Morgunblaðið - 14.08.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
Eflum SUS
Norræn ráðstefna landslagsarkitekta
Alagablettir í ís-
lenskum arkitekt-
úr vekja athygli
Laugurvatni.
FÉLAG íslenskra arkitekta hélt, dagana 5.-7. ágúst 24. norrænu
ráðstefnu landslagsarkitekta á Laugarvatni. Þetta er í fyrsta sinn
sem slík ráðstefna er haldin á Islandi en 15 ár eru nú liðin frá stofn-
un félagsins. Yfirskrift ráðstefnunnar var „natur-kultur" eða lands-
lag og saga og var fjöldi fyrirlestra fluttur um þetta efni. Athygli
vakti að íslenskir landslagsarkitektar taka tillit til álagabletta við
skipulagsgerð sína en slíkt þekktist ekki á hinum Norðurlöndunum.
eftir Má Másson
Sá gustur sem nú blæs um starf
ungra sjálfstæðismanna í fjölmiðlum
setur svartan blett á Sámbandsþing
ungra sjálfstæðismanna sem fer fram
pú um helgina.
Á þinginu mun ungt sjálfstæðisfólk
ganga til kosninga og velja sér for-
ystusveit til næstu tveggja ára.
Stuðningsmenn frambjóðendanna
tveggja, þeirra Jónasar Fr. Jónssonar
og Guðlaugs Þ. Þórðarsonar, hafa
síðustu daga skipst á skeytum í fjöl-
miðlum. Svo virðist sem fjölmiðafár
það sem að þyrlað var upp fyrir um
viku með grófum ásökunum og árás-
um hafi kæft alla málefnalega um-
ræðu um frambjóðenduma tvo.
Stuðningsmenn Guðlaugs hafa hing-
að til gert lítið af því að fjalla á
málefnalegan hátt um framboð síns
manns og þær stefnur og áherslur
sem hann leggur til grundvallar.
Miklu frekar hafa þeir blásið upp inn-
anflokksátök og sviðsett kostulegan
skollaleik og þannig reynt að gera
framboð Jónasar Fr. tortryggilegt í
augum þingfulltrúa. Á þennan hátt
hafa þeir forðast samanburð á fram-
bjóðendunum tveimur og flúið mál-
efnalégar umræður.
Slík vinnubrögð eru félagsmönnum
SUS og í raun Sjálfstæðismönnum
'öllum mikið áhyggjuefni og lítt til
þess fallið að styrkja stöðu flokksins.
Breyttar áherslur
Breiðfylkingu eins og Sambandi
ungra sjálfstæðismanna getur beðið
„Til þess að það megi
gerast þurfa ungir sjálf-
stæðismenn að velja sér
sterkan forystumann
sem nýtur trausts... þess
vegna styð ég Jónas Fr.
Jónsson.“
stórkostleg tækifæri til þess að verða
leiðandi afl í íslenskri stjómmálaum-
ræðu ef að rétt er á málum haldið.
Fjöldahreyfing sem telur um átta
þúsund félagsmenn býr yfir miklu
afli og möguleikum til þess að láta
til sín taka hvar sem er í þjóðfélaginu.
En til þess að það megi gerast
þarf breytingar til.
Hugmyndir Jónasar Fr. Jónssonar
um nýjar og breyttar áherslur í starfí
SUS eru einmitt til þess fallnar að
endurvekja fyrri styrk hreyfingarinn-
ar. Jónas leggur áherslu á að stjómar-
fundir SUS verði reglulega haldnir
úti á landi. Með því munu tengsl
hreyfingarinnar við landsbyggðina
eflast gífurlega. Auk þessa leggur
Jónas ríka áherslu á að haldnir verði
samráðsfundir með formönnum og
stjómum þeirra 38 félaga víðsvegar
um landið sem mjmda SUS. SUS á
að vera opin hreyfing, það sækir afl
sitt til almennra félagsmanna, án
þerra er SUS-skammstöfunin tóm.
Það er þess vegna sem Jónas Fr.
telur nauðsynlegt að opna stjómar-
fundi SUS fyrir félagsmenn.
Stutt er nú í tvennar kosningar,
þ.e. bæjar og sveitarstjómakosningar
Már Másson
og kosningar til Alþingis. Þá mun
mæða mjög á forystu SUS í erfíðri
kosningabaráttu. Þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn siglir í kröppum sjó í óvin-
sælu stjómarsamstarfí, veitir forystu
flokksins ekki af sterkri og öflugri
framvarðasveit ungs fólks. Ekki að-
eins til þess að styðja hann og styrkja
heldur til þess að leiðbiena honum
og veita aðhald.
Til þess að það megi gerast þurfa
ungir sjálfstæðismenn að velja sér
sterkan forystumann sem nýtur
trausts bæði meðal ungs fólks og úti
í atvinnulífinu, framkvæmdamann
sem hefur víðtæka reynslu af félags-
málum og lætur verkin tala, mann
sem nær árangri. Þess vegna styð
ég Jónas Fr. Jónsson.
Höfundur er formaður Hugins,
Félags ungra sjálfstæðismanna, í
Garðabæ.
Undirbúningur fyrir ráðstefnuna
stóð í 4 ár. Þátttaka var mjög góð
að sögn Odds Hermannssonar eins
af skipuleggjendum eða 7% af öll-
um landslagsarkitektum á Norður-
löndum utan Finnlands, alls yflr
hundrað manns.
í fyrirlestrum sem haldnir vora
var flallað um samspil landsins
og sögu þjóðarinnar frá sem flest-
um sviðum, komið var inn á þjóðtr-
úna, garðsöguna, sérkennin, notk-
un tijágróðurs, mismunandi
skipulagsáætlanir og einstök
hönnunarverkefni. Að auki var
flallað um landnýtingu og skipulag
á nokkram viðkvæmustu stöðum
landsins.
Ráðstefnugestir fóra í nokkrar
skoðunarferðir sem þóttu tilkomu-
miklar, gafst þar gott tækifæri til
að kynnast náttúrafari og mann-
virkjagerð í íslensku landslagi. Er-
lendu gestunum þótti náttúran
yfirgnæfandi hvert sem litið var
og mótandi í starfí arkitektanna.
Til dæmis áttu þeir því ekki að
venjast að sjá hvemig mannvirki
urðu að laga sig að álfaborgum
og álagablettum í landslaginu.
Hópurinn var einnig viðstaddur
opnun sýningar á þekktum skrúð-
görðum í Reykjavík sem haldin er
í Geysishúsinu í Reykjavík það sem
eftir lifír sumars.
Gestafyrirlesari á ráðstefnunni
var Per Stahleshmidt lektor í lands-
lagsarkitektúr við landbúnaðarhá-
skólann í Kaupmannahöfn.
Ráðstefnan var mikil lyftistöng
fyrir íslenska landslagsarkitekta
sem þarna gafst. í fyrsta skipti
tækifæri til að taka saman og
kynna stöðu sína og aðstæður fyr-
ir erlendum starfsbræðrum sínum
og fyrrverandi kennuram sínum
við háskólana á Norðurlöndum.
- Kári.
RAÐAUGi YSINGAR
„Au pair“
óskast til Þýskalands í lok september til að
gæta tveggja stúlkna í eitt ár.
Upplýsingar í síma 96-22198 eftir kl. 20.00.
Skipstjóri/stýrimaður
Starfskraftur óskast til framtíðarstarfa.
Um er að ræða starf í landi er hentar fyrir
þá, sem reynslu hafa af skipsstjórn. Góð
laun er í boði fyrir starfskraft sem hefur
þann bakgrunn sem hentar starfi þessu.
Upplýsingum um fyrri störf og önnur atriði
sem skipta máli skal skila til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 20. ágúst, merktum: „HJ - 10937“.
Verkfræðingur
Verkfræðingur óskast til framtíðarstarfa hjá
verktakafyrirtæki. Aðeins starfskraftur með
3-4 ára reynslu á framkvæmdasviði kemur
til greina. Fullum trúnaði heitið um öll þau
gögn sem látin eru í té.
Upplýsingum um fyrir störf og önnur atriði
sem skipta máli skal skila til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 21. ágúst, merktum: „HV - 10938“.
íslenska Álfélagið hf.
óskar að taka á leigu 2ja herbergja íbúð með
húsgögnum. íbúðin er fyrir erlendan starfs-
mann fyrirtækisins og er leigutími frá og með
5. september til 17. desember 1993.
Æskileg staðsetning er miðbær Reykjavíkur,
en aðrir staðir á höfuðborgarsvæðinu koma
til greina.
Tilboð, merkt: „ISAL", óskast send auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 18. ágúst nk.
Stórt íbúðarhúsnæði
óskast á leigu í Reykjavík, helst í miðbæ eða
vesturbæ, frá 1. október nk.
Vinsamlegast hafið samband í síma 621797
eða 613950.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Laust lyfsöluleyfi,
sem forseti íslands veitir
Laust er til umsóknar lyfsöluleyfi í Kópavogi
(Kópavogs Apótek). Fráfarandi lyfsali gerir
kröfu til þess, í samræmi við 11. gr. laga nr.
76/1982 um lyfjadreifingu, að viðtakandi lyf-
söluleyfishafi kaupi allan búnað apóteksins
og innréttingar þess. Ennfremur kaupi við-
takandi leyfishafi fasteign apóteksins, en hún
er kjallari og jarðhæð austurhluta byggingar-
innar nr. 11, Hamraborg, þar sem apótekið
er til húsa og meðfylgjandi sameign.
Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og
með 1. janúar 1994.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
lyfjafræðimenntun og lyfjafræðistörf, sendist
ráðuneytinu fyrir 15. september nk.
Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytið,
12. ágúst 1993.
Uppboð
Framhald uppboðs ð eftirtöldum fasteignum verður háð ð þeim
sjðlfum á neðangreindum tima miðvikudaginn 18. ágúst 1993:
Holtabrún 12, Bolungarvfk. Þinglýst eign Jóns V. Hálfdánarsonar,
eftir kröfu Húsnæðisstofnunar ríkisins, Lögsýnar hf. og Lögmanna
Höfðabakka. Kl. 14.00.
Skólastígur 10, Bolungarvík. Þinglýst eign Jóns Péturssonar, eftir
kröfu Lögsýnar hf. Kl. 14.15.
Hreggnasi, norðurendi, efri hæð, Bolungarvík. Þinglýst eign Guð-
bjarts Kristjánssonar, eftir kröfu Húsnæðisstofnunar ríkisins og
Sparisjóðs Bolungarvíkur. Kl. 14.30.
Sýslumaðurihn í Bolungarvík,
13. ágúst 1993.
Dans - dans
16 ára stúlku, með mikinn áhuga á dansi,
vantar dansherra.
Hefur dansað í mörg ár og keppt.
Upplýsingar í síma 45134.
SlttCi auglýsmgctr
§
L, Nýja
I postulakirkjan,
I/, islandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavík
Guðsþjónusta sunnudag, 15.
ágúst, kl. 11.00. Dieter Ceh
prestur messar.
Hópur frá N.P.K. í Bremen í
heimsókn.
Ritningarorð: ..þar sem andi
Drottins er, þar er frelsi."
(2. Kor. 3.17).
Verið velkomln í hús Drottlnsl
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 20.00.
Ræöumaður G. Theodór Birgis-
son.
Miðvikudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Dagsferftir sunnudaginn
15. ágúst
Kl. 08 Dagsferð til Þórsmerkur
- verð kr. 2.500.
Ath.: Hagstætt verð á dvöl í
Þórsmörk mllll ferða.
Kl. 10.30 Innstidalur-Svínahlíð
- Klambragil.
Gengið upp Sleggjubeinsskarð
og sem leið liggur um Innsta-
dal, Miðdal og Frestadal, Svína-
hlíð í Klambragil. Verð kr. 1.100.
Kl. 13 Grændalur- Reykjadalur.
Ekið í Reykjadal og gengið um
Grændal (vestur af Hveragerði).
Verð kr. 1.100.
Ferðafélag Islands.
UTIVIST
Hallvoigarstig 1 • simi 614330
Dagsferðir sun. 15. ágúst
Þingvailggangan 1. áfangi
A) Leggjabrjótur kl. 10.30.
Gengið úr Botnsdal á Bothsheiði
og um Leggjabrjót að Langastíg
í Almannagjá.
Verð kr. 1500/1700.
B) Stiflisdalur - Langistígur kl.
13.00. Gengið veröur frá Stíflis-
dal á Kjósarheiði og gömlu leið-
inni fylgt um Brúsastaði að
Langastíg. Verð kr. 1200/1300.
Brottför i ferðirnar frá BSÍ bens-
ínsölu, miöar við rútu. Frítt fyrir
börn 15 ára og yngri I fylgd með
fullorönum.
Ársrit Útivistar 1993 er
komið út.
Útivist.