Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 12

Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 DEILAN UM JOSE IGNACIO LOPEZ BASKINN 8EM KOH #/) í B06IH íftir Steingrím Sigurgeirsson eftir Steingrím Sigurgeirsson DEILA bifreiðaframleiðandanna General Motors í Bandaríkjunum og Volkswagen í Þýskalandi vegna Baskans José Ignacio López de Arriortúa gæti haft afdrifaríkar afleiðingar. López, sem hafði starfað sem innkaupasljóri hjá GM, tilkynnti fyrirtæk- inu skyndilega þann 16. mars sl. að hann hygðist hefja störf hjá VW sem framleiðslu- sljóri. Ástæðuna segir hann vera vonbrigði með að GM hefði fallið frá aformum um að byggja upp verksmiðju í heimalandi hans, Baskahéruðunum á Spáni. Málið var hins vegar ekki svo einfalt. Skömmu eftir að López, ásamt nánustu samstarfsmönnum sínum hvarf á brott, sökuðu GM og hið þýska dótturfyrirtæki þess Adam Opel AG hann um að hafa numið á brott með sér til keppinautarins gífurlegt magn upplýsinga um framleiðslu GM/Opel og framtíðará- form. VW svaraði þessu ásökunum fullum hálsi en rannsóknir þýskr'a saksóknara benda til að þær hafi ekki verið ástæðu- lausar. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur einnig hafið umfangsmikla rannsókn á málinu og lítur á þetta sem mikilvægt prófmál varðandi iðnaðarnjósnir milli stór- fyrirtækja. Ef í ljós kemur að GM hefur á réttu að standa væri það hrikalegur álits- hnekkir fyrir Volkswagen-fyrirtækið og jafnvel þýskan iðnað í heild sinni. BASKINN LÓPEZ Baskinn López er sagður vera kraftaverkamaður þegar kemur að stjórnun. Þrátt fyrir að svo virðist sem aðferðir hans séu þegar farnar að skila árangri í rekstri VW gæti svo farið að þegar til lengri tíma er litið muni deilurnar um hann verða til að fyrirtækið verði að láta hann hætta störfum. að vakti mikla athygli er López ákvað að láta af störfum hjá Generai Motors í mars en það var samt ekki fyrr en þann 24. maí sem þýska tímaritið Der Spiegel birti viðamikla út- tekt á því hvemig málið væri vax- ið. Meðal þeirra gagna, sem Opel telur að López hafi tekið með sér til VW, eru áætlanir um smíði á nýjum byltingarkenndum smábíi, sem hefja á framleiðslu á síðar á þessum áratug. Sextíu manna hóp- ur hefur undanfarin tvö ár unnið að hönnun bílsins, sem verður minni en smæsta GM-bifreiðin sem nú er framleidd, þ.e. Opel Corsa, og hefur mikil leynd hvílt yfir vinn- unni. Þessi bíll hefur verið kallaður „0-car“ og stendur til að framleiða hann í verksmiðju í Evrópu sam- kvæmt nýju framleiðslukerfi, Plateau 6, sem López hannaði. Sakar GM López og samstarfs- menn hans um að hafa skipulega viðað að sér gögnum mánuðina áður en þeir létu af störfum og hefur týnt til dæmi um pantanir þeirra á ýmsum skjölum sem í ljósi þess er á eftir gerðist virðast æði grunsamlegar. Eftir að rannsókn hófst á málinu fundust gögn frá Opel í íbúð samstarfsmanna López- ar. Þá bendir-Generál Motors á að Lópéz hafí setið fundi, þar sem leynilegum upplýsingum var dreift um næstu kynslóðir Opel-bifreiða, jafnvel þó að hann hefði þá þegar greinilega tekið ákvörðun um að hefja störf hjá samkeppnisaðila. Kraftaverkamaðurinn López López hóf störf hjá verksmiðju GM í Zaragoza á Spáni árið 1980 og starfaði meðal annars að þróun fyrstu Corsa-bifreiðarinnar. Hann tók þar eftir því að fyrirtækið lagði gífurlega áherslu á að auka fram- leiðni við samsetningu bifreiðanna þrátt fyrir að samsetningar- kostnaðurinn væri einungis 7% af heildarkostnaði. Hann fór því í staðinn að beina augum sínum að utanaðkomandi kostnaðarliðum og þrýsta á framleiðendur ýmissa parta í bifreiðunum að lækka kostnað. Sá árangur sem hann náði á þessu sviði vakti athygli yfirmanns GM í Evrópu sem þá var Jack Smith. Smith fól López það verkefni að draga úr kostnaði GM alls staðar í Evrópu og er hann var gerður að aðalforstjóra GM árið 1992 bað hann López um að koma með sér til Detroit í Bandaríkjunum. Þar var Spánverj- inn skipaður alþjóðlegur innkaupa- stjóri fyrirtækisins. Er talið að hann hafi sparað GM um 65 millj- arða króna með hagstæðum samn- ingum varðandi aðföng. Samhliða þessu vann hann að þróun framleiðsluferlisins Plateau 6 en samkvæmt því á samsetning bifreiðar einungis að taka innan ■ við tíu klukkustundir. Þáttur Piechs Volkswagen hefur frá upphafi vísað öllum ásökunum á hendur López á bug og reyndi það fyrir dómstólum að koma í veg fyrir að Spiegel gæti haldið áfram að saka hann um að hafa stolið upplýsing- um. Þeirri beiðni var hins vegar hafnað af dómstól í Hamborg um miðjan júlí. Ferdinand Piéch, aðalstjómandi VW, hellti olíu á eldinn er hann hélt blaðamannafund á miðviku- dag í síðustu viku og sakaði sak- sóknara um að vera hliðholla GM. Sakaði hann bandaríska fyrirtækið um að vera að reyna að hefna sín á López og lýsti því yfir að engan bilbug væri að finna á VW heldur myndi fyrirtækið berjast áfram með öllum tiltækum ráðum. Þá gaf hann í skyn að Opel-fyrirtækið væri eins konar flugumaður í við- skiptastríði á milli bandarísks og evrópsks bifreiðaiðnaðar. Reiddust margir af stjómendum stærstu fyrirtækja Þýskalands þessu óvenjulega frumhlaupi VW- forstjórans. „Sá sem notar orð á borð við viðskiptastríð skaðar hagsmuni þýsks iðnaðar á alþjóða- vettvangi," sagði Eduard Reuter, stjórnarformaður Daimler Benz. Margir stjórnmálamenn létu einnig í ljós þá skoðun að „þjóðrembu- tónninn“ í yfirlýsingum Piech þjón- aði ekki hagsmunum Þjóðveija. Þess iná geta að Píech, sem er bamabam Ferdinands Porsche, sem á heiðurinn af VW-bjöllunni, er austurrískur ríkisborgari. Skömmu eftir blaðamannafund VW-forstjórans fór líka ýmislegt að koma í ljós sem benti til að fyrirtækið hefði ekki fullkomlega hreint mjöl í pokahorninu. Sak- sóknarar í Hamborg hófu rannsókn á hvort López og aðrir starfsmenn VW hefðu gerst sekir um mein- særi og orðrómur er á að kreiki um að brátt verði lögð fram kæra á hendur López vegna iðnaðarn- jósna. Þá herma heimildir að hátt- settur embættismaður í efnahags- málaráðuneytinu í Bonn hafi hvatt ríkisstjórn Neðra-Saxlands til að selja tæplega 20% hlut sinn í Volkswagen og sagt það óviðeig- andi hversu miklum langt stjórn- málamenn gengu í að veija fyrir- tækið. Hans-Wilhelm Gáb, aðstoðarfor- stjóri GM í Evrópu, vísaði öllum ásökunum Piéch þess efnis að Opel væri að grafa undan þýskum iðnaði á bug og sagði þær fáránleg- ar. Benti hann á að fyrirtækið hefði starfað í Þýskalandi í 130 ár og tryggði 400 þúsund Þjóðveij- um atvinnu. Piéch var því skyndilega kominn í vörn og um síðustu helgi sögðu talsmenn VW að hann hefði haft samband við Jack Smith til að reyna að ltoma á viöræðum milli fyrirtækjanna. Þá átti hann að hafa rætt við Giinther Rexrodt efnahagsmálaráðherra um málið en Rexrodt hefur boðist til að gegna hlutverki sáttasemjara í deilunni. GM vísaði hins vegar öll- um tilbóðum um viðræður á bug. Flótti virtist líka vera að koma í stjórnarmenn hjá VW. Klaus Volkert, fulltrúi starfsmanna í stjórninni (11 stjórnarmenn af 20 eru fulltrúar verkalýðsfélaga, starfsmanna og Jafnaðarmanna- flokksins), sagði að ef líklegt væri að López yrði kærður fyrir iðnaðar- njósnir myndi hann draga til baka stuðning sinn við hann. Til þessa hefur stjórnin staðið einhuga á bak við López. López-málið hefur þegar haft mjög slæm áhrif á ímynd Volkswagen og í nýrri skoðana- könnun meðal eigenda VW-bif- reiða, sem birt var í vikublaðinu Die Woche, kemur fram að 69% þeirra telja ásakanirnar á hendur López trúverðugar. Verði hann ákærður og jafnvel sakfelldur væri það gífurlegt áfall fyrir samsteyp- una í ljósi hins mikla stuðnings, sem honum hefur verið sýndur. Þá er einnig mjög líklegt að Piéch láti af störfum verði það lyktir mála. Lætin í kringum López hafa hins vegar ekki haft slæm áhrif á gengi hlutabréfa í VW. Þann 15. mars, er López hætti hjá GM, var gengi þeirra 285,5 mörk. Er Spiegel birti úttekt sína 24. maí var gengið 312,2 mörk og í júlílok 348,2 mörk. Eftir að boðað hafði verið til stjórnarfundar VW í vikunni hækk- aði gengið í 377 mörk þar sem fjárfestar töldu líklegt að stjórnin myndi lýsa yfir áframhaldandi stuðningi við Piéch og López. Breska blaðið Financial Times bendir líka á að það sé ákveðin kaldhæðni fólgin í því að fjárfestar séu þrátt fyrir sannfærðir um að hagræðingaraðgerðir Lópezar skili árangri og að VW muni skila hagn- aði þegar á næsta ári. Fyrirtækið hefur verið rekið með miklu tapi á undanförnum árum en æðstu stjórnendur þess segja að rekstur- inn muni verða í jafnvægi þegar í lok þessa árs. Slíkum yfirlýsingum er hins vegar tekið með varfærni af verðbréfamörkuðum og telja sérfræðingar þar óhjákvæmilegt að um 700 milljarða halli verði á rekstrinum á þessu ári. Á stjórnarfundi VW á föstudag voru lagðar fram tölur um afkomu fyrirtækisins og kom þá fram að tap þess fyrstu sex mánuði ársins nam 1,6 milljörðum marka en á sama tímabili í fyrra var 445 millj- arða hagnaður af rekstrinum. Pi- éch tók hins vegar fram að tapið hefði verið 1,25 milljarðar á fyrsta ársfjórðungnum en einungis 355 milljarðar á öðrum ársijórðungi. Spáði hann því að hagnaður yrði af rekstri VW á þriðja og fjórða ársijórðungi. Klaus Liesen, formaður stjórnarinnar, sagði á blaðamanna- fundi á föstudagskvöld að þennan mikla árangur, þrátt fyrir erfitt efnahagsástand mætti þakka sam- starfi Piéch og Lópezar. Liesen sagði einnig að rannsón VW á máli Lópezar hefði ekki leitt neitt það í ljós, sem gæfi tilefni til að gruna hann eða einhvern sam- starfsmanna hans um iðnaðarn- jósnir. Hann sagði López hafa les- ið upp yfirlýsingu á fundinum þar sem hann staðfesti það, sem hann hefði þegar sagt opinberlega, nefnilega að hann hefði ekki tekið með sér nein leynileg skjöl, er hann hélt frá Detroit til Wolfsburg. Að sögn Liesen var engin ákvörðun tekin um hvort López yrði rekinn, ef lögð yrði fram kæra af hálfu bandarískra eða þýskra stjórn- valda. Á næstu mánuðum mun López- málið væntanlega skýrast frekar. Raunar er varla hægt að tala um neitt „López“-mál lengur, líkt og þýska blaðið Handelsblatt, bendir á. Málið snýst nú fyrst og fremst um heiður Volkswagen en ekki Lópezar. Tímaritið Newsweek Kef- ur það líka eftir heimiWarmönnum innan GM að fyrirtaékið hyggist ekki gefast upp fyrr en VW hafi beðist afsökunar, skilað gögnunum og rekið López.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.