Morgunblaðið - 08.08.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 08.08.1993, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 Morgunblaðið/Sverrir eftir Urði Gunnarsdétfur Myndir: Sverrir Vilhelmsson Birna Bjarnason þótti hörð í vöminni þegar hún lék með meistaraflokki FH í handbolta. íþróttaáhuginn leiddi hana inn á þá braut sem hún valdi sér fyrir sautján árum og hefur náð svo góðum árangri í, íþróttafræðina. Undanfarin sautján ár hefur hún verið búsett í Þýskalandi en Birna er doktor í endurhæfingu hjartasjúklinga við íþróttahá- skólann í Köln. Hún kom nýlega hingað til lands til að aðstoða Dr. Heinz Liesen íþróttalækni á ráðstefnu um þjálfun íþrótta- manna og hún hefur áhuga á því að kynna starfsgrein sina fyrir íslendingum. Birna er Hafnfírðingur, fædd árið 1955. Hún segist hafa haft áhuga á íþróttum sem krakki og æfði í mörg ár með FH, síðast með meist- araflokki. Bima lauk stúdentsprófi frá MR árið 1975 og ólíkt mörgum nýstúdentinum, velktist hún ekki í vafa um hvað hún vildi læra; íþróttafræði. „Ég hafði frétt af því að hægt væri að sérhæfa sig innan greinarinnar og leggja áherslu á íþróttir fyrir fatlaða. Það vakti áhuga minn og ég sótti um og fékk inni i íþróttaháskólanum í Köln.“ Nám við íþróttaháskólann tekur fimm ár og samanstendur af grunn- námi í líffræði, líffærafræði, lífeðl- isfræði ofl. en auk þess geta nem- endur sérhæft sig í ákveðnum íþróttagreinum, íþróttum fyrir fatl- aða eða endurhæfingu fyrir sjúkl- inga. íþróttafræðingar starfa ekki við venjulega íþróttakennslu, heldur við þjálfun ýmiskonar og endurhæf- íþróttafraeö- ingurinn Birna Bjarnason er doktor í end- urhaefingu hjartasjúkl- inga. Hún hef- ur búiö hálfa aevina í Þýska- landi, fyrst viö nám og síóan viö störf í Dortmund og Köln ingu. Þegar Bima hóf nám við íþróttaháskólann, var verið að koma á stofn nýrri braut, endurhæfíngu hjartasjúklinga, og vakti hún áhuga Birnu. Sem aukagrein tók hún handboltann, sína gömlu grein og hefur þjálfararéttindi í henni, sem hún hefur ekki nýtt sér. Fyrsta árið æfði Bima auk þess með Bay- em Leverkusen. „Ég vissi að endurhæfíng hjarta- sjúklinga væri ekki til á íslandi og valdi hana þess vegna. Þegar nám- inu lauk, bauðst mér staða við skól- ann, og að vinna með frumkvöðlum fagsins. Ég þáði það, vildi verða mér úti um reynslu í faginu áður en ég kæmi heim.“ Starfaði Birna að rannsóknum á áhrifum líkams- ræktar eftir kransæðastíflu og vann að gerð sérstakrar endurhæfingará- ætlunar. ílenst í Þýskalandi Af heimferðinni varð hins vegar ekki, árið 1985 bauð kennari Birnu henni stöðu við íþróttalæknisfræði- deildina í Dortmund. Þar var hún í sex ár. „Það er ekki hlaupið að því fyrir útlendinga að fá undan- þágu til að fá að vinna, vinnuveit- endur mínir stóðu i miklum bréfa- skriftum þess vegna. Þegar ég fékk vinnuna í Dortmund var það fyrir tilstilli Max Adeneuer, ræðismanns íslands og sonar Konrads Adeneu- er.“ í Dortmund starfaði Bima við rannsóknir og kennslu í íþrótta- læknisfræði. Meðal verkefna henn- ar vom rannsóknir á knattspyrnu- mönnum þýska úrvalsdeildarliðs Borussia Dortmund og afreks- íþróttafólki úr öðmm íþróttagrein- um. Markmið íþróttafræðirann- sóknanna var að veita iðkendum og þjálfurum ráðgjöf í þjálfun, með hámarksárangur í huga. Bima segir starfíð hafa reynst æ skemmtilegra og það hafí haldið í sig. Þá hafði hún kynnst Þjóðveija, en hann verslar með gamla list- muni. „Það var fyrst á giftingardag- inn minn sem að ég áttaði mig á því að ég færi ekki aftur heim en þangað til taldi ég mig vera á leið til Islands. Ég stefni þó að því að eignast íbúð hér þegar ég verð kom- in á eftirlaun segir hún óræð á svip.“ Staðan sem Birnu bauðst í Dort- mund var til fjögurra ára og bund- in því að hún skrifaði doktorsrit- gerð. „Ég bætti við mig undirbún- ingsnámi 1987-1988 og hóf þá rit- gerðarvinnuna, sem ég hespaði af á þrettán mánuðum. Ég vann öllum stundum, átti aldrei frí um kvöld eða helgar. Ritgerðarvinnan var mikið átak og þegar henni lauk, flaug ég beint heim til Islands til að hvíla mig.“ Prófessor sá sem Bima hafði fylgt frá Köln til Dortmund hélt nú aftur til Kölnar og bauð Birnu stöðu hjá sér, sem hún þáði. Nú er hún fastráðinn kennari við íþróttahá- skólann í Köln og vinnur að rann- sóknum sem hún segir ef til vill vera nægilegt efni í næstu ritgerð, nokkurs konar framhald doktorsrit- gerðarinnar. íþróttafræðingurinn er að sjálf- sögðu meðvitaður um gildi hreyf- ingar og mataræðis. Birna fer mik- ið í sund, skokkar, hjólar og fer á skíði. Borðar hollan mat, mikið grænmeti og ávexti. Best segist hún hafa staðið sig þegar hún vann að doktorsritgerð sinni. „Ég kemst ekki hjá því að hugsa um hvað ég læt ofan í mig, ekki síst þegar ég hef verið með jafnaldra mína í end- urhæfingu fyrir hjartasjúklinga." Áhrif breytts mataræðis á hj artasj úklinga Rannsóknir Birnu í Dortmund voru á mataræði hjartasjúklinga með of hátt kólesteról í blóði og tilraunir til þess að hafa áhrif á kólesterólmagn með breyttu matar- æði. Bima gerði rannsókn á 40 manns sem höfðu fengið kransæða- stíflu og kannaði hvers konar matar fólkið neytti. Að því loknu vom reyndar mismunandi leiðir til að hafa áhrif á mataræði þess. Helm- ingur hópsins ræddi við næringar- ráðgjafa sem fór í saumana á því sem fólk borðaði, sagði því hvað mætti betur fara og að hvaða leyti það væri á réttri leið. Hinn helming- urinn ræddi einnig við næringarráð- gjafa en fékk auk þess áframhald- andi fræðslu, hópurinn eldaði sam- an hollan mat og ræddi málin. Eft- ir sex vikur bar Birna saman hóp- ana tvo. í ljós kom að ráðleggingar næringarráðgjafans einar og sér höfðu nær engin áhrif, en fólkið í þeim hópi sem hafði fengið meiri fræðslu hafði lést og kólesteról- magn í blóði að jafnaði lækkað um 6%. Hjartahóparnir góður kostur Rannsókn sú sem Birna vinnur nú að, beinist að langtímaáhrifum fræðslu um mataræði fyrir hjarta- sjúklinga, en þeir verða rannsakað- ir með reglulegu millibili í þijú ár. Bima segir að hvergi í heiminum sé endurhæfíng hjartasjúklinga jafn vel skipulögð og í Þýskalandi. Sjúk- lingar eiga kost á 4-6 vikna dvöl á endurhæfíngarhæli en nú er verið að setja á fót göngudeild, eða svo- kallaða „hjartahópa", fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Gangi verk- efnið vel, stendur til að koma slíkum endurhæfingarstöðvum á fót um allt Þýskaland. Þeir sem taka þátt í hjartahópun- um stunda íþróttir undir eftirliti, fá upplýsingar um sjúkdóminn og ráð- leggingar í sambandi við mataræði og slökun. „Við höfum unnið að þessu í eitt og hálft ár og teljum að hjartahóparnir séu góður kostur fyrir þá hjartasjúklinga sem geta nýtt sér þá. Þeir verða til dæmis að vera fótafærir og tiltölulega ungir. Ég hef lítillega kynnt þetta starf á Islandi og hef áhuga á því að gera það enn frekar. Mér hefur fundist gæta áhugaleysis á þessu fagi, íslenskir krakkar sem hafa lagt stund á það og snúið heim hafa ekki fengið störf við það sem þeir eru sérmenntaðir í.“ Nonna bækurnar heilla Meðal þeirra sem Bima hefur unnið með í Köln, er dr. Heinz Lies- en, sem var nýlega hér á landi og greindi frá kenningum sínum um þjálfun. Margir segja Liesen vera manninn á bak við síðasta heims- meistaratitil Þjóðveija í knatt- spyrnu en kenningar hans byggjast m.a. á því að varast beri ofþjálfun. Kenningar Liesens em íslendingum ekki ókunnar, því fyrir tveimur árum fór hópur þjálfara til Kölnar á námskeið og fyrir tilstilli Birnu kynnti Liesen þeim hugmyndir sín- ar. Það vakti áhuga KSÍ sem bauð honum hingað á áðurnefnda ráð- stefnu. Liesen er þekktur og eftir- sóttur fyrirlesari og ekki heiglum hent að fá hann til að koma. „ís- land hefur mikla töfra og það er létt að fá fólk til að koma hingað. Þjóðveijar á aldrinum frá fímmtugu til rúmlega sextugs hafa sérstakan áhuga á íslandi, því þeir lásu Nonna-bækurnar þegar þeir voru strákar." Verð að komast heim Bima hefur verið um hálfa ævina í Þýskalandi og segir það merkilegt hvað ísland eigi enn sterk tök í sér. „Ég er ekki og vill ekki vera þýskur ríkisborgari þó að ég búi í Þýskalandi og falli það vel. Það tók tíma að kynnast Þjóðveijunum, þeir eru formlegir og sjálfum sér nógir. Nú á ég góðan vinahóp í Þýska- landi en mér er engu að síður nauð- synlegt að koma reglulega til ís- lands, að minnsta kosti einu sinni á ári. Annað er ómögulegt."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.