Morgunblaðið - 14.08.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Leikfélag Akureyrar
Ferðin til Panama
fyrsta verkefnið
ÆFINGAR hefjast eftir helgi á fyrsta verkefni Leikfélags Akur-
eyrar á nýbyrjuðu leikári, en það er leikritið Ferðin til Panama
eftir Martin Truthmann, sem hann hefur samið upp úr sam-
nefndri sögu eftir Janosch.
Janosch hefur öðlast heims-
frægð fyrir sögur sínar um vinina
tvo, Tígrisdýrið og Björninn, og
hafa þijár af bókunum um þá
komið út á íslandi, þar á meðal
Ferðin til Panama.
Snæbjörn Arngrímsson hefur
íslenskað leikritið, Ingunn Jens-
dóttir er leikstjóri og er þetta
fyrsta leikstjóraverkefni hennar
fyrir LA, en áður hefur hún farið
með hlutverk í Húsi Bernörðu
Alba. Anna G. Torfadóttir gerir
leikmynd, búninga og dýragervi.
Með hlutverkin fara Aðalsteinn
Bergdal, Sigurþór Albert Heimis-
son, Dofri Hermannsson og Anna
Man'a Gunnarsdóttir, en þau tvö
síðastnefndu leika nú í fyrsta sinn
með Leikfélagi Akureyrar.
Óvæntur frumsýningarstaður
Ferðin til Panama er leikrit fyr-
ir fólk eldra en fjögurra ára og
er fyrirhugað að það verði sýnt á
Akureyri og á leikferð um allt
Norðurland. Frumsýning er fyrir-
huguð seinni hluta september á
óvæntum stað á Norðurlandi.
Guðmimdarhús end-
urbyggt í Ólafsfirði
EITT af elstu húsunum í Ólafsfirði er svokallað Guðmundarhús
eða Strandgata 7. Húsið var byggt af einum af frumbyggjum
Ólafsfjarðar, Guðmundi Ólafssyni, útgerðarmanni á árunum 1904
til 1906.
Guðmundarhús er stórt og veg-
legt hús, þar bjuggu í upphafi
mannmargar fjölskyldur, þar var
fyrsta afgreiðsla Sparisjóðs Ólafs-
fjarðar til húsa, um tíma var skóli
í húsinu og prestsetur. Á síðari
árum var Jjar rekið barnaheimili,
Tónskóli Olafsú’arðar var þar til
húsa, Karlakór Ólafsfjarðar átti
húsið og nú er þar til húsa Leikfé-
lag Ólafsfjarðar.
Bæjarsjóður Ólafsfjarðar hefur
nú ákveðið að styrkja Leikfélag
Ólafsfjarðar til ao endurbyggja
húsið. Veitt var til þess fé á síð-
ustu fjárhagsáætlun bæjarins og
í tengslum við atvinnuátaksverk-
efni Atvinnuleysistryggingasjóðs
var veitt fé til endurbyggingarinn-
ar. Nú er verið að skipta um burð-
arvið hússins, nýir gluggar koma
í það á næstunni og það verður
klætt með bárujárni.
SB
Morgunblaðið/Sigurður Bjömsson
Guðmundarhús
VERIÐ er að endurbyggja eitt af elstu húsunum í Ólafsfirði, svokall
að Guðmundarhús.
Afnol of íbúö í
Davíöshúsi, Akureyri
Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræðimönnum
og listamönnum kostur á að sækja um 1-6 mánaða
dvöl f lítilli íbúð í Davíðshúsi, til að vinna að fræðum
sínum eða listum. Ákveðið hefur verið að frestur til
að skila umsóknum um afnot af íbúðinni árið 1994
renni út 15. september nk.
Umsóknir ber að senda til: Akureyrarbær, c/o Ingólfur
Ármannsson, menningarfulltrúi, Strandgötu 19b, 600
Akureyri.
Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála, sími
96-27245.
Menningarfulltrúi.
Morgunblaðið/Golli
Lokið við listaverk
ÖRN Ingi Gíslason fjöllistamaður var á ferðinni í Hrísey í vikunni, en
þangað lagði hann Ieið sína til að ljúka við listaverk sem börn úr Sumar-
skólanum höfðu málað á salthúsvegginn. Kalsaveður sumarsins var
andsnúið útilistmálurum og notaði Örn Ingi því tækifærið sem gafst í
vikunni þegar sá til sólar og lauk’ því sem eftir var, en listaverkið á
salthúsveggnum er að öðru leyti alfarið nemenda Sumarskólans.
Bændahátíð haldin að Laugum í Reykiadal
Forseti Islands flyt-
ur ávarp á hátíðinni
BÚNAÐARSAMBAND S-Þing. og Héraðssamband S-Þing. hafa
ákveðið að efna til bændahátiðar að Laugum í Reykjadal laugar-
dagskvöldið 21. ágúst næstkomandi.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, mun ávarpa hátíðina,
en á dagskrá eru kórsöngur
kvennakórsins Lissýar og einsöng-
ur Jóhanns Más Jóhannssonar
bónda í Keflavík, Skagafirði, og
Hildar Tryggvadóttur bónda á
’AKure.yri
HLaugardagur 14. ágúst
Grófin kl. 14 til 17, vinnu-
dagar þar sem Lene, Karin,
Hadda, Sunneva, Margrét og
Inga bjóða fólki að kynnast
og prufa ullarþófa og leir-
muni.
■Sunnudagur 15. ágúst
Deiglan kl. 20.30, bók-
menntakvöld. Dúettinn Súkk-
at spilar, Dofri Hermannsson
leikari flytur einleikinn „Mín
káta angist“ eftir Guðmund
Andra Thorsson og fleiri.
Grafíkvinnudagar á vinnu-
stofu Guðmundar Ármanns í
Listaskálanum standa yfír á
laugardag og sunnudag.
Fremstafelli í Kinn. Hagyrðingur
kvöldsins verður Friðrik Stein-
grímsson, Mývatnssveit, og ung-
mennafélagið Efling, Reykjadal,
verður með leikþátt.
Þá verða þjóðdansar sem dans-
hópurinn Fiðrildin, Egilsstöðum,
sýnir og Harmonikufélag Þingey-
inga leikur fyrir dansi fram eftir
nóttu. í tilefni af bændahátíð verð-
ur Hótel Laugar með tilboð á gist-
ingu og kvöldverði fyrir þá sem
koma lengra að.
Bændahátíð var einnig haldin
fyrir ári að Laugum í tengslum
við aðalfund Stéttarsambands
bænda og tókst hún í alla staði
vel, en hátíðin hefur sögulegt gildi
þar sem hún var haldin árlega um
langt árabil. Það var árið 1948 sem
fyrsta hátíðin var haldin en hafði
legið niðri um nokkurt skeið.
Aðstandendur bændahátíðar-
innar telja mikilvægt að bænda-
fólk efli stéttarvitund sína og geri
sér glaðan dag rétt eins og fólk
gerir á sjómannadaginn og verka-
lýðsdaginn og er því vonast til að
sem flestir sjái sér fært að mæta,
ekki bara bændur heldur og allir
velunnarar bændastéttarinnar.
Nánari upplýsingar um bænda-
hátíðina gefa Sigurlaug Svavars-
dóttir, formaður HSÞ, og Atli Vig-
fússon, formaður BSSÞ.
(Fréttatilkynning.)
20% dýrara
að versla í
nágranna-
byggðum
í síðustu viku var endurtekin
verðkönnun sem Neytendafélag
Akureyrar og nágrennis gerði
fyrir um mánuði síðan. Verðkönn-
unin sem gerð var 5. júlí sl. var
sú umfangsmesta sem félagið heL
ur staðið fyrir fram til þessa. í
könnuninni sem gerð var 5. ágúst
var verð kannað á 200 neysluvör-
um í fjórum verslunum.
Verslanirnar eru KEA-Nettó,
Hagkaup, Hrísalundur á Akureyri
og Svarfdælabúð á Dalvík. Helsta
niðurstaða könnunarinnar var sú að
vörur í KEA-Nettó eru að jafnaði
ódýrastar og um 7% ódýrari en í
Hagkaup sem kemur næst, að því
er fram kemur í frétt frá Neytenda-
félaginu.
Jafnframt er ljóst af könnuninni
að ef Svarfdælabúð er tekin sem
viðmiðun fyrir nágrannabyggðirnar
við Eyjafjörð þá er um 20% dýrara
að kaupa þessar 200 vörutegundir
í nágrannabyggðunum en á Akur-
eyri.
Samtímis þessari könnun fram-
kvæmdu neytendafélög víðs vegar
um landið sambærilegar en minni
kannanir og verður samanburður úr
þeim könnunum birtur í vikunni og
kemur þá í ljós hvernig verðlag er
á Akureyri miðað við landið í heild.
♦ ♦ ♦--------------
Bókmennta-
dagskráí
Deiglunni
í DEIGLUNNI verður á sunnu-
dagskvöld blönduð dagskrá í
formi leiksýninga, tónleika og
upplesturs.
Dúettinn Súkkat frá Reykjavík
kemur fram í fýrsta skipti á Ákur-
eyri með frumsamið efni í léttum
dúr. Einleikurinn úr skáldsögunni
Mín káta angist eftir Guðmund
Andra Thorsson verður sýndur, en
það er nýútskrifaður leikari, Dofri
Hermannsson, sem flytur. Hann
mun starfa hjá Leikfélagi Akureyrar
næsta vetur. Viðar Eggertsson les
síðan upp úr verkum Kristínar
Bjarnadóttur.
(Fréttetilkynning.)
Teygjustökk
á sunnudag
AKUREYRINGUM gefst kostur á
að stökkva teygjustökk á sunnu-
daginn, en þá koma félagar fyrir-
tæksins Gott hopp að nýju norður
með útbúnað sinn. Teygjustökkið
átti miklum vinsældum að fagna
meðal bæjarbúa fyrr í sumar þeg-
ar félagarnir voru á ferðinni.
Teygjustökkið hefst kl. 14 á
sunnudaginn, 15. ágúst og verður
við Strandgötuna. Þegar Akur-
eyringar hafa stokkið nægju sína á
sunnudagskvöld verður ferðinni
haldið áfram um Norðurlandi og
m.a. er ætlunin að heimsækja Rauf-
arhöfn, Ólafsfjörð og Siglufjörð.
Messur
Akureyrarkirkja. Guðsþjón-
usta verður í Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 11. fyrir há-
degi. Þ. H.
Glerárkirkja. Guðsþjónusta
verður í Glerárkirkju n.k.
sunnudagskvöld, 15. ágúst kl.
21.00.
Sóknarprestur.