Morgunblaðið - 08.08.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 08.08.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Skattbyrðin Dreifing skattseðla og fréttir um hæstu skattgreiðendur hafa undanfarna daga beint athygli fólks að skattgreiðslum og skattbyrði. Ekki verður um það deilt, að skatt- ar eru orðnir mjög háir hér á landi, hvort sem litið er til beinna skatta eða óbeinna. Raunar er það um- hugsunarefni, hve mikill hluti af tekjum fólks fer með einum eða öðrum hætti í ríkiskassann. Almennir skattgreiðendur greiða nú 41,34% af tekjum sínum í stað- greiðsluskatta til ríkis og sveitarfé- laga en frá þeirri upphæð dregst þó hinn svonefndi persónuafsláttur. Að auki greiða þeir, sem hærri hafatekjur, 5% af þeim tekjum, sem eru umfram ákveðið hámark. Þessi skattbyrði hefur þyngst verulega á undanfömum árum, þegar borið er saman við þá skattaprósentu, sem lagt var upp með, þegar stað- greiðsla skatta kom til sögunnar. Að auki er um að ræða eigna- skatta, þegar um skattskyldar eign- ir er að ræða. Þá greiða fasteigna- eigendur umtalsverð fasteignagjöld til sveitarfélaga. Bifreiðaeigendur greiða sérstaka bifreiðaskatta til hins opinbera. Óbeinir skattar eru einnig háir. Virðisaukaskatturinn munar vem- legu í vöruverði. Að auki borgar fólk aðflutningsgjöld og fjölmörg önnur gjöld sem renna til hins opin- bera, þegar um er að ræða kaup á vöru eða þjónustu. Það er auðvitað matsatriði hve- nær skattbyrðin er orðin svo þung, að ekki verði lengra gengið. Þegar viðreisnarstjórnin tók við völdum fyrir bráðum þremur og hálfum áratug var skattakerfi landsmanna þannig, að það þótti lítið athuga- vert að stunda skattsvik. Víðtækar skattaumbætur leiddu til þess að mjög dró úr skattsvikum og þorri fólks taldi eðlilegt að greiða þá skatta, sem lög sögðu til um. í öll- um meginatriðum hefur það viðhorf haldizt síðan, þótt enginn vafi leiki á því, að verulegum fjárhæðum er skotið undan skatti og sjálfsagt verður aldrei hægt að koma í veg fyrir það. Nú kreppir mjög að og_ hagur fólks hefur versnað mjög. Á sama tíma er ljóst, að skuldir heimila hafa vaxið og vextir af þeim skuld- um mjög háir. Viðleitni stjórnvalda til þess að tryggja vaxtalækkun hefur ekki borið árangur enn sem komið er. Við þessar aðstæður og í ljósi þess, hve skattheimtan er orðin mikil, verður ekki lengra gengið í þeim efnum. Ríkisstjómin hlýtur að ganga til verks við fjár- lagagerð fyrir næsta ár með því hugarfari að frekari skattlagning sé ekki framkvæmanleg. Verði gengið lengra en orðið er í skatt- lagningu má búast við að sú skoðun ryðji sér til rúms hjá almenningi, að skattakerfíð sé svo óréttlátt, að skattsvik séu réttlætanleg en það hugarfar ríkti fyrir skattaumbætur viðreisnarstjórnarinnar fyrri. Þess vegna er ljóst, að ijárhags- vandi ríkissjóðs á næsta ári verður ekki leystur með frekari skattlagn- ingu. Þess vegna á ríkisstjórnin ekki annan kost en ganga hart til verks við niðurskurð útgjalda. Að því er nú unnið í nálægum löndum. Þær fréttir, sem bámst frá Banda- ríkjunum í gærmorgun, sýna hversu erfitt er að ná samstöðu um slíkan niðurskurð en það tókst þó á Banda- ríkjaþingi að tryggja framgang nið- urskurðartillagna Bandaríkjafor- seta að töluverðu leyti. í Evrópu- löndum er stefnt að því sama. Þetta er stærsta verkefni núverandi ríkis- stjórnar um þessar mundir. Það næst aldrei sá árangur, sem sköpum skiptir við niðurskurð ríkis- útgjalda nema dregið sé úr útgjöld- um til þeirra þriggja málaflokka, sem þyngst vega í ríkisútgjöldum, sem eru heilbrigðis- og trygginga- kerfíð, menntakerfið og landbúnað- armál. Morgunblaðið hefur á und- anförnum árum hvað eftir annað hvatt til þess að tekin verði upp víðtæk tekjutenging í heilbrigðis- og tryggingakerfinu og að ein- hveiju leyti í skólakerfinu. En jafn- hliða þarf að huga að öðrum út- gjöldum hins opinbera og kanna möguleika á sameiningu embætta og stofnana hér heima fyrir í því skyni að draga úr kostnaði og draga úr þeim útgjöldum, sem við höfum vegna samskipta við aðrar þjóðir og ýmis konar þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Ríkisstjórnin getur búizt við harkalegum viðbrögðum ýmis kon- ar hagsmunaaðila innan þings og utan. Þingmenn stjórnarflokkanna munu gerast talsmenn margvís- legra hagsmuna í þeim kjördæmum, sem þeir eru fulltrúar fyrir, og í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það, en þeir verða þó að lokum að láta þjóðarhagsmuni ráða afstöðu sinni. Fjölmiðlar verða vettvangur fyrir margvísleg mótmæli úr öllum átt- um. En þennan slag verður ríkis- stjórnin að taka. Það er ekki ann- arra kosta völ. HANNES • Sigfússon tal- ar um kóralforspil hafsins í Dymbilv.öku og er það varla tilvilj- un. Öm Ólafsson not- ar þetta orðalag úr ljóðinu sem heiti á rit sitt um „mód- emisma í íslenskum bókmenntum", 1992, en þar er meðalannars fjallað um þann nýskáldskap sem lýtur ekki „röklegu samhengi" eða ein- kennist af „sundraðri framsetn- ingu“ í ljóði, en það geta verið ein- kenni expressjónisma og að sjálf- sögðu symbólisma eða táknmynda- stefnu og súrrealisma sem dr. Öm vill í Lesbókargrein (febr. ’93) kalla finngálknaða ljóðlist - og þá með skírskotun í Málskrúðsfræði Ólafs hvítaskálds Þórðarsonar, bróður Sturlu, sem er líklegastur höfundur Njálu einsog ég hef reynt að færa rök að annars staðar hvaðsem menn segja um þá tilgátu. En auðvitað er margvíslegur skáldskapur annar en sundraður og órökvís mikilvægur þáttur nútímaskáldskapar hvaðsem módemisma líður, enda er módem- isminn kominn svo rækilega til ára sinn að hann er nú hvorki óvæntur né nýr, þótt svo hafi verið í eina tíð, einkum áðuren hann barst til íslands. Dr. Örn hefur það eftir Edgar Lohner að expressjónisminn hafí orðið tizkuhreyfing og „mikið af því sem kallað hefur verið ex- pressjónísk ljóð, sé því heldur aur- ugur straumur, og meira klisju- kenndar yfírlýsingar um skoðanir og tilfínningar en nýsköpun, þetta eigi því ekkert skylt við módem- isma“. Örn Ólafsson bætir því við að mikið af þessum skáldskap sé ákallsljóð einsog hann kemst að orðí, „þrungin móð, ög hefúr veríð kallað „0 Mensch-poesie““. Hann segir sér sýnist ótvi- rætt að ljóð Jóhanns Jónssonar séu af þessu tagi og sé hann þannig sammála því sem Eysteinn Þor- valdsson hafi haldið fram í bók sinni um atómskáldin: „Ótvíræð einkenni expressjónisma birtast í tilfinningalegri útmálun kvæðisins (Saknaðar) á veruleikan- um. Hinar áköfu tilfinningar ör- væntingar og tómleika bijótast fram í upphrópunum og stundum í harla sérkennilegum myndum, [t.d. í 4. erindi].“ Dr. Örn tekur undir það að upphrópanir séu oft áber- andi í expressjónisma, „en svo er vitaskuld víðar, nægir að nefna til dæmis Sigurð frá Amarholti, Stef- án frá Hvítadal og Davíð Stefáns- son. En upphrópanimar vinna hér með sérkennilegum myndum kvæð- isins og líkingum, og fersku orða- lagi kvæðisins. Allt dregur þetta að sér athygli lesandans á hveijum stað, og að því vinnur líka hrynjand- in, allt ljóðið snýst um það að staldra við augnablikið". EN SNÚUM OKKUR • aftur að Sorg. í kvæðinu koma kempumar á hvítum hestum einsog í 19. kapít- ula Opinberunarbókarinnar og nú með réttvísi. Vígvöllurinn er í hvers manns hjarta, einsog sr. Sigurbjöm Einarsson segir í riti sínu, Opinber- un Jóhannesar, þarsem hann skýrir efni ritsins og þá ekkisízt sturlunina sem Jóhann vísar til með orðunum „vitstola konur“. Nú er barizt við drekann, „mynd hins illa máttar", með guðs orði, og djöfullinn bundinn. Dauðinn sigraður. Nýr himinn rís, ný jörð. Og borgin helga, Jerúsalem, stígur niður af himni og stræti hennar úr gulli sem gagnsætt gler. MEÐ OPINBERUNAR- • bókina sem heimild og til- vísun verður þetta sérstæða tíma- mótakvæði Jóhanns Siguijónssonar óður til vonarinnar á vonlitlum tím- um. Ef svo er ekki,.þá em skírskot- anir kvæðisins útí hött. Þannig geta frumheimildir bmgðið ljósi á ljóð einsog annað. Og án Opinbemnar- bókar Jóhannesar verður Sorg ekki skilið. Né biblíulegur mælskustíll kvæðisins. MARGVÍSLEGUR • ljóðrænn prósi hafði birzt á Islandi, bæði fmmsaminn og í þýð- ingum, áðuren Hel kom út 1919 einsog Öm Ólafsson getur um í bók sinni, fyrsta kafla. Má þar nefna kvæði eftir Gunnar Gunnarsson, í myrkrinu, með talsverðu myndmáli og allmikilli aðlögun að talmáli; rím- laust; stuðlun óregluleg; frásögn. „Yfirborðs-sundurleysi," segir Om Ölafsson, og því vart módem skáld- skapur. En samt sem áður mætti alveg eins nefna þetta kvæði Gunn- ars einsog hvað annað þegar talað er um fyrsta óbundna ljóðið á ís- lenzka tungu en því hefur vafalaust verið tekið einsog hveiju öðm lausu máli, eða frásögn, þegar það birtist í Óðni 1913 og því ástæðulaust að vera að þvarga um það á þeim tíma. Dr. Örn segir að Þorpið sé fríljóð „en ekki frekar módemismi en löng frásöguljóð Stephans G. frá því um aldamótin, en þau bregða einnig upp augnabliksmyndum á fremur einföldu hversdagsmáli (t.d. „Á ferð og flugi“).“ M (meíra næsta sunhudag) HELGI spjall IREYKJAVÍKURBRÉFI11. JÚLÍ var fjallað um umræður í Sví-. þjóð um hrikalegt ástand í ríkis- fjármálum og vanda velferðar- kerfisins. Þar var vikið að því að þessar umræður væm mun lengra á veg komnar í Svíþjóð en hér á landi. Sé hins vegar litið til andfætlinga okkar Nýsjálendinga, er óhætt að segja að þeir hafí lokið umræð- um um kerfísvandann og séu nú byijaðir að vinna sig út úr honum. Fyrir 20 til 30 ámm var stöðugur straumur sendinefnda frá Nýja Sjálandi (rétt eins og frá ís- landi) til Svíþjóðar til þess að læra hvem- ig ætti að byggja upp velferðarríki. Nú hefur straumurinn snúizt við og Svíar sækja í auknum mæli fyrirmyndir til Nýja Sjálands að því hvemig eigi að bjarga fjár- hag þjóðarinnar út úr ógöngum velferðar- ríkisins og reglugerðaveldisins, sem byggt var upp að sænskri fyrirmynd. Velferðarríki Nýsjálendinga var byggt upp á áratugunum eftir seinna stríð. Rétt eins og Svíar og íslendingar töldu Nýsjá- lendingar sig hafa efni á vönduðu velferð- arkerfi, enda bjuggu þeir við mikinn hag- vöxt. Um það bil tveir þriðju hlutar útflutn- ings landsins vom landbúnaðarafurðir, og ömggir markaðir vora fyrir þær í Bret- landi og fleiri Evrópuríkjum. Landbúnaðar- framleiðslan jókst hröðum skrefum og þjóðarkakan stækkaði. Velferðarkerfíð, sem byggt var upp, líkt- ist að mörgu leyti kerfí Norðurlanda. Heilsugæzla og menntun var ókeypis fyrir alla. Eftirlaunaaldur var 60 ár. Umfangs- miklu sjúkra- og slysatryggingakerfí var komið á laggirnar. Félagslega húsnæðis- kerfíð var eitthvert það víðtækasta á Vest- urlöndum og lán til íbúðakaupa niður- greidd. Miklu fé var eytt í aðgerðir til að halda fullri atvinnu og innlendar atvinnu- greinar, einkum landbúnaður, voru vernd- aðar með innflutningshöftum, boðum og bönnum. Ríkisvaldið skipti sér í ríkum mæli af kjarasamningum og lét af hendi „félagsmálapakka" til að tryggja frið á vinnumarkaði. Hið efnahagslega áfall dundi fyrr yfír Nýsjálendinga en Svía og íslendinga. Það kom með olíukreppunni á áttunda áratugn- um,. sem hélzt í hendur við markaðsbrest fyrir landbúnaðarafurðir vegna inngöngu Bretlands í Evrópubandalagið. Á ámnum 1975-1984 dróst hagvöxtur saman, verð- bólgan jókst hröðum skrefum, erlendar skuldir jukust úr 5% af þjóðarframleiðslu í 40%, gjaldeyrisforðinn þvarr nærri því og atvinnuleysi, sem hafði verið nærri því ekki neitt, stóijókst. Ríkisstjóm Þjóðar- flokksins, sem er á hægri væng nýsjá- lenzkra stjómmála, barðist við efnahags- vandann með verðstöðvunum og frystingu launa. Eins og íslendingar ættu að þekkja breyttu slíkar aðferðir litlu. Kerfisbreyt- ing í ríkis- rekstri ÁRIÐ 1984 TÓK ný ríkisstjórn hins vinstrisinnaða V erkamann aflokks við völdum á Nýja Sjálandi undir for- ystu Davids Lange. Fyrirfram höfðu fæst- ir gert ráð fyrir að stjómin myndi taka jafnharða afstöðu til vandans, sem við var að etja, og raun varð á. Fjármálaráðherr- ann Roger Douglas hafði forystu um stór- fellda kerfísbreytingu í ríkisrekstri og at- vinnulífí. Er hann var gagnrýndur fyrir fijálshyggjustefnu, svaraði hann því til að málið snerist ekki um hugmyndafræði, heldur einfaldlega það hvort Nýsjálending- ar gætu lifað efnahagsþrengingamar af. Þjóðin hefði eytt um efni fram, efnahagslíf- ið væri komið að endamörkum og nauðsyn- legt væri að snúa við blaðinu. Stjóm Verkamannaflokksins lækkaði skatta og beitti sér fyrir stórauknu frelsi á fjármagnsmarkaði, afnámi innflutnings- hafta og fijálsri verðmyndun á t.d. raf- magní og kolum til þess að reyna að ýta undir hagvöx.t. Douglas fjármálaráðherra setti einnig fram áætlun um aðgerðir til að ná fram sparnaði og hagræðingu í ríkis- rekstri. Lykilatriði í stefnu Douglas var að skilja á milli stefnumótunar í ríkiskerf- inu og veitingar opinberrar þjónustu og auka þannig fjárhagsábyrgð þeirra sem veittu þjónustuna. Þannig voru til dæmis spítalastjómir ekki bæði látnar móta stefnu í heilbrigðismálum og sjá um rekst- ur spítala, heldur vora settar á fót svæðis- bundnar heilbrigðisstjórnir, sem hafa það hlutverk að móta stefnu og setja raunhæf markmið um heilbrigðisþjónustu. Þessar svæðisstjórnir fá síðan ákveðna fjárveit- ingu frá ríkinu, sem þeim ber að nota til að kaupa þjónustu af læknum, sjúkrahús- um og heilsugæzlustöðvum. Heilbrigðis- stjórnunum ber að fá þjónustuna fyrir sem lægst verð, og þær verzla þess vegna við þann, sem býður bezt — hvort sem það er ríkisspítali, einkaspítali eða læknastofa. Ríkisspítalamir eru því í samkeppni við aðra, sem stuðlar að sparnaði og hagræð- ingu í rekstri þeirra. Verkamannaflokkurinn stefndi að því að auka til muna ábyrgð stjómenda í ríkis- kerfínu til að ná tökum á útgjaldavandan- um. Til að ná því markmiði var æviráðning forstjóra ríkisfyrirtækja afnumin, og þeir ráðnir til fimm ára í senn þess í stað. Forstjórarnir fengu þau skilaboð að þeir, sem ekki stæðu sig, fengju að fjúka. Um leið vora forstjóranum fengin aukin völd í fyrirtækjum þeim og stofnunum, sem þeir stýra, til dæmis til að verðleggja þjón- ustuna sem innt er af hendi, til að ráða starfsmannahaldi, semja við starfsfólk um kaup og kjör, kaupa og selja eignir og auka hlutafé. Þessu fylgdi formbreyting fjölmargra ríkisfyrirtækja. Sum voru einkavædd, til dæmis ríkissímafélagið, en einnig var fjöl- mörgum ríkisfyrirtækjum breytt í hlutafé- lög, og rekstur þeirra þannig gerður sjálf- stæður. Þessum fyrirtækjum ber að greiða skatta og gjöld, starfa í eðlilegu samkeppn- isumhverfí og skila hagnaði. Tekið var upp fyrirkomulag þjónustusamninga, þannig að ríkið kaupir þjónustu af þessum hlutafé- lögum. Einkavæðingarstefna stjómar Verka- mannaflokksins olli miklum innanflokks- deilum og leiddi til klofnings flokksins árið 1989 er Nýi verkamannaflokkurinn var stofnaður. Klofningsflokkurinn hefur þó notið lítils fylgis og einkavæðingar- áformum stjómarinnar var haldið til streitu. Róttækar umbætur í landbúnaði UMBÆTUR Verkamanna- flokksstjómarinnar í landbúnaðarkerf- inu vora sennilega þær róttækustu, sem hafa átt sér stað á Vesturlöndum. Á erfiðleikatímunum á áttunda áratugnum var peningum dælt í nýsjálenzkan landbún- að til að styrkja samkeppnisstöðu hans. Til lengri tíma litið var það hins vegar hvorki skattgreiðendum né landbúnaðinum til góðs. Árið 1980 nutu nýsjálenzkir bændur álíka mikilla niðurgreiðslna og styrkja og starfsbræður þeirra í Evrópu- bandalagsríkjunum. Verkamannaflokkur- inn, sem hefur ævinlega notið mests fylgis í þéttbýli, gekk hreint til verks og afnam nærri allar niðurgreiðslur og styrki á þrem- ur árum. Nú standa niðurgreiðslur aðeins undir 4% af tekjum nýsjálenzkra bænda. Afleiðing stefnu ríkisstjórnarinnar var stórfellt tímabundið tekjutap bænda; tekj- ur þeirra lækkuðu um tvo þriðju á árunum 1980 til 1986. Jarðir féllu í verði um helm- ing, vegna þess að landareign veitti ekki lengur aðgang að niðurgreiðslum frá rík- inu. Áburðamotkun dróst saman um 55%. Nýsjálenzkur landbúnaður er nú hins veg- ar að byija að ná sér á strik að nýju, án afskipta ríkisins. Það kemur á óvart að bændum hefur þrátt fyrir þetta lítið fækk- að frá því í byijun níunda áratugarins og að sögn vikuritsins The Economist sýna athuganir að þeir bændur, sem neyddust til að hætta búskap, áttu auðveldara með að aðlaga sig nýjum aðstæðum en búizt hafði verjð við, j REYKJAVIKURBREF Laugardagur 7. ágúst Stjómarskipti urðu á Nýja Sjálandi 1990, þegar Þjóðarflokkurinn, undir for- ystu James Bolger, vann kosningasigur. Nýja stjórnin stóð frammi fyrir miklum óleystum vanda, þrátt fyrir hinar róttæku breytingar Verkamannaflokksins. Spam- aðar- og hagræðingarátakið í ríkisrekstrin- um hafði tæplega megnað að halda fjár- lagahallanum í horfínu, þótt væntanlega hafi það komið í veg fyrir enn stórfelldari hallarekstur. Orsökin var einkum sjálfvirk útgjaldaþensla í velferðarkerfinu. Stjórn Bolgers gekk því skrefi lengra og skerti veralega þau velferðarréttindi, sem menn nutu. Helzta aðferðin til þess var tekju- tenging ýmissa opinberra bóta og styrkja, til dæmis barnabóta, sjúkratrygginga og styrkja til lyfjakaupa. Upphæð atvinnu- leysisbóta var lækkuð og ellilífeyrir tekju- tengdur, auk þess sem eftirlaunaaldurinn var hækkaður í nokkram skrefum úr 60 áram í 65 ár. Háskólastúdentar verða nú að greiða fyrir hluta af kostnaði við mennt- un sína. Þær greiðslur era tengdar við tekjur foreldra stúdentanna. Efnaðasti þriðjungur þjóðarinnar greiðir nú að fullu kostnað við háskólamenntun sína og heil- brigðisþjónustu. Þeir sem minna mega sín bera hins vegar mun minni kostnað. Félagafrelsi og fyrir- tækjasamn- ingar í NÝRRI BÓK eftir Svíann Lars Jilmstad er fjallað um þær breytingar, sem stjórn Þjóðar- flokksins hefur gert á lögum og reglum um nýsjálenzka vinnumarkaðinn. Bókin heitir Nýja Sjáland — frá kreppu til kerfisbreytingar (Nya Zeeland — frán kris till systemskifte) og er byggð á viðtölum Jilmstads við fulltrúa aðila vinnumarkaðar og fyrirtækja á Nýja Sjálandi í febrúar síðastliðnum. Jilmstad segir að þótt Verkamannaflokksstjórnin hafí staðið sig vel við að auka fijálsræði í efnahagslífinu, hafi hún, vegna ítaka verkalýðshreyfingarinnar í flokknum, ekki getað tekið á vandanum, sem við var að glíma á vinnumarkaðnum. Það hafí því þurft stjómarskipti til að ráðast að rótum vandamálanna, sem fólust í þunglamalegu fyrirkomulagi heildarkjarasamninga og miklum ríkisafskiptum af vinnumarkaðn- um. Fyrir tveimur áram tóku ný lög um samninga á vinnumarkaði gildi á Nýja Sjálandi. í þeim fólst að ríkisafskiptum af kjarasamningum var hætt og sáttasemj- araembætti vora lögð niður. Gert er ráð fyrir því í lögunum að kjarasamningar séu gerðir innan hvers og eins fyrirtækis og heildarsamningar aflagðir. Skylduaðild að verkalýðsfélögum var numin úr gildi og launþegum er nú heimilt að semja um kaup og kjör sem einstaklingar, eða þá að fela verkalýðsfélagi eða einhveijum öðram fulltrúa að gera samninga fyrir sína hönd. Fulltrúar vinnuveitenda hafa tekið nýju löggjöfinni fagnandi. Þeir telja að hún auki til muna sveigjanleika í starfsmanna- haldi og stjórnun launakostnaðar. Hins vegar leggi hún þeim sjálfum mikla ábyrgð á herðar. Jilmstad vitnar í Alan Jones, starfsmannastjóra Fletcher Challenge, sem er stærsta fyrirtæki Nýja Sjálands: „Fyrirtækjaeigendum skildist að þeir gátu ekki lengur haldið sig til hlés. Þeir gátu ekki komizt undan ábyrgð á launamyndun- inni. Nú gátu þeir ekki lengur setið og beðið eftir því að fulltrúar þeirra færa til Wellington [höfuðborgar Nýja Sjálands] og kæmu til baka með skipanir um að launin ættu að hækka um x prósent, af ástæðum sem vora hvorki auðskildar né réttlátar." Kannanir, sem gerðar voru eftir að lög- in höfðu tekið gildi, sýna að af samning- um, sem gerðir vora fyrir hönd tveggja starfsmanna eða fleiri, höfðu verkalýðsfé- lög haft milligöngu um 45%. í 5% tilfella lækkuðu laun, í 23% tilvika voru þau óbreytt, og í 65% tilfella var um launa- hækkun að ræða. Þeim launþegum, sem Ljósmynd/Ingibjörg gerðu einstaklingsbundinn samning við vinnuveitanda sinn, fjölgaði úr 28% í 52%. Jilmstad telur að atvinnulífíð hafí notið góðs af hinni nýju löggjöf. Fyrirtæki, sem hafi efni á að hækka laun, geri það, en þau sem ekki geti borið launahækkanir, semji við starfsmenn á öðram nótum. Þannig sé komið í veg fyrir að fyrirtæki séu þvinguð til að taka á sig launakostn- að, sem þau geti alls ekki borið. Jilmstad segir að vissulega hafí verkalýðshreyfingin mótmælt nýju lögunum af hörku. Það séu hins vegar fyrst og fremst verkalýðsfor- ingjarnir, sem missi spón úr aski sínum. Þeir hafí ekki lengur tugi þúsunda laun- þega að baki sér til að ógna vinnuveitend- um og ríkinu, og þeir hafi ekki heldur ráð þessara tugþúsunda í hendi sér. Hins veg- ar hafí almennir launþegar fengið stórauk- in áhrif á kjör sín. I stað þess að fáeinir verkalýðsforingjar semji fyrir alla hina, taki nú þúsundir launþega þátt í kjaravið- ræðum. Þannig hafí lýðræðið á vinnumark- aðnum í raun aukizt. MARGT BENDIR til að aðgerðir nýsjálenzkra stjórnvalda undan- farinn áratug séu farnar að skila Pólitískt framkvæm- anlegt árangri. Þannig fer fjárlagahallinn minnk- andi, þótt ríkisstjórnin hafi ekki náð því markmiði sínu að hafa afgang á fjárlögum yfirstandandi fjárlagaárs. Utgjöld 'hins opinbera hafa lækkað úr 41% af lands- framleiðslu árið 1991 í 39,6% á síðasta ári og spáð er að þau verði rúmlega 37% af landsframleiðslunni á næsta ári. Verð- bólgan er í kringum 2%, en árið 1989 var Seölabankinn með lögum gerður sjálfstæð- ur og óháður afskiptum stjórnmálamanna. Lögin kveða á um að seðlabankastjórinn, Don Brash, verði að koma verðbólgunni niður í 0-2% fyrir árslok 1993, annars missi hann vinnuna. Vextir fara lækkandi og búizt er við að hagvöxtur, sem hafði verið neikvæður árin 1986-1991, verði 3-4% árlega næstu tvö eða þijú ár. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í þeim umbótum, sem stjórnvöld á Nýja Sjálandi hafa gripið til. Því skal ekki hald- ið fram að Nýja Sjáland sé eitthvert póli- tískt draumaland eða að allar þær kerfís- breytingar, sem þar hafa verið gerðar, séu þær einu réttu. Hins vegar sýnir þróunin á Nýja Sjálandi undanfarinn áratug að margar þeirra umbóta, sem bráðnauðsyn- lega verða að koma til, hér á landi og í fleiri löndum, til að stöðva gegndarlausa skuldasöfnun ríkisins og leysa efnahagslíf- ið úr viðjum kreppu, era pólitískt fram- kvæmanlegar. Mjög mikilvægur þáttur í því að þannig hefur tekizt til á Nýja Sjá- landi er að stóra flokkarnir tveir, Verka- mannaflokkurinn og Þjóðarflokkurinn, líta vandamálin að mörgu leyti sömu augum og era sammála um lausnir á þeim. Ríkis- stjórnir beggja flokkanna hafa horfzt í augu við kröfugöngur, verkföll og uppreisn í eigin þingliði vegna óvinsælla aðgerða, en vissan um að stjórnarandstaðan muni taka ábyrga afstöðu hefur orðið til þess að ekki hefur verið látið undan kröfum hagsmunahópanna, sem telja að sér vegið. Ýmislegt bendir reyndar til vaxandi óánægju með stóru flokkana og bandalag smáflokka, sem vilja snúa aftur til kerfis ókeypis menntunar og heilsugæzlu fyrir alla og þjóðnýta einkavædd ríkisfyrirtæki á ný, hefur fengið allt að 38% atkvæða í aukakosningum. Niðurstaðan af þróuninni á Nýja Sjá- landi er engu að síður sú að aðgerðir á borð við afnám ríkisstyrkja í landbúnaði, félagafrelsi og minnkun miðstýringar á vinnumarkaði, afnám æviráðninga ríkis- forstjóra og tekjutengingu velferðarbóta, sem stundum virðast vera bannorð í ís- lenzkri stjórnmálaumræðu, era fram- kvæmdar annars staðar — og virka. Þær eru þess vegna að minnsta kosti umræð- unnar virði. „Niðurstaðan af þróuninni á Nýja Sjálandi er engu að síður sú að að- gerðir á borð við afnám ríkis- styrkja í landbún- aði, félagafrelsi og minnkun mið- stýringar á vinnu- markaði, afnám æviráðninga rík- isforstjóra og tekjutengingu velferðarbóta, sem stundum virðast vera bann- orð í íslenzkri sljórnmálaum- ræðu, eru fram- kvæmdar annars staðar — og virka. Þær eru þess vegna að minnsta kosti umræðunn- ar virði.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.