Morgunblaðið - 14.08.1993, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
félk f
fréttum
BRESTIR
Brúður Drakúlu í skilnaði
Leikkonan unga, Winona Ryder,
sem hefur vakið töluverða at-
hygli í seinni tíð, ekki síst í stórhlut-
verki í stórmyndinni „Drakúla",
hefur sagt skilið við sambýlismann
sinn til þó nokkurra ára. Sá heitir
Johnny Depp og var lengi vel talinn
mikið leikaraefni, en lítið hefur
heyrst frá honum í seinni tíð. Alla
tíð hafa þau verið svo til óaðskiljan-
leg.
Nýr maður í lífí leikkonunnar
ungu er heldur sjúskaður þunga-
rokkssöngvari að nafni David Pim-
er. Sá þenur raddböndin með hljóm-
sveitinni „Soul Asylum" og herma
fregnir að hann hafi sagt skilið við
sambýliskonu sína til ellefu ára til
þess að taka saman við ungfrú
Ryder.
Winona Ryder og
rokkarinn David
Pimer.
Nú er 65 milljóna ára bið á enda.
Vinsælasta mynd allra tíma.
STEHEN 8PIELBERG iynd
....^
HASÍCÓLABIO
SAMmíúm sAMmiém
B í Ó B 0 R G I N
B í Ó H Ö L L I N
Sýnd kl. 2.30,5/7,9 og) 1.30. Sýndkl. 1.30,4,6.30,9 og 11.30. Sýnd kl. 2.30,5,7,9 og 11.30.
Bönnuð börnum innan 10 ára en getur valdið ótta hjá börnum upp að 12 ára aldri.
Wyman, eiginkonan Suzanne t.h. og Gina Lollobrigida.
MATUR
Fjögnrra ára afmæli
ótt Bill Wyman sé kominn á
„eftirlaun" í rokkbransanum,
þ.e.a.s. hættur bassaplokki hjá Roll-
ing Stones, þýðir það engan veginn
að hann sé sestur í helgan stein.
Hann lét til að mynda ekki langa
stund líða frá því að hann skildi við
stúlkuna Mandy Smith uns hann
giftist stórglæsilegu fyrrum módeli
að nafni Suzanne. Fyrir fjórum
árum opnaði hann veitingastað í
vesturhluta Lundúna og nafnið er
sannarlega kunnuglegt, „Sticky
Fingérs" sem er auðvitað skírskot-
un til einnar af frægustu breiðskíf-
um Stones.
Fyrir skömmu átti veitingastað-
urinn fjögurra ára afmæli og þykir
hafa plumað sig betur en reiknað
var með. Wyman selur einkum það
sem Bandaríkjamenn kalla ,junk
food“ sem hefur verið útlagt sem
skítafæði á íslensku, þ.e.a.s. ham-
borgarar, franskar, kjúklingabitar
og svoleiðis. í fyrstu þóttu gæði
skítafæðisins ekki upp á marga
fiska og flaut staðurinn þá út á
nafnið og eigandann. í seinni tíð
hefur veitingastaðurinn hins vegar
fengið glimrandi dóma í blöðum og
pésum. Það var fjölmenni á fjög-
urra ára afmæli „Sticky Fingers"
og meðal gesta var ítalska leikkon-
an og kynbomban klassíska Gina
Lollobrigida.
VAXMYND
Skiptar skoðanir
Rokkarinn Jon Bon Jovi upplifði
það á dögunum, að „Rock
Circus", vaxmyndasafn sem sér-
hæfir sig í popp- og rokkstjörnum,
afhjúpaði vaxmynd af sér við hátíð-
lega athöfn. Að sjálfsögðu var Bon
Jovi sjálfum boðið ásamt nánustu
ættingjum og vinum.
Kappinn var agndofa andspænis
sjálfum sér og sagði með ólíkindum
hversu vel listamönnunum hefði
tekist upp. „Þeir eru meira að segja
með freknurnar allar á réttum stað
og best gæti ég trúað að hárin
undir handleggjunum séu rétt að
tölu. En það er kannski ekki svo
undarlegt þegar að er gáð, að ég
var í nærri þriggja klukkustunda
mælingum hjá þeim,“ segir Bon
Jovi. Hann gat þess einnig, að
menn væru ekki á eitt sáttir, tvær
vinkonur hans teldu rassinn á vax-
myndinni „of siginn" og móðir hans
og eiginkona teldu vaxmyndina af
sér vera helmingsblöndu á milli tor-
tímandans og líks! Hvor er hvor?
H9LL9WQ
D\SfQ
D\SúQ
D\SÚO
DISKÓTEKARAR
ALLI BERGÁS - GÍSLI SVEINN HOLLYWOOD/SIGTÚN
RIFJA UPP GAMLAR RISPUR
IíOTEIj (gJiAND
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR I S: 687111