúrunni.
Þetta er ekkert pjatt. Maður líður áfram
á góðum gönguskóm og þreytist mun minna.
Þeir verða vinir manns.
Matarlystin, maður! Það er svo gott að borða!
Ég vil geta eldað almennilegan mat í útilegu.
Já, já, ég veit að ég mátti ekki
heyra minnst á útilegu en svo
þegar maður kynnist þessu þá
verður útiveran hluti
af lífsstílnum.
Bakpoki er ekki það sama og
bakpoki. Það er málið.
Þetta þarf allt að vera létt,
traust, öruggt og einfalt.
" Þeir vita náttúrlega hvað þeir eru að tala
um í Skátabúðinni því þeir hafa reynsluna.
Svo kom verðið mér verulega á óvart.
Sumum leiðist í rigningu en mér \
finnst ekkert betra en hola mér \
ofan í góðan svefnpoka í góðu tjaldi I
og láta rigninguna sem fellur /
á tjaldhimininn svæfa mig. 7
-SMMR FRAMtíK
Snorrabraut 60 • Sími 6 1. 20 45
Póstsendum samdægurs. Biöjiö um mynda- og verölista okkar.