Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 6

Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SÚNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 AF INNLENDUM VETTVANGI HELGI BJARNASON Landbúnaðarráðherra endurmetur stöðu Stofnlánadeildar landbúnaðarins 380 mílljónír teknar af búvöruverði til niðurgreiðslu vaxta UM 380 milljóna kr. sjóðagjöld eru lögð á búvörur til að standa undir niðurgreiðslu vaxta á útlánum Stofnlánadeildar landbúnaðar- ins en hún veitir bæiidum fjárfestingarlán með 2% vöxtum. Tillögur hafa komið fram um að lækka eða hætta alveg þessari tilfærslu peninga og hefur Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra falið þrem- ur mönnum að gera athugun á því hvaða áhrif það hefði fyrir Stofnlánadeildina. Jafnframt er hann að athuga stöðu deildarinnar vegna hugmynda um einkavæðingu Búnaðarbankans. Telur hann helst koma til greina að gera deildina að sjálfstæðum lánasjóði, eins og Iðnlánasjóð, og að eignarhlutur bænda í deildinni verði metinn. „Mér finnst nauðsynlegt að endurmeta stöðu deildarinnar. Það er til dæmis álitamál hvort það sé skynsamlegt, í Ijósi þeirrar umræðu sem nú er í þjóðfélaginu, að matvælaframleiðslan eigi að standa straum af því mikla útlánatapi sem orðið hefur í loðdýrarækt- inni,“ sagði landbúnaðarráðherra í samtali við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Kristinn Stofnlánadeildin hefur aðstöðu í húsi Búnaðarbankans við Hlemm. Brot af markaðsvöxtum Stofnlánadeild landbúnaðarins tek- - ur 2% vexti auk verðtryggingar af fjárfestingarlánum sínum til bænda og 5,5% vexti af lánum til vinnslu- stöðva landbúnaðarins. Eru þetta allt önnur vaxtakjör en aðrir sam- bærilegir sjóðir veita lántekendum sínum. Þannig tekur Fiskveiðasjóð- ur 7,95% vexti auk gengistrygging- ar af meginhluta lána sinna og 6% af eldri lánum sem bundin eru láns- kjaravísitölu. Og Iðnlánasjóður tek- ur 8,95 til yfir 11% af vísitölu- bundnum lánum og 5,5 til 8,5% af dollaralánum, svo dæmi séu tekin. Þama ber mikið á milli. Deildin innheimti innan við 300 milljónir kr. í vexti á síðasta ári af útlánum sem voru tæplega 9 milljarðar kr. í árslok. Deildin tók eingöngu innlend lán á síðasta ári. Rúmur helmingur lánanna ber 6% fasta vexti, auk affalla sem samsvara rúmlega 2% ársvöxtum vegna þess að bréfin bera lægri vexti en voru á almenn- um markaði og eru raunvextir bréf- anna því rúm 8%. Deildin tók líka lán með 8,1% föstum ársvöxtum og síðan nokkur lán með vöxtum sem taka mið af hæstu vöxtum samkvæmt auglýsingu Seðlabanka íslands eða eru ákveðnum prósent- um undir því meðaltali, voru þessi kjör á bilinu 6,25 til 9,7% á síðasta ári. Þetta eru allt innlánsvextir deildarinnar og auk þeirra þarf hún vaxtamun til að standa undir rekstrarkostnaði og töpuðum út- lánum. 386 milljónir í sjóðagjöld Ljóst er því að 2% vextir deildar- innar eru einungis brot af markaðs- vöxtum. Mismunurinn er greiddur af neytendum með álagi á búvöru- verð og með gjaldi á búvöruverð til bænda. Vextir af fjárfestingar- lánum bænda eru því niðurgreiddir með gjöldum á framleiðsluna sem aðallega eru matvæli á innlendan markað. Þessi millifærsla, svokölluð sjóðagjöld, námu 386 milljónum kr. á síðasta ári. Þau skiptast þannig að Stofnlánadeildin fékk 183,3 milljónir vegna innheimts neyt- endagjalds og sömu fjárhæð í inn- heimtu lánajöfnunargjaldi. Hvort gjaldið um sig er 1% af heildsölu- verði búvara. Auk þess fékk deildin hluta af búnaðarmálasjóðsgjaldi sem bændur greiða, eða 19,5 millj- ónir kr., en búnaðarmálasjóðsgjald- ið er í flestum tilvikum 1,5% af búvöruverðinu til bænda og fer aðallega í rekstur bændasamtak- anna og til að standa undir for- falla- og afleysingaþjónustu í sveit- um. Skiptar skoðanir eru um þetta vaxtaniðurgreiðslukerfi meðal bænda enda hefur það í för með sér mikinn flutning peninga milli búgreina og milli bænda. Þar er mest áberandi tilfærsla peninga frá matvælaframleiðslunni til loðdýra- ræktarinnar sem er mikill baggi á Stofnlánadeildinni og tilflutningur peninga frá skuldlitlum bændum til skuldugra. Stofnlánadeildin hefur verið með stærðarmörk á útlánum sínum þannig að menn sem hafa verið með sem svarar einu og hálfu vísi- tölubúi hafa ekki fengið lán til fjár- festinga. Það gerir það að verkum að menn sem mikið greiða til sjóðs- ins hafa engin lán fengið og ekki notið vaxtaniðurgreiðslunnar. Þetta er áberandi í alifugla- og svínarækt. Þá hefur stjóm Stéttar- sambands bænda vakið athygli á að innlend framleiðsla sem er í beinni samkeppni við innflutning, til dæmis grænmeti sem ræktað er þegar innflutningur er fijáls, beri þessi gjöld en ekki innflutning- ur. Ýtir undir óarðbærar fjárfestingar Sjömannanefnd sem skipuð er fulltrúum launþega, atvinnurek- enda, bænda og stjórnvalda og hefur það hlutverk að leggja fram tillögur um stefnumörkun um hag- ræðingu í landbúnaðarmálum skil- aði tillögum um stofnlán í landbún- aði í vor. í nefndarálitinu segir m.a.: „Nefndin telur forsendur vera brostnar fyrir niðurgreiðslu með álagningu gjalda á innlenda bú- vöruframleiðslu. Horfið hefur verið frá slíkum niðurgreiðslum í öðrum atvinnugreinum, enda ávallt hætta á því að þær ýti undir óarðbærar fjárfestingar." Nefndin segist hins vegar gera sér ljóst að vegna að- stæðna í landbúnaðinum nú og eldri skuldbindinga verði þessari kerfís- breytingu ekki komið á í einum áfanga. Nefndin lagði til að frá 1. janúar næstkomandi verði neytenda- og jöfnunargjaldið, sem nú er 2%, lækkað niður í 'h% í alifugla- og svínarækt en niður í 1% hjá öðrum búgreinum. Búnaðarmálasjóðs- gjaldið verði óbreytt. Frá sama tíma hækki vextir eldri lána úr 2 í 4% og vextir nýrra lána verði 6%. Nefndin leggur til að samhliða of- angreindum breytingum verði vextir í verðlagsgrundvelli búvara endurmetnir þannig að þessi að- gerð breyti hvorki verði til neyt- enda né beingreiðslum úr ríkissjóði. Þá leggur nefndin til að rekstur Stofnlánadeildarinnar verði endur- skoðaður og vaxtaákvarðanir end- urmetnar með það að markmiði að álögur á búvöruframleiðslu í þágu deildarinnar verði lagðar af eigi síðar en 1. janúar 1998. Loks bend- ir hún á að rétt sé að gera Stofnl- ánadeildina að sjálfstæðum lána- sjóði. Tillögur nefndarinnar um breyt- ingar um næstu áramót þýða að sjóðagjöld til niðurgreiðslu vaxta verða lækkuð um meira en helming og vextir tvöfaldaðir á eldri lánum en þrefaldaðir á nýjum. Jafnframt hækki afurðaverð til bænda sem nemur lækkun sjóðagjaldanna þannig að þeir geti greitt Stofnl- ánadeildinni hærri vexti. Stéttarsamband með - Búnaðarfélag á móti Forystumenn Stéttarsambands bænda stóðu að tillögum sjömanna- nefndar og stjóm Stéttarsam- bandsins hefur ákveðið að leggja þær fyrir aðalfund sambandsins í haust. Stjómin mun leggja til við fundinn að tekið verði undir þær breytingar sem sjömannanefnd vill gera um næstu áramót, það er að lækka sjóðagjöldin og hækka vext- ina. Hins vegar telur stjórnin ótímabært að ákveða að leggja alla vaxtaniðurgreiðslu niður 1998, rétt sé að bíða niðurstöðu fyrirhugaðrar endurskoðunar á rekstri Stofnlána- deildarinnar áður en slík ákvörðun verður tekin. Stjórn Búnaðarfélags íslands hefur á hinn bóginn Iýst yfír and- stöðu við meginefni tillagnanna. í ályktun stjómarinnar segir að ekki séu fyrir hendi aðstæður til vem- legrar breytingar á vöxtum af lán- um Stofnlánadeildar eða tekju- stofnum deildarinnar. Ljóst sé að samdráttur í framleiðslu valdi bændum vaxandi erfiðleikum að standa undir fjármagnskostnaði og þar af leiðandi sé hætta á tapi af útlánum í ýmsum búgreinum. Liður í samhjálp Leifur Kr. Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Stofnlánadeildar landbúnaðarsins, segir að breyting- ar á Stofnlánadeildinni verði að eiga sér langan aðdraganda ef út í þær verði farið. Hann segir vafa- samt að almennur búrekstur geti staðið undir fullum vöxtum af stofnlánum. Mikið er um að ungir bændur taki við búskap af foreldr- um sínum og kaupi jarðimar á til- tölulega háu verði sem byggist á lágum vöxtum og löngum lánum Stofnlánadeildarinnar. Leifur segir að breyting á núverandi fyrirkomu- lagi myndi væntanlega hafa í för með sér verðlækkun á jörðunum. Og síðan sé það spuming hvort aðrir en efnamenn geti keypt jarð- ir. Hann segir eftirsjá í góðum og vel hýstum jörðum úr búskap með þeim hætti og mun hagkvæmara að nýta þær en byggja upp á öðrum jörðum. Leifur segir að neytendur myndu ekki hagnast á breytingunni, þeir myndu greiða sama verð, en gífur- leg tilfærsla yrði milli bænda. Leif- ur segir að vaxtaniðurgreiðslan, sem í meginatriðum virkaði þannig að skuldlitlir eldri bændur sem flestir hefðu notið vaxtaniður- greiðslu og fengið óverðtryggð lán á yngri árum, greiddu niður vexti fyrir þá ungu sem staðið hefðu í jjárfestingum síðustu árin og þyrftu að bera fulla verðtryggingu. Þetta væri liður í samhjálp í sveit- unum og hann segist ekki verða var við mikla gagnrýni. Starfshópur metur áhrifin Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra hefur falið þremur mönnum að gera athugun á því hvaða áhrif tillögur sjömannanefndarinnar hefðu á Stofnlánadeildina. Þeir eru Sveinn Snorrason lögmaður, Guð- jón Eyjólfsson endurskoðandi bændasamtakanna og Tryggvi Jónsson endurskoðandi Stofnlána- deildarinnar. Jafnframt segist hann vera að glöggva sig á því hver yrði réttarstaða Stofnlánadeildarinnar við einkavæðingu Búnaðarbank- ans. „Þá kemur fyrst og fremst til greina samsvarandi breyting og orðið hefur á Iðnlánasjóði. Stofnl- ánadeildin yrði gerð að sjálfstæðri lánastofnun og það metið hvert sé eigið fé bænda í deildinni á sama hátt og gert var með Iðnlánasjóð varðandi iðnaðinn,“ segir landbún- aðarráðherra. „Mér finnst nauðsynlegt að end- urmeta stöðu deildarinnar. Það er til dæmis álitamál hvort það sé skynsamlegt, í ljósi þeirrar umræðu sem nú er í þjóðfélaginu, að mat- vælaframleiðslan eigi að standa straum af því mikla útlánatapi sem orðið hefur í loðdýraræktinni," seg- ir Halldór. Hver á Stofnlánadeildina? Stofnlánadeild landbúnaðarins var stofnuð 1962 með sameiningu nokkurra lánasjóða landbúnaðarins sem þá voru komnir í þrot. Þá voru skuldir deildarinnar umfram eignir 33,7 milljónir. Með aðstoð ríkisins var dæminu snúið við þannig að í árslok 1962 var eigið fé orðið 22 milljónir. Síðan hafa ýmsar breyt- ingar verið gerðar. Lengi greiddi ríkissjóður sérstakt áriegt framlag í sjóðinn en það hefur ekki verið gert síðustu tíu árin. Stjórn Stofn- lánadeildarinnar samanstendur af bankaráði Búnaðarbanka íslands, einum manni tilnefndum af Stéttar- sambandi bænda og einum af Bún- aðarfélagi íslands. Landbúnaðar- ráðherra fer með yfirstjóm mála deildarinnar. Ríkissjóður ábyrgist allar skuidbindingar hennar og greiðir þær ef eignir hrökkva ekki til. Stofnlánadeildin hefur eigið starfsfólk en annar kostnaður er aðallega hlutdeild í rekstrarkostn- aði Búnaðarbankans, til dæmis húsnæðiskostnaði og launum starfsmanna Búnaðarbankans, samkvæmt sérstakri skiptingu. AI- mennur rekstrarkostnaður Stofn- lánadeildarinnar er um 56 milljónir kr. á ári. Þar við bætist rekstrar- kostnaður uppboðseigna, framlag til lífeyrisskuldbindinga og niður- færsla hlutabréfa. Eigið fé Stofnlánadeildarinnar var 1.741 milljón kr. um síðustu áramót. Árið 1980 var eigið fé deildarinnar neikvætt en byggðist á næstu árum upp þannig að árið 1987 var það orðið 1.800 milljónir kr. á verðlagi 1992. En hver á Stofnlánadeild landbúnaðarins? Hún er byggð upp af framlögum ríkissjóðs, bænda og neytenda og líklegt er að allir geti þeir gert kröfu um hlutdeild í þessari eign ef deildin verður gerð að sjálfstæðu. félagi. Hér verður ekki reynt að meta rétt einstakra aðila. Það er nokkurt reikningsdæmi, auk þess sem taka þarf tillit til fjölmargra matsatriða. Áfram þörf fyrir fjárfestingu Útlán Stofnlánadeildarinnar hafa minnkað verulega á undan- förnum árum. Á síðasta áratug náðu lánveitingamar hámarki árið 1986 þegar lánaðar voru 1.150 milljónir kr. en á þeim árum var fjárfesting í loðdýrarækt í há- marki. í ár er áætlað að Stofnlána- deildin veiti lán að fjárhæð 568 milljónir kr. En er þörf fyrir fjárfestingarsjóð í landbúnaði þegar framleiðslan dregst stöðugt saman? Sjömanna- nefnd svarar þeirri spurningu í greinargerð sinni með því að ganga út frá því að Stofnlánadeildin verði starfrækt áfram. Hún bendir á að í landinu séu til fjárhús sem rúma 740 þúsund fjár en ásett sauðfé hafi í haust verið 487 þúsund. Þá séu í notkun fjós með rúmlega 40 þúsund bása en fjöldi mjólkurkúa rúmlega 30 þúsund. Nefndin segir að þrátt fyrir þetta verði að gera ráð fyrir þörf fyrir umtalsverða fjárfestingu í mjólkurframleiðslu á komandi árum vegna viðhalds og hagræðingar. Þar vitnar hún til upplýsinga um aldur fjósa, aukinna heilbrigðiskrafna til mjólkurfram- leiðslu o g samþjöppunar framleiðsl- unnar. Hún telur einnig að sauðfj- árræktin gæti færst til og skapað þörf fyrir viðbótarfjárfestingu. í ýmsum öðrum greinum megi gera ráð fyrir umtalsverðri þörf fyrir fjárfestingu vegna hagræðingar og aukinna tæknivæðingar svo og nýrrar atvinnustarfsemi í sveitum. Þá kunni lánsfé vegna fjárhags- legrar endurskipulagningar einnig að vera umtalsvert. Stofnlánadeild- in lánaði 300 milljónir til jarða- kaupa á síðasta ári og telur sjö- mannanefndin líklegt að þörfin fyr- ir slík lán verði svipuð á næstu árum, að minnsta kosti ef takast eigi að tryggja eðlileg kynslóða- skipti innan greinarinnar. Við umræðu um nauðsyn stofn- lána í landbúnaði velti sjömanna- nefndin ekki upp spurningunni um hvort hægt væri að annast þau á jafn góðan en ódýrari hátt en Stofnlánadeildin gerir nú, til dæm- is með samvinnu við aðra fjárfest- ingarlánasjóði eða færa verkefnin alfarið inn í bankana. Starfshópur landbúnaðaráðherra hlýtur að þurfa að ræða þá spumingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.