Morgunblaðið - 31.08.1993, Síða 1
64 SIÐURB
195. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ísraelar samþykkja drög að tímamótasamkomulagi við PLO, Frelsissamtök Palestínumanna
Palestmumenn fái sjálfstjóm
á Gaza-svæðinu og í Jeríkó
# ^ ^ xvculci
Friður í augsyn
SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, flutti mjög tilfinningaþrungna ræðu um samkomulagsdrögin
við PLO á ísraelska þinginu í gær. Sagði hann nú hilla undir „upphafið að endalokum 100 ára ófriðar
milli gyðinga og Palestínumanna. Þeir eru menn eins og við og við viljum búa með þeim í friði“.
Frakkar ráða ekki við lífeyrisgreiðslurnar
Veruleg breyting á
eftirlaunakerfinu
París. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Frakklandi hafa breytt verulega reglum um almenn-
an Hfeyri eða eftirlaun og verða nú þeir, sem fæddir eru eftir 1948,
að vinna meira og lengur fyrir Iífeyrisréttindunum en þeir, sem eldri
eru. Verkalýðsfélög og vinstriflokkar í Frakklandi hafa ekki sagt
aukatekið orð um skerðinguna enda vita allir, að kerfið stefnir í gjald-
þrot, réttindin hafa verið miklu rausnarlegri en sjóðirnar standa undir.
Það er síður en svo, að ríkisstjórn
Edouards Balladurs sé sökuð um að
eyðileggja velferðarkerfið með
breytingum á lífeyriskerfinu, þvert
á móti er henni hrósað jafnt frá
vinstri sem hægri fyrir að hafa unn-
ið mikinn varnarsigur í þágu þess.
„Ríkisstjórnin hefur sýnt af sér ein-
stakt pólitískt hugrekki," sagði
hægriblaðið Le Figaro og vinstri-
blaðið Liberation sagði, að um væri
að ræða mesta afrek Balladur-
stjórnarinnar enn sem komið væri í
efnahags- og þjóðfélagsmálum.
„Bestu árunum“ fjölgað
Með breytingunum verða menn
að hafa unnið í 40 ár í stað 37,5
áður til að fá eftirlaun og fjöldi svo-
kallaðra „bestu ára“, sem eru höfð
til viðmiðunar eftirlaunagreiðslum,
eykst úr 10 í 25 ár.
Fyrrverandi ríkisstjórn sósíalista
og Francois Mitterrands forseta
ákvað 1983 að miða eftirlaunaaldur
við 60 ár og franska kerfið hefur
verið það örlátasta, sem þekkist. „Nú
er þessi hátimbraða bygging hrunin
án þess nokkur hafi æmt eða
skræmt,“ sagði Liberation og ástæð-
an er sú, að hallinn á eftiriaunakerf-
inu verður á milli 700 og 800 millj-
arðar kr. á næsta ári.
Bosníu tvískipt?
Genf. Reuter.
RADOVAN Karadzic, lciðtogi Serba í Bosníu, sagði í gær, að féllust
múslimar ekki á fyrirliggjandi tillögur um þrískiptingu landsins milli
þjóðarbrotanna, yrði því hugsanlega skipt í tvennt að lokum, milli
Serba og Króata.
Fulltrúar þjóðarbrotanna koma
saman í Genf í dag og munu þá skýra
út afstöðu sína til tillögunnar um
þrískiptingu landsins. Haft er eftir
heimildum innan Sameinuðu þjóð-
anna, að tilraunir til að breyta fyrir-
liggjandi tillögu muni líklega gera
friðarviðræðurnar að engu, fram-
lengja stríðið og gera hlutskipti músl-
ima enn verra að lokum. Serbar gefa
þó í skyn, að þeir séu tilbúnir til að
ræða smávægilegar breytingar en
þó aðeins eftir að samkomulag um
skiptinguna hafi verið undirritað.
Jcrúsalcm, Túnis. Reuter.
ÍSRAELSKA ríkisstjórnin samþykkti í gærkvöld drög að
samkomulagi um sjálfsljórn Palestínumanna á Gaza-svæð-
inu og í Jeríkóborg á Vesturbakkanum og síðar annars
staðar á Vesturbakkanum. ísraelskir ráðamenn kváðu nú
hilla undir frið eftir áratuga ófrið og ofbeldi og Bassam
Abu Sharif, pólitískur ráðgjafi Yassers Arafats, leiðtoga
PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, sagði, að „í dag er
fæðingardagur spámannsins. Eg vona, að hann verði einn-
ig að nýjum fæðingardegi palestínsku þjóðarinnar“. Þessum
sögulega áfanga hefur verið fagnað víða um heim en and-
stæðingar hans í ísrael efndu til mikilla mótmæla í Jerúsal-
em og harðlinumenn innan PLO hafa hótað að ráða Ara-
fat af dögum.
Mótmæli í Jerúsalem
TIL átaka kom í Jerúsalem í gær þegar þúsundir
manna söfnuðust saman til að mótmæla samning-
um við PLO.
Samkomu-
lagsdrögin verða
lögð fram í frið-
arviðræðunum í
Washington í
dag og í gær var
haft eftir tals-
mönnum Palest-
ínumanna, að
þau yrðu kynnt
opinberlega inn-
an tveggja sólar-
hringa. Þau náð-
ust á 14 leynileg-
um fundum með
fulltrúum ísraela
og PLO og fyrir
milligöngu Norð-
manna, einkum
norska utanríkis-
ráðherrans, Jo-
hans Jörgens
Holsts.
Shimon Peres,
utanríkisráð-
herra ísraels,
sem talinn er helsti höfundur sam-
komulagsdraganna, sagði í gær,
að ísraelar gætu viðurkennt PLO
að því tilskildu, að samtökin höfn-
uðu því markmiði að uppræta ísra-
elsríki, viðurkenndu það formlega
og lýstu yfir andstöðu við hermdar-
verk.
Sjálfstætt ríki
Nissim Zvilli, framkvæmdastjóri
ísraelska Verkamannaflokksins,
sagði hins vegar, að viðurkenning
ísraela á PLO væri viðkvæmt mál
og því ekki rétt að hrapa að neinu
en kvaðst aftur á móti sjá fyrir sér
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum eft-
ir fimm ára sjálfstjórnartímabil.
Andstæðingar samkomulags-
draganna í Israel efndu til mót-
mæla í Jerúsalem í gær og Benjam-
in Netanyahu, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar, hét að fella stjórnina á
þingi. Palestínskir harðlínumenn
eru einnig ævareiðir og skæruliða-
foringinn Ahmed Jibril hótaði að
ráða Arafat af dögum gengi hann
til samninga.
Samkomulagsdrögin
Helstu atriði bráðabirgðasam-
komulagsins um sjálfstjórn Palest-
ínumanna eru, að sögn Reuters:
• Sjálfstjórnin verður fyrst bund-
in við Gaza-svæðið og Jeríkóborg
á Vesturbakkanum. Palestínu-
menn munu annast öryggis- og
löggæslu.
• Annars staðar á Vestur-
bakkanum verður valdsvið Palest-
ínumanna aukið fljótlega og þeir
munu taka við stjórn heilbrigðis-,
mennta-, félags-, menningar- og
ferðamála og hugsanlega fleiri.
• ísraelskur her verður fluttur
til umsaminna svæða, burt frá öll-
um byggðakjörnum Palestínu-
manna, en mun áfram gæta ný-
byggða gyðinga í útjaðri Jeríkó og
Gaza.
Betleliem verði höfuðborg
• ísraelar munu gæta landamær-
anna við Egyptaland á Gaza og
Allenby-brúarinnar við Jeríkó en
hún tengir Vesturbakkann og
Jórdaníu.
• Staða Jerúsalemborgar verður
rædd eftir tvö ár þegar lokaviðræð-
ur um hernumdu svæðin heíjast.
• Palestínumenn munu kjósa sér-
stakt sjálfstjórnarráð ekki síðar en
níu mánuðum eftir undirritun
bráðabirgðasamkomulagsins og
verður aðsetur þess í Betlehem.
Sjá „Samkomulagsdrög ...“ á
bls. 26.