Morgunblaðið - 08.08.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993
25
ekki síst Braga. Drengnum litla
þótti einna best að hafa afa með
sér þegar í sundlaugina var farið
því fáum treysti hann betur sér til
halds og trausts þegar gengið var
á hólm við vatnsrennibrautina.
Hélt afi honum þá fast að sér þeg-
ar niður var farið og svo rann hann
líka mátulega hægt niður.
Bragi var alltaf boðinn og búinn,
og að öllum öðrum ólöstuðum var
það hann sem hjálpaði mest við
uppbyggingu á fystu íbúðinni sem
við Elísabet keyptum. Kvöld eftir
kvöld í eina sex mánuði kom hann
upp í íbúð og vann þar fram á
rauðanótt. Hann var vel byrgur af
verkfærum og miðlaði ríkulega af
þekkingu húsbyggjandans. Ekki
dvínaði elja hans þegar við keypt-
um okkar seinni íbúð, þá tilbúna
undir tréverk, og munum við í óko-
minni framtíð geta notið handverks
hans í húsakynnum okkar.
Öllu því sem Bragi fékk áhuga
á sinnti hann af sannri innlifun.
Allir þeir hlutir sem tengdust
áhugamálunum og þurfti að kaupa
voru ekki keyptir í fljótfærni. Þeg-
ar ljósmyndaáhuginn vaknaði las
hann öll heimsins tímarit um ljós-
myndavélar, áður en rétta mynda-
vélin var keypt. Sömu sögu vara
að segja þegar tölvuáhuginn vakn-
aði og tölvan var keypt. Ekki und-
irbjó hann sig síður undir ferðalög-
in, t.a.m. ákváðu þau hjónin að
ferðast til Austurríkis sumarið
1992. Allan veturinn á undan sat
Bragi í kvöldskóla uppi í HÍ og nam
þýsku, og var hann þó ekki á flæði-
skeri staddur fyrir því að hann var
mikill tungumálasnillingur.
Bragi, það er með öllu óskiljan-
legt að þú sér horfinn frá okkur,
þú varst einstakur tengdafaðir og
mikill vinur, þakka ég Guði að
hafa fengið að njóta þeirra forrétt-
inda að hafa fengið að kynnast svo
stórmannlegri manngerð sem í þér
bjó, ég segi það með sanni að þú
ert samnefnari alls þess besta sem
við munum búa að í ókominni fram-
tíð. Ég kveð þig með eftirfarandi
orðum, sem ég veit að þú hefði
viljað kveða öllum ástvinum þínum:
Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tár-
um. Hugsið ekki um dauðann með harmi
og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt ykkar
tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið. En þegar þið hlæið og syngið með
glöðum hug, Iyftist sál mín upp í mót til
ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt i
gleði ykkar yfir lífinu.
Rögnvaldur G. Einarsson.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast Braga, pabba Bjarkar vin-
konu minnar. Ég átti heima á Hell-
isgötunni í Hafnarfirði. Ég var svo
lánsöm að Bragi, Sonja og börn
fluttu þangað. Eg varð brátt ein
af fjölskyldunni og tengdist henni
sterkum böndum. Við stelpurnar
urðum strax góðir leikfélagar. Gott
andrúmsloft og hlýja ríkti á heimil-
inu og var ég alltaf ein af þeim.
Margar eru minningarnar sem
koma upp í huga minn á þessari
stundu. Man ég sérstaklega eftir
því, að þegar skyggja tók á kvöldin
og tími var kominn til heimferðar,
beið Bragi oft í opnum eldhús-
glugganum og horfði á eftir mér
upp götuna. Þegar ég var komin
upp á tröppurnar heima hjá mér,
vinkaði ég honum og hann á móti.
Það var merki um að ég væri kom-
in heim. Þannig var Bragi traustur
og umhyggjusamur.
Nú í seinni tíð hafa leiðir okkar
ekki legið eins oft saman því að
Björk vinkona mín hefur búið í
mörg ár erlendis og þar af leiðandi
fækkaði heimsóknum mínum til
Braga og Sonju. Nú síðast þegar
ég fór til þeirra var það til að óska
þeim til hamingju með brúðkaup
Elísabetar dóttur þeirra. Ekki
hvarflaði að mér þá, að það yrði í
síðasta skipti sem ég sæi Braga á
lífi. En skjótt skipast veður í lofti.
Elsku Sonja, Björk, Sjöfn, Elísa-
bet, Torfi Birgir og Berglind, ég
bið algóðan Guð að styrkja ykkur
í þessari miklu sorg.
Ég kveð Guðmund Braga með
þakklæti og hlýju.
Sif Jóhannesdóttir.
Sigiirður Jónsson
póstmaður — Minning
Fæddur 28. nóvember 1907
Dáinn 15. júní 1993
Látinn er í Reykjavík í hárri elli
Sigurður Jónsson póstmaður. Síðast
vann hann í pósthúsinu í Pósthús-
stræti, í ein þijátíu ár. Hann gegndi
þar störfum sem bréfberi og síðar
póstafgreiðslumaður. Hann var
hörkuduglegur, enda var hann
gamall togarasjómaður og vann
lengst af hjá Tryggva heitnum
Ófeigssyni, þeim mikla sjósóknar-
og útgerðarmanni.
Síðar meir, þegar Sigurður hætti
sjómennsku, var hann á heimili
Tryggva við ýmis störf, enda hús-
bóndinn sjaldan heima. Það var eft-
ir dvöl sína hjá Tryggva, sem hann
hóf störf hjá Póststofunni í Reykja-
vík, leysti rrieðal annars af sem
varðstjóri.
Lengst af var hann á vakt hjá
Jóni heitnum Pálssyni, fulltrúa í
bréfberadeild.
Sigurður hafði oft orð á því, að
á vaktinni hans væri úrvalsfólk,
enda var Jón heitinn orðlagður
dugnaðarmaður og tryggur sínum.
Jón hélt mikið upp á Sigurð, eins
og Tryggvi Ófeigsson hafði gert,
enda átti hann það skilið.
Þótt úrvalsvaktin hans Jóns af-
kastaði miklu, var oft glatt á hjalla
og oftast var það Sigurður sem lét
brandarana fjúka.
Þegar Póstmiðstöðin í Ármúla
er sett á stofn og mest öll starfsemi
póstsins flyst þangað, ásamt hans
gömu vinnufélögum, verða miklar
breytingar í kjölfarið eins og gefur
að skilja.
Skömmu síðar fellur frá vinur
hans og okkar allra, Jón Pálsson.
Sigurður var nú kominn á aldur
og hætti störfum skömmu síðar.
Síðustu æviárin dvaldi hann á Dval-
arheimilinu við Seljahlíð og var all-
hress fram undir andlátið, hvað
flest varðar nema sjónina sem var
farin að daprast.
Við, gömlu vinnufélagamir hans,
kveðjum hann með söknuði og
minnumst hans sem góðs félaga og
vinar og vottum Steinunni og böm-
um samúð okkar.
Vilhjálmur K. Sigurðsson.
Blömastofa
Fridfinm
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
+
RAGNAR BÓASSON,
403 North Swidler Street,
Orange, Kaliforniu 92669 U.S.A.,
lést í sjúkrahúsi í heimabæ sínum
2. ágúst 1993.
Fyrir hönd eiginkonu, barna og systkina
hans,
Ásvaldur Andrésson.
+
Ástkær dóttir okkar og systir,
ÁSLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 75,
Kópavogi,
er lést 2. ágúst verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. ágúst
kl. 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á barnaspítala Hringsins.
Ellen Pálsdóttir Gunnar Kristjánsson,
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Hrefna Gunnarsdóttir,
Gunnar Gunnarsson.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTUR HARALDSSON
kaupmaður,
Dýjahlfð,
Kjalarnesi,
verður jarðsunginn mánudaginn 9. ágúst kl. 13.30frá Dómkirkjunni.
Halldóra Hermannsdóttir,
Sigrfður Pétursdóttir, Hreinn S. Hákonarson,
Margeir Pétursson, Sigríður Indriðadóttir,
Vigdís Pétursdóttir, Ævar Aðalsteinsson,
Halldóra, Haraldur, Jóhanna, Pétur,
Elísabet, Ingveldur og Eyrún.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
ÁSGEIR SUMARLIÐASON,
vélstjóri,
Víkurbakka 4,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 10. ágúst kl. 10.30.
nney Sumarliðadóttir,
marliði Ásgeirsson, afnhildur Hallvarðsdóttir,
geir Ásgeirsson, Marianne V. Andersen,
Steinþór Ásgeirsson.
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir
okkar, tengdamóðir og amma,
FJÓLA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Norðurvangi 21,
Hafnarfirði,
er lést 4. ágúst, verður jarðsett frá Víði-
staðakirkju, Hafnarfirði, þriðjudaginn
10. ágúst kl. 13.30.
Helgi Sigurðsson,
Helga Steingerður Sigurðardóttir,
Jón Bergþór Kristinsson,
Brynhildur Kristinsdóttir,
Sigþór R. Kristinsson
og barnabörn
Kristinn Jónsson,
Helga Jónsdóttir,
Jóna Dís Bragadóttir,
Haraldur Stefánsson,
Katelijne Beerten,
Snævarr Guðmundsson,
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANSADÓLFHERMANN
JÓNSSON,
Samtúni 4,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 9. ágúst kl. 15.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vin-
samlega bent á Sjálfsbjörg.
Ingibjörg Ingimundardóttir,
Dagbjört Hansdóttir,
Hermann Hansson,
Svava Hansdóttir,
Jón Hreiðar Hansson,
Ester Hansdóttir,
Hilmar Hansson,
Agnes Jóhannsdóttir,
Hrafn Ingimundarson,
Sigurbjörn Sveinsson,
Auðbjörg Tómasdóttir,
Jóhannes Kristjánsson,
Kristbjörg Jónsdóttir,
Jónas Baldursson,
Anna Aðalsteinsdóttir,
Bessi Þorsteinsson,
Elín Ágústsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér hluttekningu við fráfall
eiginmanns míns,
SÆVALDAR SIGURJÓNSSONAR.
Sérstaklega til Elfu-Bjarkar systurdóttur minnar og þeirra mæögna
fyrir ómetanlega aðstoö.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, nær og fjær,
Jóna Halldórsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn
blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í
Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudags-
blaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar
aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.