Morgunblaðið - 14.08.1993, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Framkvæmdastjóri Seifs segir allan kola unninn hér lieima
Ounnimi koli ekki fluttur út
AFAR LÍTIÐ hefur verið flutt út af óunnum skarkola á
þessu ári, að sögn Ævars Guðmundssonar hjá Seifi hf.
Segist hann ekki skilja ummæli Kristins Kristinssonar hjá
Pólar-Frost hf. í Hafnarfirði, sem fullyrðir í viðtali við
Morgunblaðið í gær, að mikið magn af óunnum skarkola
sé flutt út í viku hverri svo að ekki fáist koli til vinnslu.
Þrjú útflutningsfyrirtæki, ísfang
hf., Jón Ásbjörnsson hf. og Seifur
hf., hafa flutt út all mikið af skar-
kola að undanförnu en að sögn
Ævars hefur aðeins verið um unn-
inn fisk að ræða.
Hann sagði að oft fengist viðun-
andi verð fyrir óunninn kola á mörk-
uðum erlendis ef hann væri stór en
skarkoli sem veiðst hefði á þessu
ári væri fremur smár. Þessi koli
hefði þvi allur verið unninn hér
heima og nær ekkert flutt út óunn-
ið. Sagði hann að Pólar-Frost hf. í
Hafnarfirði gæti ekki kennt útflutn-
ingi um að hráefni skorti hjá fyrir-
tækinu.
Flugráð harmar fjaðrafok
Alls ekki um ávítur að ræða, segir formaður ráðsins
FLUGRÁÐ kom saman til fundar í gærmorgun vegna ummæla og
athugasemda framkvæmdastjóra Loftferðaeftirlitsins og fram-
kvæmdastjóra flugslysarannsókna um öryggismál í Grænlandsflugi
i tíð fyrri flugrekstraraðstandenda flugfélagsins Óðins hf. en einstak-
ir flugráðsmenn töldu að ummælin stönguðust á við afstöðu þeirra
á síðasta fundi Flugráðs. Leifur Magnússon, formaður Flugráðs,
segir aðpurður að yfirmenn flugöryggismála sem sátu fundinn hafi
alls ekki verið ávítaðir af Flugráði og ekkert slíkt sé hægt að lesa út
úr bókun fundarins. í henni segir m.a. að Flugráð harmi það fjaðra-
fok sem orðið hafi í kjölfar afgreiðslu þess sl. þriðjudag þar sem
mælt var með áætlunarleyfi til Óðins hf. milli Kulusuk og Græn-
lands og að það telji mál að linni hártogun í málinu og vangaveltum
sem byggist á sögusögnum.
Bókun Flugráðs er svohljóð-
andi: „Flugráð harmar það
fjaðrafok sem orðið héfur í kjöl-
far afgreiðslu þess 10. þ.m. á
umsögn um áætlunarleyfi milli
Kulusuk og íslands. Á þeim fundi
var málið formlega afgreitt eftir
ítarlega umfjöllun og mælt með
leyfi til Óðins hf. flugfélags.
Jón Helgason, flugrekstrar-
stjóri Óðins hf. flugfélags, lauk
prófi sem slíkur með ágætum hjá
Loftferðaeftirlitinu og það er
flugrekstrarstjóri sem ásamt
tæknistjóra bera ábyrgð á örygg-
ismálum flugrekenda. Loftferða-
eftirlitið gerði á sínum tíma at-
hugasemdir við eiginfjárstöðu
Óðins hf. flugfélags vegna flug-
rekstrarleyfís og meðmæli Flug-
ráðs um það leyfí voru háð upp-
fylltum skilyrðum.
Samgönguráðuneytið hefur
þegar veitt Óðni hf. flugrekstrar-
leyfi til þjónustuflugs. Öðinn hf.
flugfélag er nýr flugrekandi þótt
flestum sé ljóst að hann byggir
á reynslu fyrri flugrekanda og
samböndum. Samgönguráðherra
óskaði aðeins eftir umsögn um
Óðinn hf. flugfélag sem áætlun-
arleyfíshafa milli Kulusuk og ís-
lands og sú umsögn var jákvæð
með atkvæðum fjögurra flug-
ráðsmanna, en einn sat hjá.
Flugráð telur mál að linni hár-
togunum í þessu máli og vanga-
veltum sem byggjast á sögusögn-
um.“
Ekki formlegt álit
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
var spurður í gær hvort þær at-
hugasemdir sem yfirmenn flugör-
yggismála hjá Flugmálastjórn
hefðu sett fram væru ekki taldar
marktækar í þessu tilviki. Þorgeir
kvaðst ekki vilja tjá sig um það en
sagðist vísa til yfírlýsingar sinnar
sem birtist í Morgunblaðinu í gær
þar sem fram kæmi að ekki væri
um formlegt álit stofnunarinnar að
ræða heldur persónulegt álit við-
komandi.
Hvorki Grétar H. Óskarsson,
framkvæmdastjóri Loftferðaeftir-
litsins, né Skúli Jón Sigurðarson,
framkvæmdastjóri flugslysarann-
sókna hjá Flugmálastjórn, vildu tjá
sig um þetta mál í gær.
Morgunblaðið/Kristinn.
Fundur í flugráði
FLUGRÁÐ var kvatt saman til fundar í gær vegna ummæla og athugasemda yfirmanna flugöryggismála
í tengslum við umsókn Óðins hf. um áætlunarleyfi milli Kulusuk og íslands.
Atvmnumál gnmnskolakemiara
Athugasemd vegna fréttaflutnings Ríkisútvarpsins
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Ólafi G. Einarssyni, mennta-
málaráðherra:
„í fréttatíma Ríkisútvarpsins
þann 11. þ.m. var viðtal við for-
mann Kennarasambands íslands
um atvinnuleysi í kennarastétt.
Vegna mjög villandi ummæla
formannsins og fréttamannsins
Óðins Jónssonar er eftirfarandi
tekið fram:
Aðhaldsaðgerðir í íjármálum á
síðasta ári leiddu til fækkunar
kennslustunda, eins og formaður
KÍ sagði. Þá bar hins vegar ekki
á atvinnuleysi í kennarastétt, enda
fjölgaði grunnskólakennurum í
starfí um 114 og stöðugildum um
102 milli áranna ’91/’92 og
’92/’93.
Leiðbeinendum hefur fækkað
milli ára, svo sem eðlilegt er og í
fullu samræmi við stefnumið
Kennarasambands Islands.
í menntamálaráðuneytinu
liggja ekki fyrir endanlegar tölur
um kennararáðningar frá fræðslu-
skrifstofunum fyrir næsta skólaár.
Enginn sérstakur nýr niðurskurð-
ur í grunnskólum er fyrirhugaður
af hálfu ráðuneytisins, enda unnið
eftir sömu heimildum og á síðasta
skólaári. Hugsanlegt atvinnuleysi
kennaramenntaðs fólks stafar því
af öðrum orsökum en nýjum niður-
skurði í grunnskólum.
Fullyrðingar um atvinnuleysi
grunnskólakennara eru vart tíma-
bærar þar sem ekki hefur verið
gengið endanlega frá ráðningum
við alla skóla.
Samkvæmt tölulegum upplýs-
ingum í menntamálaráðuneytinu
verður aukning á kennslumagni,
starfsmagni, vikustundum og
stöðugildum frá síðasta skólaári
til hins næsta. Því er það rangt
sem formaður Kennarasambands-
ins hefur sagt að fjölgun réttinda-
kennara nú helgist af því að
kennslan sé minni.
Ekki þótti fréttamanninum
ástæða til að leita upplýsinga hjá
menntamálaráðuneytinu um þetta
mál.
Fréttamaðurinn sagði: „Hlut-
fallsleg fjölgun réttindakennara
boðar þó ekki framfarabyltingu í
skólamálum. Hún kemur ekki til
af góðu.“
Þessi ummæli eru athyglisverð,
hvort sem þau eru komin frá
fréttamanninum sjálfum eða for-
manni KÍ. Hingað til hefur það
verið talið líklegt til að bæta
kennslu og skólastarf að kennarar
hefðu full réttindi. Framangreind
ummæli koma því nokkuð á óvart.
Auðvitað væri æskilegt að verja
meira fé til menntamála. Um það
þarf ekki að deila.
Hitt er svo annað mál, að brýnt
er að umræða um skólamál sé
málefnaleg og rétt sé farið með
staðreyndir. Svo var ekki í fram-
angreindu viðtali."
Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður
Oeðlilegt að pólitískur >
aðstxiðarmaður verði >
ráðuneytisstjóii
ÓLAFUR Ragnar Grimsson, formaður Alþýðubandalagsins, telur
óeðlilegt að Sighvatur Björgvinsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
ætli að selja aðstoðarmann sinn, Þorkel Helgason, ráðuneytisstjóra
i ráðuneyti sínu til tveggja ára, í fjarveru Björns Friðfinnssonar
ráðuneytisstjóra. Slíkt bijóti gegn tuttugu ára gamalli hefð.
VERSLUNARMIÐSTÖÐIN Kringlan átti 6 ára afmæli í gær og í
tilefni dagsins var ýmislegt um að vera. Þar á meðal spiluðu tón-
listarmenn fyrir Kringlugesti sem gátu einnig virt fyrir sér risa-
stór málverk eftir Tolla sem þar eru til sýnis. Flekarnir sem mynd-
irnar hanga á eru um 6 fermetrar að stærð og mjög þungar. Því
var brugðið á það ráð að fá kunna kraftakarla til að hífa málverkin
upp.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/RAX
Afmælishátíð í Kringlunni
„Mér finnst þetta vera mjög al-
varlegur gerningur. Þarna er stigið
nýtt skref til að brjóta niður þær
leikreglur sem menn hafa reynt
að fylgja í landinu,“ sagði Ólafur
Ragnar. „Fyrir rúmum tuttugu
árum var komið upp því kerfi að
skilja á milli embættislegrar um-
sýslunar í ráðuneytunum og pólit-
ískra starfa. Þess vegna fengu
ráðherrarnir heimild til að velja sér
pólitíska aðstoðarmenn, sem koma
með þeim og fara líka með þeim.“
Áður á mörkunum
Ólafur Ragnar sagðist telja að
Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, hefði ver-
ið á mörkunum í þessu máli er
hann gerði Björn Friðfinnsson, sem
var aðstoðarmaður hans, að ráðu-
neytisstjóra árið 1989. Sama
mætti segja um skipan Magnúsar
Jóhannessonar, fyrrum aðstoðar-
manns Eiðs Guðnasonar, fyrrver-
andi umhverfisráðherra, í stöðu
ráðuneytisstjóra umhverfisráðu-
neytisins. „Nú stígur Sighvatur,
fyrstur íslenzkra ráðherra, það
skref að láta pólitískan aðstoðar-
mann sinn gegna, í tímabundinni
íjarvist ráðuneytisstjórans, yfir-
stjóm á embættislegri hlið ráðu-
neytisins. Og það ekki bara á með-
an Sighvatur er ráðherra, heldur
fram á næsta kjörtímabil," sagði
Ólafur Ragnar.
Mörður eða Már
Ólafur sagði að skil milli emb-
ættissýslunar og pólitískrar •
stefnumótunar væru með þessu
sett í graut. „Hvað hefði verið sagt
ef ég hefði gert Má Guðmundsson
eða Mörð Árnason að ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu og i
þeir hefðu stýrt því inn á tímabil
Friðriks Sophussonar?" sagði Ólaf-
ur Ragnar. k
------♦ ♦ ♦
Síðustu Sum- |
artónleikarí
Skálholtskirkju
VERK eftir tvö höfuðtónskáld
Norður-Evrópu á barokktíma,
Bach og Buxtehude, eru á dag-
skrá síðustu Sumartónleika í
Skálholtskirkju að þessu sinni.
Tónlistarmenn hafa verið í Skál-
holti alla vikuna að æfa undir leið-
sögn bandaríska gömbuleikarans
og tónlistarfræðingsins Laurence
Dreyfus. Leikið er á gömul hljóð-
færi eða eftirlíkingar þeirra og
reynt að laga söng og leik að tíma j
gömlu meistaranna.
Kl. 15 á laugardag er m.a. flutt
kantata Bachs, Actus tragicus, en j
kl. 17 og aftur á sunnudaginn kl.
15 getur að heyra söngfúgu eftir
Buxtehude og kafla úr Fiiglistinni j
eftir Bach. Þetta er nítjánda ár
Sumartónleikanna og aðsókn hef-
ur verið með ágætum. Aðgangs-
eyrir er enginn.
Sjá bls. C3: „Bach og...“