Morgunblaðið - 14.08.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
,Éú gct ekJci talié þaðaUtupp senv
haegí eraS segja um þennayt- þiL / "
*
Ast er...
C>
meint að koma fyrr eða síðar
TM Reg. U.S Pat Off.—all rlflhts roserved
• 1992 Los Angelos Tlmes Syndicate
Mamma vildi endiiega að ég
giftist lækni, en ég sá fljót-
iega að það væri miklu auð-
veldara að fara sjálf í lækn-
isfræði
Ég get reynt, en ég hef aldr-
ei áður gert við tölvu
HÖGNI IIREKKVfSI
„þó kl'opar. bX 06 éúi rrota p'a nupur’ “
BRÉF HL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Greiðabílamálið og
sannleiksástin
Frá Sigfúsi Bjarnasyni:
Hinn 27. júlí síðastliðinn átti sá
atburður sér stað að lögregla stöðv-
aði greiðabílstjóra í þann mund er
hann ætlaði að fara að aka fjórum
erlendum ljósmyndurum að Gull-
fossi og Geysi.
Um þetta mál hefur verið nokkuð
fjallað í fjölmiðlum og er sú umfjöll-
'un því miður dæmigerð fyrir um-
íjöllun um greiðabílamálið yfirleitt.
Eg vil gera þetta að umræðuefni
hér.
Um langt árabil hefur verið deilt
um verkaskiptingu á milli sendi- og
leigubíla. í sumum tilfellum er það
umdeilanlegt hvað teljast vöruflutn-
ingar og hvað teljast fólksflutning-
ar. Einnig hafa leigubílstjórar í
gegnum tíðina sinnt ákveðnum teg-
undum vöruflutninga, t.d. matar-
sendingum og smásendingum ýmiss
konar. En árið 1989 voru sett ný
lög um leigubifreiðar og reglugerðir
bæði um sendi- og leigubíla. Þá var
tekið á þessum málum og skilgreint
hvemig þessi verkaskipting ætti að
vera. Leigubílstjórar urðu að fóma
miklu við þessar breytingar. Þeir
mega t.d. ekki fara með matarsend-
ingar og aðeins flytja skjöl, bréf,
HEILRÆÐI
Forðist
spjöll á
jarðargróðri.
Farið
varlega með
eld.
Gangið vel
um landið.
KOMUM HEIL HEIM
Víkverji skrifar
Nýlega rak á fjörur Víkverja
„Afsláttarbækling Hafnar-
fjarðar og Garðabæjar“, sem í sjálfu
sér er kannski ekki ástæða til þess
að finna að, ef ekki væri fyrir frá-
ganginn á honum, sem er vægast
sagt hroðvirknislega unninn. í
fyrsta lagi segir að „20 fyritæki“
standi að útgáfu hans og að þau
hafi ákveðið að bjóða upp á afslátt
í einn mánuð gegn framvísun „A-
kortsins“. Síðan segir: „Þú rífur
kortið úr bælingnum og framvísar
því hjá viðkomandi fyrirtækjum".
„Grafísk hönnun“ auglýsir í
bæklingnum „Nýtt stílbragð", sem
skili sér í betri árangri. Ekki veit
Víkveiji, hvort það er þessi sami
aðili, sem stendur að gerð afslátt-
arbæklingsins, en alla vega er stíl-
bragðið á enskum texta í auglýs-
ingu frá Kænunni mjög sérstætt,
én hann er svohljóðandi: „The
restaurant- and coffeehouse Kænan
is lokalised nearby the small boat
harbour in Hafnarfjörður, just 10
km. from the center of Reykjavík.
Bus nr. 140 leaving Lækjargata or
Hlemmur to Hafnarfjörður every
20 minutes. Our fish-market is open
Sundays from 11 to 16. There you
kan f.eks buy fresh fish, seabird
eggs, shark, kakes, bread, vegeta-
bles and flowers at very good price.
Live físhermen’s music. You are
always most welcomen both to the
market and to see, by your own
eyes a usual working day at the
small boat harbourin Hafnarfjörður
next door to Reykjavík. “
Það skal tekið fram að letur-
breytingar í þessum enska texta eru
Víkverja. Þessi texti minnir dálítið
á þá frægu spurningu „Hot spring
river this book?“, sem gamansamir
gárungar settu saman sem þýðingu
á setningunni „Hver á þessa bók?“
xxx
En það getur fleirum orðið á,
því að Víkveiji rakst á auglýs-
ingu frá Café Romance á ensku í
bæklingi, sem heitir „Around
Reykjavík“ og dreift hefur verið inn
á öll heimili í höfuðborginni. Þar
segir í texta um leið og andrúminu
á þessum veitingastað er lýst stór-
um stöfum: „Wher romance is in
the air“. Já, prófarkalesturinn er
stundum afleitur.
xxx
orri landsmanna fær laun sín
greidd um mánaðamót og því
haga menn því gjarnan svo til að
þær fjárhagsskuldbindingar, sem
menn gangast undir, gjaldfalli um
eða rétt eftir mánaðamót. Það er
því segin saga, að mánaðamót eru
mikill annatími í bönkum.
Víkveiji er viðskiptavinur Háa-
leitisútibús Landsbanka íslands og
þarf að jafnaði að fara í það útibú
einu sinni í mánuði. Til þess notar
hann hádegið og þá er jafnan ör-
tröð viðskiptavina í bankanum, sem
allir bíða eftir afgreiðslu. Rétt eftir
síðustu mánaðamót var Víkveiji
þessara erinda í Háaleitisútibúi og
blómasendingar og neyðarsendingar
fyrir sjúkrahús. Sendibílstjórar
mega hins vegar aðeins flytja
fylgdarmenn þeirrar vöru sem þeir
flytja.
Þó ekki séu allir sáttir við þessa
skilgreiningu hafa menn tekið þessu
vel. Það hefur almennt ríkt friður á
milli sendi- og leigubílstjóra. Þó er
á því sú undantekning að ein sendi-
bílastöð hér í bæ stundar ólöglega
fólksflutninga í stórum stíl. Margir
bílar á þeirri stöð eru skráðir fólks-
bflar og henta ekki til vöruflutninga
og eru ekki löglegir í því skyni,
samkvæmt reglugerð samgöngu-
ráðuneytis. Við leigubílstjórar erum
mjög óánægðir með að lögregla,
stöðvi ekki þessa ólöglegu starfsemi.
Samkvæmt reglugerð um sendi-
bíla er óheimilt að nota fólksbíl í
sendibflaaksturinn. Fyrir þetta
kærði undirritaður greiðabflstjóra
að morgni 27. júlí síðastliðins. Þá
hafði hann áður í tvígang ekið ljós-
myndurum frá sama farþegaskipi á
Gullfoss og Geysir og var mættur
þar í þriðja skipti. Við nokkrir leigu-
bflstjórar tókum þessa ljósmyndara
tali og sögðust þeir vera vinir
greiðabílstjórans og að hann æki
þeim ókeypis í þessa ferð. Við töld-
um augljóst að það væri ekki sann-
leikanum samkvæmt.
Ég hringdi á lögreglu því ég vissi
að þessi bfll var skráður sem fólks-
bfll og kærði bílstjórann fyrir að
nota fólksbíl í sendibílaakstri, sem
er ekki í samræmi við reglugerð um
sendibifreiðar. Lögregla kom á stað-
inn og boðaði viðkomandi greiðabíl-
stjóra niður á stöð í skýrslutöku.
Ljósmyndaramir hins vegar tóku
sitt dót og gengu að leigubfl sem
þar var skammt frá í röð við skipið
og hann ók á brott. Það sem ljós-
myndaramir höfðu meðferðis voru
nákvæmlega tvær myndavélar, ein
nett myndbandsupptökuvél, þijár
litlar myndavélatöskur og einn sam-
anbrotinn þrífótur.
í hádegisfréttum á Bylgjunni
þá vom aðeins tveir gjaldkerar af
fímm að störfum. Þegar Víkveiji
hafði beðið í upp undir hálfa klukku-
stund eftir afgreiðslu og loks kom-
izt að, kvartaði hann að sjálfsögðu
við gjaldkerann, sem sagði að því
miður yrðu gjaldkerarnir að skipta
sér niður í matmálstíma og ekkert
afleysingafólk hefði fengizt í úti-
búið í sumar. Því væri ástandið með
þessum hætti.
Þetta er auðvitað óþolandi fram-
koma Landsbankans. Obbinn af
þeim sem þurfa að fara í banka og
eru vinnandi koma auðvitað í mat-
málstímanum, því að fólk hefur
þegar selt annan tíma vinnuveit-
anda sínum. Því verður bankinn að
sjá til þess að allar gjaldkerastúk-
urnar séu mannaðar á matmálstím-
um. Það er ekki hægt að láta fólk
hanga meirihlutann af matartíman-
um í langri biðröð í banka. Biðraða-
menningin í bönkum er að slá út
biðraðamenninguna í Sovétríkjun-
um, sællar minningar.
Þegar Víkveiji var svo loksins
kominn að og hafði verið afgreidd-
ur, vantaði hann ávísanahefti. Þá
hófst ný bið, eftir að stúlkan þar
gæti afgreitt nýtt hefti. Ef Lands-
bankinn hefði númerakerfi, eins og
raunar Búnaðarbankinn hefur
löngu fundið upp í Kringlunni, hefði
Víkveiji getað keypt heftið á meðan
hann hékk í biðröðinni mest allan
matartímann.
Landsbankinn ætti að taka sér
tak og sýna svolitla þjónustulund.