Morgunblaðið - 14.08.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
21
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Afkoma fyrirtækja
Upplýsingar, sem fram
hafa komið síðustu daga
um afkomu einstakra fyrir-
tækja á fyrri hluta ársins,
benda til þess, að þrátt fyrir
kreppu og samdrátt og dökk-
ar horfur í þjóðarbúskapnum,
sé árangur að nást í endur-
skipulagningu og hagræðingu
í rekstri fyrirtækja. Kannski
má líka segja, að þessi árang-
ur sé að nást, ekki þrátt fyrir
kreppuna, heldur vegna henn-
ar. Augljóst er, að stjórnendur
fyrirtækja hafa gert verulegt
átak í því að draga úr útgjöld-
um í rekstri og bæta stöðu
fyrirtækjanna á margvíslegan
hátt.
Nú í vikunni var frá því
skýrt, að eitt stærsta útgerð-
arfyrirtæki landsins, Grandi
hf., hefði skilað rúmlega 50
milljóna króna hagnaði fyrstu
6 mánuði ársins eftir að gjald-
fært hafði verið gengistap
upp á 154 milljónir króna.
Þetta er rekstrarárangur, sem
hlýtur að vekja mikla athygli,
ekki sízt vegna þess, að sjáv-
arútvegsfyrirtæki á í hlut. Að
vísu kemur ekki fram, hvort
búið er að reikna arðgreiðslur
af hlutafé, en jafnvel þótt
ekki væri búið að gera ráð
fyrir arðgreiðslum af hlutafé
Granda, sem er mikið, breytir
það ekki þeirri grundvallar-
staðreynd, að þetta stóra
sjávarútvegsfyrirtæki skilar
jákvæðri niðurstöðu á fyrra
árshelmingi.
Á sama tíma og því er hald-
ið fram, að sjávarútvegurinn
sé í rúst, fer ekki hjá því að
spurt verði, hver sé munurinn
á rekstri Granda og annarra
fyrirtækja í sjávarútvegi, sem
ganga ver. Augljóst er, að
ýmislegt stuðlar að þessari
afkomu Granda, m.a. áhrif
gengislækkunarinnar í nóv-
ember sl. en einnig mikill afli
á fyrra helmingi ársins og þá
m.a. úthafskarfaveiðar, sem
skip fyrirtækisins hafa stund-
að. Það verður óneitanlega
fróðlegt að sjá hver rekstrar-
afkoma annarra stórra sjáv-
arútvegsfyrirtækja hefur orð-
ið á fyrri hluta ársins. Tæp-
lega eru Grandamenn einir í
heiminum og árangur þeirra
í rekstri fyrirtækisins hlýtur
að vera vísbending um, hvað
hægt er að gera, þrátt fyrir
erfið rekstrarskilyrði.
Þótt Eimskipafélag íslands
hf. hafi verið rekið með smá-
vægilegu tapi á fyrstu sex
mánuðum ársins er augljóst,
að veruleg umskipti hafa orð-
ið í rekstri fyrirtækisins frá
síðasta ári. Gengistap félags-
ins var bókfært upp á rúm-
lega 200 milljónir króna.
Hefði það ekki komið til sög-
unnar hefði orðið umtalsverð-
ur hagnaður á rekstri fyrir-
tækisins. Eins og áður hefur
verið vikið að hér í blaðinu
er álitamál, hvort bókfæra á
gengistap í eitt skipti fyrir
öll eða skipta því á fleiri ár
miðað við árafjölda erlendra
skuldbindinga fyrirtækjanna.
Þetta á bæði við um Eimskip,
Granda og önnur fyrirtæki.
En hvað sem því álitamáli líð-
ur fer ekki á milli mála, að
þessi rekstrarárangur Eim-
skipafélagsins byggist bæði á
markvissri viðleitni til þess
að draga úr útgjöldum en
einnig auknum flutningum og
þá fyrst og fremst útflutningi.
í báðum þeim fyrirtækjum,
sem hér hafa verið nefnd,
hefur verið unnið skipulega
að hagræðingu og endur-
skipulagningu í rekstri. Það á
við um fjölmörg önnur fyrir-
tæki, sum þeirra birta reikn-
inga sína opinberlega, önnur
ekki. Sameiginlegur árangur
fjölmargra einkafyrirtækja í
atvinnulífinu að þessu leyti
styrkir innviði þjóðarbúsins
og afkomugrundvöll þjóðar-
innar allrar. Þess vegna eru
þetta ánægjuleg tíðindi og
vísb'ending um, að ekki er
allt neikvætt, sem er að ger-
ast í þjóðarbúskapnum.
Fleiri merki jákvæðrar þró-
unar má sjá í atvinnulífinu.
Mikil loðnuveiði skilar aukn-
um tekjum í þjóðarbúið og
styrkir stöðu þeirra sjávarút-
vegsfyrirtækja, sem stunda
veiðar og vinnslu á loðnu. í
sumum tilvikum geta loðnu-
veiðarnar valdið algerum
umskiptum í stöðu fyrirtækj-
anna, eins og hvað eftir annað
hefur gerzt á undanförnum
tveimur áratugum.
Þessi jákvæða þróun breyt-
ir þó ekki því, að þjóðarbú-
skapur okkar verður í kreppu
þar til þorskveiðarnar ná sér
á strik á nýjan leik. Þau sjáv-
arútvegsfyrirtæki, sem
byggja fyrst og fremst á
þorskveiðum, munu eiga við
mikla erfiðleika að etja og það
sama á við um byggðarlög,
sem hafa byggt afkomu sína
fyrst og fremst á þorskveið-
um, eins og t.d. sjávarplássin
á Vestfjörðum.
Veiðar íslendinga í Barentshafi
Átta togarar geta afl-
að nær 400 miUjona kr.
Fari fimmtán togarar gæti aflaverðmætið náð milljarði króna á hálfum mánuði
AFLAVERÐMÆTI þeirra átta
íslensku togara sem farnir eru
til veiða í Barentshafi, eða verið
er að undirbúa brottför á, gæti
samtals numið nær 400 milljónum
króna í hverri veiðiferð. Og fari
15 íslenskir togarar til veiða á
þessu hafsvæði eins og útlit er
fyrir, gæti aflaverðmæti þeirra
náð einum milljarði króna á hálf-
um mánuði. Er þá miðað við að
mikill afli fáist á stuttum tima
og það að mestu 3 kg þorskur
sem talinn er einn besti vinnslu-
fiskurinn.
Togararnir tveir frá Dóminík-
anska lýðveldinu, sem veitt hafa á
alþjóðlega svæðinu við Svalbarða,
og landað hérlendis, eru innan við
viku að fá fullfermi. Annar togar-
inn, Zaandam, hefur lagt upp hjá
Hraðfrystistöðinni á Þórshöfn. Jó-
hann Jónsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvarinnar segir að þeir
hafí landað um 100 tonnum eftir
hvem túr af 3 kg þorski og að afla-
brögðin hafi verið á bilinu 20 til 50
tonn á sólarhring þegar bræla hefur
ekki hamlað veiðum. Fyrir liggi að
þessir togarar tveir eru ekki eins
vel útbúnir að tækjum og veiðarfær-
um og íslensku skipin.
Um 40-70 miHjónir á skip
Jóhann Jónsson segir að áætla
megi að aflaverðmæti hvers íslensks
skips sem veiði á þessu svæði liggi
á bilinu 40 til 70 milljónir króna
eftir stærð þeirra og því hvort um
vinnsluskip er að ræða eða ekki.
Trausti Magnússon útgerðarmað-
ur togarans Otto Wathne á Seyðis-
firði segir að togarinn geti lestað
400 tonn af hausskomum og fryst-
um físki og að aflaverðmæti full-
fermis hjá honum sé því tæplega
40 milljónir króna.
Þorsteinn Már Baldvinsson fram-
kvæmdastjóri Samherja sem gerir
út Akureyrina segir að aflaverð-
mæti fullfermis hjá togaranum geti
numið rúmlega 70 milljónum króna
en togarinn er með fullkomna
vinnslulínu og vinnur flök um borð.
Aflaverðmætið sé þó afstætt eftir
því hvemig físk er verið að vinna
en sá þorskur sem fæst í Barents-
hafí segir Þorsteinn að sé ágætis
vinnslufískur fyrir togarann.
Miðað við aflabrögð Zaandam
má reikna með að íslensku skipin
nái fullfermi á innan við viku en
hinsvegar er fjögurra sólarhringa
stím á miðin þannig að hver veiði-
ferð tekur um hálfan mánuð að jafn-
aði. Og ef 15 íslenskir togarar fara
á þessi mið eins og nú er útlit fyrir
má með einföldum framreikningi
gefa sér að aflaverðmæti þeirra
nemi hátt í einn milljarð króna á
hálfum mánuði.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennalista
Stríðir gegn grund-
vallaratríðum í
stefnu sljómvalda
INGIBJORG Sólrún Gísladóttír, ein af þingkonum Kvennalistans,
segir að hún Iíti alvarlegum augum á veiðar íslenskra togara í
Barentshafi. Slíkt stríði gegn grundvallaratriðum í þeirri stefnu
stjórnvalda að stunda ábyrgar fiskveiðar og hætta sé á að orðstír
íslands á alþjóðavettvangi bíði hnekki.
„Þessar veiðar stríða gegn þeim
áformum íslendinga, og annarra,
að koma á samningum um nýtingu
stofna utan lögsögu strandríkja,“
segir Ingibjörg Sólrún. „í því sam-
bandi má minna á ræðu sem utan-
ríkisráðherra hélt á Alþingi í vetur
þar sem fram voru sett þau atriði
sem íslendingar leggja áherslu á í
samningum af þessu tagi.“ Meðal
þeirra atriði má nefna að koma á
kvótum með svæðisbundinni sam-
vinnu og tryggja rétt strandríkja
til markaðsstofna.
Ingibjörg Sólrún segir að veiðar
Islendinga í Barentshafi geti leitt
til þess að Norðmenn leggi fram
kæru á okkur fyrir sjóræningja-
veiðar. „Fari svo myndi orðstír ís-
lands á alþjóðavettvangi bíða
hnekki því áhrif okkar á þessum
vettvangi byggjast á siðferðilegum
nótum en ekki afli,“ segir Ingi-
björg.
Ekki bjart framundan
Hvað varðar það sjónarmið út-
gerðarmanna að þeir lepji dauðann
úr skel hér heima og sé því nauðug-
ur einn kostur að stunda þessar
veiðar, segir Ingibjörg, að vissulega
sé ekki bjart framundan í efna-
hagsmálum íslendinga. „Við meg-
um samt ekki hegða okkur eins og
eitthvert þriðja heims ríki og saga
niður greinina sem við sitjum á,“
segir hún.
Sjávarútvegsráðherra Norðmanna
Getur skaðað sam-
starf þjóðanna
Ósl6. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSK stjórnvöld útiloka að valdi verði beitt til að stöðva veiðar
erlendra togara í Barentshafi. Lögum samkvæmt getur norska strand-
gæslan ekki haft afskipti af veiðunum svo framarlega sem viðkom-
andi skip heldur sig utan norskrar lögsögu. Jan Henry T. Olsen, sjávar-
útvegsráðherra Noregs, ítrekaði í gær í samtali við norska dagblaðið
Aftenposten óánægju sína vegna fyrirhugaðara veiða islenskra fiski-
skipa í Barentshafi og kvað þær geta skaðað það ágæta samstarf sem
einkennt hefði samskipti Islendinga og Norðmanna á þessum vettvangi.
„Það er ekki unnt að líða það að
íslensk fískiskip skuli vera á leið í
Barentshafíð,“ sagði norski sjávarút-
vegsráðherrann og bætti við að
Norðmenn væntu þess að íslensk
stjórnvöld legðu sig fram um að
koma í veg fyrir veiðar á þessum
slóðum. „Finnist ekki lausn á þessu
máli óttast ég að það kunni að hafa
óæskileg áhrif á það góða samstarf
sem íslendingar og Norðmenn hafa
átt með sér á sviði sjávarútvegs í
gegnum árin,“ sagði ráðherrann.
Hann lét þess og getið að norsk
stjómvöld væm nú að vinna að því
fá íslendinga til að stöðva fyrirhug-
aðar veiðar með lagasetningu.
Norska strandgæsluskipið „Nom-
en“ er á miðunum í Barentshafi en
áhöfnin hefur fengið fyrirmæli um
að fylgjast með ferðum fískiskipa
og leggja mat á aflann. „Við munum
einungis láta til okkar taka ef nauð-
synlegt reynist að grípa til aðgerða
til að bjarga mannslífum," sagði tals-
maður strandgæslunnar, Káre
Fuglevik. Hann kvaðst áhyggjufullur
vegna frétta um að íslensk fískiskip
hygðust hefja veiðar í Barentshafi.
„Við óttumst að skapast muni ástand
þar sem öll lög verði hundsuð," sagði
hann.
Norsku umhverfisverndarsamtök-
in Bellona hafa að undanförnu hótað
því að senda skip sitt Genius í
„Smuguna" svonefndu í Barentshafi
til að koma í veg fyrir það sem Norð-
menn nefna „sjóræningaveiðar" út-
lendinga. Hugmyndin var sú að
koma fyrir búnaði um borð í Genius
til að klippa á togvíra erlendra fiski-
skipa en í gær sagði talsmaður sam-
takanna að hætt hefði verið þau
áform. Sagði sá hinn sami forráða-
menn Bellona óttast að togararnir
myndu sigla á skip samtakanna.
Yfirlýsing frá sex verkalýðsfélögum
Stjómvöld vömð við
því að banna veiðar
VERKALÝÐSFÉLÖG í sex bæjarfélögum hafa lýst yfir eindregn-
um stuðningi við fiskvinnslustöðvar vegna kaupa á fiski af togur-
um sem veiða á alþjóðlegum veiðisvæðum og vara stjórnvöld við
að grípa inn í landanir og veiðar íslenskra togara.
1 sameiginlegri yfírlýsingu frá
verkalýðsfélögunum á Húsavík,
Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafirði,
Eskifirði og Stöðvarfirði segir:
„Aflasamdráttur og niðurskurður
A
Halldór Asgrímsson segir veiðar ekki stöðvaðar nema með lögum
Eðlilegt að Islendingar
fari fram á heimildir
HALLDÓR Ásgrímsson þingmaður og fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra segir eðlilegt að Islendingar fari fram á veiðiheimildir
í Barentshafi. Hann telur íslensk sljómvöld ekki getað stöðvað
veiðar íslenskra togara á svæðinu nema með með setningu laga
á Alþingi.
„Lögin frá 1976 [um veiðar ís-
lenskra skipa utan fiskveiðiland-
helgi íslands] fela í sér að við getum
stöðvað veiðarnar á grundvelli al-
þjóðlegra samninga og á grundvelli
samninga milli ríkjanna. Að mínu
mati er það þó ekki ótvírætt að það
ríki alþjóðlegur samningur í sam-
bandi við Barentshafið og það er
enginn samningur á milli okkar,
Norðmanna og Rússa. Ég tel því
að sjávarútvegsráðherra hafí ekki
ótvíræða heimild til að grípa þama
inn í. Ef það hefði átt að beita þess-
ari heimild hefði átt að gera það
strax í síðustu viku áður en skipin
fóru af stað. Nú eru þau farin og
þar af leiðandi er orðið of seint að
mínu mati að grípa inn í,“ sagði
Halldór.
Norðmenn sýni skilning
Hann sagði Ijóst að í uppsiglingu
væru harðar deilur milli þjóðanna
en þær ætti að leysa með samning-
um. „Norðmenn geta ekki ætlast
til þess að við stöðvum skip nema
við höfum skýrar lagaheimildir til
þess. Það er málefni Alþingis að
afla þeirra lagaheimilda og slík lög-
gjöf getur ekki tekið gildi fyrr en
eftir að Alþingi kemur saman. Það
er fráleitt að gefa út bráðabirgða-
löggjöf um þetta mál. Ég tel það
ekki samrýmast anda stjórnarskrár-
innar eftir þær breytingar sem gerð-
ar voru á henni. Ég minni einnig á
að nýlega voru gefín út lög sem
gera ráð fyrir mun meira frjálsræði
í sambandi við landanir erlendra
skipa.“
Halldór sagði að einnig væri unnt
að ganga strax til samninga um
þetta mál við Norðmenn og Rússa
og ef menn vilja stöðva skipin í
framhaldi af þeim samningum væru
lagaheimildir til þess. „Ég tel það
mjög eðlilegt að við forum fram á
það að fá fískveiðiheimildir á þessu
svæði. Hér er afar erfitt ástand og
lítið um físk og við höfum veitt
Norðmönnum hér áður fyrr veiði-
heimildir í okkar lögsögu án þess
að fá neitt frá þeim. Mér fínnst
eðlilegt að við vitnum til þess og
óskum eftir að íslendingum sé sýnd-
ur skilningur í þessu ástandi."
fiskveiðiheimilda að undanfömu hef-
ur valdið miklum erfíðleikum og at-
vinnuleysi í sjávarplássum landsins.
Hráefniskaup af togurum sem
stundað hafa veiðar á alþjóðlegu
hafsvæði í Barentshafi hafa því ver-
ið kærkomin búbót á þessum erfiðu
tímum. Ef framhald verður á þessum
viðskiptum gæti það komið í veg
fyrir lokun fískvinnslustöðva víða á
Norður- og Austurlandi sem ella
þyrftu að loka vegna hráefnisskorts.
Afleiðing slíkra lokana er fjöldaat-
vinnuleysi á þessum stöðum. Af-
koma verkafólks og fískvinnslu-
stöðva er því í húfi.
Sjómannasambandið gagnrýnt
Verkalýðsfélögin harma yfírlýs-
ingar formanns Sjómannasambands
íslands í fjölmiðlum síðustu daga um
landanir þessara erlendu togara.
Slíkar yfiriýsingar taka hvorki mið .
af hagsmunum íslenskra sjómanna
né verkafólks. Jafnframt vara félögin
stjómvöld alvariega við að grípa inn
í landanir og veiðar íslenskra togara
á þessu alþjóðlega hafsvæði með
lagasetningu. Því verði ekki trúað
að íslensk stjómvöld grípi til slíkra
aðgerða á sama tíma og fjöldi er-
lendra togara er á veiðum víðsvegar
rétt fyrir utan tvöhundmð mflna físk-
veiðilögsögu íslands, þar með taldir
togarar frá Noregi. Verkalýðsfélögin
á Norður- og Austuriandi lýsa fullri
ábyrgð á hendur stjórnvöldum ef
veiðar íslensku og erlendu togaranna
verða stöðvaðar á sama tíma og kvót-
ar íslenskra fiskiskipa hafa verið
stórlega skomir niður og ekkert ann-
að en íjöldaatvinnuleysi blasir við í
fiskveiðiplássum landsins.“
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra um álit utanríkisráðuneytisins
Ekki lagaheimildir
til að banna veiðamar
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ telur að ekki séu fyrir hendi lagaheim-
ildir til að banna veiðar íslenskra skipa á alþjóðlega hafsvæðinu
utan við fiskveiðilögsögu Norðmanna í Barentshafi. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra hafnar því að með veiðunum séu
íslendingar að gerast brotlegir að þjóðarrétti eða að fjandskapast
við Norðmenn. Hann segir að íslensk stjórnvöld geti ekki brotið lög
á þegnum sínum með því að banna þeim þessar veiðar en þau
myndu hins vegar taka vel óskum Norðmanna um pólitískar viðræð-
ur ef þeir óskuðu þess enda hefðu íslendingar margt að ræða við þá.
„Það er skýr þjóðréttarregla að
veiðar utan lögsögu ríkja á úthafínu
A
Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins
Hæpið að grípa inn með banni
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagðist
sammála því markmiði að koma
ætti alþjóðlegri stjómun á úthafs-
veiðar. „Ég held að slíkt þjóni hags-
munum íslendinga. Hins vegar er
ég ekki sannfærður um að það sé
rétt afstaða hjá Þorsteini Pálssyni
að við eigum einhliða að taka slíka
ákvörðun, án þess að Norðmenn
lýsi sig reiðubúna til að gera allt
hið sama varðandi veiðar norskra
skipa, til dæmis á rækju og öðrum
stofnum. Mér fínnst það þess vegna
hæpið hjá ríkisstjórninni að grípa
inn í með banni á þessar veiðar án
þess að fyrir liggi yfirlýsing norsku
stjórnarinnar um að hún vilji grípa
til sams konar aðgerða gagnvart
norska flotanum," sagði Olafur
Ragnar.
Hann sagði að það gæti verið
flókið að koma á alþjóðlegri skipan,
en í því yrði að vera réttlæti. „Það
er ekki réttlátt að banna íslenzkum
skipum veiðar af þessu tagi á sama
tíma og norsk skip og önnur skip
komast upp með þær,“ sagði Ólafur
Ragnar. Hann sagði að málið hefði
ekki verið rætt innan Alþýðubanda-
lagsins, en það yrði gert á næstu
dögum.
eru öllum fijálsar. Þetta er grund-
vallarregla og staðfest í hafréttar-
sáttmálanum,“ sagði Jón Baldvin.
„Reglan er ekki óskilyrt. Ríkjum er
rétt að leita samvinnu við önnur ríki
um aðgerðir sem nauðsynlegar
kunna að vera til verndar hinum líf-
rænu auðlindum hafsins. Jafnframt
segir að ríki skuli starfa hvert með
öðru að verndun og stjómun líf-
rænna auðlinda á úthafssvæðum.
Þessi útfærsla á fyrst og fremst við
þau ríki sem hafa staðfest hann.
Norðmenn eru því miður ekki aðilar
að hafréttarsáttmálanum og eiga
því erfitt með að vísa til hans.
í annan stað er vandséð hvernig
unnt er að beita þessum ákvæðum
sem snúast um vernd fiskistofna.
Fiskistofnar í Barentshafi eru í mikl-
um uppgangi og fiskifræðilega
vandséð að þar séu fiskistofnar í
útrýmingarhættu. Því em ekki mikl-
ar líkur á því að einhveijar veiðar
íslendinga myndu breyta neinu um
ástand og framgang fískistofna.
Þetta er svar við fullyrðum tals-
manns norska utanríkisráðuneytis-
ins að íslendingar séu brotlegir að
þjóðarrétti. Það er einfaldlega ekki
rétt að okkar mati,“ sagði utanríkis-
ráðherra.
Lagaheimildir skortir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur talið sig hafa laga-
heimildir til að banna veiðar íslensku
skipanna í Barentshafi. Jón Baldvin
sagði að um það væru eitthvað skipt-
ar skoðanir hvort sjávarútvegsráð-
herra væri heimilt að banna veiðar
íslenskra skipa á alþjóðlegu haf-
svæði á grundvelli laga frá árinu
1976 um veiðar íslenskra skipa utan
fískveiðilögsögu íslands. „En það er
mat utanríkisráðuneytisins og fleiri
aðila í stjórnkerfínu að til þess skorti
lagaheimildir, af þeirri einföldu
ástæðu að til þess þurfi að vera fyr-
ir hendi alþjóðasamningar eða tví-
hliða samningar sem takmarka eða
banna veiðar á þessu tiltekna alþjóð-
lega svæði.
Það er því misskilningur að það
sé unnt að gagnrýna sjávarútvegs-
ráðherra fyrir aðgerðarleysi. Ef
hann skorti lagaheimildir gat hann
ekkert aðhafst að óbreyttu,“ sagði
utanríkisráðherra.
Tilbúnir í pólitískar viðræður
Jón Baldvin vildi einnig vísa á bug
fullyrðingu lögfræðings LÍÚ að hann
væri að leika einhveija hetju eða
fjandskapast við Norðmenn.
„Ég legg áherslu á að það er
engin ástæða fyrir íslendinga að
fara fram með fjandskap gegn Norð-
mönnum. Samstarf við þá hefur
verið óvenju gott á undanfömum
árum, samanber samkomulag okkar
um skiptingu loðnustofnsins og sam-
starf um gerð EES-samninganna...
Þvert á móti er ég reiðubúinn að
ræða þessi mál við þá af sanngirni
en ég vek athygli á að við getum
ekki brotið lög á okkar eigin þegnum
að beiðni þeirra.
Málið er þess vegna í höndum
Norðmanna sjálfra. Ef þeirviljaóska
eftir pólitískum viðræðum við okkur
verður því vel tekið enda höfum við
margt við þá að ræða,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.
+