Morgunblaðið - 14.08.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
15
Þingmannaráðstefna um málefni Norðurheimskautssvæðisins
Fjallað um umhverfismál
og nýtíngu náttúruauðlinda
ALÞJÓÐLEG þingmannaráðstefna um málefni Norðurheim-
skautssvæðanna verður haldin í Reykjavík dagana 16. og 17.
ágúst nk. Meðal fyrirlesara verða Johan Jorgen Holst, utanríkis-
ráðherra Noregs, og Jakob Jakobsson, forstöðumaður Hafrann-
sóknastofnunar.
Ráðstefnan er á vegum Norður-
landaráðs en helsti hvatamaður
hennar var Halldór Ásgrímsson
þingmaður. Til ráðstefnunnar er
boðið þingmönnum frá þeim ríkjum
sem eiga land að Norðurheim-
skautssvæðinu. Fulltrúar frá Norð-
urlöndunum, Rússlandi og Kanada
sitja ráðstefnuna, en Bandaríkja-
menn og Japanar sáu sér ekki fært
að senda fulltrúa. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, verður við-
stödd setningu ráðstefnunnar.
Samstarf þjóðþinganna
Á ráðstefnunni verður umfjöllun
um skynsamlega nýtingu náttúru-
auðlinda, umhverfismál, þróun at-
vinnulífsins, vamarmál og málefni
frumbyggja svæðisins í fyrirrúmi.
Leitast verður við að fá samþykkt
lokaskjal á ráðstefnunni þar sem
tilmælum um aðgerðir verður beint
til ríkisstjórna landanna. Jafnframt
verður tekin afstaða til þess hvort
unnið verði að því að koma á form-
legu samstarfi viðkomandi þjóð-
þinga í einhverri mynd.
Halldór Ásgrímsson sagði þegar
ráðstefnan var kynnt blaðamönnum
að það væri mikilvægara en nokkru
sinni fyrr að auka samvinnu þjóð-
anna sem eiga land að þessu svæði
því mengun þar hefði aukist mikið
og hafa þyrfti samvinnu um nýtingu
auðlindanna.
Morgunblaðið/Kristinn
íslensku fulltrúarnir
ÞAU verða fulltrúar Islands á þingmannaráðstefnu um málefni
Norðurheimskautssvæðisins. F.v.: Kristín Einarsdóttir, Eiður Guðna-
son, Halldór Ásgrímsson og Geir H. Haarde.
Matvælaverksmiðja í
undirbúningi í Keflavík
UNNIÐ er að því um þessar mundir að stofna matvælaverksmiðju
í Keflavík á frísvæði Tollvörugeymslunnar. Það er Þróunarfélag-
ið Land hf. sem vinnur að þessu í samstarfi við franskt fyrir-
tæki, Vie De France, sem staðsett er í Bandaríkjunum. Völundur
Þorgilsson, matreiðslumaður og hluthafi í Þróunarfélaginu Landi
hf. á móti Keflavíkurbæ, segir að hugmyndin sé að framleiða
tilbúna matarpakka til útflutnings og notast að mestu við ís-
lenskt hráefni. Þá hefur Tollvörugeymslan, sem er eini aðilinn
hér á landi sem hefur leyfi til að reka frísvæði, opnað skrifstofu
í Keflavík vegna þessa.
„Það er nánast forsenda fyrir
svona framleiðslu að þetta sé á
frísvæði. Öll framleiðslan er til
útflutnings og ef við þyrftum að
greiða tolla af öllu, sem við þurfum
að flytja inn til framleiðslunnar,
þá er varan ekki lengur sam-
keppnishæf erlendis,“ segir Völ-
undur.
Hann segir að framleiða eigi
Risaeðlurnar frumsýndar
FRUMSÝNING var í gær á hinni nýju kvikmynd Stevens Spielberg,
Jurassic Park, eða Risaeðlunum. Að sögn Alfreðs Árnasonar, markaðs-
stjóra Sam-bíóanna, var mikið að gera í miðasölu allt frá opnun kl.
13.30 og allar símalínur voru rauðglóandi frá því snemma morguns.
Myndin er sýnd samtímis í Bíóhöllinni, Bíóborginni og Háskólabíói.
Alls rúmast um 2.140 gestir á hverri sýningu, en sýningarnar eru
fjórar á dag. Búist er við að 15 þúsund manns sjái Risaeðlurnar um
þessa helgi og væri það metaðsókn. Á myndinni má sjá tvo eftirvænt-
ingarfulla bíógesti á leið inn í Háskólabíó.
matinn með „sous vide“-aðferð-
inni, sem felist í því að pakka
matnum í neysluumbúðir, t.d. fyrir
matvöruverslanir, veitingastaði og
skóla. Þá segir hann að markmiðið
sé að markaðssetja matinn sem
lífrænan, en hann segir að franska
fyrirtækið hafi áhuga á þessari
framleiðslu vegna hráefnisins hér
á landi.
íslensk framleiðsla best
„Hér erum við með besta fiskinn
og lambakjötið er að mati mark-
aðsfulltrúa Vie De France mjög
gott og það er ástæða þess að
áhugi er fýrir hendi hjá þessu fyrir-
tæki. Hins vegar vitum við ekki
enn hvort við getum notað íslenskt
grænmeti. Við verðum að nota
samskonar hráefni allt árið um
kring í þessari framleiðslu og á
meðan það er ekki hægt að fram-
leiða grænmeti á íslandi allt árið
getum við því miður ekki notað
það aðeins hluta af árinu. Auðvitað
væri best ef þetta gæti vérið ís-
lensk framleiðsla að öllu leyti,“
segir Völundur.
Þá segir hann að á milli 25 og
30 manns komi til með að fá vinnu
við verksmiðjuna í Keflavík ef af
henni verði, en það komi væntalega
í ljós í haust. Hann segir að for-
stjóri Vie de France komi væntan-
lega til landsins nú í ágúst og von-
ast Völundur að ákveðið svar komi
fljótlega eftir það.
Eðlilegt framhald hjá
Tollvörugeymslunni
Helgi K. Hjálmsson, forstjóri
Tollvörugeymslunnar, segir að
mikil von sé bundin við að mat-
vælaverksmiðjan verði að raun-
veruleika, en Tollvörugeymslan
kemur til með að hafa eftirlit með
verksmiðjunni. „Við erum búnir að
vera brautryðjendur í þessum frí-
svæðismálum í gegnum árin og
þetta er eðlilegt framhald á okkar
starfsemi. Það eru ýmis önnur mál
í gangi hjá okkur, sem jafnvel
gætu orðið að veruleika, en það
er ekki tímabært að ræða um það
ennþá,“ segir Helgi.
Sjaldgæft að fólk skrái
sig hjá ókunnugum
TILKYNNINGAR um þúsunda lögheimilisflutninga berast Hag-
stofu íslands á hveiju ári, að sögn Skúla Guðmundssonar, skrif-
stofustjóra Hagstofu íslands. í frétt blaðsins í gær er sagt frá
hjónum, sem fengu allt í einu póst ókunnugs manns sendan heim
til sín, en hann hafði flutt lögheimili sitt til þeirra án þess að
flytjast þangað sjálfur og án þeirra samþykkis eða vitneskju.
Skúli segir að samkvæmt lögum ráði umráðamaður húsnæðis því
hver sé skráður hjá honum, en það sé mjög sjaldgæft að fólk
skrái lögheimili sín hjá ókunnugu fólki.
Skúli segir að þegar mistök,
eins og virðast hafa orðið við þenn-
an lögheimilisflutning, eiga sér
stað sé reynt að leiðrétta þau eins
auðveldlega og kostur er. „Það er
mjög sjaldgæft að fólk falsi upp-
lýsingar á eyðublöð Hagstofunnar
t.d. vegna flutnings á lögheimili
og það í er reyndar brot á margs
konar löggjöf,“ segir hann.
Þúsundir flutninga
Ennfremur segir Skúli að þar
sem þúsundir lögheimilisflutning-
ar séu á ári hverju geti alltaf ein-
hver mistök átt sér stað og þá sé
reynt að leysa þau á sem greiðast-
an hátt.
„Stundum er t.d vandinn hjá
Hagstofu sá að fólk hefur leigt frá
sér íbúðir en síðan kemur upp
deila við leigutgka og er hann e.t.v.
tilkynntur út úr íbúðinni. í slíkum
tilvikum verður ennfremur að
gæta að rétti leigutakans," segir
Skúli.
Sigrar hjá ís-
lendingum á
HM í snóker
ÍSLENSKU keppendunum á HM
U-21 í snóker sem fram fer í hús-
næði Taflfélags Reykjavíkur í
Faxafeni gekk vel í gær og unnu
þeir allir sigur á móti andstæðing-
um sínum nema einn.
Þrír íslensku spilaranna, Jóhannes
B. og Jóhannes R. Jóhannessynir og
Kristján Helgason eru taplausir en
sex Islendingar geta enn komist í
sextán manna úrslit.
Jóhannes B. er með hæsta skorið
til þessa, 109 stig, en Sri Lanka-
búinn Indika er með 105 stig.
Leiknar verða þijár umferðir í dag
og hefst sú fyrsta kl. 12.
------» ♦
Enn brotið á
rétti Sophiu
KOMIÐ var að lokuðum dyrum
þegar dætra Sophiu Hansen var
leitað á heimili fyrrum eigin-
manns hennar í Istanbúl í gær.
Sigurður Pétur Harðarson, stuðn-
ingsmaður Sophiu, sagði að engra
viðbragða hefði orðið vart þegar
knúð hefði verið dyra á heimili Ha-
lims A1 í gær. Gluggar hefðu verið
lokaðir og byrgðir og komufólk,
þ.á m. fulltrúi fógeta og tveir lög-
reglumenn, hefði aðeins orðið vart
við konu húsvarðarins og nokkur
börn úr nágrenninu. Hún hefði verið
fámál og reynt að halda börnunum
í burtu. Þau hefðu hins vegar greini-
lega vitað um hvað málið snerist.
Aðspurður sagði Sigurður að frek-
ari ákvarðana vegna heimkomu Sop-
hiu og fyrirhugaðs hungurverkfalls
hennar væri að vænta á næstunni.
Hann gat þess að komið hefði fram
að Halim hefði við yfirheyrslu sak-
sóknara 4. ágúst sagt að hann myndi
frekar fóma höfðinu en leyfa Sophiu
að sjá dætur þeirra enda væri ætlun
hennar án efa að ræna þeim.
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
*98 kr.: Verð á 1 minútu
símtali (sjálfvirkt val) til Ítalíu
á dagtaxta m.vsk.