Morgunblaðið - 14.08.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. AGUST 1993
11
Svavar veifar jámklónm
eftir Hrafn
Gunnlaugsson
Um daginn þegar ég sat úti í
sólinni og var að fletta í þykkri bók
mér til skemmtunar rak ég augun
í broshýrt andlit Svavars Gestsson-
ar fyrrverandi menntamálaráð-
herra. Bókin heitir Samtíðarmenn.
Ósjálfrátt fór ég að rýna í textann
undir myndinni af Svavari og rak
þá augun í málsgrein sem ber heit-
ið Menntun. Þar segir að Svavar
hafi stundað „nám í Berlín 1967-
1968“. Þessar upplýsingar komu
mér á óvart, því í annarri bók sem
mér var gefin um síðustu jól, og
ber nafnið Liðsmenn Moskvu, segir
að fyrir milligöngu Sósíalista-
flokksins hafi Svavar sótt skóla í
Austur-Þýskalandi árin 1967-68.
í fyrstu áttaði ég mig ekki á
hvemig Svavar hefði getað stundað
nám á tveim stöðum í einu á þess-
um tíma, þ.e. bæði í Austur-Þýska-
landi og í Berlín. Á þessum árum
var Berlín skipt í tvo hluta. Vestur-
Berlín var nánast sjálfstætt borg-
ríki inn í miðju Austur-Þýskalandi,
en Austur-Berlín var hluti Austur-
Þýskalands. Þegar talað var um
Berlín án þess að taka fram við
hvorn hlutann var átt, var að sjálf-
sögðu átt við þann hluta Berlínar
sem var sjálfstæður, þ.e. Vestur-
Berlín. Eftir nokkra umhugsun
þóttist ég ráða að Svavar kysi nú
að kalla þjálfun sína í Austur-
Þýskalandi „nám í Berlín“, til að
breiða yfir tengsl sín við austur-
þýska alþýðulýðveldið og Komm-
únistaflokkinn þar. Er nokkur
furða? Hver vill kannast við að
hafa verið undir verndarvæng Stasí
í dag? Að lokinni seinni heimsstyij-
öldinni sóru margir Gestapómenn
af sér nasismann og þóttust aldrei
hafa komið nálægt Hitler. Sama
gildir um fylgismenn Stalíns. Gaml-
ir stalínistar vilja grafa fortíð sína
eins og gamlir nasistar. Fortíðinni
er hægt að pakka inn í nýjar um-
búðir þegar fela á það sem eitt sinn
var.
Hræðslan við fortíðina
En hvers vegna vill Svavar end-
urskapa fortíð sína? Hvers vegna
vill hann hafa dvalið í Berlín, þegar
hann var í Austur-Þýskalandi.
Hvað er það í fortíðinni sem situr
eins og fleinn í holdi hans? Árið
1990 flutti Hrafn Jökulsson tillögu
á miðstjórnarfundi Alþýðubanda-
lagsins um að Alþýðubandalagið
gerði upp fortíð sína varðandi sam-
skipti við kommúnistaflokka alræð-
isríkjanna í Austur-Evrópu. í niður-
lagi tillögunnar segir orðrétt:
Alþýðubandalagið á sögulegar
rætur meðal annars í Kommúni-
staflokki íslands og Sameining-
arflokki alþýðu-Sósíalistaflokkn-
um. Miðstjórnin harmar að þess-
ir flokkar áttu margvísleg sam-
skipti við kommúnistaflokka
austantjaldsríkjanna, þrátt fyrir
það stjórnarfar sem þar var við
lýði og þrátt fyrir að öllum
mætti vera ljóst að grundvallar
mannréttindi voru fótum troðin.
Tillögunni lýkur síðar á þessum
orðum:
Miðstjómin hvetur því til þess
að fram fari hreinskilið og opin-
skátt uppgjör við fortíðina, með-
al annars þau samskipti sem
félagar í Alþýðubandalaginu
hafa átt við fulltrúa einræðis-
ríkja Austur-Evrópu.
Svavar lagðist af öllu afli gegn
þessari tillögu á fundinum og mátti
ekki heyra minnst á að Alþýðu-
bandalagið gerði upp fortíð sína.
Alþýðubandalagið hefði ekkert að
gera upp. Ekkert væri að fela.
Ræða Svavars frá fundinum er
merkilegt plagg, en umfjöllun um
hana verður að bíða betri tíma.
Flytjendur þessarar tillögu auk
Hrafns voru þeir Össur Skarphéð-
insson, Kristján Ari Arason og
Runólfur Ágústsson.
Svavar Gestsson hefur haft mik-
inn áhuga á fortíð minni. Svo mik-
inn að honum nægði ekki að Ríkis-
endurskoðun færi ofan í mín mál,
heldur vildi hann að Alþingi íslend-
inga skipaði sérstaka rannsóknar-
nefnd til að rannsaka fyrri störf
mín. Áhugi Svavars á fortíðinni
nær þó ekki til hans sjálfs. Þegar
spurt er um fortíð Svavars sjálfs
má ekkert rannsaka. Þar er allt
slétt og fellt. Eða hvað?
Lofsöngurinn um Ceausesku
Upp í hugann kemur grein sem
Svavar skrifaði í íjóðviljann þann
14. október 1970 til dýrðar Ceau-
sesku alræðisherra í Rúmeníu.
Svavar hafði fyrr á því ári verið
formaður sendinefndar Alþýðu-
bandalagsins sem fór til Rúmeníu
í boði Rúmenska kommúnista-
flokksins. í þessari grein ber Svav-
ar mikið lof á þennan „fyrrverandi
smala í fjöllum Vallasíu" eins og
hann kallar Ceausesku á sinn ljóð-
ræna hátt. í greininni er síðan far-
ið fögrum orðum um hve ástsæll
Ceausesku sé af rúmensku þjóðinni
og hversu miklar vonir menn bindi
við að þessi farsæli foringi nái sam-
an í einn hóp á ný hinni alþjóðlegu
verkalýðshreyfingu. Nokkrum
árum síðar hafði rúmenska þjóðin
tekið þennan farsæla foringja af
lífi og afhjúpað hann sem einn
skelfilegasta glæpamann aldarinn-
ar. Mann sem hafði kúgað, myrt
og stjórnað af meiri grimmd en
jafnvel Stalín sjálfur.
Er furða þótt tillaga þeirra Öss-
urs og Hrafns kæmi fram á fundi
miðstjórnar Alþýðubandalagsins?
Er furða þótt Svavar vilji ekki
hreyfa við fortíðinni? Hvemig skyldi
sú fortíð líta út ef hún yrði skoðuð
ofan í kjölinn? Hveijir eru lærifeður
Svavars? Stalín og Ceausesku. Slík-
ir menn notuðu ekki silkihanskana
á fólk. Slíkir menn beittu járn-
klónni. Þarf einhvern að undra þótt
Svavar kvarti yfir því að Ríkisend-
urskoðun hafi tekið á mér með silki-
hönskum en ekki sýnt þá hörku sem
heillaði hann strax í æsku. íslend-
ingar geta getið sér til um hvernig
stofnun eins og Ríkisendurskoðun
yrði skipað að vinna heyrði hún
undir Svavar og hann sæti við völd.
Félagi Svavar hefur talað
Ég rifja hér upp þessi atriði úr
fortíð Svavars til að varpa ljósi á
þær hvatir sem liggja að baki skrif-
um hans og hvert Svavar sækir
fyrirmyndina að rógtækni sinni. I
þessari grein verður ekki fjallað
frekar um fortíð hans, enda ærið
verkefni og bíður sagnfræðinga.
Tilefni þessara skrifa er grein sem
Svavar reit í geðshræringu í Morg-
unblaðið nýlega.
í greininni heldur Svavar áfram
að skvetta úr koppum geðvonsku
sinnar yfir mig og notar um leið
tækifærið til að saka Þráin Bertels-
son formann Rithöfundasambands
Islands um ósannindi. Svavar vísar
til orða sem Þráinn viðhafði um
menntamálaráðherraferil Svavars
þegar Þráinn tók við menningar-
verðlaunum DV. Þráinn sagði orð-
rétt:
Svavar Gestsson hefur staðið
verr að þessum málum en nokk-
ur annar menntamálaráðherra
frá því að kvikmyndavorið byij-
aði. Svavar hefur farið næst því
að drepa niður kvikmyndagerð-
ina á þessum áratug.
Um þessi ummæli Þráins segir
Svavar í greininni:
Hrafn bregður á loft gömlum
ósannindum sem hann hefur eft-
ir formanni Rithöfundasam-
bands íslands. Ekki veit ég
hversu lengi Þráinn Bertelsson
hefur geð í sér til að láta Hrafn
nota ummæli sín með þessum
hætti.
Félagi Svavar hefur talað til
Þráins og heimtað játningu um
yfirsjón og iðran. Vinnubrögð sem
þessi lærði Svavar fyrir austan.
Eini munurinn er sá, að þá voru
menn sem leyfðu sér að gagnrýna
hina opinberu pólitík dregnir fyrir
rannsóknarnefndir.
Hrafn Gunnlaugsson
„Áhugi Svavars á for-
tíðinni nær þó ekki til
hans sjálfs. Þegar spurt
er um fortíð Svavars
sjálfs má ekkert rann-
saka. Þar er allt slétt
og fellt. Eða hvað?“
Um hagsmunatengsl Svavars
í grein Svavars er vikið að starfi
mínu innan stjórnar Kvikmynda-
sjóðs og sagt orðrétt:
... hagsmunatengslin hafa verið
sönnuð upp á hann í opinberri
skýrslu.
Sannleikurinn er, að skýrslan
hrakti allan áburð Svavars um
hagsmunatengsl við opinbera sjóði
eða stofnanir. Eina atriðið sem
skýrslan benti á að gæfi tilefni til
umhugsunar væri skipun mín í
stjóm Kvikmyndasjóðs. En hver
skyldi hafa skipað mig í þá stjórn?
Það var menntamálaráðherra
Svavar Gestsson sjálfur, að feng-
inni tilnefningu aðalfundar Sam-
bands íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda.
Talnaleikir Svavars
Fleira fróðlegt mætti tína til úr
grein Svavars, en ég lýk skrifum
að þessu sinni, með því að víkja
að fyrirsögn greinar Svavars, og
er svo hljóðandi: „Fór alltaf fram
úr áætlunum í þrjú ár sem dag-
skrárstjóri." Þessari fullyrðingu til
staðfestingar segist Svavar hafa
undir höndum beinharðar stað-
reyndir „Ríkisútvarpsins sjálfs“.
Síðan birtir Svavar tölur sem hann
segir frá hagdeild Ríkisútvarpsins.
Um þessar tölur er það að segja,
að í upphafi hvers árs er gerð lág-
marksáætlun, og er í þeirri áætlun
ekki gert ráð fyrir hugsanlegri af-
notagjaldshækkun á árinu. Niður-
stöður hvers árs verður hins vegar
að reikna með tilliti til þeirra tekju-
og gjaldbreytinga sem verða á
rekstrarárinu. Viðmiðun sem gerð
er í lok árs, við óbreyttar tölur sem
lagt er upp með í upphafi ársins,
sýnir því alls ekki hina raunveru-
legu rekstramiðurstöðu. Niður-
staða áranna 1986 til 1988 er eins
og segir í skýrslu Ólafs Jónssonar
hjá Hugverki um innlenda dag-
skrárdeild.
„Jafnvægi komið á í rekstri eftir
breytingaskeið tveggja undanfar-
inna ára. IDD er innan ramma.
Aðrar dagskrárdeildir fara lítils-
háttar fram úr fjárhagsáætlun."
Fleiri orð ætti ekki að þurfa að
hafa um þetta atriði en vegna
Morgunblaðsgreinar Svavars þar
sem hann beitir rógtækninni enn
eina ferðina til að gera störf mín
sem dagskrárstjóri tortryggileg
barst mér viðbótar greinargerð frá
Ólafi Jónssyni framkvæmdastjóra
Hugverks. Til skýringar fyrir þá
sem ekki þekkja til, skal bent á að
Hugverk er ráðgjafafyrirtæki á
sviði reksturs og stjórnunar og
hefur unnið árum saman fyrir Rík-
isútvarpið. í rauninni sinnti Hug-
verk þeim störfum sem hagdeildin
sér um nú, áður en hagdeildin var
stofnuð. Greinargerðin er svo hljóð-
andi:
Greinargerð vegna skrifa um
umframkeyrslu IDD 1986 -
1988
„Áætlanir sem lagt er upp með
í upphafi árs verður jafnan að skoða
í ljósi þeirra breytinga sem verða
á rekstrarforsendum á viðkomandi
ári og taka tillit til þessara breyt-
inga þegar niðurstöðutölur hvers
árs eru skoðaðar.
Niðurstöðutölur IDD fyrir árin
1986 - 1988 voru hærri en áætlun-
artölur í byijun árs. Þar með er
hálf sagan sögð.
Ýmsar aðstæður í rekstri og
rekstrarumhverfi RÚV breyttust
er leið á nefnd ár og því er sú
áætlunartala sem lagt er upp með
ekki sú fasta stærð sem menn geta
ætlað að óathuguðu máli.
Það eru einkum tveir þættir sem
breyttu forsendum áætlana RÚV
1986-88.
Sá fyrri er að verðlagsbreytingar
milli ára reyndust ávallt meiri en
ætlað var í upphafi árs og endur-
speglaðist í áætlunartölunum.
Sá síðari er að ákvarðanir um
afnotagjald voru ekki alltaf í takt
við fjárlög, sem áætlanir RÚV
byggðu á, og því voru teknar
ákvarðanir um dagskrá síðar á ár-
inu sem eðli málsins skv. gátu ekki
komið fram í áætlunum í byijun
árs.
Þær ákvarðanir sem yfirstjórn
RÚV tók um breytta dagskrá og
mest áhrif hafði á umsvif Innlendr-
ar dagskrárdeildar (IDD), voru um
aukna hlutdeild innlends efnis í
sjónvarpi og að hefja sjónvarpsút-
sendingar á fimmtudögum.
Þessar ákvarðanir er rétt að
skoða í ljósi þess að samkeppni var
hafin í ljósvakanum og ef litið er
á hag Ríkisútvarpsins þessi þijú
ár 1986-88 er ljóst að þessar
ákvarðanir stóðust, því árið 1988
er RÚV rekið með 14 m.kr. hagn-
aði eftir taprekstur tveggja undanf-
arinna ára.
Að framansögðu má ljóst vera
að ekki er rétt að segja að IDD
hafi farið fram úr áætlun nema að
tilgreina að miðað sé við óendur-
skoðaðar áætlanir frá ársbyijun
sem eru ekki í samræmi við breytt-
ar forsendur." Hér lýkur greinar-
gerðinni frá Hugverki.
Höfundur er alþingismaður
í lok blaðagreinarinnar segir
Svavar:
Þess vegna vil ég gleðja hann
með því enn að ég mun ekki
svara honum frekar með blaða-
skrifum.
Mér er það lítil gleði að Svavar
ætli að hætta að skrifa um mig í
blöð. Hann hefur nú þegar rægt
mig í skjóli þinghelgi og borið mig
svo þungum ásökunum að ekki
verður hjá því komist að skrifa
áfram - þótt vart verði það til að
gleðja höfund óhroðans sem titlar
sig sem alþingismann.
P.s. Svavar veltir mikið fyrir sér
fyrirtækinu Hugverk. Ég bað fram-
kvæmdastjóra þess að setja á blað
örfáar línur um stöðu Hugverks
gagnvart RÚV. Þær fylgja hér á
eftir:
Hugverk h.f. er stofnað 1977.
Fyqstu samskiptin við RÚV voru
1979 þegar fyrirtækið gerði
Rekstrarúttekt á RÚV fyrir Fjár-
laga- og hagsýslustofnun og
RÚV í sameiningu. Síðan hefur
Hugverk annast ýmis ráðgjafa-
verkefni fyrir RÚV þ.m.t. hönn-
un og uppsetningu á fjárhags-
legu áætlunar og eftirlitskerfí
sem RÚV byggir enn á.
Höfundur er rithöfundur og
kvikmyndaleikstjóri og er settur
framkvæmdastjóri Sjónvarps til
eins árs.
FASTEIGN ER FRAMTID £\ ^\ íl
FASTEIGNA 'ffÖMIÐLUN
SIMI 68 77 68
svmm KRlSTJAmON LÖGGILTUR FASrEICNASALI
SUÐURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072
Sýningarsalur Fasteignamiðlunar
er opinn laugardaga frá kl. 11-16 og sunnudaga frá kl. 13-16.
Skrifstofan er lokuð um helgar í sumar.
Fjöldi eigna á skrá - Sjón er sögu ríkari.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori
KRISTINN SIGURJONSSON, HRL. loggii.turfasteignasali
Til sýnis og sölu eignir, sem vekja athygli:
Úrvalsíbúð - bílskúr - frábært útsýni
4ra herb. íb. um 100 fm á 2. hæð við Digranesveg, Kóp. Nýtt parket.
Rúmg. sólsvalir. Sérþvottahús. Stór ræktuð lóö.
Á vinsælum stað í Smáíbúðahverfi
Steinhús með 5 herb. íb. á tveimur hæðum, samtals 113 fm. Töluvert
endurbætt. Nýl. gler o.fl. Svalir. Sólverönd. Vinsæll staður. 40 ára
húsnæðislán kr. 2,3 millj.
Rétt við nýja miðbæinn
Glæsileg 6 herb. efri hæð, 143 fm nettó. Sólsvalir. Allt sér. Góðar
geymslur í kj. Bílskúr. Glæsil. trjágarður. Mikið útsýni. Eignaskipti hugs-
anleg.
Á 1. hæð við Hraunbæ
vel með farin 2ja herb. íb. 60 fm. Svalir á vesturhlið. Góð sameign,
endurbætt. Gott verð.
Skammt frá Dalbraut
4ra herb. íb. á 4. hæð. Nýtt gler o.fl. Risherb. fylgir með snyrtingu.
Sameign mikið endurbætt. Gott verð.
Á vinsæium stað í Garðabæ
Nýleg 4ra herb. íb. á 2. hæð. 3 svefnh. Þvottaaðst. á baði. Góður
bílsk. Útsýni. Eignaskipti möguleg. Tilboð óskast.
Nokkrar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir
með „gömlu og góðu“ 40 ára húsnæðislánunum frá kr. 2,5 millj.—3,6
millj. Teikn. og nánari uppl. á skrifst.
Fyrir fjársterka kaupendur
óskast á söluskrá einbýlishús i Hafnarf. m. 5 svefnh.
2ja-3ja herb. ib. sem næst Háskólanum, skipti mögul. á stærri íb.
íbúð í vestur- eða miðborginni, með rúmg. sérherb. ásamt snyrtingu.
íbúðum í vestur- og miðborginni. Ýmsar stærðir.
• • •
Opiðídagkl. 10-14.
Teikn.áskrifst. riCTr|pyicjM IU
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA