Morgunblaðið - 14.08.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
19
Reuter
Páfi ítrekar andstöðu við fóstureyðingar
JÓHANNES Páll páfi annar kom í fyrrakvöld til Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum þar sem hann
verður meðal fulltrúa á æskuþingi. Bill Clinton Bandaríkjaforseti tók á móti páfa við komuna til Denver og
er þetta fyrsti fundur þeirra. Páfi flutti ávarp við komuna til Bandaríkjanna. ítrekaði hann einarða and-
stöðu sína við fóstureyðingar og hvatti Bandaríkjamenn til þess að standa vörð um lífið, eins og hann komst
að orði. Clinton forseti er á öndverðum meiði um fóstureyðingar. Páfí hitti á sínum tíma forvera Clintons,
Ronald Reagan og Geogrge Bush, sem báðir voru skoðanabræður páfa hvað fóstureyðingar snertir.
Seðlabankar Svíþjóðar og Finnlands
Vaxtalækkanir til
að örva efnahaginn
Stokkhólmi. Financial Times.
SEÐLABANKAR Svíþjóðar og
Finnlands lækkuðu í fyrradag
forvexti til þess að stuðla að því
að efnahagslíf landanna tæki
fjörkipp.
Finnlandsbanki lækkaði vexti um
hálft prósentustig í 6% og hafa for-
vextir hans ekki verið lægri í tæp
40 ár.
Sænski seðlabankinn lækkaði
sömuleiðis helstu viðmiðunarvexti
sína úr 8,25% í 8%. Er það önnur
vaxtalækkunin á einni viku. Bank-
inn hefur jafnt og þétt lækkað vexti
frá því gengi sænsku krónunnar var
látið fljóta í nóvember sl. Sagði
Thomas Franzen aðstoðarbanka-
stjóri sænska seðlabankans að
vaxtalækkunin hefði verið ákveðin
með tilliti til þess að vextir á lang-
tímalánum hefðu lækkað áberandi
að undanförnu og fjármagnsmark-
aðurinn hefði brugðist jákvætt við
fyrri vaxtalækkunum bankans.
Einnig hefði gengi krónunnar
styrkst að undanförnu eftir mikla
lækkun fyrr á árinu.
Vextir á bæði skammtímalánum
og lánum til lengri tíma eru nú
lægri en nokkru sinni frá því á átt-
unda áratugnum í í Svíþjóð.
Þjóðhagsspár í Finnlandi og Sví-
þjóð benda til þess að á þessu ári
muni efnahagssamdráttur eiga sér
stað, þriðja árið í röð. Þar af leið-
andi er þörfin fyrir vaxtalækkun til
þess að stuðla að endurreisn at-
vinnulífs og draga úr atvinnuleysi
afar knýjandi.
-----»■ •■»■■■■♦-
Keppst um
tengdason
Brezhnevs
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESK einkafyrirtæki kepp-
ast nú um að ná ráðningarsamn-
ingi við tengdason fyrrum Sovét-
leiðtoga, Léoníds Brezhnevs.
Tengdasonurinn var náðaður í
síðustu viku þegar hann hafði
afplánað tæplega helming 12 ára.
fangelsisrefsingar fyrir að hafa
greitt milljónir í mútur.
Fréttastofan Itar-Tass greindi frá
því á þriðjudag að símar í innanríkis-
ráðuneytinu hefðu verið rauðglóandi
síðan fréttist af náðun tengdasonar-
ins, sem er 56 ára gamall. Hann var
fangelsaður árið 1988 fyrir spillingu.
Að sögn fréttastofunnar hafa mörg
einkafyrirtæki áhuga á að bjóða
Tsjúrbanov ráðgjafastarf.
Dularfullt morð staðfest-
ir umsvif CIA í Georgíu
Einu sinni var
EDÚARD Shevardnadze með George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á valdadögum Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta. Sagt er að Shevardnadze, sem var um árabil utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, njóti gamals kunningsskapar við bandaríska embættismenn og leyniþjónustan, CIA,
hafi tekið að sér að vernda Georgíuleiðtogann.
YFIRMANNI öryggismála í
Georgíu hefur verið vikið
tímabundið úr starfi á meðan
fram fer rannsókn á morði
Freds Woodruffs, bandarisks
embættismanns, sem var myrt-
ur á sunnudag skammt frá
höfuðborginni, Tblisi. Wo-
odruff var á ferð í bifreið með
Eldar Gogoladze, yfirmanni
öryggismála í Georgíu og
tveimur ónefndum konum, er
honum var banað með einni
byssukúlu. Ýmislegt er enn á
huldu um mál þetta en það
hefur hins vegar orðið til þess
að svipta hulunni af umsvifum
bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, í Georgíu.
Yfirmaður CIA, James Wools-
ey, var staddur í Moskvu þegar
þær fréttir bárust að Woodruff
hefði verið myrtur. Woolsey hélt
til Tblisi og notaði þá tækifærið
og átti klukkustundar langan
fund með leiðtoga Georgíu, Edú-
ard Shevardnadze, í fyrirmanna-
stofu Tblisi-flugvallar.
Woodruff, sem var 45 ára, var
skráður sem stjórnmálaráðgjafi
við sendiráð Bandaríkjanna í
Tblisi og hafði verið þar frá því
í júnímánuði. För Woolsey til
Georgíu varð hins vegar til þess
að í Bandaríkjunum tóku menn
að ræða þann möguleika að
Woodruff hefði verið í landinu á
vegum CIA. Fullyrðingar í þá
veru voru síðar hafðar eftir
ónafngreindum embættismönn-
um.
Átti að tryggja öryggi
Shevardnadze?
Tvær skýringar hafa komið
fram á veru Woodruffs í Tblisi.
Annars vegar er því haldið fram
að CIA hafi gert hann út af örk-
inni í því skyni að veita stjórn-
völdum í Georgíu ráð um hvernig
tryggja mætti öryggi She-
vardnadze en á undanförnum
vikum hefur hann tvívegis komist
í lífshættu í árásum aðskilnaðar-
sinna í Abkhasíu. Á hinn bóginn
hefur verið fullyrt að Woodruff
hafi, ásamt fleiri CIA-mönnum,
verið falið að hafa umsjón með
þjálfun sveita stjórnarhersins í
Georgíu. Báðar skýringarnar eru
trúverðugar og samrýmanlegar.
Edúard Shevardnadze hefur
um árabil átt greiðan aðgang að
bandarískum embættismönnum
og má rekja það til vináttu sem
tókst með honum og George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna í tíð Ronalds Reagans
forseta. Þá þjónar það augljós-
lega hagsmunum Bandaríkjanna
á þessum miklu umbrotatímum
í lýðveldum fyrrum Sovétríkj-
anna að hafa við völd í Georgíu
mann sem stjórnvöld vestra
þekkja og eiga greiðan aðgang
að. Bandaríkjamenn og þá eink-
um CIA hafa oftlega tekið að sér
vernd vinsamlegra erlendra þjóð-
höfðingja en ekki hefur það ávallt
tekist sem skyldi. Frægasta
dæmið er trúlega morðið á Bac-
hir Gemayel, nýkjörnum forseta
Líbanon í septembermánuði 1982
en fáeinum dögum áður liöfðu
Bandaríkjamenn tekið að sér að
tryggja öryggi hans, líkt og fram
kemur í bók blaðamannsins Bob
Woodwards, Veil.
Morðið í Georgíu verður þó
tæpast borið saman við mistök
CIA í Líbanon. Undarlegt má það
þó heita að enginn annar en
Woodruff skyldi týna lífi eða
særast í árásinni. Fregnir herma
að árásinni hafi á engan hátt
verið svarað. Heimildarmenn
breska dagblaðsins The Daily
Teiegraph fullyrða að byssukúl-
unni sem varð Woodruff að bana
hafi verið hleypt af í bifreiðinni
og fyrir liggur að kúlnagöt voru
engin á bílnum.
Stjórnvöld í Georgíu hafa sagt
að „glæpalýður“ hafi myrt Fred
Woodruff. Líklegra þykir að um
einhvers konar svik hafi verið að
ræða og hermt er að Eldar Go-
goladze hafi verið drukkinn er
hann sneri aftur til Tblisi.
Ónefndur georgískur embættis-
maður sagði að Gogoladze hefði
löngum verið annálaður fyrir
hamsleysi er hann var drukkinn.
Þá hafa komið fram getgátur um
að rússneska leyniþjónustan hafi
staðið fyrir tilræðinu og eru þær
rökstuddar m.a. með tilvísun til
þess að bandarískir stjórnarerin-
drekar og CIA-menn láti nú til
sín taka með skýrari hætti en
áður. Þannig hefur Bill Clinton
Bandaríkjaforseti sagt að banda-
rískir sendiráðsmenn geti gegnt
hlutverki milligöngumanna í
þeim fjölmörgu smástríðum sem
nú eru háð á landsvæði því sem
áður heyrði Sovétríkjunum til.
Kann að skaða CIA
Morðið á Woodruff kann að
skaða CIA verulega. Rússneskir
þjóðernissinnar, sem kvartað
hafa undan yfirgangi Banda-
ríkjamanna og raunar Vestur-
landabúa almennt, munu vafa-
laust reyna að færa sér tengsl
CIA og stjórnvalda í Georgíu í
nyt. Mikil spenna og fullkomin
óvissa einkennir ástandið í
Kákasus-ríkjunum og því er mik-
ilvægt fyrir Bandaríkjamenn að
halda þar uppi öflugri eftirlits-
og njósnastarfsemi auk þess sem
einnig gefst kostur á að fylgjast
grannt með þróun mála í ná-
grannaríkjunum t.a.m. Tyrk-
landi, íran og Afganistan.
ÁSv tók saman.