Morgunblaðið - 14.08.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
3
Breskir þingmenn kynna sér sjávarútvegsmál
Hvalveiðar með
innanlandsneyslu
í huga viðunandi
HVALVEIÐAR íslendinga, með innanlandsneyslu eingöngu í
huga, væri viðunandi kostur fyrir Evrópubandalagið, að sögn
Finley lávarðs, bresks þingmanns Evrópuráðsþingsins. Hvalveið-
um í ábataskyni.yrði hins vegar mætt með viðskiptaþvingunum
gegn íslenskum sjávarafurðum. Finley er einn fjögurra þing-
manna sem staddir eru hér á landi til að kynna sér málefni ís-
lensks sjávarútvegs. íslandsnefnd Evrópuþingsins stóð fyrir
heimsókninni, sem styrkt er af sjávarútvegsráðuneytinu og Sam-
tökum atvinnurekenda í sjávarútvegi.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Finley lávarður heimsóknina að
hluta koma til vegna ræðu sem Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs, hélt í Evrópuráðinu
í vor um hvalveiðar Norðmanna.
Tilgangur heimsóknarinnar væri að
kynnast íslenskum sjávarútvegi og
ræða mál er tengdust úrsögn ís-
lands úr Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Vísindarök skipta ekki máli
„Við höfum átt í athyglisverðum
viðræðum við hérlenda aðila. Okkur
hafa verið kynnt þau sjónarmið sem
horfa við þjóð sem byggja 80% út-
flutnings síns á fiskafurðum, en ég
kom þeim skilaboðum á framfæri
að hvalveiðar í ágóðaskyni eru ekki
viðunandi eins og er fyrir margra
hluta sakir - mannúðarlegra og
annarra - en að sjálfsögðu er skiln-
ingur á því er Island varðar, að
einhveija hvali verði að veiða fyrir
innanlandsneyslu. En ef íslendingar
tækju upp hvalveiðar í ábataskyni
á ný, í líkingu við Norðmenn, myndi
það næstum örugglega leiða til
meiriháttar viðskiptalegra refsiað-
gerða á íslenskar fiskafurðir," sagði
Finley. Þess má geta að Norðmenn
ákváðu að 'selja ekki hrefnuafurðir
úr landi í sumar heldur voru þær
settar á innanlandsmarkað.
Aðspurður sagði Finley lávarður
engu máli skipta í þessu sambandi
hvort til staðar væru fullgóð, vís-
indaleg rök fyrir nýtingu hvala-
stofna. „Ég held hins vegar að ef
menn útskýrðu mál sitt vandlega,
yrði hvalveiðum til neyslu innan-
lands ekki mætt með refsiaðgerð-
um.“ Hann kvað engar beinar nið-
urstöður hafa orðið af fundunum
aðrar en þær, að nú væru menn
betur í stakk búnir til að taka-á
hvalveiðimálum er þau kæmu upp
í Evrópuráðsþinginu.
Að sögn Bjöms Bjarnasonar, al-
þingismanns og formanns íslands-
deildar Evrópuráðsþingsins, er um
þessar mundir verið að ræða um
sjávarspendýr á vettvangi þingsins.
Björn sagði þingmönnunum hafa
verið kynnt staða íslensks sjávarút-
vegs og stefna íslendinga í hvala-
málinu, auk þess sem fiskvinnslu-
fyrirtæki var heimsótt og fundað
með forystumönnum stærstu út-
flytjendasamtaka sjávarútvegsins.
Að lokum hafi þingmennirnir átt
fund með fulltrúum Hafrannsókna-
stofnunar þar sem þeim voru kynnt-
ar vísindarannsóknir sem fram hafa
farið á vegum stofnunarinnar.
Heimsókninni lýkur á sunnudag.
Lambakjötsútsala Hagkaups
Kjötið 200 krónum
undir skráðu verði
SKRÁÐ verð á fyrsta flokks lambakjöti í hálfum skrokkum er
nú 498 krónur á kílóið. Lambakjötið sem Hagkaup býður á til-
boðsverði þessa dagana, 299 kr,
ódýrara.
Miklar birgðir eru nú af kinda-
kjöti í iandinu og hafa framleiðend-
ur, sláturleyfíshafar, afurðasölu-
fyrirtæki og verslanir verið að
undirbúa söluátak til að rýma til
í frystigeymslunum fyrir sláturtíð
í haust. Til hefur staðið, sam-
kílóið, er því um 200 krónum
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins, að lækka verðið um 100 kr.
frá skráðu verði og reyna þannig
að selja 500 tonn fram að sláturt-
íð. Tilboð Hagkaups á 100 tonnum
sem nú stendur er því mun hag-
stæðara.
Loðnan dreifðari
Loðnugöngur fyrir Vestur- og Norðurlandi
SÆMILEG loðnuveiði hefur verið á miðunum við Jan Mayen
að undanförnu en bátarnir þurfa að leita meira en áður. Álíta
margir að loðnan þar verði óveiðanleg innan skamms. Loðnu-
göngur hafa fundist fyrir Vestfjörðum og grunnt út af Norður-
landi en ekki er vitað hvort þær eru veiðanlegar. Krökkt er af
hnúfubak á miðunum og hefur hann valdið töluverðu tjóni á
loðnunótum. Rúmlega 200 þúsund tonn hafa borist á land á
vertíðinni.
Víkingur AK landaði um 1200
tonnum á Seyðisfirði í gær. Að
sögn Erlings Pálssonar stýrimanns
virðist loðnan við Jan Mayen hafa
dreift sér nokkuð og sagði hann
að margir sjómenn álitu að hún
yrði óveiðanleg eftir nokkra daga.
Erling sagði að vart hefði orðið
við loðnugöngur út af Vestfjörðum
og grunnt undan Norðurlandi.
Myndu bátamir eflaust reyna við
þessar göngur ef loðnan brygðist
norðurfrá.
Hval hefur fjölgað
Erling sagði að mikið væri um
hnúfubak á loðnumiðunum og
sækti hann mjög í loðnuna. Væri
algengt að bátar fengju tvo eða
þijá hvali í nótina sem oft yrði
fyrir skemmdum þegar hvalurinn
færi út úr henni. Hann sagði að
hnúfubak hefði greinilega fjölgað
mikið og ógrynni af hrefnu væri
nú á grunnslóð fyrir Norðurlandi.
Fræðst um hvali
FRÁ fundinum í Hafrannsóknastofnun í gær. Við borðið frá vinstri: Guðmundur Bjarnason, varaformað-
ur íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Bjöm Bjarnason, formaður, Rhodrey Morgan, Halldór Eyjólfs-
son, Poul Flynn, Finley lávarður og John Ward. Standandi em Jakob Jakobsson, Erlendur Hauksson
og Jóhann Sigurjónsson.
Honda Accordfrá
Vatnagörðum - Sími 689900
Opið 9-18 virka daga ’gÓð fjárfeStÍTlg
og 12-16 laugardaga. "'Óháð tryggingarfélagi.