Morgunblaðið - 23.07.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1993
11
Tríó
Reykja-
víkur
_____Tónlist______
Jón Ásgeirsson
Tríó Reykjavíkur kom fram á
tónleikum sem haldnir voru í til-
efni sýningar Werners Möller í
Hafnarborg sl. miðvikudag. Á
efnisskrá tónleikanna voru verk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Sjost-
akovitsj, Carl Hasse og Brahms.
Á undan tónleikunum las Róbert
Arnfínnsson leikari upp ljóð bæði-
á íslensku og þýsku, eftir Einar
Braga, Matthías Johannessen og
heiðursgestinn Werner Möller.
Fyrsta verk tónleikanna var
Þrjú andlit í látbragðsleik, eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Þrátt fyrir
að í gegnum allt sé byggt á síend-
urteknum einföldum stefjum, er
verkið í heild nokkuð slitrótt. Þar
bregður fyrir stuttum og oft ein-
staklega skemmtilegum og falleg-
um útfærslum en það er þó aðeins
undir það síðasta, sem tónbálkur-
inn verður nokkuð sámfelldur.
Tríó Reykjavíkur lék verkið mjög
vel og einkum virðist Gunnar
Kvaran sellóleikari vera í sérlega
góðu formi.
Tríó í e-moll, op. 67, eftir
Sjostakovitsj er stórbrotið lista-
verk, sterkt í formi og tónbálkur-
inn samfelldur og efnisríkur. í
fyrsta þættinum var sorgin vegna
vinamissis ráðandi og í þjóðlegum
og allt að því barnalegum söng-
stefjum. Þriðji þátturinn, sem er
tregafullur, er eins konar chac-
Tríó Reykjavíkur.
onne, þar sem fiðlan og sellóið
vefja línur sínar, eins og í sam-
tali, yfír síendurtekið hljómastef
píanósins. Síðasti þátturinn, sem
er samvaxinn þeim þriðja og lokað
við tilvísun í upphaf hans, er enn
ný mynd sorgarinnar, full af átök-
um og stórum orðum. Þetta skáld-
verk var i heild mjög vel flutt,
þrátt fyrir smá erfiðleika með
flaututónana í upphafí verksins
og sýndi t.d. Haildór Haraldsson
píanóleikari víða mjög skemmtileg
tilþrif og auðheyrt að tónstíll
Sjostakovitsj á vel við skarpan
leikstíl Halldórs.
Sem innskot og í tilefni sýning-
arinnar lék Halldór þetta saklausa
lag mjög fallega. Lokaviðfangs-
efni tónleikanna var Tríó í C-dúr
eftir Brahms. Fyrir undirritaðan
var leikur Halldórs nokkuð um
óf harður en meiri hljómmýkt
gæfi þann voðmjúka tónblæ, sem
á svo vel við meistara-Brahms,
þó að auðvitað eigi hann til skarp-
leg og hljómmiki! átök. Bestur var
leikur hans í Scherso-þættinum
og einnig í þeim síðasta, en þess-
ir tveir þættir voru mjög vel leikn-
ir. Fyrir undirritaðan var fyrsti
þátturinn of harður. Ef píanójð
er of sterkt, hættir strengjunum
til að ofgera í hljóm og nálgast
oftlega þau mörk, að tónninn
verður sár og of þaninn, þannig
tapast það fínlega og blæbrigða-
munur tónmálsins verður einlitur
og of spenntur. í hæga þættinum
mátti heyra mjög fallegt samspil
hjá Guðnýju Guðmundsdóttur
fiðluleikara og Gunnari, en þessi
þáttur er í raun einn samfelldur
„Lieder“. Hvað sem þessu líður
var leikur Tríós Reykjavíkur í
heild mjög góður og kraftmikill,
ekki aðeins í Brahms, heldur í
öllum viðfangsefnunum. í raun
má segja að þama sé um ákveðna
túlkun að ræða og þá er spurning-
in hvort athugasemdir undirritaðs
eigi alls kostar við, um tónmat
þeirra ágætu listamanna, sem
skipa Tríó Reykjavíkur.
Spænsk tónlist í Safna-
húsinu á Húsavík
Á MORGUN, laugardaginn 24. júlí kl. 17, halda Hlíf Sigurjónsdóttir
fiðluleikari og Símon H. fvarsson gítarleikari tónleika í Safnahúsinu
á Húsavík. Fiðla og gítar heyrast ekki oft í samleik hér á landi, en
hafa verið nátengd hvort öðru í gegnum sögu tónlistarinnar. Þessi
hljóðfæri eru meðal elstu hljóðfæra mannkynsins, og hafa fylgt því í
gegnum súrt og sætt.
Á efnisskránni verður fyrst og
fremst lögð áhersla á spænska tón-
list, en meðal tónskálda sem þau
Hlíf og Símon leika verk eftir, eru
I. Albeniz, E. Hranados, Sarasate
og M. de Falla. Þessi tónskáld hafa
það sameiginlegt að þau leita í smiðju
spænskrar þjóðlagahefðar að efnis-
inntaki í tónsmíðar sínar, en auk
þess eru þau meðal helstu tónskálda
Spánveija. Á tónleikunum verða
einnig leikin verk eftir J.S. Bach og
Gunnar Reyni Sveinsson.
Hlíf og Símon eru Húsvíkingum
ekki ókunn, en fyrir tveimur áram
héldu þau tónleika þar. Símon hefur
einnig haldið tónleika og námskeið
reglulega í samvinnu við Tónlistar-
skóla Húsavíkur og Tónlistarfélagið.
Að loknu framhaldsnámi í Banda-
ríkjunum og Kanada hefur Hlíf Sig-
uijónsdóttir starfað víða, meðal ann-
ars í Þýskalandi og Sviss. Undanfar-
in ár hefur hún verið búsett í Reykja-
vík og tekið virkan þátt í margs
konar tónlistarflutningi, auk þess
sem hún kennir á fiðlu við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
Símon H. ívarsson gítarleikari er
vel þekktur af tónlistarannendum á
íslandi. Símon lauk fullnaðarprófí frá
Tónskóla Sigursveins D.K. 1975 og
var kennari hans Gunnar H. Jóns-
son. Framhaldsnám stundaði hann
yið Tónlistarháskólann í Vínarborg
og lauk þaðan einleikaraprófí vorið
1980. Hann hefur starfað í Sviss,
Austurríki og Svíþjóð. Símon hefur
einnig sérhæft sig í flamencotónlist.
Hann hefur leikið inn á hljómplötu
með gítar og orgel og einnig á geisla-
disk með gítar og klavikord. Símon
hefur farið margar tónleikaferðir um
ísland og margsinnis komið fram í
sjónvarpi og útvarpi. Auk þess hefur
hann stjómað útvarpsþáttum um gít-
ar og gítartónlist. Símon kennir á
gítar við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. (Fréttatilkynning)
Sigríður Gyða
Þrastarlundur
Sigríður Gyða
sýnir vatns-
litamyndir
SIGRÍÐUR Gyða, listakona, sýnir
verk sín í Þrastarlundi við Sog frá
26. júlí n.k. fram í miðjan ágúst.
Sigríður Gyða opnar sýningu á
vatnslitamyndum sínum í Þrastar-
lundi mánudaginn 26. júlí. Að þessu
sinni sýnir Sigríður Gyða 20 verk,
öll unnin á þessu ári. Sýningin stend-
ur fram í miðjan ágúst.
Undirheimar íþróttanna
evkOI'UPEBIUH,
KlAppaatiq 25-27
101- reykjavlk.
,r
Nr. 2 Ugl !isrn 1 bs5l°lp’n§L. .
ReyKJavlkur, j&l’?0
6núr ~lj
An;w 1
VCRZLUNfiRBRNKINN
eftir Jóhönnu
Tryggvadóttur
Bjarnason
Föstudaginn 17. júlí sl. birtist í
húsakynnum Evrópuferða aðstoð-
armaður lögmanns Handknattleiks-
deildar Fram til að ljúka fjárnámi
með nauðungarsölu innbús Evrópu-
ferða, svokölluð „vörslusvipting".
Upphaf málsins er að óuppáskrif-
aður og óstaðfestur reikningur barst
Evrópuferðum síðla árs 1989. Þar
sem Evrópuferðir höfðu aldrei á
nokkurn hátt skuldbundið sig gagn-
vart Handknattleiksdeild Fram, þá
sinntum við innheimtunni ekki.
Þann 22. júní 1990 barst Evrópu-
ferðum innheimtubréf þar sem skor-
að er á fyrirtækið að greiða kröfu
til skrifstofu lögmanns handknatt-
leiksdeildarinnar, að öðrum kosti
yrði hún innheimt með atbeina dóm-
stóla sem óhjákvæmilega hefði stór-
aukinn kostnað í för með sér fyrir
Evrópuferðir.
Áskorunarstefna barst Evrópu-
ferðurn 28. ágúst 1990 en var lögð
fram í bæjarþingi Reykjavíkur 27.
sept. sama ár.
Dómkröfur stefnanda voru þær
að stefnda yrði dæmd til að greiða
stefnanda skuld að fjárhæð kr.
60.000,00 auk dráttarvaxta o.s.frv.
„Málsatvik og málsástæður:
Framangreind skuld er skv. fram-
lögðum reikningi dags. 31.12.’89 að
fjárhæð kr. 60.000,00 vegna auglýs-
ingaskilta sem stefnandi setti upp
fyrir stefndu á leikjum sinum í Is-
landsmótinu í handknattleik
1989-90 í Laugardalshöll að ósk
stefndu.“
Að ég hafí óskað þessa er upp-
spuni, eins og sjá má á óuppáskrif-
uðum reikningi.
Það hefur enginn heimild til að
skuldbinda annan aðila nema skv.
sérstöku umboði. Enginn í Evrópu-
ferðum nema ég sjálf hafði heimild
til að skuldbinda fyrirtækið.
í október 1990 fór leigubílstjóri á
lögfræðistofuna fyrir mig til að
kanna þetta mál og endir heimsókn-
Jóhanna Tryggvadóttir Bjarna-
son
„ Að ég hafi óskað þessa
er uppspuni, eins og sjá
má á óuppáskrifuðum
reikningi.“
ar hans þangað var réttarsátt
„hlutafélagsins" Evrópuferðir (Evr-
ópuferðir er ekki hlutafélag) án
nokkurs umboðs og þessi „sátt“
gerð. Síðan er „sáttin“ gerð aðfar-
arhæf.
Eg reyndi ítrekað að hafa sam-
band yið Handknattleiksdeild Fram
til að fá leiðréttingu mála minna þar
sem ég á enga aðild að þessu máli.
Var mér tilkynnt „boðun vegna
fjárnáms“ þann 17. nóv. ’92 en nú
í vor lofaði Ragnar Steinarsson, þá-
verandi formaður handknattleiks-
deildarinnar, mér afturköllun máls-
ins. Áður hafði ég beðið Jón Ásgeirs-
son, formann stjórnar HSÍ, um lið-
sinni.
Það næsta sem gerðist í málinu
var að komið var á skrifstofu Evr-
ópuferða í mars sl. og meginhluti
innanstokksmuna og búnaðar fyrir-
tækisins skrifaður upp sem greiðsla
á hinni ímynduðu „skuld“.
í stað þess að málið væri aftur-
kallað eiins og lofað hafði verið, þá
var sýslumaðurinn í Reykjavík beð-
inn þann 15. mars sl. um heimild
til nauðungarsölu.
Á morgun, þann 21. júlí, verður
komið í Evrópuferðir og uppskrifað-
ir hlutir fjarlægðir til fullnægingar
þjófnaðinum.
Eftir þá heimsókn, sem er til við-
bótar fjórum innbrotum á ferðaskrif-
stofuna á einum mánuði, sem kært
hefur verið til lögreglu, verðum við
víst að vinna verk okkar á gólfínu,
símalaus, faxlaus, ljósritunarvéla-
laus, án fímm skrifborða og skrif-
borðsstóla, allt til að fullnægja fjár-
þörf „boltafíkla" í Fram.
Þjóðfélagið okkar er orðið svo
sjúkt að það er hreinasti viðbjóður.
Höfundur er forstjóri
Evrópuferða.
Ömmuflatkökur eru alveg ómissandi í ferðanestið.
Mundu e
Bakarí Friðriks Haraldssonar sf.
Kársnesbraut 96, Kópavogi Slmi 91-41301